Morgunblaðið - 26.07.2003, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 26.07.2003, Blaðsíða 42
TÓNLISTARÚTGÁFAN í sumar er með blómlegasta móti. Skífan er áberandi í útgáfu sumarsins en sum- ar-safnplatan Svona er sumarið kemur í ár út í 6. sinn. Svona er sum- arið-plöturnar kynna oft til sög- unnar efnilega nýliða og eru jafnvel fyrirboði um væntanlega haustútgáfu stærri hljómsveita og sló blaðamaður því á þráðinn til Eiðs Arnarssonar útgáfustjóra Skífunnar og spurði hann um það loforð um gott tónlistarhaust sem safnplatan er. „Það má alveg segja að það sé ákveðin áskrift í gangi,“ játar Eiður feimnilaust þegar hann er spurður hvort það séu nokkuð eingöngu gæði laganna sem ráði að þau rati á plöt- una eða hvort vissar hljómsveitir eigi víst pláss. „Það er þó aðeins þannig að segja má að þær hljóm- sveitir sem við erum að vinna með reglulega eigi frátekið pláss á plötunni. Frá okkar bæjardyrum er þetta nefnilega ekki hvað síst kynning á vænt- anlegri útgáfu haustins.“ Það er þó stór hópur laga sem ratar inn á plötuna eingöngu vegna gæða: „Þann- ig er lag SSSólar, „Uppsprettan“, dæmi um undantekn- ingu því þeir eru ekki á okkar vegum og lagið er bara þarna vegna þess að það er grípandi gæðalag sem við vildum endilega hafa með.“ Á plöt- unni má því finna lög eftir vinsælustu böndin í dag á borð við Írafár, Í svörtum föt- um og Sálina hans Jóns míns en einnig er nokkur fjöldi lítið eða næsta ekkert þekktra listamanna sem taka lagið eins og Lísa (Guðrún Lísa Einarsdóttir) og Ber. Margir vilja komast að Að sögn Eiðs er mikil ásókn í að komast að á plötunni: „Það er al- gengt að við þurfum að hafna 3 til 5 mjög boðlegum lögum sem hefðu al- veg komist inn ef það hefði verið pláss og síðan milli 5 og 10 lögum sem okkur berast og maður einfald- lega hafnar því þau eiga ekki erindi inn á plötuna. Platan gæti því sjálf- sagt verið tvöföld á hverju ári en hún yrði líklega síðri þannig.“ Eiður vill þó meina að það hafi ekki úrslitaáhrif hvort hljómsveit kemst inn á safnplötuna eða ekki: „Þetta er auðvitað viss kynning fyrir hljómsveitinar og margir sem gera út á sumarmarkaðinn að einhverju leyti og líta þá þannig á það að þeir séu að stimpla sig inn með því að vera á þessari plötu. Ég er samt ekki mjög sammála því og læt oft fylgja með þegar ég þarf að hafna lögum að það sé líf eftir Svona er sumarið. Þetta hefur ekki það mikið að segja þó menn séu í félagsskap við margar vinsælustu hljómsveitirnar hverju sinni.“ Það hefur samt alltaf, að einhverju marki, verið stefnan að leyfa nýjum nöfnum að birtast á safnplötunni. „Það er ekki síst vegna þess að oft á tíðum er of snemmt fyrir suma lista- mennina að gera heilar plötur og þá er best að byrja á stökum lögum,“ segir Eiður. Eins og fyrr segir eru lögin á plötunni mörg fyrirboði um væntanlegar breiðskífur. Að sögn Eiðs er því von á plötum í haust frá Írafári, Sálinni hans Jóns míns, 200.000 naglbítum sem gera sína fyrstu plötu í 3 ár, Daysleeper, Selmu Björnsdóttur og Bubba Morthens. Eiður segir óvíst hvort að SSSól láti frá sér plötu, þó hann viti til þess að þreifingar eigi sér stað í þá átt. Meðal banda sem eiga lög á sumarsafnplötunni og hyggja á útgáfu í haust eru Day- sleeper og 200.000 Nagl- bítar. asgeiri@mbl.is Safnplatan Svona er sumarið 2003 vísbending um tónlistarútgáfu haustsins Sumarlög fyrirboði um haustútgáfu 42 LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Sýnd kl. 4 og 6.Sýnd kl. 8 og 10.10. Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.15. B.i. 14 ára. Stríðið er hafið! Tortímandinn er kominn aftur. Fyrsta flokks spennumynd.  Kvikmyndir.com SV. MBL HK. DV YFIR 15000 GESTIR! HUGSAÐU STÓRT EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS Miðasala opnar kl. 13.30 Sýnd kl. 2. Ísl. tal. 500 kr. Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 14  X-IÐ 97.7  SV MBL  ÓHT RÁS 2  HK DV Sýnd kl. 4 og 6. Sýnd kl. 2, 3, 4.30, 5.40, 8 og 10.20. Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30. B.i. 14 ára. kl. 3.30, 6, 8.30 og 11. Stríðið er hafið! SV. MBL HK. DV Tortímandinn er kominn aftur. Fyrsta flokks spennumynd.  Kvikmyndir.com YFIR 15000 GESTIR! Sumarkvöld við orgelið 26. júlí kl. 12 Lars Frederiksen orgel 27. júlí kl. 20 Lars Frederiksen Verk m.a. eftir Buxtehude og Reger. 18. SÝNING LAUGARDAG 26/7 - KL. 17 UPPSELT 19. SÝNING MIÐVIKUDAG 30/7 - KL. 20 UPPSELT 20. SÝNING FIMMTUDAGINN 31/7 - KL. 20 UPPSELT 21. SÝNING MIÐVIKUDAGUR 20/8 - KL. 20 LAUS SÆTI 22. SÝNING FIMMTUDAGINN 21/8 - KL. 20 LAUS SÆTI 23. SÝNING LAUGARDAGINN 23/8 - KL. 16 LAUS SÆTI 24. SÝNING LAUGARDAGINN 23/8 - KL. 20 LAUS SÆTI 25. SÝNING FÖSTUDAGINN 29/8 - KL. 20 LAUS SÆTI 26. SÝNING LAUGARDAGINN 30/8 - KL. 16 LAUS SÆTI ATHUGIÐ ÓSÓTTAR PANTANIR SELDAR DAGLEGA !

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.