Morgunblaðið - 26.07.2003, Blaðsíða 18
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
18 LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
EFTIR mikla þurrka og lítið vatn
glæddist veiðin í Hítará örlítið við
rigningar í vikunni. Hollið sem var í
ánni frá 21.–24. júlí veiddi nítján laxa
og einn af þeim er stærsti lax sum-
arsins úr ánni. Hann veiddi Hafdís
Guðmundsdóttir í Hagahyl hinn 23.
júlí á rauða frances-túbu. Laxinn
sem var hængur vó 6,6 kg eða 15
pund sé hin gamla vigtunaraðferð
veiðimanna notuð. Þetta var jafn-
framt fyrsti flugulax Hafdísar, en
Maríulaxinn veiddi hún á maðk í Hít-
ará fyrir nokkrum árum.
Við rigningarnar hækkaði vatns-
borð árinnar og við það færði laxinn
sig milli staða og smáskot af nýjum
laxi gekk í hana. Síðasta morguninn
var hins vegar aftur komin sól og
blíða og þá datt veiðin strax niður.
Laxinn fékkst um alla á en þeir ný-
gengnu á svæðinu fyrir neðan Brú-
arfoss og tíu punda hrygna fékkst í
Langadrætti. Auk laxanna setti einn
veiðimaður í bleikju með sérkenni-
legum hætti. Flugan hans kræktist í
línu í Húshyl og þegar hann dró hana
inn var tæplega fjögurra punda
bleikja föst á flugu sem var á hinum
enda línunnar og var henni landað
eftir nokkurn bardaga.
15 punda
lax úr
Hítará
Hellnum
Ljósmynd/Guðrún G. Bergmann
Hafdís með stærsta lax sumarsins
úr Hítará. Þetta er 15 punda hæng-
ur sem hún veiddi í Hagahyl.
BÆJARRÁÐ Árborgar hefur sam-
þykkt að ráðast nú þegar í fram-
kvæmdir til að bæta síma- og tölvu-
samskipti milli veitna, ráðhúss og
skóla á Selfossi. Einnig verða gerðar
úrbætur á samskiptum milli grunn-
skólanna við ströndina og á Selfossi.
Í samþykktinni kemur fram að úr-
bætur á þessu sviði eru taldar brýn-
ar en þær eru gerðar samkvæmt til-
lögu starfshóps þar um. Talið er
ótvírætt tæknilegt- og fjárhagslegt
hagræði af því að leysa samskipta-
mál þessara stofnana í einu lagi.
Bæjarráð telur að þessar breytingar
muni skila sér til baka á nokkrum ár-
um í lækkuðum rekstrarkostnaði
auk þess að bæta samskipti og
greiða fyrir gagnaflutningum.
Kostnaður við þessa framkvæmd
er áætlaður 18–20 milljónir króna.
Framkvæmdin skiptist þannig að
Selfossveitur munu eiga og reka ljós-
leiðara og símstöð en endabúnaður
tilheyrir hverjum stað fyrir sig.
Kostnaðarauka mun verða mætt við
endurskoðun fjárhagsáætlunar.
18–20 millj-
ónir til að
bæta gagna-
flutning
Árborg
OPIÐ mót Sjóstangaveiðifélags
Snæfellsness fór fram í Ólafsvík 18.
og 19. júlí í blíðskaparveðri. Kepp-
endur voru 55 talsins frá öllum að-
ildarfélögum SJÓl, en þau eru átta
talsins. Afli var tregari en oft áður,
12 tonn voru dregin á land. Mótið
þótti þó takast mjög vel og var
glæsibragur á.
Siglfirðingar voru sigursælir í
kvennaflokki. Svala Júlía Ólafs-
dóttir varð aflahæst kvenna, veiddi
788 kg, og sveit SJÓSIGL sigraði í
sveitakeppni kvena.
Bjarni Örn Kærnested frá
Reykjavík varð aflahæstur karla
með 855 kg og sveit SJÓR vann
sveitakeppni karla.
Alls veiddust ellefu tegundir
fisks á mótinu, þó mest bæri á
þorski og ufsa. Allt að tíu stór-
þorskar veiddust, um og yfir 20 kg
hver. Þann stærsta veiddi Steindór
Sigurðsson frá Akureyri og vó sá
þorskur 23 kg.
Róið var á 16 bátum. Aflahæstur
skipstjóranna varð Arnór Guð-
mundsson á Góu, meðalafli á stöng
775 kg, en mestu verðmæti skilaði
Örvar Ólafsson á Brimli.
Þetta mót var hið sjötta í móta-
röð sjóstangaveiðifélaganna. Eftir
eru mótin á Siglufirði og Akureyri.
Þorsteinn Jóhannesson frá Siglu-
firði hefur góða forystu í stiga-
keppninni um Íslandsmeistaratitil
karla en í kvennaflokknum er
keppnin harðari og tvísýnni. Þátt-
taka kvenna í sjóstangaveiðinni
eykst stöðugt, enda hafa konur al-
mennt ekki mörg tækifæri til þess
að komast á sjó. Gefa þær körl-
unum lítt eftir í veiðinni.
Morgunblaðið/Helgi Kristjánsson
Margir stórþorskar veiddust á mótinu. Berglind Hallmarsdóttir og Skarp-
héðinn Ásbjörnsson veiddu tvo þeirra og voru að vonum ánægð með sig.
Siglfirðingar og
Reykvíkingar sigur-
sælir í sjóstangaveiði
Ólafsvík
Svala Júlía Ólafsdóttir frá Siglu-
firði varð aflahæst kvenna.
ORRI Hlöðversson, bæjarstjóri í
Hveragerði, tók nýverið fyrstu
skóflustunguna að nýrri skrifstofu-
og verslunarmiðstöð að Sunnumörk
2 í Hveragerði. Húsið er hannað af
teiknistofunni Vektor í Kópavogi.
SS-verktaki (Sveinbjörn Sigurðsson
ehf.) er framkvæmdaraðilinn en
stofnað hefur verið einkahlutafélag
um verkefnið sem ber nafnið Sunnu-
mörk ehf.
Fulltrúar Hveragerðisbæjar hafa
verið virkir í hönnunar- og markaðs-
setningarferlinu. Kynning verkefn-
isins hefur gengið vel og hefur meiri-
hluta þjónusturýmisins í húsinu
verið ráðstafað. Heildarstærð húss-
ins er um 4.200 fermetrar. Þeir að-
ilar sem hafa skuldbundið sig með
viljayfirlýsingu til að koma inn í hús-
ið eru Hveragerðisbær sem fær 800
fermetra undir bæjarskrifstofur og
bæjarbókasafn. Europris verður í
vesturenda hússins með um 950 fer-
metra. Í suðurenda verður Hús
blómanna ehf. með um 640 fermetra.
Nú standa yfir viðræður við smærri
rekstraraðila sem sýnt hafa málinu
áhuga. Áætlað er að fyrsti hluti húss-
ins verði tekinn í notkun hinn 17. júní
2004.
SS-verktaki byggir skrif-
stofu- og verslunarmiðstöð
Hveragerði
Morgunblaðið/Margrét Ísaksdóttir
Orri Hlöðversson bæjarstjóri í Hveragerði tekur fyrstu skóflustunguna.
ÞAÐ var síðastliðið sumar sem
tekið var í notkun nýtt og glæsi-
legt tjaldsvæði í Hveragerði.
Segja má að það sé í hjarta bæj-
arins við Reykjamörkina sem er
næsta gata austan við Breiðu-
mörkina (aðalgötu bæjarins). Þar
er aðstaða öll til fyrirmyndar; auk
hreinlætisaðstöðu eru bæði
þvottavél og þurrkari. Í þurrk-
herbergi er einnig hægt að
þurrka tjöldin og hefur það komið
sér vel í votviðri í sumar. Það sem
gestir eru hvað ánægðastir með
eru rafmagnsstaurarnir sem fólk
getur tengt fellihýsin og tjald-
vagnana við. Þessir staurar eru
víða um svæðið og hafa nýst vel.
Að sögn Davíðs Samúelssonar for-
stöðumanns Upplýsingamið-
stöðvar Suðurlands er nýja tjald-
svæðið með betri tjaldsvæðum á
landinu og aðgengi fyrir fatlaða
er mjög gott.
Morgunblaðið/Margrét Ísaksdóttir
Gestir tjaldsvæðisins í Hveragerði eru mjög ánægðir með aðstöðuna.
Glæsilegt tjaldsvæði
í boði í Hveragerði
Hveragerði
ELDRIBORGARAR á Eyrarbakka
tóku sér ferð á hendur föstudaginn
18. júlí s.l. og óku um nokkurn hluta
sögusviðs Njálssögu. Fyrst var
komið við í Sögusetrinu á Hvols-
velli, þar sem Magnús Finnbogason
leiddi hópinn um sögusýninguna og
reyndar einnig sögulega sýningu
um kaupfélögin, sem þar er líka til
húsa. Þá var ekið undir leiðsögn
Magnúsar upp Rangárvelli og num-
ið staðar við Gunnarsstein, en þar
las Magnús kaflann um bardagann
við Knafahóla úr Njálu. Bíll ferða-
langanna var ekki búinn til fjalla-
ferða, svo snúið var við og ekið
framhjá Keldum og Gunnarsholti
niður á þjóðveg og sem leið liggur
austur og inn í Fljótshlíðina að
Hlíðarenda. Eftir litla dvöl þar var
svo haldið í Rauðuskriður að Gunn-
arshólma. Þegar í Hvolsvöll kom,
var fram borin íslensk kjötsúpa í
fornum sal í Sögusetrinu. Leiðsögn
Magnúsar náði ekki einungis vel til
atburða úr Njálu, heldur kynnti
hann nútímann, bændur og býli í
leiðinni.
Ferðalangarnir voru heppnir
með veður, enda hlýjasti dagur
sumarsins, með sól og blíðu.
Morgunblaðið/Óskar Magnússon
Eldri borgarar á Njáluslóðum
Eyrarbakki
LANDIÐ