Morgunblaðið - 20.06.2003, Side 53
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ 2003 53
UNDANFARIN tvö sumur hafa Páll ÓskarHjálmtýsson söngvari og Monika Abendrothhörpuleikari haldið sólstöðutónleika álengsta degi ársins í Grasagarði Reykjavík-
ur. Á morgun, laugardag, ætla þau að endurtaka leikinn
og að þessu sinni bæta við þriðja manni: „Nú ætlum við
að tékka á því hvernig stóra systir passar við hljóminn,“
segir Páll Óskar og vísar til Diddúar, Sigrúnar Hjálm-
týsdóttur.
Allt smellpassaði
Samstarf þeirra Páls og Moniku hefur nú staðið vel á
þriðja ár, en þau hittust fyrst í afmælisveislu og hófu að
vinna saman þegar góðvinur þeirra Hreiðar Ingi Þor-
steinsson tónskáld átti afmæli, en þá brugðu þau á leik
og fluttu nokkur lög hans.
„Við prófuðum að taka nokkur lög saman, og allt
smellpassaði,“ segir Páll. „Hljómurinn í okkur báðum
átti vel saman og tónlistarlega smullum við saman strax
á staðnum. Ýmislegt hefur gerst síðan: Við höfum spilað
saman út um landið þvert og endilangt, gefið út plötu og
erum ekki síst orðnir miklir vinir og félagar.“ En þau
Páll og Mónika gáfu út plötuna Ef ég sofna ekki nótt
haustið 2001.
„Okkar jómfrútónleikar voru í gróðurhúsinu í Grasa-
garðinum á þessum sama degi og við gerum þetta núna í
þriðja sinn enda líður okkur svo vel þarna, í gróðurhúsi
innan um plönturnar og með þessa ljúfu tónlist. Það er
hálfpartinn himneskt að fylgja tónleikagestunum inn í
sumarnóttina með þessum hætti.“
Ólíkar raddir
Sem fyrr segir verður Diddú með á þessum tónleikum
en Páll segir að þau systkinin taki væntanlega þrjá dú-
etta saman auk þess að Diddú syngur nokkur lög ein við
undirspil Moniku.
Þótt þau Diddú og Páll séu bæði atvinnusöngvarar
hafa þau sjaldan áður sungið saman: „Það má í raun telja
þau skipti á fingrum annarrar handar, “ segir Páll.
„Ýmsar ástæður eru fyrir því. Þannig er til dæmis að við
Diddú höfum mjög ólíkar raddir og ekki heiglum hent að
finna lög sem passa okkur báðum. Ef við höfum sungið
saman þá hefur það oft verið þannig að annað okkar hef-
ur ekki getað sýnt sínar bestu hliðar. Við höfum nú leyst
það vandamál, enda fórum við á stúfana og létum ein-
faldlega klæðskerasníða lög fyrir okkur,“ bætir Páll við
hlæjandi.
Hátíðleg jólaplata
Páll segir væntanlega plötu frá þeim Móniku þegar
nær dregur jólum og þar muni Diddú einnig syngja með
í nokkrum laganna. Að sögn Páls verður sú plata jóla-
plata en þó ekki dæmigerð sem slík og minni áhersla
lögð á jólasveina og jólagjafir en meiri á hina innri hátíð-
arupplifun.
Tónleikarnir á laugardag verða þó ekki jólatónleikar,
heldur munu þau Páll, Mónika og Diddú bæði flytja þau
lög sem þau hafa gert vinsælust saman en líka ný lög,
meðal annars eftir Hreiðar Inga Þorsteinsson.
Ólíkt því sem áður hefur verið verða aðeins haldnir
einir tónleikar og því sætaframboð enn minna en venju-
lega. Áhugasamir eru því hvattir til að tryggja sér miða í
tíma en miðar verða annars seldir við innganginn fyrir
tónleikana.
Páll Óskar og Monika Abendroth fá Diddú til liðs við sig á sólstöðutónleikum í Grasagarðinum
„Himneskt að fylgja
tónleikagestum inn í
sumarnóttina“
Morgunblaðið/Sverrir
Sungið og trallað við stofuborðið: Hún Diddú bætist nú við tvíeyki Páls og
Moniku en þau voru að æfa af kappi þegar ljósmyndara bar að garði.
Hýr á brá við hörpuslátt á lengsta degi ársins: Monika Abendroth og Sig-
rún og Páll Óskar Hjálmtýsbörn rýna í gegnum hörpustrengina.
Sólstöðutónleikarnir fara fram í Café Flóru í Grasagarði
Reykjavíkur laugardaginn 21. júní. Tónleikarnir hefjast
kl. 22.00 og kostar aðgöngumiðinn 1.500 kr.