Morgunblaðið - 20.06.2003, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ 2003 55
Andardráttur (Respiro)
Mynd sem er sterk, falleg, tilgerðarlaus og
nánast lifir eigin lífi, eins og hefðin er þegar
best tekst til í evrópskri kvikmyndagerð.
(H.L.) Háskólabíó.
Nói albínói
Frumleg og vel gerð mynd í alla staði sem
gerist í einangruðu sjávarþorpi þar sem
óvenjulegur uppreisnarmaður á í stríði við
menn og máttarvöld. Magnað byrjandaverk.
(S.V.) Háskólabíó.
X2
Frábærar tæknibrellur, viðunandi söguþráður
miðað við hasarblaðamyndir, ásamt góðum
leikurum og ábúðarmiklum persónum gera
mynd Singers að afbragðsafþreyingu. (S.V.)
Smárabíó.
Einkenni (Identity)
Unnið er skemmtilega með hrollvekjuhefðina
í þessari snjöllu kvikmynd með þeim John
Cusack, Ray Liotta og Amöndu Peet í aðal-
hlutverkum. Ómissandi fyrir aðdáendur
spennutrylla og frumlegra sögufléttna. (H.J.)
Smárabíó, Regnboginn.
Eiturlyfjalögga (Narc)
Ein hrottalegasta mynd síðari ára dregur upp
trúverðuga mynd af því jarðneska víti sem
blasir við lögreglumönnum og þeirra nán-
ustu á hverjum degi. Ray Liotta fer á kostum.
(S.V.) Borgarbíó.
Þeir (They)
STUNDUM virka ódýrar B-hrollvekjur eins og
þessi margfalt betur en tugmilljóndala pen-
ingaaustur á borð við Reimleikana (The Haunting)
eftir Jan de Bont. Stígandin góð en engin
tímómótamynd þó.(S.V.) Regnboginn.
Abrafax og sjóræningjarnir
Krakkarnir í Abrafax lenda í rosalegum æv-
intýrum. (H.L.) ½
Laugarásbíó.
Að hrekja burt gæja á 10
dögum
(How to Lose a Guy in 10
Days)
Hugmyndin að þessari rómantísku gaman-
mynd er sniðug en langsótt. Bráðskemmtileg
á köflum en lendir í vandræðum í lokin.
(H.J.) Háskólabíó.
Didda og dauði kötturinn
Didda er níu ára gömul Keflavíkurmær sem
gengur á milli bols og höfuðs á glæpalýð í
Bítlabænum. Góður leikur, hollt, gott og
gamaldags barnagaman. (S.V.) Sambíóin.
Ungi njósnarinn (Agent Cody
Banks)
Fyrir foreldra er Ungi spæjarinn alls ekki með því
verra sem þeir sitja yfir, og fyrir unga krakka,
8–14 ára, er myndin bara besta skemmtun.
(H.L.) Smárabíó, Laugarásbíó.
Af gamla skólanum
(Old School)
Gamanmynd sem byrjar í skemmtilega kald-
hæðnislegum tóni, en hneigist um of til
staðlaðra aulabrandara. (H.J.) Háskólabíó.
Allt að verða vitlaust
(Bringing Down the House)
Klaufaleg gamanmynd þar sem tilraunir til
að stefna saman ólíkum menningarheimum
reynast innantómar. Leikararnir Steve Mart-
in, Queen Latifah og Eugene Levy standa sig
þó vel. (H.J.) Sambíóin.
Kengúru-Kalli
(Kangaroo Jack)
Eins brandara, fjölskylduvæn Bruckheimer-
mynd um þjófótta kengúru og tvo hrakfalla-
bálka. Fyrir smáfólkið. (S.V.) Sambíóin.
Jói enski (Johnny English)
Atkinson skemmtilegur að vanda í Clouseau-
stellingum í Bond-gríni sem skortir lokafín-
pússningu. (S.V.) Sambíóin, Háskólabíó.
Kalli á þakinu
Ágætis smábarnamynd gerð eftir sögu Astrid
Lindgren, um skemmtilegan karl sem kann
að fljúga. Handbragðið er ágætt en myndin
er ekki jafngóð og bækurnar. (H.L.) Laugarásbíó.
Matrix endurhlaðið
(The Matrix Reloaded)
Á heildina litið er Matrix endurhlaðið langt
frá því að vera jafn heilsteypt, öguð og hug-
vekjandi og forverinn. (H.J.) Sambíóin, Rafeind á Egilsstöðum og
Bíóhöllin á Akranesi.
Reiðistjórnun
(Anger Management)
Sandler kominn í gamla góða formið. Gamli
góði Nicholson hinsvegar víðsfjarri í hug-
myndasnauðari en ágætis dægrastyttingu.
(H.L.) Smárabíó, Regnboginn, Laugarásbíó,
Borgarbíó.
Of fljót og fífldjörf (2 Fast 2
Furious)
Tíðar gírskiptingar og túrbóstillingar virðast
eiga að skapa tilfinningu fyrir hraða og
spennu, en þetta verður fljótt leiðigjarnt. Eftir
situr aðeins pirringur í garð þeirrar vanvita-
legu ranghugmyndar sem liggur myndinni til
grundvallar, þ.e. að bílar séu leikföng.
(H.J.) Sambíóin, Háskólabíó, Laugarásbíó.
Töfrabúðingurinn
Byggð á gömlu áströlsku ævintýri, ekkert
stórkostlegt listaverk, hún er lítil og bara
ansi lífleg og hjartnæm teiknimynd. (H.L.)
Smárabíó, Borgarbíó.
Myrkravík (Darkness Falls)
Hrollvekja sem nærist á öllum gömlu tugg-
unum og notar þær á heimskulegan og úr-
sérgenginn máta. Einkar slöpp tilraun til
hryllingsmyndagerðar. (H.J.)
Borgarbíó.
BÍÓIN Í BORGINNI
Sæbjörn Valdimarsson/Hildur Loftsdóttir/Heiða Jóhannsdóttir
Meistaraverk Ómissandi Miðjumoð Tímasóun 0 Botninn
Þeir nálgast: Stundum eru B-myndir betur lukkaðar en rándýrar og innan-
tómar A-myndir.
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
www.regnboginn.is
Kvikmyndir.com
X-ið 977
HJ MBL
HK DV
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i.16
YFIR 17.000 GESTIR!
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 16
Martröðin er raunveruleg!
Ertu
myrkfælin?
Þú ættir að
vera það.
Mögnuð
hrollvekja!
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Ef þú hélst að þú værir heimskur,
þá hefurðu ekki hitt Harry og Lloyd.
Þeir eru komnir aftur,
heimskari en nokkru sinni
fyrr í geggjaðri grínmynd!
FRUMSÝNING
! "# ! $%
!
! "
#
$
%
www.laugarasbio.is
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
Fyndnasta myndin
sem þú sérð á árinu!
Losaðu þig við reiðina
og hlæðu
þig máttlausan!
YFIR
17.000
GESTIR!
NICHOLSON SANDLER
Frábær
njósnamynd
fyrir alla
fjölskylduna
með
hinum
vinsæla
Frankie Muniz
úr Malcolm
in the Middle
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
Ef þú hélst að þú værir heimskur,
þá hefurðu ekki hitt Harry og Lloyd.
Þeir eru komnir aftur,
heimskari en nokkru sinni
fyrr í geggjaðri grínmynd!
FRUMSÝNING