Morgunblaðið - 20.06.2003, Page 51
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ 2003 51
Fyrsta markið kom á 22. mínútuog þar var að verki Gunnar
Heiðar Þorvaldsson sem átti eftir að
skora tvö mörk til
viðbótar og áður en
flautað var til leiks-
loka skoruðu Stein-
grímur Jóhannesson
og Unnar Hólm sitt markið hvor og
5:0 sigur Eyjamanna var staðreynd.
Er ÍBV nú í 2. til 4. sæti deildarinnar
með níu stig eftir heldur slaka byrj-
un.
Steinar Guðgeirsson stjórnaði
Fram í sínum fyrsta leik og mátti bú-
ast við hörkuleik því Fram hefur
langt frá því staðið undir væntingum
og ÍBV hefur verið á góðri siglingu
eftir tap í fyrstu tveimur leikjunum.
Fyrri hálfleikur einkenndist af góðri
baráttu beggja liða en ÍBV náði þó
að skapa sér nokkur færi enda með
nokkuð sterka vestanátt í bakið.
Baráttan hélst út hálfleikinn en eng-
in urðu mörkin.
Í seinni hálfleik byrjuðu Framar-
ar með miklum látum og ætluðu
greinilega að nýta sér meðvindinn.
Fór leikurinn að mestu leyti fram á
vallarhelmingi heimamanna sem að
a.m.k. tvisvar sluppu með skrekkinn.
Hlutirnir fóru samt ekki að gerast
fyrir alvöru fyrr en með marki Gunn-
ars Heiðars um miðjan hálfleikinn.
Eftir það sáu Framarar aldrei til sól-
ar og ákveðnir Eyjamenn völtuðu yf-
ir þá hvað eftir annað og uppskáru
sanngjarnan fimm marka sigur.
Leikur ÍBV hefur verið stígandi í
síðustu þremur leikjum sem gefur
Eyjamönnum von um góðan árangur
í deildinni en Steinar Guðgeirsson á
mikið starf fyrir höndum að skapa
heilstætt lið en mannskapinn vantar
hann ekki.
Er alveg í skýjunum
Gunnar Heiðar Þorvaldsson var í
miklum ham í Eyjum í gærkvöld og
skoraði sína aðra þrennu í efstu
deild. „Þetta var alveg frábært, mað-
ur er alveg í skýjunum,“ sagði Gunn-
ar kampakátur í leikslok. „Okkur
fannst við vera þungir í byrjun og
náðum ekki upp nógu góðri baráttu í
fyrri hálfleik og við vorum ákveðnir í
að gera betur í þeim síðari. Það tókst
og við náðum upp baráttu og lögðum
okkur hundrað prósent fram og upp-
skárum fimm mörk og frábæran
hálfleik.“
Gunnar Heiðar sagði að án efa
væri þetta besti leikur liðsins í sum-
ar. „Fylkissigurinn var bara frat
miðað við þetta.“
Veit ekki hvað gerðist
Steinar Guðgeirsson stjórnaði
Fram-liðinu í sínum fyrsta leik og
fékk alls ekki þá byrjun sem hann
hafði óskað sér. „Nei, það er alveg
ljóst að þetta var engin óskabyrjun
hjá mér,“ sagði Steinar þungur á
brún í leikslok.
„Við lékum á móti vindinum í fyrri
hálfleik og þá fannst mér við spila
ágætlega. Við héldum boltanum
niðri og létum hann ganga eins og
lagt var upp með og við ætluðum
okkur að halda því áfram í síðari
hálfleik.“
Steinar sagðist ekki skilja hvað
hafði gerst síðustu 35 mínúturnar í
leiknum. „Við verðum bara að skoða
það og það verður bara að koma í ljós
hvað klikkaði.“
Steinar var þó hvergi banginn og
sagði að hann hlakkaði til næsta
leiks, gegn FH. „Mér líst vel á alla
leiki.“
Morgunblaðið/Sigfús Gunnar
Atli Jóhannesson, ÍBV, og Ingvar Ólason, Fram, eigast við og Bjarni Geir Viðarsson fylgist með.
Stórsigur ÍBV
FRAMARAR sóttu ekki gull í greipar Eyjamanna þegar liðin mættust
á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum í gærkvöld. Eftir frekar bragð-
daufan og markalausan fyrri hálfleik þar sem heimamenn náðu að
skapa sér nokkur færi með vindinn í bakið var seinni hálfleikur
hreint frábær af hálfu gestgjafanna, sem skoruðu fimm sinnum áð-
ur en yfir lauk en gestirnir aldrei.
Sigursveinn
Þórðarson
skrifar
Leikskipulag: 4-4-2 Landsbankadeildin,
5. umferð. Hásteinsvöllur
Fimmtudaginn
19. júní 2003
Aðstæður:
Hvasst. 10 stiga hiti.
Áhorfendur: 400
Dómari:
Magnús Þórisson, Kefla-
vík, 4
Aðstoðardómarar:
Hans Scheving,
Einar Guðmundsson
Skot á mark: 19(10) - 7(3)
Hornspyrnur: 8 - 2
Rangstöður: 1 - 2
Leikskipulag: 4-5-1
Birkir Kristinsson M
Unnar Hólm Ólafsson M
Tom Betts
Tryggvi Bjarnason M
Hjalti Jónsson
Ian Jeffs
(Pétur Runólfsson 88.)
Bjarnólfur Lárusson
(Einar Hlöðver Sigurðsson 84.)
Bjarni Geir Viðarsson
Atli Jóhannsson MM
Steingrímur Jóhannesson M
Gunnar Heiðar Þorvaldsson MM
(Bjarni Rúnar Einarsson 88.)
Gunnar Sigurðsson
Ragnar Árnason
Eggert Stefánsson M
Bjarni Hólm Aðalsteinsson
Gunnar Þór Gunnarsson
(Ómar Hákonarson 75.)
Daði Guðmundsson M
Ágúst Gylfason M
Freyr Karlsson
(Viðar Guðjónsson 69.)
Ingvar Ólason
Andri Fannar Ottósson
Kristján Brooks
(Guðmundur Steinarsson 55.)
1:0 (67.) Bjarni Geir Viðarsson sendi knöttinn inn fyrir vörn Fram, Steingrímur
náði knettinum við endalínu, sendi fyrir og þar kom Gunnar Heiðar
Þorvaldsson aðvífandi, átti skot að marki, Gunnar Sigurðsson varði
en Gunnar Heiðar fylgdi vel á eftir og skoraði.
2:0 (73.) Bjarnólfur Lárusson tók hornspyrnu frá vinstri, sendi góða spyrnu fyrir
þar sem Gunnar Heiðar Þorvaldsson stökk upp einn og óvaldaður og
skallaði knöttinn í netið.
3:0 (83.) Eftir mikinn barning fyrir framan vítateig Fram barst boltinn til Bjarna
Geirs Viðarssonar sem skallaði boltann inn fyrir vörn Fram, Gunnar
Heiðar Þorvaldsson var fyrstur í boltann og sendi knöttinn snyrtilega
yfir Gunnar Sigurðsson í marki Fram
4:0 (86.) Atli Jóhannsson átti glæsilega stungusendingu inn á Steingrím Jó-
hannesson sem hljóp varnarmenn Fram af sér og afgreiddi knöttinn í
netið framhjá Gunnari í markinu.
5:0 (91.) Bjarni Rúnar Einarsson vann knöttinn á miðjum vallarhelmingi Fram,
sendi knöttinn inn fyrir vörn Fram þar sem Unnar Hólm Ólafsson kom
aðvífandi og hamraði knöttinn í fjærhornið, óverjandi fyrir Gunnar í
markinu.
Gul spjöld: Bjarnólfur Lárusson, ÍBV (40.) fyrir brot.
Freyr Karlsson, Fram (52.) fyrir brot.
Rauð spjöld: Engin
ÍBV 5:0 Fram
JÓNAS Þórhallsson, formaður
knattspyrnudeildar Grindavíkur,
sagði í samtali við Morgunblaðið í
gær að ekki væru neinar hug-
myndir uppi hjá stjórn deild-
arinnar um að segja Bjarna Jó-
hannssyni, þjálfara liðsins, upp
störfum í kjölfar slakrar byrjunar
Grindavíkurliðsins á leiktíðinni
en eftir fimm fyrstu umferðirnar
í Landsbankadeildinni er upp-
skera Suðurnesjaliðsins aðeins
þrjú stig.
„Það er auðvitað eðlilegt að
svona spurningar vakni en við í
stjórn knattspyrnudeildar
Grindavíkur höfum ekkert velt
því upp á borðið hjá okkur að
segja Bjarna upp. Grindvík hefur
aldrei rekið þjálfara sinn og það
er ekkert í kortunum eins og er
að þar verði breyting á.
Svo er bara spurningin hvernig
líðanin er hjá Bjarna sjálfum.
Óneitanlega er mikil pressa á
honum en það eru ekki nema
fimm umferðir búnar af mótinu
svo við erum ekkert farnir að ör-
vænta þó svo að við séum auðvit-
að hundsvekktir með árang-
urinn,“ sagði Jónas sem staddur
er í Genf í Sviss til að vera við-
staddur dráttinn í Evrópukeppn-
inni í dag, en Grindvíkingar leika
í UEFA-keppninni í fyrsta sinn í
ár.
Leitað að liðstyrk
Jónas segir að hann og fleiri
hafi undanfarnar vikur verið að
leita að leikmanni til þess að
styrkja liðið en sú leit hafi ekki
borið árangur. Keflvíkingurinn
Þórarinn Kristjánsson, Þórsarinn
Orri Freyr Hjaltalín og Fær-
eyingurinn Jakob á Borg voru
leikmenn sem Grindvíkingar
reyndu að fá en tókst ekki.
Stendur ekki til að
segja Bjarna upp