Morgunblaðið - 02.07.2003, Blaðsíða 44
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Áskriftarsími 881 2060
Í FORMI
ÚTLIT er fyrir að birkifræ verði mikið í
haust en birkiblómgun var mun meiri í vor
en síðastliðin tvö ár. Landgræðsla ríkisins
hefur árlega safnað birkifræi úr skóg-
arreitum í nágrenni landgræðslusvæða og
notað til uppgræðslu.
Að sögn Sveins Runólfssonar land-
græðslustjóra má rekja aukninguna til
góðs veðurfars. „Þetta er mikið fagnaðar-
efni fyrir skógræktarfólk og við erum
bjartsýn fyrir haustið. Þegar við höfum
kannað gæði fræsins munum við leita til
áhugasams landbótafólks og reyna að
safna í sarpinn. Það er alls ekki sjálfgefið
að uppskeran verði eins góð á næsta ári,“
segir Sveinn.
Þegar fræinu hefur verið safnað saman
er hluti þess þurrkaður og settur í bakka.
Hluta fræsins verður hins vegar sáð jafn-
óðum í haust í svæði sem eru fjarri birki-
skógum. „Birkið dreifist ekki mjög langt
frá trjánum svo að við sáum í fleiri svæði
til að auka útbreiðsluna. Sprettutíðin hef-
ur verið góð það sem af er sumri svo það
er mjög gott hljóð í öllu landgræðslu- og
skógræktarfólki,“ segir Sveinn.
Morgunblaðið/RAX
Hugað að birkinu í Hafnarskógi.
Stefnir í góða
uppskeru á
birkifræi
ÞEGAR starfsfólk er ráðið í skóla,
leikskóla og íþrótta- og tóm-
stundastöðvar eru nýlegar heim-
ildir í barnaverndarlögum sjaldan
nýttar með því að leita eftir upp-
lýsingum úr sakaskrám um um-
sækjendur. Morgunblaðið kannaði
hvernig þessum málum er háttað
hjá Fræðslumiðstöð Reykjavíkur,
Íþrótta- og tómstundaráði Reykja-
víkur (ÍTR) og KFUM og KFUK.
Hjá ÍTR fengust þær upplýsingar
að til standi að endurskoða starfs-
reglur við ráðningar og fara fram á
sakavottorð frá umsækjendum.
Í 36. grein barnaverndarlaga
segir m.a. að yfirmenn skóla, leik-
skóla, sumardvalarheimila,
íþrótta- og tómstundamiðstöðva og
annarra staða þar sem börn koma
saman eða dveljast eigi rétt til
upplýsinga úr sakaskrá um hvort
umsækjendur hafi hlotið dóm
vegna brota á ákvæðum XXII.
kafla almennra hegningarlaga, að
fengnu samþykki umsækjandans.
Sakaskrá dugar ekki
Sr. Ólafur Jóhannsson, formað-
ur KFUM og KFUK, segir að
samtökin hafi ekki nýtt sér þessa
heimild við ráðningar starfsfólks.
„Við höfum ekki þurft á því að
halda,“ segir Ólafur og bendir á að
þeir þrír menn sem gerst hafi sek-
ir um brot í starfi hjá samtökunum
hafi ekki verið á sakaskrá. Hann
segir sakaskrána því ekki duga
eina og sér í svona tilvikum.
Sigríður Konráðsdóttir, sem
starfar við starfsmannaþjónustu
ÍTR, segir þessar nýlegu laga-
heimildir ekki hafa verið nýttar til
þessa. Samráð sé haft við
Fræðslumiðstöð Reykjavíkur og
aðra aðila ef uppi séu einhverjar
grunsemdir. Þetta hafi verið rætt
innan ÍTR en ákveðið að óska ekki
eftir sakavottorðum. Almennt er
ekki óskað eftir sakavottorðum við
ráðningar í grunnskólum í Reykja-
vík.
Sjaldan leitað eft-
ir sakavottorði
ÍSLANDSBANKI seldi í gær
4,58% hlut í Skeljungi hf. Bankinn
átti 9,52% fyrir viðskiptin en á nú
4,94% hlut. Samkvæmt til-
kynningu bankans var salan meðal
annars vegna uppgjörs á framvirk-
um samningi. Ekki hefur fengist
staðfest hver keypti bréfin eða á
hvaða gengi þau voru seld.
Í Kauphöll Íslands í gær voru
alls 21 viðskipti með bréf Skelj-
ungs, samanlagt að upphæð rúm-
lega 10,2 milljónir að nafnvirði á
genginu 15 sem svarar til 1,3%
hlutar í félaginu.
Mikil viðskipti voru með bréf
Skeljungs á mánudaginn þegar
Haukþing, fjárfestingarfélag í eigu
Eimskips, Sjóvár-Almennra og
Skeljungs, seldi hlut sinn til Ís-
landsbanka, Landsbankans, Sjó-
vár-Almennra og Burðaráss.
Síðar sama dag var tilkynnt að
Kaupþing Búnaðarbanki hefði
keypt 8% hlut í Skeljungi og átt
eftir þau viðskipti alls 35,28% hlut
í félaginu. Undir lok mánudagsins
var síðan tilkynnt sala á 20,69%
hlut Shell Petroleum Company.
Í markaðsyfirliti greiningar-
deildar Landsbankans í gær segir
að Kaupþing Búnaðarbanki sé
áfram stærsti eigandi Skeljungs
og nálægt því að verða skyldugt til
að gera tilboð í bréf annarra hlut-
hafa. „Bankinn á 35,28% hlut og
vantar innan við 5%, til að yfir-
tökuskylda myndist hjá félaginu.
Nýjar reglur taka gildi í dag (í
gær) sem kveða á um að yfirtöku-
skylda miðist við 40% eignarhlut,
en ekki 50% eins og áður,“ segir
þar. Bent er á að að Kaupþing-
Búnaðarbanki, Sjóvá, Burðarás,
Íslandsbanki og Landsbankinn
eigi samanlagt 99% hlutafjár og
ljóst sé að fyrirtækið uppfylli ekki
lengur skilyrði skráningar á aðal-
lista Kauphallarinnar um dreifða
eignaraðild.
Þórður Friðjónsson, fram-
kvæmdastjóri Kauphallar Íslands,
sagði í samtali við Morgunblaðið
að á aðallista væri gerð krafa um
að hlutafélag hefði 300 hluthafa og
að almennir hluthafar ættu að
minnsta kosti 25% samanlagt í fé-
laginu. Þórður sagði að Kauphöllin
myndi hafa samband við Skeljung
að loknum sumarleyfum, en þang-
að til reiknaði hann með að staða
félagsins inni á aðallista yrði
óbreytt.
Tilboðsmarkaður möguleiki
„Við verðum í sambandi við þá
því núverandi ástand getur ekki
gengið til lengdar,“ sagði Þórður.
Hann sagði að miðað við núverandi
stöðu virtist sem Skeljungur gæti
átt heima á tilboðsmarkaði Kaup-
hallarinnar en þar eru skilyrði
ekki eins ströng og á aðallista.
Áfram viðskipti
með bréf Skeljungs
Staða félagsins í Kauphöllinni skoð-
uð – tilboðsmarkaður möguleiki
Morgunblaðið/Sverrir
TÖLUR um innbrot hjá lögreglunni í
Reykjavík sýna að innbrotum í heima-
hús í júnímánuði hefur fjölgað úr 37 í
49 milli áranna 2002 og 2003. Innbrot-
um hefur hins vegar fækkað á sama
tíma í bifreiðir og verslanir og fyrir-
tæki.
Talsvert hefur verið tilkynnt um
innbrot í heimahús í Reykjavík að und-
anförnu, en á mánudag var til að
mynda tilkynnt um þrjú innbrot sem
þykir óvenjumikið á einum degi. Brot-
ist hefur verið inn á heimili fólks um
hábjartan dag á meðan húsráðendur
eru að heiman og hefur lögreglan eflt
eftirlit með hverfum í Breiðholti og
víðar í borginni. Hrina innbrota hefur
gengið yfir Seljahverfi í Breiðholti og
hafa nokkrir verið handteknir vegna
innbrota þar. Þá var um síðastliðna
helgi handtekinn í vesturbænum karl-
maður sem gekkst við fimm innbrot-
um í heimahús.
Þrátt fyrir að innbrotum í heimahús
hafi fjölgað að undanförnu hefur inn-
brotstilkynningum fækkað ef tekið er
mið af öllum tilkynntum innbrotum.
Þannig hefur verið tilkynnt um 738
innbrot það sem af er árinu, en fyrstu
sex mánuði ársins í fyrra voru tilkynn-
ingarnar 1.010 talsins. Tilkynntum
innbrotum í verslanir og fyrirtæki
fækkaði úr 49 í 37 frá í júní 2002 til júní
2003 og sömuleiðis fækkaði innbrotum
í bifreiðir úr 81 í 62 á sama tíma.
Innbrotum
á heimili fer
fjölgandi
ELLIÐAÁR eru sennilega meðal
fárra laxveiðiáa í heiminum sem
finna má innan borgarmarka.
Ekki er gott að segja hversu langt
að veiðimennirnir voru komnir
sem renndu fyrir lax í ánni í gær
en fyrir borgarbúa er alltént stutt
að fara. Veiðin í ánni hefur geng-
ið vel í sumar og betur en mörg
undanfarin ár, að sögn Magnúsar
Sigurðarsonar veiðivarðar. „Það
er miklu meira líf í ánni en áður.
Þetta er loksins á leiðinni upp eft-
ir að áin steytti á skeri 1995 þegar
kýlaveikin kom upp og drap stór-
an hluta stofnsins.“ Hann segir að
gott ástand nú megi að miklu leyti
þakka Orkuveitu Reykjavíkur og
Veiðimálastofnun. Í gær veiddust
sex fiskar í ánni.
Morgunblaðið/Arnaldur
Allgóð
laxveiði í
Elliðaám
Til skoðunar/4