Morgunblaðið - 26.07.2003, Qupperneq 45
HLJÓMSVEITIN Smack er tæp-
lega ársgömul um þessar mundir.
Sveitin var stofnuð síðasta sumar
upp úr pöbbabandinu Johnny on the
Northpole og gaf út diskinn Numb-
er One fyrir síðustu jól. Hefur lagið
„Emotion“, af nefndri plötu, glumið
tíðum á öldum ljósvakans og hafa
Smack verið iðnir við spilamennsku
síðastliðið ár.
Nýverið var gert myndband við
lagið „Would You Mind“ af Number
One, þriðju „smáskífuna“ af plöt-
unni. Þar með er sú plata að baki, að
mati Þorsteins Bjarnasonar, söngv-
ara og höfuðlagasmiðs, en með hon-
um í spjalli er trymbill sveitarinnar,
Gísli Elíasson. Með „smáskífu“ er
ekki verið að meina eiginlega smá-
skífu, enda slíkt nánast ekki til hér-
lendis. Það sem er hins vegar átt við
er að þetta er þriðja lag plötunnar
sem er dreift til útvarpsstöðva og
ætlað til spilunar. Annað lagið var
„Johnny on the North Pole“, rokk-
ari sem stingur þægilega í stúf við
hið ballöðukennda „Emotion“.
„Í myndbandinu nýja leikur Íris
Björk fegurðardrottning og það
kasólétt,“ segir Þorsteinn, sem ein-
att er kallaður Steini. „Fjölnir
Braga, húðflúrskóngur með meiru,
leikur þá sjálfan sig. Tilgangurinn
með þessu er einfaldlega sá að
minna á sig.“
Smack treður upp í Eyjum á
bráðkomandi Þjóðhátíð. Upptaka á
nýju efni stendur svo fyrir dyrum í
haust.
„Við erum með fullt af nýju efni á
lager og er farið að klæja í puttana
að fara að setja nýtt efni á band,“
segir Þorsteinn. „Og svo er það bara
áframhaldandi spilamennska. Okkur
langar líka að fara að kíkja til út-
landa en það er enn sem komið er á
pælingastigi. Það væri bara gaman
að prófa að spila í útlöndum. Við
höfum verið í sambandi við tvo eða
þrjá aðila síðan á Airwaves en það
þarf líka að huga að fjármálahliðinni
ef það á að leggja í einhverja útrás.
Þessi bransi getur verið mikið hark.
Þetta er erfitt … en gaman,“ segir
Þorsteinn að lokum og glottir í
kampinn.
Smack setja í haustgírinn
Myndband og nýtt efni
Smack á hljómleikum.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 2003 45
anleg en Það sem stúlka þarfnast
lúrir einnig á talsvert fyndnum
sprettum þar sem gert er stólpa-
grín að yfirstéttarsnobbi, Filippus
og frú, Karli prins og því fólki öllu.
Þá er hún blessunarlega laus við
að taka sig alvarlega og ekkert á
þeim skónum að punda á áhorf-
endur einhverjum fimm aura pré-
dikunum. Annar kostur er
skemmtilegur leikhópur, einkum
er heitmeyjan í frábærum höndum
Chachellor og sjónvarpsstjarnan
Bynes er sæt og hæfileikarík
stúlka sem sleppur ótrúlega vel frá
öllu saman. Pryce svíkur engan og
fer vonandi ekki að taka upp á því
úr þessu og Colin Firth er geð-
ugur leikari sem maður taldi víst
að hefði eitthvað bitastæðara fyrir
stafni. Í það heila tekið lagleg fjöl-
skyldumynd sem fær draumaverk-
smiðjuna til að standa undir nafni.
Þið verðið að sjá hana með eigin
augum til að komast að leyndar-
dómum kókópöffsins.
Sæbjörn Valdimarsson
Vídalín
Hollenski plötusnúðurinn Mike
Scott vakti mikla lukku á Vídalín um
síðustu helgi og ætlar nú að endur-
taka leikinn. Fyrstu fimmtíu gest-
irnir fá gefins geisladisk með tónlist
Scotts. Húsið opnar kl. 22.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
KRINGLAN
Sýnd kl. 8.
KRINGLAN
Sýnd kl. 10.10.
AKUREYRI
Sýnd kl. 2, 4, 6 og 8.
KRINGLAN
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 1.45, 3.45, 5.50, 8 og 10.10.
AKUREYRI
Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 16 ára.
Það er erfitt að falla inn í hópinn þegar
þú skerð þig svona hrikalega úr
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 10. B.i. 12.
YFIR 42.000 GESTIR!
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 2, 3.45 og 8.
Rómantísk gamanmynd með Amanda Bynes og
ColinFirth (Bridget Jones´s Diary)
SG. DV
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 5.50, 8 OG 10.10. B.I. 16 ÁRA
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 2, 4 og 6.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 2, 4, 6 og 8.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 8. b.I. 12 ára.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. B.i. 16 ára.
JOHN TRAVOLTA OG SAMUEL JACKSON I FYRSTA
SINN SAMAN SIÐAN PULP FICTION
Í ÞESSARI MÖGNUÐU SPENNUMYND.
FRUMSÝNING
KRINGLAN
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. B.i. 16 ára.
… Kate Wins-
let á von á öðru
barni sínu en
hún giftist ný-
lega enska kvik-
myndaleikstjór-
anum Sam
Mendes. Þau
hjónin tilkynntu
þetta í gær í
Frakklandi þar
sem þau eru í
leyfi.
Winslet, sem er
27 ára gömul, á
eina dóttur með
Jim Thre-
apleton, fyrri
eiginmanni sín-
um, en Mendes,
sem er 37 ára, á
engin börn
enn …
FÓLK Ífréttum