Morgunblaðið - 26.07.2003, Blaðsíða 36
DAGBÓK
36 LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Langesund, Eldborg,
Sedna Iv, og Kristina
Regina koma í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Langesund kemur í
dag. Polar Amaroq fer
í dag.
Mannamót
Félag aldraðra í Mos-
fellsbæ. Skrifstofa fé-
lagsins verður lokuð í
sumar til 2. september.
Félag eldri borgara í
Kópavogi – FEBK. Há-
lendisferð í Veiðivötn
og virkjanirnar verður
fimmtud. 7. ágúst. Lagt
af stað frá Gjábakka kl.
8.30 og frá Gullsmára
kl. 8.45 og ekið upp
Skeið og Þjórsárdal og
þaðan upp á hálendið.
Á leiðinni verður stopp-
að í Árnesi eða Hálend-
ismiðstöðinni í Hraun-
eyjum. Ekið verður
upp í Veiðivötn, og ekið
um vatnasvæðið.
Hrauneyjarfossvirkjun
heimsótt, komið að Sig-
ölduvirkjun, Vatns-
fellsvirkjun, og Sultar-
tangavirkjun.
Kvöldverður í Félags-
heimilinu Árnesi. Síðan
verður haldið heimleið-
is um Iðu – Grímsnes –
framhjá Þrastarlundi,
að Nesjavallavegi.
Áætluð heimkoma kl.
20. Leiðsögumaður er
Nanna Kaaber. Skrán-
ing fyrir kl. 15 miðviku-
daginn 6. ágúst á
þátttökulistann í fé-
lagsmiðstöðinni Gjá-
bakka. Símaskráning
möguleg í síma 554-
3400 (Gjábakki), einnig
hjá ferðanefnd FEBK.
Félagsmiðstöðin í Gull-
smára er lokuð út júlí.
Ferðanefndin. Bogi s:
554 0233 eða Þráinn s:
554 0999.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Morg-
unganga er frá Hraun-
seli kl. 10. Rúta frá
Firðinum kl. 9.50.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Austur- og
Norðausturlandsferð
18–25. ágúst, 8 daga
ferð. Ekið með suður-
ströndinni, norður til
Akureyrar. Ekið um
Kjöl til Reykjavíkur.
Leiðsögn Sigurður
Kristinsson. Eigum
laus sæti. Upplýsingar
og skráning á skrif-
stofu FEB, sími
588 2111.
Gerðuberg, félags-
starf. Lokað vegna
sumarleyfa til 12.
ágúst.
FEBK. Púttað á Lista-
túni kl. 10.30 á laug-
ardögum. Mætum öll
og reynum með okkur.
Gönguklúbburinn
Hana-nú. Morgun-
ganga kl. 10 laug-
ardagsmorgna frá Gjá-
bakka. Krummakaffi
kl. 9.
Gigtarfélagið. Leik-
fimi alla daga vikunnar.
Létt leikfimi, bakleik-
fimi karla, vefjagigt-
arhópar, jóga, vatns-
þjálfun. Einn ókeypis
prufutími fyrir þá sem
vilja. Uppl. á skrifstofu
GÍ, s. 530 3600.
Stuðningsfundir fyrr-
verandi reykingafólks.
Fólk sem sótt hefur
námskeið til að hætta
reykingum í Heilsu-
stofnun NLFÍ í Hvera-
gerði, fundur í Gerðu-
bergi á þriðjud. kl.
17.30.
GA-samtök spilafíkla,
fundir spilafíkla. Höf-
uðborgarsvæðið:
Þriðjudagur kl. 18.15 –
Seltjarnarneskirkja,
Valhúsahæð, Seltjarn-
arnes. Miðvikudagur
kl. 18 – Digranesvegur
12, Kópavogur.
Fimmtudagur kl. 20.30
– Síðumúla 3–5, Göngu-
deild SÁÁ, Reykjavík.
Föstudagur kl. 20 –
Víðistaðakirkja, Hafn-
arfjörður. Laugar-
dagur kl. 10.30 – Kirkja
Óháða safnaðarins, v/
Háteigsveg, Reykjavík.
Austurland: Fimmtu-
dagur kl. 17 – Egils-
staðakirkja, Egils-
stöðum. Neyðarsími
GA er opinn allan sól-
arhringinn. Hjálp fyrir
spilafíkla. Neyðarsími:
698 3888.
Samtök þolenda kyn-
ferðislegs ofbeldis,
fundir mánudaga kl. 20
á Sólvallagötu 12.
Stuðst er við 12 spora
kerfi AA-samtakanna.
OA-samtökin. Átrösk-
un / Matarfíkn / Ofát.
Fundir alla daga. Upp-
lýsingar á www.oa.is og
í síma 878 1178.
Ásatrúarfélagið,
Grandagarði 8. Opið
hús alla laugardaga frá
kl. 14.
Kattholt. Flóamark-
aður í Kattholti, Stang-
arhyl 2, er opinn
þriðjud. og fimmtud.
frá kl. 14–17. Leið 10 og
110 ganga að Kattholti.
Minningarkort
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúkl-
inga fást á eftirtöldum
stöðum á Vestfjörðum:
Jón Jóhann Jónsson,
Hlíf II, Ísafirði, s. 456
3380, Jónína Högna-
dóttir, Esso-verslunin,
Ísafirði, s. 456 3990, Jó-
hann Kárason, Engja-
vegi 8, Ísafirði, s. 456
3538, Kristín Karvels-
dóttir, Miðstræti 14,
Bolungarvík, s. 456
7358.
Minningarkort Breið-
firðingafélagsins eru
til sölu hjá Sveini
Sigurjónssyni, s. 555-
0383 eða 899-1161.
Í dag er laugardagur 26. júlí,
207. dagur ársins 2003.
Orð dagsins: En hvert tré þekk-
ist af ávexti sínum, enda lesa
menn ekki fíkjur af þistlum né
vínber af þyrnirunni.
(Lúkas 6, 44.)
FrumskýrslaSamkeppnisstofnunar
um olíufélögin er víða til
umræðu á vefritunum.
Hinrik M. Ásgeirsson
gerir þátt Þórólfs Árna-
sonar borgarstjóra að
umtalsefni í pistli á Póli-
tík, vef ungra jafnaðar-
manna.
Hann segir þar m.a.:„Þórólfur veit sjálfur
hvað er satt og hvað
ekki. Í viðtali við Stöð 2 í
fyrradag vildi hann
hvorki neita né staðfesta
neitt af því sem haft var
eftir honum í frumskýrsl-
unni. Ef hann hefði hins
vegar neitað að hafa gert
nokkuð rangt hefði hann
vissulega fengið að njóta
vafans þar til endanlegur
úrskurður er kveðinn
upp. Einmitt vegna þess
að hann neitaði að svara
spurningum fréttamanns-
ins verður maður að
álykta að efni frum-
skýrslunnar sé rétt. Sé
frumskýrslan rétt er ljóst
að hann á ekki að sinna
starfi borgarstjóra. Það á
ekki að verðlauna menn
með borgarstjórastöðu
sem hafa unnið gegn
hagsmunum almennings
og frjáls markaðar.
En Þórólfur er ekkieinn um að skulda
svör. Borgarfulltrúar
Samfylkingarinnar verða
einnig að svara þeirra
spurningu hvort þeir
sætti sig við að Þórólfur
starfi í umboði þeirra án
þess að svara því opin-
berlega hvort hann hafi
tekið þátt í samsæri gegn
almenningi. Ef þeir sætta
sig við það eru þeir
annaðhvort huglausir
eða þá skortir sannfær-
ingu orða sinna.
Samfylkingin má ekki
láta það gerast að
prédika eitt og gera ann-
að. Væri dæminu snúið
við og Þórólfur væri
borgarstjóri sjálfstæð-
ismanna er alveg klárt
að Samfylkingin myndi
ekki hika við að krefjast
afsagnar hans nema
hann neitaði sök.“
Sigurður Þorkelssonfjallar einnig um þátt
borgarstjóra í pistli á
Hriflu, vef framsóknar-
manna í Reykjavík. Sig-
urður segir: „Nú er blá
höndin komin á loft og
reiðir til höggs og nú
verður slegið snöggt og
af alefli. Sjálfstæðismenn
hugsa sér nú gott til
glóðarinnar í vandræðum
Þórólfs Árnasonar
borgarstjóra og Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson
er kominn í nýju fötin
keisarans. „Borgarstjóri
verður að víkja.“ „Und-
arleg þögn borgar-
stjóra.“ „Krafinn skýr-
inga á olíuverðsamráði.“
Samkeppnislögin voru
sett 1993, þátttaka Þór-
ólfs í meintu verðsamráði
á sér stað 1996, þá er
Þórólfur millistjórnandi
og lítið tannhjól í gam-
algrónu veldi olíu-
félaganna. Saklaus uns
sekt er sönnuð, er það
ekki gamalt og gott
orðatiltæki sem nú á við?
Það er rétt af Þórólfi að
bíða eftir niðurstöðu í
málinu og skoða sinn
gang í framhaldi af því.“
STAKSTEINAR
Borgin og olían
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI telur sig slarkfæran ogvel það þegar að tölvumálum
kemur. Allt síðan að hann lærði að
stimpla inn „load“ á gömlu (og góðu)
Sinclair Spectrum tölvuna sína hefur
hann verið tiltölulega farsæll tölvu-
notandi. Eða hvað? Kann hann í
rauninni nokkuð? Altént virðist þekk-
ingarsamfélag það sem tengist tölv-
um vera afar lag- og stéttarskipt.
Hver ykkar lesenda kannast ekki við
það að fá illt augnaráð og jafnvel
óþolinmótt andvarp einhvers tölvu-
snillingsins þegar manns eina sök er
að vita ekki eitthvað sem – að áliti
þess sem maður er að tala við a.m.k. –
er á hvers manns vitorði?
x x x
VÍKVERJI er þannig giska fær íþví sem viðkemur „yfirborði“
tölvunnar. Það er að segja að glugga-
umhverfi Windows-kerfisins og
skyldra forrita er honum nokkuð
tamt og hann er fljótur að læra inn á
slíkt. Hann hikar t.d. ekki við að segj-
ast afar fær í Excel í vinnuumsóknum
þótt hann hafi í raun aldrei komið ná-
lægt því annars ágæta forriti! Annað
er hins vegar uppi á teningnum er að
innviðum tölvunnar kemur; teng-
ingar, drif, diskar, snúrur og hvað
þetta fargan allt heitir sem er inn í
henni blessaðri. Þar stendur Víkverji
nánast alltaf á gati. Svona líkt og með
bílinn – keyra kann Víkverji en hann
þekkir hvorki haus né sporð á því
sem undir húddinu er.
Víkverji telur sér það hins vegar til
tekna að undanfarið finnst honum
hann vera að læra meira og meira inn
á tölvuheima þótt árangurinn megi
telja í millimetrum dag hvern. Stóð
sig meira að segja að því á dögunum
að fylgjast áhugasamur með er ein-
hver tölvugúrúinn var að krukka eitt-
hvað í tölvunni hans.
x x x
VÍKVERJI er kominn undir þrí-tugt og tilheyrir því þeirri kyn-
slóð sem er ansi dreifð hvað tölvu-
þekkingu viðkemur. Þeir sem nú eru
undir tvítugu þekkja vart heim án
bloggs eða Nets en margir þeirra
sem komnir eru yfir fimmtugt þora
vart að snerta tölvur af ótta við að þá
springi þær í loft upp. Kynslóð Vík-
verja er einhvers staðar þarna á milli.
Víkverji getur hins vegar státað af
því að hafa lifað það lengi með tölvum
að hann er kominn með fortíðarþrá
gagnvart ákveðinni tegund. Því á
milli innsláttar, tölvupóstsskrifa og
slíks á skrifstofuvæna PC reikar hug-
urinn stundum aftur til gömlu (og
góðu) Sinclair-tölvunnar. Til að svala
þessari þrá lét Víkverji sér eitt sinn
nægja að læðast inn í geymslu og
taka gripinn út, tengja við sjónvarpið
og hlaða inn nokkrum af uppáhalds-
leikjunum sínum af snældum, eins og
hátturinn var þá. En í dag – þökk sé
nútíma PC og hinu yndislega Neti –
er þetta óþarfi. Víkverji fer einfald-
lega inn á veglega heimasíðu, tileink-
aða þessari fornfrægu tölvu
(www.worldofspectrum.org) þar sem
honum býðst, sér að kostnaðarlausu,
að hlaða niður Sinclair-hermi. Þannig
getur hann spilað alla leikina „sína“ í
gegnum PC og fengið fortíðarþránni
svalað og vel það. Á síðunni er meira
að segja hægt að festa kaup á öllum
gullmolunum fyrir u.þ.b. þúsundkall,
og fær maður þá einn geisladisk með
um 10.000 leikjum á (hver leikur er
ekki nema nokkrir tugir bæta).
Hugsa sér!
Besti vinur mannsins ásamt besta
vini mannsins.
Hagsmunir
hverra?
LAUFEY hafði samband
við Velvakanda og vildi
koma því á framfæri að
hún væri ekki alls kostar
sátt við vinnubrögð barna-
verndaryfirvalda. Finnst
henni sem oft sé gengið
fram með miklu offorsi í
slíkum málum og að for-
eldrarnir fái ekki nægilegt
tækifæri til þess að sýna
hvað í þeim býr áður en
börnin eru tekin af þeim.
Er sjónvarps-
dagskráin ruslpóstur?
ÍRIS hafði samband við
Velvakanda og sagði farir
sínar ekki sléttar. Hún
hafði sett merki á bréfa-
lúguna frá póstinum sem
gefur það til kynna að eng-
inn ruslpóstur eigi að ber-
ast inn um hana. Síðan þá
hefur sjónvarpsdagskráin
ekki borist. Hún stóð ekki í
þeirri trú að sjónvarpsdag-
skráin flokkaðist undir
ruslpóst.
Lambakjötið óætt
ÁGÚSTA hafði samband
við Velvakanda og lýsti yf-
ir ánægju sinni með grein
Helga Hjálmssonar frá 16.
júlí sl. Hún sagðist vera
hjartanlega sammála
Helga og tekur undir það
að ekki sé hægt að fá al-
mennilegt lambakjöt nú til
dags. Lambakjötið sé oft á
tíðum hreinlega óætt.
Ágústa hvetur fólk til þess
að láta í sér heyra varð-
andi þetta mál.
Tapað/fundið
Myndavél fannst
STAFRÆN myndavél
fannst á leiðinni frá
Grindavík til Krísuvíkur (Í
Bláa lónið). Upplýsingar í
síma 557 8040.
Húslyklar glötuðust
HÚSLYKLAR glötuðust á
leiðinni milli Austurbæjar-
skóla og Nönnugötu fyrir
sl. helgi. Finnandi er vin-
samlega beðinn um að hafa
samband í síma 848 7970.
Gullhringur með tóp-
as tapaðist
GULLHRINGUR með
stórum tópas tapaðist fyrir
nokkru, e.t.v. á golfvellin-
um Oddi. Finnandi vin-
samlegast hafi samband í
síma 898 0094.
Gullhringur tapaðist
við Jökulsárlón
GULLHRINGUR með
steini og áletrun innan í
tapaðist við Jökulsárlón
þriðjudaginn 15. júlí sl.
Finnandi vinsamlegast hafi
samband í síma 664 3193.
Dýrahald
Kettlingur fannst
GULUR og hvítur skógar-
köttur fannst við Eggerts-
götu þann 22. júlí sl. Upp-
lýsingar í síma 895 0912
Páfagaukur í óskilum
BLÁGRÆNN páfagaukur
með gulan haus og bláa
vangadepla, flaug inn um
glugga við Álfaheiði, Kópa-
vogi, þann 22. júlí sl. Eig-
andi vinsamlegast hringi í
síma 554 6698 eða
820 4780.
Kassavanir kettlingar
fást gefins
FIMM yndislegir, fallegir
og kassavanir 8 vikna kett-
lingar fást gefins á góð
heimili. Upplýsingar gefur
Anna í síma 860 5566 eða
551 8494.
Svört og hvít
læða fannst
SVÖRT og hvít læða,
stálpaður kettlingur,
fannst nálægt Hvanneyri í
Borgarfirði 14. júlí sl. Kis-
an er mjög mannelsk og
greinilega heimilisköttur.
Farið var með hana í Katt-
holt.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
LÁRÉTT
1 ósannindi, 4 humma
fram af sér, 7 slíta, 8 yfir-
höfnin, 9 blása, 11 sár, 13
þrjóskur, 14 arfleifð, 15
brún, 17 sund, 20 ósoðin,
22 auðugur, 23 laumum,
24 kvæðum, 25 ota fram.
LÓÐRÉTT
1 vein, 2 fugls, 3 elgur, 4
hnipra sig, 5 kaldur, 6
korn, 10 greftrun, 12 tók,
13 sterk löngun, 15 nirfl-
ar, 16 stormhviðum, 18
fiskur, 19 langloka, 20
farlama, 21 skoðun.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 haldgóður, 8 endar, 9 öflug, 10 ann, 11 dúðar,
13 nenna, 15 flekk, 18 skert, 21 inn, 22 ræður, 23 apann,
24 niðurlúta.
Lóðrétt: 2 andúð, 3 dárar, 4 ósönn, 5 ullin, 6 feld, 7
ugga, 12 auk, 14 eik, 15 forn, 16 eyðni, 17 kirnu, 18
snarl, 19 efast, 20 tonn.
Krossgáta
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16