Morgunblaðið - 26.07.2003, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 26.07.2003, Blaðsíða 9
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 2003 9 ÞESSA dagana standa yfir miklar framkvæmdir á Breiðholtsbraut við Norðlingaholt og hefur umferð verið beint um hjáleið um Víðidal. Verið er að byggja undirgöng fyrir hestafólk undir Breiðholtsbraut- ina, þar sem nærliggjandi svæði eru vinsæl til útreiða og annarrar útivistar. Önnur undirgöng eru skammt frá nýju göngunum, sem hafa hingað til verið ætluð öllum veg- farendum sem ekki nýta sér vélknúin ökutæki. Nokkuð hefur þó verið um árekstra milli hesta- manna og gangandi og hjólandi vegfarenda. Því var ákveðið að setja sérstök göng fyrir hesta til þess að liðka fyrir umferð. Verið er að leggja ræsi sem tengist byggingasvæði í Norðlingaholti og var því ákveðið að slá tvær flugur í einu höggi og greiða umferð hestafólks í leiðinni. Að sögn starfsmanna Gatnamálastofu Reykjavíkurborgar hefði ekki ver- ið farið út í þessa aðgerð sér- staklega fyrir hestamenn en tæki- færið var nýtt þar sem raska þurfti götunni á annað borð. Reiknað er með að umferð verði aftur hleypt inn á Breiðholts- brautina um miðjan ágúst. Morgunblaðið/Árni Sæberg Nú eru í fullum gangi framkvæmdir við 5 metra breið hestagöng undir Breiðholtsbraut á móts við Norðlingaholt. Undirgöng fyrir hesta undir Breið- holtsbraut VERÐ sem kúabændur fá fyrir nautakjöt er svo lágt að það stendur ekki undir framleiðslukostnaði. Verði ekki gripið til ráðstafana til þess að bæta afkomu kúabænda, s.s. með opinberum styrkjum, verður erfitt að tryggja framboð eftir 2–3 ár, að sögn Snorra Sigurðssonar, framkvæmdastjóra Landssambands kúabænda. Í samantekt félagsins kemur fram að danskir bændur fá 25% hærra verð fyrir ungnautakjöt en íslenskir. Niðurstaðan komi ekki á óvart enda hafi verð á nautakjöti hríðlækkað undanfarin ár. Framleiðsla í Dan- mörku byggist á svipuðum aðferðum og hérlendis en kostnaður sé veru- lega lægri en hér á landi, bæði vegna landkosta og lágs fóðurkostnaðar. Ekki svigrúm til verðhækkana Einnig kemur fram að meðalverð á ungnautakjöti hérlendis er um þessar mundir 286,4 kr./kg en í Dan- mörku fær bóndi með sömu fram- leiðslu 357,5 kr./kg. Stór hluti þess verðs eru styrkir (49,8%) en hérlend- is er nautakjöt framleitt án styrkja. Ísland sé eina landið í Evrópu þar sem nautakjöt er selt neytendum án þess að kjötið sé niðurgreitt með ein- um eða öðrum hætti. Ekki eru heldur greiddir styrkir vegna framleiðslu á kjúklingum eða svínum en Snorri segir að nautgripa- ræktun lúti öðrum lögmálum, ekki síst vegna þess að framleiðslutími sé mun lengri eða 2–3 ár. Af þeim sök- um mun samdráttur í framleiðslu ekki koma fram á mörkuðum fyrr en eftir árin 2005–2006. Snorri segir að vegna offramboðs á öðrum kjötteg- undum sé lítið svigrúm til verðhækk- ana og þá taki milliliðir til sín lægra hlutfall af útsöluverði en áður. Þó sé nauðsynlegt að hækka verð til bænda með einhverjum hætti, helst um þriðjung. 50 milljónir í styrki á ári myndu duga til þess að tryggja stöðugt framboð. Danskir bændur fá 25% hærra verð fyrir nautakjöt Erfitt er að tryggja framboð án styrkja Verðhrun á útsölu! Eddufelli 2 Bæjarlind 6 s. 557 1730 s. 554 7030 Opið mán.—fös. frá kl. 10—18 lau. kl. 10—15 Opið virka daga frá kl. 10.00–18.00, laugardaga frá kl. 10.00–16.00. 50% afsláttur Ótrúleg tilboð Engjateigi 5, sími 581 2141. Neðst við Dunhaga, sími 562 2230 Opið í dag frá kl. 10-14 Nýjar haustvörur sídan 1916 ID IO T a u g lý s in g a - o g k v ik m y n d a g e rð Laugavegi 35 sími 552 0620 Demantakynning Kynnum og seljum demanta með 15% staðgreiðsluafslætti aðeins í dag, laugardag Auðbrekku 14, Kópavogi, símar 544 5560 og 820 5562, Skoðið heimasíðuna www.yogastudio.is með Ásmundi Gunnlaugssyni Uppbyggjandi námskeið fyrir þá, sem eiga við streitu, kvíða eða fælni að stríða og/eða eru að ganga í gegnum miklar breytingar í lífinu. Kenndar verða leiðir til þess að slaka á og öðlast aukið frelsi og lífsgleði. Ásmundur, sem m.a. byggir námskeiðið á eigin reynslu af kvíða, tekur fyrir þætti eins og jógastöður, öndunaræfingar, slökun og andleg lögmál, sem stuðla að velgengni, jafnvægi og heilsu. Ekki er krafist reynslu af jóga. Yfirgripsmikið og traust námskeið frá árinu 1994. Hefst fimmtudaginn 7. ágúst – Þri. og fim. kl. 20:00 JÓGA GEGN KVÍÐA Jógatímar hefjast föstudaginn 8. ágúst kl. 17:25 – skráning hafin. Jógakennaraþjálfun hefst 5. – 7. september – skráning hafin. Augustsilk Augustsilk Opið í dag frá kl. 12-17 í Síðumúla 35 – 3. hæð  Nýtt! 100% handofið Dupion silki kr. 2.400 m. Litir: kremað, rautt og svart. Ný sending af silkipeysum: peysusett, stuttermapeysur og v-hálsmálspeysur. Pashminur og organzadúkar. Engin kort www.laxmann.com

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.