Morgunblaðið - 20.06.2003, Blaðsíða 49
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ 2003 49
LEK - golfmót
á Hvaleyrarvelli
Sunnudaginn 22. júní verður Lek golfmót
á Hvaleyrarvelli í Hafnarfirði.
Keppt verður í flokkum karla 50-54 ára, 55 ára og eldri,
70 ára og eldri og kvenna 50 ára og eldri.
Leikinn verður höggleikur með og án forgjafar.
Skráning á golf.is og í síma 555 3360.
BLIKASTÚLKUR gerðu sér daga-
mun í gærkvöld þegar þær unnu Val í
Landsbankadeild kvenna, þær voru
allar með bleika borða í hárinu í til-
efni kvennadagsins.
FRAKKAR tryggðu sér í fyrra-
kvöld sæti í úrslitakeppni EM í hand-
knattleik karla sem fram fer í Slóv-
eníu í janúar á næsta ári. Frakkar
báru sigurorð af Grikkjum, 26:19, í
Marseille í síðari leik liðanna í um-
spili eftir að hafa haft betur í fyrri
leiknum í Grikklandi um síðustu
helgi, 27:17.
SPÁNVERJAR höfðu áður tryggt
sér farseðilinn til Slóveníu með
tveimur sigrum á Litháum og þar
með eru átta þjóðir öruggar á EM.
Þetta eru auk Frakka og Spánverja
gestgjafar Slóvena og þjóðirnar sem
lentu í fimm efstu sætunum á EM í
Svíþjóð í fyrra, Svíar, Þjóðverjar,
Danir, Íslendingar og Rússar.
JAMES O’Connor, miðjumaður
hjá Stoke, hefur hafnað tilboði fé-
lagsins um nýjan samning.
DAVID Beckham bað leikmenn
Real Madrid afsökunar í gær á því að
félagaskipti hans frá United til Madr-
id færu fram nokkrum dögum fyrir
lokaumferðina í spænsku úrvals-
deildinni. „Ég vil alls ekki trufla leik-
menn liðsins og ég óska þeim góðs
gengis í lokaleiknum á sunnudaginn
og ég vona að Madrid tryggi sér tit-
ilinn,“ sagði Beckham. Real Madrid
er með tveggja stiga forystu á toppi
deildarinnar fyrir lokaumferðina.
OLEG Romantsev, þjálfara rúss-
neska knattspyrnuliðsins Spartak
Moskva, var í gær vikið frá störfum.
Liðinu hefur gengið afleitlega og er í
tólfta sæti með 13 stig eftir tólf um-
ferðir sem er slakasta byrjun liðsins
frá upphafi.
ROMANTSEV hefur þjálfað lið
Spartak Moskvu frá því Sovétríkin
sálugu gliðnuðu í sundur og undir
hans stjórn hefur liðið hampað níu
meistaratitlum.
SPÆNSKA knattspyrnuliði
Sevilla hefur lýst yfir áhuga á að
kaupa Úrugvæann Diego Forlan frá
Manchester United. Alex Ferguson
keypti framherjann hárprúða fyrir
tveimur árum en hann hefur ekki náð
að heilla knattspyrnustjórann.
FÓLK
ÚRVALSDEILDARLIÐ KA í knatt-
spyrnu fór í gær til Bosníu-
Hersegóvínu, en liðið leikur gegn
Sloboda Tuzla á laugardaginn
kemur kl. 19 að staðartíma í Int-
ertoto-keppninni. Síðari leikur lið-
anna verður að viku liðinni á Ak-
ureyri. Það lið sem kemst áfram í
keppninni mætir belgíska liðinu
Lierse eða Encamp frá Andorra í
næstu umferð.
KA-menn flugu frá Akureyri til
Kaupmannahafnar og þaðan til
Sarajevo með millilendingu í Vín.
Frá Sarajevo er um tveggja stunda
akstur til borgarinnar Tuzla sem er
borg með svipaðan íbúafjölda og
Reykjavíkursvæðið. KA-menn koma
aftur til Akureyrar á mánudag.
KA-menn eiga stranga ferð fyrir
höndum og í ofanálag er hitinn á
þessum slóðum um 30 gráður sem
eru ekki kjöraðstæður fyrir íslenska
knattspyrnumenn.
KA-menn búast við strangri ör-
yggisgæslu í Bosníu umfram það
sem venjulega er, þar sem Jóhannes
Páll páfi er væntanlegur til landsins
á sunnudag, en um 15% þeirra fjög-
urra milljóna sem í landinu búa eru
kaþólskrar trúar.
Um möguleika KA til að ná fram
hagstæðum úrslitum er ekki gott að
segja. KA-menn hafa afar takmark-
aðar upplýsingar um lið Sloboda, en
það varð í 6. sæti deildakeppninnar
sem lauk fyrir skömmu. Liðið endaði
28 stigum á eftir meisturum Leotar
en var aðeins fjórum stigum á undan
liðinu sem hafnaði í 16. sæti deild-
arinnar.
Þess má geta að Skagamenn léku í
fyrra gegn þáverandi Bosníu-
meisturum, Zeljeznicar, í forkeppni
Meistaradeildar Evrópu. Skagamenn
töpuðu báðum leikjunum, ytra með
þremur mörkum gegn engu og
heima með einu marki gegn engu.
KA fer með sitt sterkasta lið til
Bosníu; allir sem hafa spilað með í
úrvalsdeildinni í sumar eru leikfærir.
KA-menn eru mættir til
Evrópuleiks í Bosníu
BIRGIR Leifur Hafþórsson, kylf-
ingur úr GKG, lék í gær á einu
höggi undir pari á áskorendamóti
í Lúxemborg, kom inn á 71 höggi
en þeir sem best léku í gær voru á
9 höggum undir pari, fékk þrjá
fugla, 13 pör og tvo skolla. Þetta
dugði honum til að vera í kring
um 60. sæti af 195 keppendum.
Þórður Emil Ólafsson, sem
starfar í Lúxemborg, tók þátt í úr-
tökumóti þar og tryggði sér rétt
til að keppa á mótinu. Honum
gekk ekki vel í gær, lauk leik á 4
höggum yfir pari og er í kring um
140. sætið.
Birgir Leifur
höggi
undir pari
ATTILA Mihalik, 22 ára knatt-
spyrnumaður frá Ungverjalandi,
kom til liðs við Þórsara á Ak-
ureyri í gær og er kominn með
leikheimild með þeim. Mihalik er
vinstrifótarleikmaður og getur
leikið bæði á miðju og í vörn.
„Við vitum lítið um þennan pilt
annað en það að hann hefur verið
á mála hjá Újpest í heimalandi
sínu, sem er ákveðinn gæðastimp-
ill, og svo er hann sagður svip-
aður eða betri en Forizs Sándor,
landi hans hjá Leiftri/Dalvík, og
sé það rétt erum við í góðum
málum,“ sagði Jónas Baldursson,
þjálfari Þórs, við Morgunblaðið í
gær.
Þórsarar hafa verið í miklum
vandræðum vegna meiðsla að
undanförnu. Hlynur Eiríksson,
Hörður Rúnarsson og Daði Krist-
jánsson hafa ekkert leikið á tíma-
bilinu en eru að verða leikfærir.
Hlynur Birgisson hefur misst
nokkuð úr og þá verða Orri
Hjaltalín og Arnljótur Ástvalds-
son ekki með í næstu leikjum.
„Ástandið er að batna, það
koma nokkrir inn í hópinn aftur
gegn Víkingi og síðan kemur allt-
af maður í manns stað. Það er
ekki víst að ég tefli Ungverjanum
fram strax í þessum leik,“ sagði
Jónas en Þór tekur á móti Vík-
ingi í 1. deildinni í kvöld.
Liðunum 20 sem fara í fyrstuumferðina er skipt í tvo flokka
og KR-ingar verða dregnir gegn
liði úr lakari flokknum. Þar getur
brugðið til beggja vona, þeir gætu
mætt kunningjum sínum í HB frá
Færeyjum, sem þeir unnu í meist-
arakeppni þjóðanna á KR-vellinum
í apríl, eða farið alla leið til Kas-
akstan eða Armeníu.
Liðin tíu sem KR getur mætt
eru eftirtalin:
Sliema, Möltu.
Barry Town, Wales.
Flora Tallinn, Eistlandi.
Borisov, Hvíta-Rússlandi.
Pyunik, Armeníu.
Glentoran, Norður-Írlandi.
SK Tirana, Albaníu.
HB, Færeyjum.
Grevenmacher, Lúxemborg.
Irtysh Pavlodar, Kasakstan.
KR-ingar hafa áður mætt Grev-
enmacher, árið 1995, og unnu þá
4:3 samanlagt.
Með KR í efri styrkleikaflokkum
eru eftirtalin lið: Omonia (Kýpur),
HJK (Finnlandi), Skonto (Lett-
landi), Dinamo Tbilisi (Georgíu),
Sheriff (Moldavíu), Leotar (Bosn-
íu), FBK Kaunas (Litháen), Bo-
hemians (Írlandi) og Vardar
Skopje (Makedóníu).
Í dag verður einnig dregið til 2.
umferðar en þar bætast við eft-
irtalin félög sem mögulegir mót-
herjar KR-inga, komist þeir áfram
úr 1. umferðinni:
CSKA (Rússlandi), Shakhtar
(Úkraínu), Grazer AK (Austur-
ríki), Maccabi Tel-Aviv (Ísrael),
Dinamo Zagreb (Króatíu), Wisla
(Póllandi), FC København eða
Brøndby (Danmörku), Partizan
(Serbíu/Svart.), CSKA (Búlgaríu)
og MTK Hungária (Ungverja-
landi).
Leikir 1. umferðar fara fram
dagana 16. og 23. júlí og 2. umferð-
in er leikin 30. júlí og 6. ágúst.
KR til
Kasakst-
an eða
Færeyja?
Morgunblaðið/Kristinn
Veigar Páll Gunnarsson og samherjar í KR fá að vita árdegis
hvern þeir kljást við í forkeppni Meistaradeildar Evrópu.
Í DAG verður dregið um hvaða lið mætast í fyrstu umferð forkeppn-
innar fyrir Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu 2003–2004. KR-
ingar, Íslandsmeistararnir frá 2002, eru fulltrúar Íslands, og þeir
eru í efri styrkleikaflokknum af tveimur í drættinum í dag.
Ungverji kominn
til Þórsara
ÁTTA fulltrúar frá þremur íslensk-
um knattspyrnufélögum eru staddir
í Nyon í Sviss en þar verður dregið
til fyrstu umferða í Meistaradeild
Evrópu og UEFA-bikarnum fyrir
hádegið í dag. Fjórir fulltrúar Fylkis
eru á staðnum, tveir frá KR og tveir
frá Grindavík, en Fylkir og Grinda-
vík fara í forkeppni UEFA-bikarsins
og KR í 1. umferð í forkeppni Meist-
aradeildar Evrópu.
Um mögulega mótherja KR er
fjallað hér í opnunni en þeir eiga
góða möguleika á að fá veikari and-
stæðinga. Fylkir og Grindavík eiga
hins vegar von á erfiðari mótherjum
en félögin eru í 55.–56. sæti á styrk-
leikalistanum yfir þau 82 lið sem
taka þátt í forkeppninni.
Í gær var dregið í riðla fyrir drátt-
inn og þar með liggur fyrir hverjir
mögulegir mótherjar Fylkis og
Grindavíkur eru.
Fylkir leikur gegn Varteks frá
Króatíu, Dundee frá Skotlandi, AIK
frá Svíþjóð eða „háttvísifulltrúa“
Danmerkur, sem væntanlega verður
Esbjerg, en skýrist ekki fyrr en í
lokaumferð dönsku úrvalsdeildar-
innar um helgina. Möguleikar Fylk-
ismanna á stuttu ferðalagi eru því 75
prósent.
Grindavík gæti mætt Kärnten frá
Austurríki, með Helga Kolviðsson
innanborðs, eða þá Neuchatel Xam-
ax frá Sviss, Dinamo Búkarest frá
Rúmeníu eða Viktoria Zizkov frá
Tékklandi. Það er því ljóst að
Grindavík þarf að fara til Mið- eða
Austur-Evrópu.
Betra útlit hjá Fylki
í UEFA-drættinum
ÞÓREY Edda Elísdóttir stökk 4,42
metra í stangarstökki á móti í
Weissach, smábæ skammt frá Stutt-
gart, í Þýskalandi í gærkvöldi og
hafnaði í fjórða sæti. Reyndar
stukku þeir þrír keppendur sem á
undan Þóreyju voru sömu hæð en
notuðu til þess færri tilraunir og
réði það úrslitum. Þetta er næst-
besti árangur Þóreyjar í stang-
arstökki í sumar.
Yvonne Buschbaum, Þýskalandi,
varð í fyrsta sæti og landa hennar,
Carolin Hingst, hafnaði í öðru sæti.
Elena Belyakova, Rússlandi, hreppti
þriðja sætið. Næst á eftir Þóreyju
varð Nastja Risich, Þýskalandi,
stökk 4,32 og sjötta sætið kom í hlut
Anzhelu Balakhanovu frá Úkraínu.
Þórey Edda
stökk 4,42