Morgunblaðið - 26.07.2003, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 2003 37
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
LJÓN
Afmælisbörn dagsins:
Þú geislar af kynþokka og
hefur miklar gáfur til að
bera. Þú átt auðvelt með að
eiga samskipti við aðra og
fólk lítur upp til þín.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú færð margar góðar hug-
myndir í dag. Þér til mikils
ama gæti einhver reynt að
gera lítið úr þeim. Ekki láta
aðra eyðileggja fyrir þér.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú gætir hitt einhverja und-
arlega manneskju í dag.
Þessi manneskja gæti kynnt
þig fyrir einhverju óvenju-
legu og framandi. Taktu því
með opnum hug.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þér býðst óvenjulegt tæki-
færi til þess að eignast pen-
inga. Þetta tækifæri mun þó
ekki bjóðast þér oftar og því
er mikilvægt að þú sért á
tánum.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Aðrir eru furðu lostnir vegna
viðhorfa þinna í dag. Leiddu
þetta hjá þér því þú átt rétt á
því að hafa þínar skoðanir
eins og aðrir.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Í dag gæti einhver gert þér
greiða eða þú fengið óvænta
gjöf. Þú skalt ekki hika við
að þiggja það sem að þér er
rétt.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Samtöl við nána vini gætu
tekið óvænta stefnu í dag.
Jafnvel þó að þetta komi þér
á óvart skaltu reyna að sýna
umburðarlyndi.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Yfirmaður þinn gæti komið
með óvænta uppástungu í
dag sem þú ert ekki sam-
mála. Hugsaðu þig þó vel
um. Hann gæti haft rétt fyrir
sér.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú gætir fundið fyrir tilfinn-
ingum í garð einhverrar
manneskju sem er mjög ólík
þér. Ekki hafa áhyggjur.
Þetta er algerlega meinlaust.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Það veitir þér ánægju að
axla aukna ábyrgð. Nú eru
hlutirnir mun auðveldari.
Þvílíkur léttir!
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú átt auðvelt með að fá aðra
á þitt band í dag. Því miður
mun þó einhver skipta um
skoðun er á líður daginn. Það
skiptir engu máli.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú hefur hugmyndir um að
bæta vinnuaðstöðu þína.
Ekki hika við að koma þess-
um hugmyndum á framfæri
því þú hefur rétt fyrir þér.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Nýtilkomin ást lofar góðu og
sambönd sem þegar eru til
staðar geta orðið betri. Það
er ætíð fyrir bestu að líta á
björtu hliðarnar.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
SVANASÖNGUR Á HEIÐI
Ég reið um sumaraftan einn
á eyðilegri heiði;
þá styttist leiðin löng og ströng,
því ljúfan heyrði’ eg svanasöng,
já, svanasöng á heiði.
Á fjöllunum roði fagur skein,
og fjær og nær úr geimi
að eyrum bar sem englahljóm,
í einverunnar helgidóm,
þann svanasöng á heiði.
Svo undurblítt ég aldrei hef
af ómi töfrazt neinum;
í vökudraum ég veg minn reið
og vissi’ ei, hvernig tíminn leið
við svanasöng á heiði.
Steingrímur Thorsteinsson
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
100 ára afmæli. Ámorgun, sunnu-
daginn 27. júlí, verður 100
ára Hanna M. Sigur-
geirsson, til heimilis að
Seljahlíð, Hjallaseli 55,
Reykjavík. Eiginmaður
hennar var Gunnar Sig-
urgeirsson, píanókennari
og organisti sem lést 1970.
Hanna tekur á móti vinum
og vandamönnum hjá dóttur
sinni að Grandavegi 47 á
sunnudaginn milli kl. 16-18.
70 Ára afmæli. Í daglaugardaginn 26. júlí
er sjötugur Hörður Arnórs-
son, Uppsalavegi 18, Húsa-
vík.
Hann og eiginkona hans
Ina Pétursdóttir eru að
heiman í dag.
BERTRAND Romanet
er franskur bridshöfundur
sem hefur ritað feita bók um
þvingun, þar sem hann
sundurgreinir hin ýmsu af-
brigði, bæði algeng og sjald-
gæf. Hann var sjálfur í hlut-
verki sagnhafa þegar þetta
spil kom upp:
Vestur gefur; NS á hættu.
Norður
♠ ÁG93
♥ ÁK2
♦ D7
♣9754
Vestur Austur
♠ K102 ♠ D8764
♥ G106 ♥ D983
♦ G ♦ 952
♣ÁKD1083 ♣G
Suður
♠ 5
♥ 754
♦ ÁK108643
♣62
Vestur Norður Austur Suður
1 lauf Dobl 1 spaði 3 tíglar
3 spaðar Dobl Pass 4 tíglar
Pass 5 tíglar Allir pass
Vestur tók tvo slagi á ÁK
í laufi og spilaði drottning-
unni í þriðja slag, sem Rom-
anet trompaði og hugsaði
framhaldið. Honum datt
fyrst í hug að taka ÁK í
hjarta og renna tromp-
unum. Þá kæmi upp tvöföld
þvingun ef austur væri einn
um að valda hjartað. Rom-
anet missti þó áhuga á þeirri
leið þegar hann spilaði tígli
á drottninguna og sá gosann
frá vestri. Ef austur átti
þrjú tromp, gat hann varla
hafa byrjað með fimmlit í
hjarta. Romanet hætti því
við að taka ÁK í hjarta og
spilaði trompi fjórum sinn-
um. Tók svo spaðaás og
stakk spaða og gladdist
mjög að sjá tíuna koma frá
vestri.
Norður
♠ G9
♥ ÁK
♦ --
♣9
Vestur Austur
♠ K ♠ D8
♥ G106 ♥ D98
♦ -- ♦ --
♣10 ♣--
Suður
♠ --
♥ 754
♦ 108
♣--
Næstsíðasta trompið
leysir úr læðingi óvenjulega
þvingun, sem Romanet kall-
ar „tvöfalda verndar- og
trompþvingun“. Hræðilegt
nafn, en nokkuð lýsandi.
Vestur þarf augljóslega að
halda í hæsta lauf, en spaða-
kóngurinn er líka ómissandi
sem hjálparvald – ef honum
er fórnað má trompsvína
fyrir drottningu austurs
(þess vegna var tían mik-
ilvæg). Segjum því að vestur
hendi hjarta. Þá fer laufnían
í blindum og austur
þvingast í spaða og hjarta.
Ef hann hendir spaða, má
trompa litinn út, en hendi
hann hjarta, tekur sagnhafi
ÁK og fær síðasta slaginn á
hjartahund heima.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6
4. Ba4 Rf6 5. O-O b5 6. Bb3
Bb7 7. d3 Be7 8. Rc3 O-O 9.
Rd5 Ra5 10. Rxe7+
Dxe7 11. He1 d6 12.
Rh4 Bc8 13. Df3
Rxb3 14. axb3 Bg4
15. Dg3 Dd7 16. h3
Be6 17. Bh6 Re8 18.
Bd2 Dc6 19. Hac1 a5
20. f4 exf4 21. Bxf4
a4 22. bxa4 Hxa4 23.
b3 Ha2 24. c4 bxc4
25. bxc4 Ha3 26.
Kh2 Rf6 27. Bd2
Dc5 28. Bc3 Rh5 29.
Df3
Staðan kom upp á
alþjóðlegu móti sem
lauk fyrir skömmu í
Andorra. Alexander Delch-
ev (2572) hafði svart gegn
Rafael Lopez Rodriguez
(2264). 29...Hxc3! og hvítur
gafst upp enda verður hann
manni undir eftir 30. Hxc3
De5+ 31. g3 Dxc3.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
Stuttir og síðir kjólar
Bankastræti 11 • sími 551 3930
Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast. - www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30.
Vorum að fá í einkasölu efri hæð í þessu húsi, sem er fjórbýli, á frábærum stað í
vesturbænum. Íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð á síðustu árum m.a. endur-
nýjað glæsilegt eldhús, baðherbergi o.fl. 3 góð svefnherbergi, þar af er svefnher-
bergið mjög stórt með miklum nýl. skápum. Afar björt stofa og borðstofa.
Ágætlega stórar svalir. Falleg gluggasetning er á þessari íbúð. Góður sameigin-
legur garður. Frábær nýting. Áhvílandi ca 8,5 m. Verð 18,4 m. eða tilboð.
Upplýsingar í dag og næstu daga gefur Þórarinn M. Friðgeirsson sölumaður í
síma 899 1882.
Ásvallagata -
glæsileg 133 fm efri hæð
BRÚÐKAUP. Gefin voru saman í Glerárkirkju 14. júní sl.
af sr. Gunnlaugi Garðarssyni þau Ester Lára Magnús-
dóttir og Ólafur Hermannsson. Heimili þeirra er á Ak-
ureyri.
Ljósmynd Myndrún /Rúnar Þór.
FRÉTTIR
ÞAÐ er ekki á hverjum degi sem
við fáum tækifæri til að skoða
nýjar flugvélar, en umboðsaðilar
Piper í Danmörku, Air Alpha,
ætla að koma hingað með nýja
vél, Piper Archer III, og vera
með hana til sýnis á Reykjavík-
urflugvelli við félagsheimili
einkaflugmanna í Fluggörðum
frá kl. 14 til 18, sunnud. 27 júlí.
Piper Archer III kom fyrst á
markað árið 1996 og þykir sér-
staklega vel heppnuð hvort sem
er til kennslu, atvinnuflugs og
ekki síst til einkaflugs.
Jafnframt þessu ætla Piper-
eigendur á Íslandi að vera með
sínar vélar á staðnum.
Nýr Piper Archer III til sýnis
Engin ákvörðun um málssókn
Vegna fréttar í Morgunblaðinu í
gær um brottvikningu forstjóra Lög-
gildingarstofu, Gylfa Gauts Péturs-
sonar, er rétta að taka fram að ekki
liggur fyrir hvort farið verður með
málið fyrir dómstóla.
Ragnar H. Hall, lögmaður Gylfa,
sagði í samtali við Morgunblaðið sl.
fimmtudag: „Nú tekur ráðuneytið
væntanlega ákvörðun um það hvort
það víkur Gylfa úr starfi að fullu og ef
það verður gert á hann engan annan
kost en að höfða mál til heimtu bóta
vegna ólögmætrar uppsagnar og láta
þá reyna á hvort þessi rökstuðningur
heldur. Það er Gylfa að taka ákvörðun
um það.“
Í gær var rætt við viðskiptaráð-
herra um málið og þar er vísað til
þessara ummæla Ragnars án þess að
fram komi að það sé Gylfa að taka
ákvörðun um hvort farið verði með
málið fyrir dómstóla. Skilja mátti á
fréttinni að fyrir lægi ákvörðun um að
farið yrði með málið fyrir dómstóla.
Hið rétta er að Gylfi hefur enga
ákvörðun tekið um það ennþá.
Ekki eldur hjá Sorpstöðinni
Ranglega var sagt í frétt sl.
fimmtudag að eldur hafi komið upp
hjá Sorpstöð Suðurlands á miðviku-
daginn. Hið rétta er að eldur mun
hafa kviknað á svæði Gámastöðvar
Selfoss.
Rangt föðurnafn
Föðurnafn eiginmanns Guðrúnar
Sigurbergsdóttur misritaðist í for-
mála minningargreina um hana í
Morgunblaðinu föstudaginn 25. júlí.
Þórarinn, eiginmaður Guðrúnar,
var Sigurðsson en ekki Sigurbergs-
son eins og sagt var í blaðinu.
Rangt farið með kostnað
Vegna fréttar um opnun Hótels
Öldunnar á Seyðisfirði leiðréttist að
heildarkostnaður við endurbyggingu
húsanna tveggja var um fjörtíu millj-
ónir, en ekki 47 milljónir eins og sagði
í fréttinni. Þá á Byggðastofnun 30%
hlutafjár í Fjarðaröldunni hf., en lagði
ekki styrk til hótelsins að öðru leyti.
LEIÐRÉTT
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá Leik-
skólum Reykjavíkur:
„Í Morgunblaðinu 20. júlí s.l. birt-
ist frétt um undirskriftasöfnun for-
eldra í Vesturbænum í Reykjavík
vegna „fyrirhugaðrar lokunar
gæsluleikvallarins við Frostaskjól“.
Leikskólar Reykjavíkur vilja koma á
framfæri eftirfarandi athugasemd
við þessa frétt:
Það á ekki að leggja gæsluleikvöll-
inn niður en vetrarstarf á vellinum
hættir í þeirri mynd sem það hefur
verið. ÍTR mun í haust taka við
starfrækslu vallarins og nýta hús og
lóð fyrir skólabörn á veturna en
verða áfram með gæsluleikvallar-
starf á sumrin.
Það er rétt sem stendur á undir-
skriftalista foreldranna að völlurinn
er mikið notaður á sumrin. Hinsveg-
ar kemur ekki fram að hann hefur
verið mjög illa sóttur á veturna. Síð-
asta vetur, frá september til maí-
loka, komu að jafnaði 3-4 börn á
gæsluleikvöllinn hvern dagspart
sem hann var opinn.“
Athugasemd frá Leikskólunum
Lítil nýting
yfir vetrartímann
Dýralífsganga með ráðsmanni
Viðeyjar Í kvöld mun Ragnar Sig-
urjónsson ráðsmaður í Viðey standa
fyrir gönguferð um Viðey og veita
fjölskrúðugu dýralífi hennar athygli.
Þar verpa nú a.m.k. 24 fuglategundir
og fer fjölgandi. Hugsanlega gefst
gestum einnig kostur á að heilsa
uppá hjálmskjótta hesta ráðsmanns-
ins en þeir eru um margt sérstakir.
Ferðin hefst kl 19:30 með siglingu
frá Sundahöfn.
Í DAG