Morgunblaðið - 20.06.2003, Side 44
44 FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
ÉG las í Morgunblaðinu á Netinu
að skrúðgangan hefði lagt af stað
frá Hlemmi um tvöleytið á þjóðhá-
tíðardaginn í rigningu og datt þá í
hug að skrifa nokkrar línur.
Þegar landinn er búsettur er-
lendis hefur maður ekki þau hlunn-
indi að eiga frí 17. júní og vekur
það oft hugleiðingar um hvað best
sé að gera. Beri hann upp á virkan
dag, eins og í dag, er fólk að vinna
og hefur litla krafta eftir til að
skemmta sér að vinnudegi loknum.
Þá er bara einn hlut að gera og
það er að flytja þjóðhátíðardaginn
og var það gert hér í Gautaborg
svo okkar hátíðarhöld fóru fram á
laugardaginn. Eins og sjá má á
meðfylgjandi mynd var farið í
skrúðgöngu í fínu veðri og voru
þar um 150 manns samankomnir.
Að lokinni skrúðgöngu flutti ís-
lenski kórinn í Gautaborg nokkur
lög, ávarp fjallkonu var flutt af
Ingibjörgu Gísladóttur, svo var
meiri tónlist, leikir fyrir börnin,
tvær 12 ára stelpur fluttu eitt lag
og svo flutti hljómsveitin Neisti
nokkur þjóðleg lög. Að sjálfsögðu
var íslenskt sælgæti, malt og app-
elsín þar til sölu landanum til mik-
illar ánægju. Um kvöldið var slegið
upp balli í húsnæði sænsk-íslenska
félagsins í Gautaborg. Svo allir
fengu sitt á þjóðhátíðardaginn þó
að við þyrftum að flytja hann að-
eins.
Kveðja frá Gautaborg.
BIRNA ÁGÚSTSDÓTTIR,
Grevegårdsvägen 2,
421 61 V. Frölunda.
Þjóðhátíðardagur-
inn í Gautaborg
Frá Birnu Ágústsdóttur:
Í KVÖLDFRÉTTUM sjónvarps 15.
júní sl. var sagt frá því að 65% slysa í
umferðinni væru af völdum aldraðra
og ástæðan hraðakstur og sjónleysi.
Það kom mér svo sem ekki á óvart að
nasískur áróður hæfist gegn öldruð-
um. Það er fullkomlega í anda ríkis-
stjórnar. Það sem vekur mesta furðu
mína er hve margir af þessum sjón-
lausu ellilífeyrisþegum eru unglegir í
útliti. Það er t.d. verið að breyta
gatnamótunum á Stekkjarbakka og
Reykjanesbraut og þar er 50 km há-
markshraði. Á þessum kafla þeytast
þessir ungæðislegu öldungar
framhjá á um og yfir 100 km hraða
án þess að sjá skiltin. Ég fór vestur í
Ísafjarðardjúp um hvítasunnuna og
á þeirri leið þeyttust þessir unglegu
öldungar á ofsahraða og sáu engin
hraðatakmörkunarmerki og ekki
einu sinni heilu línuna á miðjum veg-
inum. Til að losa unga ökumenn við
það mikla óorð sem unglegir öldung-
ar hafa sett á þá, teldi ég rétt að
kannað væri hvort þeir noti andlits-
grímu til að villa á sér heimildir.
Annars er ég þeirrar skoðunar að
sá sem hefur orðið það slæma sjón að
hann sjái ekki umferðarmerki, fái
ekki læknisvottorð hjá augnlækni.
Ég tel einnig að vandi okkar í um-
ferðinni sé ekki sjónleysi öldunga,
heldur fyrst og fremst botnlaus yfir-
gangsfrekja og virðingarleysi fyrir
lögum og reglum.
Einnig tel ég að ökumenn sem eru
búnir að aka bíl í um 40–50 ár, þurfi
ekki að nota umferðarmerki mikið til
að komast leiðar sinnar sómasam-
lega.
En það er svo sem ekki bannað að
menn styðji vini sína.
GUÐVARÐUR JÓNSSON,
Hamrabergi 5,
111 Reykjavík.
Enn um akstur
aldraðra
Frá Guðvarði Jónssyni: