Morgunblaðið - 02.07.2003, Síða 10
FRÉTTIR
10 MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ er lesið af ríf-
lega helmingi landsmanna eða
53,4% á hverjum degi samkvæmt
niðurstöðum fjölmiðlakönnunar
Gallup, sem var gerð vikuna 30.
maí til 5. júní. Í apríl mældist með-
allesturinn 52,3%.
Úrtak könnunarinnar var 800
manns á aldrinum 12 til 80 ára,
valdir með tilviljunaraðferð úr
þjóðskrá, og var svarhlutfall 62%,
en þátttakendur skráðu fjölmiðla-
notkun sína í dagbók.
Um þrír af hverjum fjórum þátt-
takendum eða 75,7% lásu eitthvað í
Morgunblaðinu í umræddri viku,
57,3% lásu eitthvað í DV og 89,8%
eitthvað í Fréttablaðinu. Í könn-
uninni í apríl, sem náði til rúmlega
1.600 manna úrtaks, voru samsvar-
andi tölur 73,2%, 44,8% og 82%, og
samkvæmt þessum niðurstöðum
hefur lestur dagblaða aukist með
hækkandi sól.
Að meðaltali lásu 53,4% Morg-
unblaðið á hverjum degi, 29,1% DV
og 65,9% Fréttablaðið. Mesti lestur
á Morgunblaðinu og Fréttablaðinu
var á föstudegi en þá lásu 56,1%
Morgunblaðið og 67% Fréttablaðið.
DV var mest lesið á laugardegi en
þá lásu 35,6% blaðið.
Hafsteinn Már Einarsson hjá
Gallup segir að til hafi staðið að
greina fjölmiðlum formlega frá
þessum niðurstöðum í gær en
vegna mistaka í vinnslunni hafi
gögnin verið aðgengileg á heima-
síðu Gallup í einhvern tíma í fyrra-
kvöld. Þau birtust því í einhverjum
miðlum strax í gærmorgun. „Gögn-
in urðu sýnileg á netinu án okkar
vitneskju,“ segir hann og vísar þar
til mistaka starfsmanns við röðun
efnis inn á heimasíðuna.
!
"
!
"
"!
"
!
"
!
!
Aukinn lestur Morgunblaðsins
Niðurstöður fjölmiðlakönnunar Gallup í júní
ÞINGFLOKKUR Sam-
fylkingarinnar kom
saman í gær til þess að
fara yfir þá stöðu sem
komin er upp í varn-
arsamstarfi Íslands og
Bandaríkjanna. Bryn-
dís Hlöðversdóttir, for-
maður þingflokks Sam-
fylkingarinnar, segir að
á fundinum hafi komið
fram almenn ánægja
með það hvernig
fulltrúar flokksins í ut-
anríkismálanefnd hafi
staðið að málum. Hún
segir að flokkurinn
styðji af fullum hug
varnarsamstarf ríkjanna og honum
þyki miður hvernig ríkisstjórnin
hefur farið fram í þessu viðkvæma
máli.
„Við biðjum einfaldlega um sam-
ráð. Við höfum fullan skilning á
nauðsyn þess að einstaka þættir
sem varða þetta mál þurfi að vera
hjúpaðir trúnaði en verðum hins
vegar að geta fjallað um stöðu
málsins í heild og út á hvað við-
ræðurnar ganga,“ segir Bryndís.
Hún segir að einnig sé eðlilegt
að upplýsa almenning að einhverju
leyti um hvað sé í vændum. „Þetta
er stórt mál sem skiptir marga
máli. Ekki síst fólk á
Suðurnesjum sem
margt byggir af-
komu sína að stóru
leyti á veru Varnar-
liðsins hér,“ segir
Bryndís.
Blöskrar umræða
í fjölmiðlum
Hún segir að sér
þyki miður að málið
sé gert að pólítísku
bitbeini og sér hafi
blöskrað ýmislegt
sem fram hefur kom-
ið í fjölmiðlum af
hálfu fulltrúa ríkis-
stjórnarinnar. „Dóms- og kirkju-
málaráðherra ýjaði meðal annars
að því að Bandaríkjastjórn hefði
haft samráð um málið við stjórnar-
andstöðu fyrir kosningar. Þetta
eru auðvitað fráleitar dylgjur og
bera aðeins vott um vandræðagang
ríkisstjórnarinnar í málinu. Þá hef-
ur verið ýjað að leka í fjölmiðla frá
fulltrúum stjórnarandstöðunnar í
utanríkismálanefnd. Það er algjör
fásinna. Menn okkar hafa sinnt
þessu af mikilli eindrægni. Við höf-
um lýst yfir fullum trúnaði og
munum halda hann,“ segir Bryn-
dís.
Kalla á samráð
í varnarmálum
Þingmenn Samfylkingar funduðu í gær
Bryndís Hlöðversdóttir
LÍKT og nýrra dómsmálaráðherra
er siður, heimsótti Björn Bjarnason
embætti ríkislögreglustjóra á
mánudag og kynnti sér starfsem-
ina. Fór hann m.a. í höfuðstöðv-
arnar við Skúlagötu, bílamiðstöð
lögreglunnar í Borgartúni og fjar-
skiptamiðstöð lögreglu við Skóg-
arhlíð. Með honum á myndinni eru
(f.v.) Þórir Oddsson, vararíkislög-
reglustjóri, Jón F. Bjartmarz, yf-
irlögregluþjónn, Haraldur Johann-
essen, ríkislögreglustjóri og
Guðmundur Fylkisson, aðalvarð-
stjóri í fjarskiptamiðstöðinni.
Morgunblaðið/Júlíus
Ráðherra heimsækir lögreglu
FYRRUM sölumaður Kvóta- og
skipasölunnar ehf. hefur verið
dæmdur í sex mánaða fangelsi fyr-
ir að draga sér 2,7 milljónir sem
útgerðarmaður í Færeyjum lagði
inn á einkareikning hans og áttu
að ganga til kaupa á mótorbát.
Sölumaðurinn játaði á sig brotið
en sagði að það hafi ekki verið ætl-
un hans að draga sér þetta fé.
Þetta hafi farið svona vegna þess
að dregist hafi að ganga frá söl-
unni. Í dómnum kemur fram að
sölumaðurinn hafði áður hlotið tvo
dóma fyrir að hafa af mönnum fé
og rauf hann skilorð seinni dóms-
ins. Við ákvörðun refsingar var lit-
ið til þess að hann játaði brot sitt
og lagði fram gögn sem sýndu
fram á að hann hefur leitað sér
hjálpar vegna áfengis- og spila-
fíknar.
Arnfríður Einarsdóttir kvað upp
dóminn. Guðjón Magnússon sótti
málið f.h. lögreglustjórans í
Reykjavík en Guðmundur Ágústs-
son hdl. var til varnar.
Leitaði sér
hjálpar við
spilafíkn
Dæmdur fyrir fjárdrátt
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur sýknað tæplegan þrítugan
mann af ákæru um að hafa tvívegis
nauðgað fyrrum sambýliskonu sinni
á heimili hennar í Reykjavík í fyrra-
sumar. Hann var á hinn bóginn
dæmdur í þriggja mánaða skilorðs-
bundið fangelsi fyrir að stinga hana
með kjötgaffli í handlegginn.
Í niðurstöðu héraðsdóms segir að
ýmislegt, m.a. sms-skilaboð og sím-
hringingar konunnar til ákærða og
bein samskipti þeirra eftir hina
meintu nauðgun, séu til þess fallin að
rýra trúverðugleika frásagnar henn-
ar. Þá renni hvorki sýnileg sönnun-
argögn né framburður vitna stoðum
undir framburð hennar. Gegn ein-
dreginni neitun ákærða þótti ekki
komin fram lögfull sönnun um sekt.
Annað gilti um líkamsárásina með
kjötgafflinum.
Sigríður Jósefsdóttir saksóknari
sótti málið f.h. ríkissaksóknara en
Örn Clausen hrl. var til varnar. Hér-
aðsdómararnir Arnfríður Einars-
dóttir (dómsformaður), Jón Finn-
björnsson og Páll Þorsteinsson
kváðu upp dóminn.
Var sýkn-
aður af
ákæru um
nauðganir
Sigmundur
Ernir lætur
af störfum
hjá DV
SIGMUNDUR Ernir Rúnars-
son hefur látið af störfum sem
ritstjóri DV.
Sigmundur segir í viðtali við
DV að hann hafi ákveðið að
nota tækifærið og skipta um
starfsvettvang eftir að hafa
tekið þátt í að hrinda í fram-
kvæmd miklum breytingum
hjá blaðinu. Þessum breyting-
um sé nú lokið. Sigmundur seg-
ist ætla að helga sig ritstörfum
á næstunni.
FYLGI Samfylkingarinnar fer nið-
ur um fimm prósentustig frá því í
kosningunum í vor og fengi hún
tæplega 29% atkvæða ef kosið væri
til Alþingis í dag. Þetta kemur
fram í þjóðarpúlsi Gallup sem birt-
ist í gær. Samfylkingin hefur ekki
mælst með svo lítið fylgi síðan í
október 2002. Fylgi annarra flokka
fer lítillega upp á við.
Sjálfstæðisflokkurinn fengi ríf-
lega 34% ef kosið væri í dag, Fram-
sóknarflokkurinn rösklega 18%,
Vinstrihreyfingin – grænt fram-
boð, VG, rúmlega 10% og Frjáls-
lyndi flokkurinn rösklega 8% fylgi.
Samanlagt fylgi við ríkisstjórnar-
flokkana er því rúmlega 52% en
stuðningur við ríkisstjórnina
mælist 62% þegar spurt er um
hann sérstaklega.
Um 56% þjóðarinnar eru ánægð
með að Halldór Ásgrímsson, for-
maður Framsóknarflokksins, taki
við af Davíð Oddssyni forsætisráð-
herra í september á næsta ári. Hjá
Framsókn er ánægjan mest, eða
87%, hjá Sjálfstæðisflokki 61% og
hjá Samfylkingunni 54%. Um 44%
fylgismanna Frjálslynda flokksins
segjast ánægð en einungis 27%
fylgismanna VG.
Fólk á landsbyggðinni er ánægð-
ara með forsætisráðherraskiptin
en fólk í Reykjavík og nágrenni,
eða um 63% á móti um það bil
helmingi íbúa á höfuðborgar-
svæðinu. Munurinn milli karla og
kvenna reyndist hins vegar ekki
marktækur. Meirihluti þjóðarinnar
er ánægður með val á ráðherrum í
nýrri ríkisstjórn. Ánægjan er meiri
með ráðherra Framsóknarflokks-
ins, eða tæplega 63%, en tæplega
54% eru ánægð með val á ráðherr-
um Sjálfstæðisflokksins. Fylgis-
menn stjórnarflokkanna eru mis-
ánægðir með val á ráðherrum í
sínum flokki. Um 91% Framsókn-
armanna er ánægt en 82% Sjálf-
stæðisflokks.
Flestir óánægðir með val á
samgönguráðherra
Um 14% voru óánægð með val á
ráðherrum Framsóknarflokksins.
Óánægja með val á ráðherrum
Sjálfstæðisflokksins var hins vegar
22%. Þar af var stærsti hópurinn
óánægður með val á samgönguráð-
herra. Næstmest óánægja var með
valið á dómsmálaráðherra. Því
næst olli fæð kvenna í ríkisstjórn
óánægju en álíka mikil óánægja
kom fram með val á forsætisráð-
herra, sjávarútvegsráðherra og
menntamálaráðherra. Þeir sem
voru óánægðir með ráðherraskipan
Framsóknarflokks nefndu flestir
valið á félagsmálaráðherra og það
að Jónína Bjartmars væri ekki ráð-
herra.
Könnunin var gerð dagana 29.
maí til 25. júní. Í úrtakinu voru
2004 einstaklingar á aldrinum 18–
75 ára. Svarhlutfall var 67%.
Samfylkingin missir fylgi