Morgunblaðið - 26.07.2003, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Alltaf ód‡rast á netinu
Verð á mann frá 19.500 kr.
ÍS
LE
NS
KA
A
UG
LÝ
SI
NG
AS
TO
FA
N
EH
F/
SI
A.
IS
IC
E
21
53
5
0
5.
20
03
MUNAR UM 687 M.KR.
Í beiðni um heimild til greiðslu-
stöðvunar Kaupfélags Árnesinga
segir að skuldir séu 345 milljónum
hærri en eignir. Í ársreikningi fyrir
árið 2002 var á hinn bóginn sagt að
jákvætt eigið fé væri 342 milljónir.
Munurinn, 687 milljónir, helgast af
mismunandi aðferðarfræði að sögn
aðstoðarmanns fyrirtækisins á
greiðslustöðvunartímabilinu.
Lífverðir handteknir
Bandaríkjaher tókst í gær að
handsama 13 Íraka sem sumir eru
taldir vera lífverðir Saddams Huss-
eins. Vonir hafa vaknað um að það
geti komið Bandaríkjamönnunum á
sporið í leitinni að einræðisherr-
anum fyrrverandi. Fréttamenn
fengu að sjá illa lemstruð lík þeirra
Uday og Qusay, sona Saddams, í
gær en sögðu að þau hefðu verið
snyrt svo mikið að þau líktust helst
vaxbrúðum.
Hafa ekki ráð á að flytja
Fasteignaverð er mun hærra á
höfuðborgarsvæðinu en á lands-
byggðinni og sá munur heldur aftur
af búferlaflutningum af lands-
byggðinni. Þetta kemur fram í
grein í nýjasta hefti Fjármálatíð-
inda.
Kreppa í Færeyjum
Efnahagsástandið í Færeyjum
virðist fara versnandi vegna kreppu
í fiskeldi og flest bendir til að góð-
æri sem verið hefur í landinu í um
áratug sé á enda. Atvinnuleysi
eykst og helstu bankar eru nú rekn-
ir með halla í fyrsta sinn síðan 1993.
L a u g a r d a g u r
26.
j ú l í ˜ 2 0 0 3
Yf ir l i t
Í dag
Viðskipti 11 Úr Vesturheimi 28
Erlent 14/15 Minningar 29/32
Höfuðborgin 15 Skák 33
Akureyri 16 Kirkjustarf 35
Suðurnes 16 Bréf 34
Árborg 18 Myndasögur 34
Landið 18/19 Staksteinar 36
Neytendur 19 Dagbók 36/37
Heilsa 20 Íþróttir 38/41
Listir 20/21 Leikhús 42
Umræðan 22 Fólk 42/45
Menntun 23 Bíó 42/45
Forystugrein 24 Ljósvakamiðlar 46
Viðhorf 28 Veður 47
* * *
Kynningar - Með Morgunblaðinu í
dag fylgir auglýsingabæklingurinn
„Mannlífið í borgunum 2003-2004“
frá Icelandair. Blaðinu verður dreift
um allt land.
Þrándheimi. Morgunblaðið.
VIGDÍS Finnbogadóttir setti
kirkju- og menningarhátíðina Ólafs-
daga í Þrándheimi í gær en þeir eru
nú haldnir í 41. sinn á 850 ára afmæli
Niðarósbiskupsdæmis. Vigdís sagði
mikilvægt á þessum tímamótum að
minnast sögulegra tengsla Noregs og
Íslands og styrkja þau í samtíðinni.
Vigdís sagði í samtali við Morgun-
blaðið að sér þætti Íslendingar ekki
vera nægilega meðvitandi um hvað
það væru gríðarlega mikil tengsl á
milli Íslands og Niðaróss. „Við hugs-
um ekki um Þrándheim sem stað sem
væri gaman að heimsækja en ég
myndi vilja koma því á framfæri við
Íslendinga hvað það er gaman að
koma hingað í pílagrímsferð. Hér er
saga okkar við hvert fótmál, hér er
landslagið sem íslenskir menn sáu
þegar þeir sigldu á fund við Nor-
egskonunga, hér er sögusvið bæði Ís-
lendingasagna og Heimskringlu, hér í
Nið þreyttu Kjartan og Ólafur
Tryggvason sundið.“
Í ræðu sinni fjallaði Vigdís um
Snorra og verk hans. Hún sagði að
ástæða þess að Snorri samdi Heims-
kringlu væri sú að hann ólst upp í
Odda þar sem Jón Loftsson var, eig-
inmaður Þóru Magnúsardóttur ber-
fætta Noregskonungs. Þó að Þóra
hafi verið látin þegar Snorri kom í
Odda þá var Jón stoltur af tengslum
sínum við Noregskonunga og sagði
endalausar sögur af þeim. Hefði
Snorri ekki alist upp við þessar sögur
hefði hann ekki skrifað Heims-
kringlu, sagði Vigdís.
Schola Cantorum söng undir stjórn
Harðar Áskelssonar á setningartón-
leikum hátíðarinnar og í gærkvöld
söng Tómas Tómasson bassi annað af
aðalhlutverkunum í frumsýningu á
nýrri norskri óperu eftir Henning
Sommerro tónskáld og Edvard Ho-
em rithöfund er nefnist Eysteinn í
Niðarósi. Óperan fjallar um átök kon-
ungsvalds og kirkju á tólftu öld í Nor-
egi þar sem Eysteinn Erlendsson
erkibiskup í Niðarósi og Sverrir kon-
ungur eru í aðalhlutverkum en sýn-
ingin er sett upp á hinu raunverulega
sögusviði, í borgargarðinum og í
dómkirkjunni í Niðarósi sem vígð var
árið 1153 af Eysteini erkibiskupi.
Tómas sagði það vera stórkostlega
tilfinningu að fá að taka þátt í upp-
færslunni sem væri sérstök fyrir
þessar sakir: „Það er óvenjulegt að
ópera sé sett upp á raunverulegum
sögustað, ég hef aldrei tekið þátt í
slíkri sýningu. Og það er líka ákaflega
áhugavert að syngja hlutverk sem
tengist íslenskri sögu svo náið. Mér
þykir þetta vera hugmynd sem Ís-
lendingar ættu að gefa góðan gaum,
það má finna ógrynni dramatískra
söguefna í óperur í bókum íslenskra
sagnaritara frá miðöldum.“
Ólafsdagar standa til 2. ágúst en
Íslendingar eru áberandi í fjöl-
breyttri dagskránni að þessu sinni
eins og aðrar vestnorrænar þjóðir
sem áttu biskupssetur sitt í Niðarósi
til forna.
Á mánudaginn verður og dagskrá
helguð Sálmum á atómöld eftir
Matthías Johannessen en hann mun
einnig flytja ljóðið Í Niðarósi þar sem
hann kallast á við Einar Skúlason
sem flutti drápuna Geisla um Ólaf
helga Noregskonung við vígslu dóm-
kirkjunnar í Niðarósi árið 1153.
Mikilvægt að efla tengsl
Íslands og Þrándheims
Morgunblaðið/Þröstur Helgason
Vigdís Finnbogadóttir setti menningarhátíðina í Þrándheimi í gær.
Sálmar/Lesbók 4
Vigdís Finnbogadóttir viðstödd 850 ára afmæli Niðarósbiskupsdæmis
SKRIFAÐ hefur verið undir samning
um sölu á Hitaveitu Dalamanna til
RARIK. Kaupverðið er 145 milljónir.
Mun orkuverð hækka um 9% fyrsta
september en ekki hækka umfram
verðlagsbreytingar eftir það.
Mikill styr hefur staðið um sölu
Hitaveitu Dalabyggðar. Menn hafa
ekki verið á eitt sáttir um hvort eða
hverjum eigi að selja hana. Áður hafði
verið áformað að selja Orkubúi Vest-
fjarða hitaveituna, en miklar deilur
spunnust af því og á borgarafundi í
vor var svo ákveðið að hætta við söl-
una og halda veitunni í eigu Dala-
manna. Kannaðir voru möguleikar á
endurfjármögnun en það gekk ekki
upp og sl. miðvikudagskvöld skrifuðu
undir sölu á hitaveitunni þeir Harald-
ur L. Haraldsson sveitarstjóri Dala-
byggðar, Þorsteinn Jónsson oddviti
og Steinar Friðgeirsson fram-
kvæmdastjóri tæknisviðs RARIK.
Upphæð söluverðs er 145 miljónir og
tekur RARIK við rekstrinum 29.
ágúst nk.
Eru í samningunum ákvæði um
fyrirvara samþykkis fjármála- og iðn-
aðarráðherra á kaupunum og stað-
festingu meirihluta sveitarstjórnar á
samningnum. Mun þá einnig starfsvið
RARIK í Búðardal verða tryggt.
Meirihluti sveitarstjórnar, L-list-
inn í Dalabyggð, klofnaði og að sögn
voru menn ekki á eitt sáttir við að-
ferðafræðina sem notuð var. Harald-
ur L. Haraldsson sveitarstjóri telur
góða von um að sátt náist í þessu máli.
RARIK kaupir Hitaveitu Dalamanna
Kaupverð veitunn-
ar er 145 milljónir
Búðardal. Morgunblaðið.
SKELJUNGUR hf. hefur sagt
upp um tug starfsmanna og
taka uppsagnir þeirra gildi
hinn 1. ágúst. Forstjóri Skelj-
ungs segir að uppsagnirnar
tengist fyrst og fremst því að
fyrirtækið seldi fyrir skömmu
Hans Petersen.
„Þetta eru alerfiðustu
ákvarðanir sem þarf að taka,“
sagði Gunnar Karl Guðmunds-
son, forstjóri Skeljungs, í sam-
tali við Morgunblaðið í gær.
Skeljungur hafi séð um fjár-
mála- og tækniþjónustu fyrir
Hans Petersen en við söluna á
fyrirtækinu hafi losnað um
þau störf. Um leið hafi verið
hagrætt í öðrum rekstri.
Gunnar segir að fólkið verði
að sjálfsögðu aðstoðað við leit
að öðrum störfum óski það eft-
ir því.
Skeljungur
segir upp
tug manna
HALLDÓR Sigurðsson ÍS landaði sex stórum há-
körlum á Ísafirði á fimmtudaginn og var fjöldi
heimamanna viðstaddur löndunina. Aflinn var í
heild um þrjú og hálft tonn og fékkst á þremur
dögum en notuð var sérstök lína með stærri
krókum en vanalega og beitt var með selkjöti.
Nokkrir selkjötsbitanna voru bleyttir í rommi og
að sögn Konráðs Eggertssonar, skipstjóra á Hall-
dóri Sigurðssyni, leit hákarlinn ekki við öðru en
rommbitunum. Konráð veiddi lengi vel hrefnu en
eftir að hrefnuveiðar voru bannaðar hefur hann
einkum verið á rækju og að undanförnu hefur
hann verið að prófa sig áfram með hákarla-
veiðar.
Aflinn fer nú til verkunar hjá Guðmundi Ólafs-
syni, hákarlaverkanda í Hnífsdal, og verður
tilbúinn í kringum þorrann. Hákarlarnir veiddust
langt frá landi, um 50 mílur norðaustur af Horn-
bjargi. Konráð sagði athugunarvert hvað fundist
hafi í maga hákarlanna en í þeim öllum var lax,
þorskur og steinbítur.
Á myndinni sést Guðmundur Konráðsson, son-
ur Konráðs Eggertssonar hákarlaveiðimanns, við
hlið eins þeirra sex hákarla sem landað var á
fimmtudaginn.
Veiddi sex
hákarla
Ljósmynd/Þorsteinn J. Tómasson