Morgunblaðið - 26.07.2003, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 26.07.2003, Blaðsíða 30
MINNINGAR 30 LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Kristín ElísaBaldvinsdóttir fæddist að Bala í Þykkvabæ hinn 19. ágúst 1936. Hún varð bráðkvödd á heimili sínu í Vest- mannaeyjum. 19. júlí síðastliðinn. For- eldrar hennar voru hjónin Þórunn Elías- dóttir húsmóðir, f. 1.12. 1916, d. 29.9. 1990, og Baldvin Skæringsson, sjó- maður og smiður, f. 30.8. 1916. Systkini Kristínar Elísu eru: 1) Elías, f. 1938, maki Halla Guðmundsdóttir, 2) Baldur Þór, f. 1941, maki I) Arn- dís Steinþórsdóttir, maki II) Hug- rún Hlín Ingólfsdóttir, látin, 3) Kristinn Skæringur, f. 1942, maki Sigríður Mínerva Kristinsdóttir, 4) Ragnar Þór, f. 1945, maki Anna Jóhannsdóttir, 5) Birgir Þór, f. 1952, maki Halldóra N. Björns- dóttir, 6) Hrefna, f. 1954, maki látinn, sonur þeirra er Hörður, f. 1980, dóttir hennar og fyrrverandi eiginmanns, Þórs Kristjánssonar, er Hrefna Dís, f. 1986, og sonur Sólrúnar og Jónasar Arnmunds- sonar er Birkir, f. 1992. 3) Smári Kristinn, f. 19.8. 1965, kvæntur Sigurlínu Guðjónsdóttur, sonur þeirra er Guðjón Smári, f. 1997, dóttir Sigurlínu og fósturdóttir Smára er Sigríður Margrét, f. 1995. Kristín starfaði við hin ýmsu störf að unglinganámi loknu, fisk- vinnslu, afgreiðslustörf og síðustu áratugina hjá Pósti og síma (síðar Íslandspósti), en fyrir ári síðan missti hún það starf vegna skipu- lagsbreytinga hjá fyrirtækinu. Hún söng með Kirkjukór Landa- kirkju í mörg ár, var í Kvenfélag- inu Líkn frá 1959, þar af í stjórn frá ’80–’86. Þá starfaði hún með Leikfélagi Vestmannaeyja í ára- tugi. Þegar félagið Krabbavörn í Vestmannaeyjum var endurvakið eftir að hafa legið niðri til fjölda ára var Kristín ein af stofnendum þess og formaður frá upphafi. Átti það félag hug hennar allan. Útför Kristínar Elísu verður gerð frá Landakirkju í Vest- mannaeyjum í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. Snorri Þ. Rútsson, 7) Baldvin Gústaf, f. 1957, maki Anna Gunnlaugsdóttir og 8) Hörður, f. 1961, maki Bjarney Magnúsdótt- ir. Kristín giftist 12. desember 1955 eftir- lifandi manni sínum, Herði Runólfssyni járniðnaðarmanni, f. 4. október 1935, en hann er sonur hjónanna Unnar Þor- steinsdóttur og Run- ólfs Runólfssonar, sem bæði eru látin. Börn Kristínar Elísu og Harðar eru: 1) Baldvin Þór, f. 26.3. 1954, sambýliskona Magdalene Lyberth, börn hans með fyrrverandi eiginkonu, Höllu Jónsdóttur, eru: a) Kristín, f. 1973, sambýlismaður Róki Tummarson, börn þeirra eru Halla og Páll, b) Jón Þór, f. 1977, og c) Linda Sif, f. 1987. 2) Sólrún Unnur, f. 1.10. 1961, unnusti var Albert Ólason, Elsku mamma. Mamma mín, nú ertu farin, allt of fljótt og allt of snögglega. Enginn náði að kveðja og enginn var hjá þér þegar þú kvaddir. Mín trú er samt sú að allir sem fara yfir móðuna miklu finni fyrir miklum friði og líði vel þannig að nú líður þér eins og drottningu og er það vel. Ég vil þakka þér af heilum hug fyrir allt, þó svo að við höfum ekki alltaf náð saman. Þakka þér fyrir frábæra heimsókn þegar þú varst hjá mér í byrjun maí og yndislegar móttökur þegar ég kom á gos- lokahátíðina í byrjun júlí. Ég vildi að allar okkar heimsóknir til hvor ann- arrar hefðu verið eins og þessar tvær. Mér finnast öll orð fátækleg núna. Ég er frosin og tóm, svo hræðilega tóm, en minningarnar hrannast upp og þær ylja mér, því mér er svo kalt núna, eins og þér. Þú varst oft svo ótrúlega dugleg. Þú sigraðist á ótta þínum við að flytja heim aftur eftir gos ’73 og þú sigraðist á krabbameini ’77 þegar þér var ekki hugað líf. En einu sigr- aðist þú ekki á og við vitum báðar hvað það var. Ég veit að ég kem alltaf til með að sakna þín og sakna þess sem hefði getað orðið. Ég bið þess að þú getir hvílt í friði og vakað yfir okkur. Sofðu rótt, mamma mín. Þín elskandi dóttir, Sólrún Unnur. Ég er staddur á yndislegum stað í Kópavogi á fallegum sumardegi, eitt símtal, mamma mín er dáin. Lífið er fljótt að breytast, og margar hugs- anir leita á mig. Ég hef alltaf verið mömmustrákurinn þinn, mamma, og það er kannski engin tilviljun. Ég þyki líkur þér bæði í útliti og tökt- um. Fyrstu minningarnar af okkur saman var þegar ég var að brullast með þér og Guðrúnu Andersen heima og á Vestmannabrautinni, ófáu sundferðirnar okkar saman, allar æfingarnar í leikfélaginu og kirkjukórnum, enda kann ég suma sálma utanað í dag eftir allan þenn- an tíma. Ekki má gleyma okkur saman að bera út póstinn, eins og mér fannst það leiðinlegt. Einnig ristir djúpt í mér þín alvarlegu veik- indi sem þú fyrir kraftaverk náðir þér af þegar ég var tólf ára. Jói, ég mun aldrei gleyma þegar við báðum fyrir mömmu saman í herbergi mínu, við vorum bænheyrðir, þú getur aldrei ímyndað þér hvað mér þykir vænt um þig eftir þetta atvik. Þegar maður eldist og sér þessa tíma í fjarlægð þá verða þeir minn fjársjóður sem skapaði mig sem full- orðinn mann. Mamma, ég hef svo margt að þakka þér. Þú lést mig alltaf finnast að ég væri hetjan þín og ekki síst í íþróttaiðkun minni, þar varst þú alltaf á fremsta bekk að hvetja mig og varst alltaf svo montin af mér. Ég er svo stoltur og þakklátur hve fjölskylda mín var mikið ljós í lífi þínu, mamma. Þú varst orðin svo vonlaus um að ég mundi eignast barn en það rættist heldur betur úr því. Ég er ekkert bitur þó að þú verðir ekki í lifanda lífi þegar Sig- urlína fæðir barnið vegna þess að ég veit og finn að þú ert hjá okkur. Mamma, ég gæti skrifað heila bók um okkar líf saman en það er ekki tilgangurinn hér. Elsku mamma mín, ég elska þig af öllu mínu hjarta, þú ert besta mamma í heimi. Ég bið góðan Guð að varðveita þig og ég mun varðveita minningu þína alla mína tíð. „Kónginn hennar mömmu hín“. Smári Kristinn. Elsku amma mín. Ég trúi því bara ekki að þú skulir vera farin frá mér. Þegar ég kom inn á Bröttó á þriðjudagskvöldið bjóst ég við því að þú myndir taka á móti mér, knúsa mig og gefa mér ristað brauð með marmelaði. Þegar ég hugsa til baka þá hrann- ast upp minningar um hana elsku ömmu mína, sem var alltaf svo góð við mig. Ég hálfpartinn ólst upp hjá ykkur afa, amma mín, en í hvert ein- asta skipti sem ég steig inn um dyrnar tókstu mér svo fagnandi að það var eins og við hefðum ekki sést í mörg ár. Í raun veit ég ekkert hvað ég á að að hripa niður á þetta blað, þar sem ég sit í stofunni þinni, býst einhvern veginn alltaf við að þú komir inn og spyrjir hvað ég sé að gera. Ég vil bara þakka þér fyrir að hafa verið partur af lífi mínu og fyrir að hafa kennt mér svo ótal margt. Ég sakna þín svo sárt, elsku amma mín, en veit að þú ert nú á betri stað. Eins og Sigmund Freud sagði: „Markmið alls lífs er dauðinn“ og það kemur víst að þessu hjá okkur öllum. Ég hugsa til þín á hverjum degi en veit að við sjáumst aftur seinna. Hafðu það gott, amma mín. Þinn elskandi dóttursonur, Hörður. Elsku amma mín. Hvar á ég að byrja? Ég sakna þín svo mikið að engin orð fá því lýst. Þú varst alltaf svo yndisleg við mig þeg- ar ég kom og þú studdir mig í öllu sem ég tók mér fyrir hendur. Við gátum alltaf spjallað um allt milli himins og jarðar tímunum saman við eldhúsborðið, á meðan þú sötr- aðir te og lagðir gamla góða kap- alinn þinn. Hluti af því að koma til Eyja var að fá ristað brauð hjá ömmu og afa, með marmelaði, alveg sama hve mikið ég reyndi þá var það aldrei jafn gott og hjá ömmu og afa. Þú elskaðir barnabörnin þín rosa- lega mikið og baðst oft um fleiri, vildir svo fá nóg af barnabarnabörn- um líka því þú hafðir svo mikla ást að gefa. Ég trúi því varla að ég hafi verið hjá þér fyrir svona stuttu síð- an. Þú varst alveg jafn hress og venjulega og spjallaðir um heima og geima og varst svo óskaplega stolt og ánægð að sjá mig, svona unga stúlku, borða svið. Elsku amma mín, ég veit að þú ert á mun betri stað og líður vel. Ég veit líka að þú munt vaka yfir afa og passa hann fyrir okkur. Ég elska þig, amma mín. Hrefna Dís. Elsku amma. Ég man þegar ég kom til þín og afa í fyrrasumar. Við áttum svo skemmtilegan tíma saman að ég á erfitt með að trúa því að þú sért far- in. Ég á eftir að sakna þín mikið og þú skilur eftir gat í hjarta mínu. Ég veit að þú ert komin á betri stað og þú ert örugglega búin að hitta lang- ömmu núna. Ég mun alltaf hugsa til þín. Þinn Birkir. Nokkur orð frá litlum ömmustrák. Amma Stína dó. Pabbi, ég hef sorgarfréttir að færa þér, hún amma dó. Afi, af hverju dó amma? Mamma, ég sakna svo ömmu, hve- nær kemur hún aftur? Já, en ég vil svo mikið fá hana aft- ur. En hver ætlar að sofa hér hjá afa? Gott, þá þarf afi ekki að vera einn og einmana. Nú er amma mín að verða engill og það eru að vaxa á hana vængir og hún er komin með eina doppu í hringinn, æi, þú veist ljósahringinn fyrir ofan höfuðið og við verðum að spjalla alltaf um ömmu og fylgjast með henni, svo við vitum hvenar hringurinn er orðin fullur af ljósi, á morgun verður hún komin með tvær doppur. Amma Stína leyfði mér alltaf allt. Mér fannst svo gaman þegar amma sagði „Ekkert Lundareykja- dals neitt hér“ og við vorum að leika með Brulla bangsa og Jobba bangsa. Amma kallaði mig alltaf kónga- prinsinn sinn, það var svo gaman. Mér fannst svo gaman að leika í pappakassanum með ljós og svo „bregðaði“ ég henni, það fannst okk- ur svo gaman og við hlógum svo mik- ið. Amma mín var alltaf svo góð við mig, ég vil svo mikið fá hana aftur en nú er hún hjá guði. Hvað er síminn hjá guði? Kær kveðja frá Kóngaprinsinum hennar ömmu, Guðjón Smári Smárason. Nú þegar stóra systir kveður og kaldur veruleikinn blasir við koma minningarnar upp í hugann: Stína var elst af okkur níu systkinunum og þess vegna höfuð okkar og svo sann- arlega foringinn í krakkahópnum. Lífsbaráttan hjá foreldrum okkar var stundum nokkuð hörð, og eins og áður sagði systkinahópurinn stór, pabbi oftast á sjónum og mamma þurfti tilfinnanlega á hjálp að halda við heimilishaldið. En við áttum Stínu og það var stóreign, það viss- um við bræður vel þótt við værum ekki alltaf að hafa orð á því. Stóra systir byrjaði mjög ung að taka til hendinni á heimilinu og munaði þá svo sannarlega um. Hún var með af- brigðum dugleg og ólöt við hvað, sem þurfti að gera. Ef illa gekk að fá okk- ur bræður til að hlýða með góðu þurfti hún stundum að beita hörk- unni og þá sagði enginn orð, enda svo sannarlega ástæða til að skamm- ast sín. Það var ekki bara dugnaður- inn og skipulagshæfileikar stóru systur sem ég veitti athygli, mér fannst einhvernveginn hún vera best í öllu, frábær í skólanum, kunni fullt af lögum og söng svo vel, var hrókur alls fagnaðar þegar það átti við, hafði þennan hárfína húmor og gat vakið hlátur þegar þess þurfti með. Stína var smekkleg og handlagin, gat saumað það sem hún vildi og man ég eftir því að eitt sinn saumaði hún sér kjól úr striga sem fór svo ljómandi vel í lokin, eins og mér leist illa á tiltækið í byrjun. Æskuárin liðu og daman var komin með kærasta, en ekki var pláss fyrir parið á heim- ilinu okkar og ekki heldur á heimili kærastans, Harðar Runólfssonar. Þau þurftu því strax að bjarga sér að öllu leyti sjálf og hafa gert það síðan. Gæfusporið var þarna stigið, Hörður var svo sannarlega drauma- prinsinn, traustur og tryggur. Unga parið hóf búskap í kjallaranum í Laufási. Fljótlega keyptu þau sér lóð númer 14 við Bröttugötu og haf- in var bygging þar sem bjartsýnin og dugnaðurinn var það sem lagt var upp með. Á þessum tíma var mikill uppgangur í Vestmannaeyj- um og auðvelt fyrir duglegt fólk að fá mikla vinnu. Hörður var einn þeirra sem nýttu sér það og þrátt fyrir langan vinnudag og stuttan hvíldartíma tók hann drjúgan hlut af svefntíma sínum við vinnu í bygg- ingunni. Fyrr en varði var flutt í nýtt glæsilegt hús sem hefur verið heimili þeirra síðan. Nú komu dásamlegir tímar, Brattagata 14 fylltist af lífi og þegar flutt var voru þau orðin þrjú, Baldvin, frumburð- urinn, kominn í heiminn. Seinna kom svo Sólrún Unnur og síðastur Smári Kristinn. Eins og gengur uxu börnin úr grasi og fluttu að heiman í fyllingu tímans og eiga nú hvert sína fjöl- skyldu. Um alllangt skeið hafa að- eins Hörður og Stína verið heim- ilisföst á Bröttugötu 14 sem segir þó ekki alla söguna, því dyrnar á Bröttugötu 14 hafa svo sannarlega staðið opnar fyrir ættingjum og vin- um og oft hafa börnin og barnabörn- in dvalið hjá þeim tímabundið. Eins og hjá öðrum skiptust á skin og skúrir í lífi Stínu, heilsa hennar var ekki sterk og þurfti hún því að berjast á þeim vettvangi um langt skeið. Með tímanum minnkaði baráttuþrek hennar og þá kom sér vel að eiga góða fjölskyldu sem stóð þétt við bakið á henni. Þar var Hörður traustur, eins og alltaf þeg- ar á reyndi. Við Halla vottum Herði, börnum hans og fjölskyldum þeirra okkar dýpstu samúð og biðjum góðan guð að styrkja þau í sorginni. Með þessum fátæklegu orðum kveð ég mína góðu systur en mun varðveita minningu hennar alla tíð. Elías. Elsku Stína mín. Nú er komið að kveðjustund, í bili. Þegar ég kom í þessa fjölskyldu fyrir rúmum fjörutíu árum, þá að- eins krakkakjáni, tókst þú strax á móti mér sem jafningja. Með okkur myndaðist órjúfanleg vinátta sem hefur staðið óhögguð í gegnum súrt og sætt öll þessi ár. Aldrei hefur okkur orðið sundurorða allan þenn- an tíma. Samvera okkar hefur skipt mig mjög miklu máli enda hittumst við oft í viku öll þessi ár. Í fyrstu voru ferðirnar hjá mér óteljandi til ykkar Harðar í fallega húsið ykkar á Bröttugötunni, þú varst svo mikil húsmóðir að unun var að fylgjast með þér vinna heim- ilisverkin. Þú varst alltaf svo vand- virk og smámunasöm í öllum verk- um að þér fannst aldrei nógu vel vandað til verka. Það var mikið lán fyrir mig að fá að horfa á þig þrífa, strauja, baka og ýmislegt annað og geta lært af þér þar sem ég hafði ekki mömmu á staðnum til að ráð- leggja mér. Þegar árin liðu óx okkar góða og mikla vinátta og gátum við talað saman um öll okkar mál hvor við aðra og gátum treyst því að þau færu ekki lengra. Síðustu árin höfum við getað miðl- að hvor annarri af reynslu okkar og reynt að styrkja hvor aðra á erfiðum tímum sem alltaf koma í lífinu hjá öllum. Ég lít á það sem mikla gæfu fyrir mig að hafa fengið að ganga með þér þennan hluta lífsgöngunn- ar. Þær eru margar gleðistundirnar sem gott er að ylja sér við í sorginni. Það var ljúft að faðma þig og kyssa þegar ég sá að stundin var komin og friðurinn mikli hvíldi yfir andliti þínu. Elsku Stína mín, ég þakka þér fyrir öll árin. Ég veit að mamma þín hefur tekið á móti þér með opinn faðminn. Elsku tengdapabbi, Hörður, Bald- vin, Sólrún, Smári og þið öll, elsk- urnar mínar, ég veit að Guð gefur KRISTÍN ELÍSA BALDVINSDÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ birtir af- mælis- og minningargreinar end- urgjaldslaust alla daga vikunnar. Greinunum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is - svar er sent sjálfvirkt um leið og grein hefur borist) eða á disklingi og þarf útprentun þá að fylgja. Nauðsynlegt er að tilgreina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnusíma og heima- síma). Tekið er á móti afmælis- og minningargreinum á 1. hæð í húsi Morgunblaðsins, Kringlunni 1 í Reykjavík, og á skrifstofu Morgunblaðsins Kaupvangs- stræti 1 á Akureyri. Ekki er tek- ið við handskrifuðum greinum. Minningargreinum þarf að fylgja formáli með upplýsingum um hvar og hvenær sá sem fjallað er um er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin verður gerð og klukkan hvað. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formál- anum, sem er feitletraður, en ekki í greinunum sjálfum. Um hvern látinn einstakling birtist ein aðalgrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar séu um 300 orð eða 1.500 slög (með bilum) en það eru um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Til- vitnanir í sálma eða ljóð tak- markast við eitt til þrjú erindi. Einnig er hægt að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5– 15 línur, og votta virðingu án þess að það sé gert með langri grein. Greinarhöfundar eru beðn- ir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dög- um fyrr. Ef útför er á sunnudegi, mánudegi eða þriðjudegi þurfa greinarnar að berast fyrir hádegi á föstudegi. Berist greinar hins vegar ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist á réttum tíma. Birting afmælis- og minningargreina

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.