Morgunblaðið - 26.08.2003, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 26.08.2003, Blaðsíða 20
SUÐURNES 20 ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI UM 850 nýir nemendur hófu nám í dagskóla Fjölbrautaskóla Suður- nesja í Keflavík við upphaf haust- annar í síðustu viku. Er það 120 nemum fleira en hófu nám síðasta haust. Nemendum öldungadeildar FSS fjölgar einnig, þar eru 230 skráðir til náms á móti 180 í fyrra. Þá taka um 200 nemendur í grunnskólum á Suð- urnesjum áfanga sem skólinn býður völdum nemendum til að flýta vænt- anlegu framhaldsskólanámi þeirra. Nálgast landsmeðaltal Fjölgun nýnema kemur Ólafi Jóni Arnbjörnssyni skólameistara ekki á óvart. Hann segir að fjölgun hafi ver- ið séð fyrir meðal annars vegna fjölgunar í árgöngum sem sækja grunnskólana á Suðurnesjum. Nefn- ir hann að þegar gerðar voru áætl- anir um stækkun á húsnæði skólans fyrir fimm árum hafi verið miðað við að nýbyggingin kæmist í gagnið í haust. Mun lægra hlutfall ungmenna á Suðurnesjum stundar nám við fram- haldsskóla en í öðrum landshlutum. Samkvæmt nýlegum tölum Hag- stofu Íslands hækkaði hlutfallið úr 80 í 83% af öllum sextán ára ung- mennum á síðasta ári og Ólafur Jón telur að ýmislegt bendi til þess að það sé nú að komast í 88%. Lands- meðaltalið er um 90%. „Tölurnar í fyrra og núna virðast sýna að hug- arfarsbreyting sé að verða hér. Það verður spennandi að sjá næstu tölur Hagstofunnar,“ segir skólameistari. Fjölbrautaskólinn hefur verið með öflugt kynningarstarf í grunnskólun- um, meðal annars til að fá fleiri grunnskólanemendur til að fara í framhaldsskóla. Nokkurt atvinnuleysi hefur verið á Suðurnesjum og veltir Ólafur því fyrir sér hvort aukin ásókn í nám endurspegli á einhvern hátt atvinnu- ástandið. Ólafur Jón segir að til vandræða horfi með að koma þessum fjölda fyrir í skólanum. „Við verðum að hafa kennsluhópana stóra, allar skonsur eru nýttar og við teygjum okkur fram eftir degi með kennsl- una. Þá erum við að huga að leigu- húsnæði,“ segir Ólafur og bætir því við að starfsfólkið sjái lausnina fram- undan og sýni þess vegna skilning á aðstæðum í vetur. Í sumar hófust framkvæmdir við stækkun skólahússins og verður það tekið í notkun 1. ágúst á næsta ári. Jafnmikil fjölgun nemenda og raun ber vitni kallar á aukin útgjöld. Ólafur Jón tekur fram að ekki sé fært að vísa Suðurnesjamönnum annað í nám. En fjölgunin leiði til hallareksturs ef ekki fáist fram leið- rétting á fjárveitingum en skólinn hefur verið rekinn hallalaus að minnsta kosti síðustu tíu árin. Segir Ólafur að í menntamálaráðuneytinu sé verið að leita leiða til að leysa fjár- málin. Þröng á þingi í Fjölbrautaskóla Suðurnesja á haustmisseri 120 fleiri nemend- ur hefja nú nám Suðurnes ÁSA Arnlaugsdóttir, eigandi húss- ins að Túngötu 9, fékk verðlaun umhverfisráðs Sandgerðis fyrir fallegasta garðinn í ár. Umhverf- isverðlaun Sandgerðis voru afhent við hátíðlega athöfn á veitingahús- inu Vitanum. Ása Arnlaugsdóttir hefur rækt- að garðinn við hús sitt, Túngötu 9, í þrjátíu ár. Í umsögn umhverf- isráðs kemur fram að garðinum hafi verið sinnt af mikilli alúð og natni. Hann sé mjög fjölskrúðugur og greinilega allt lagt í hann. Umhverfisráðið veitti viðurkenn- ingar fyrir tvo aðra garða. Fram kom að ráðinu hafi verið vandi á höndum í þetta skipti vegna þess hversu sumarið hafi verið gróð- ursælt og garðagróður vaxið vel. Eigendur Holtsgötu 33, Þórður Þorkelsson og Vilborg Knútsdóttir, fengu viðurkenningu fyrir snyrti- legt umhverfi húss og lóðar og sér- lega fallegan nýjan garð. Eigendur Suðurgötu 7, Margrét Arna Egg- ertsdóttir, Benóný Benónýsson, Bocena Modzelewska og Slawomir Modzelewska fengu viðurkenningu fyrir snyrtilegt umhverfi í gegnum árin. Ásu hefur gengið vel að rækta garð sinn og hún blæs á ummæli manna um að ekkert sé hægt að rækta á Suðurnesjum. Hún segir að í garðinum séu 60 tegundir af trjám og runnum og á annað hundrað fjölærar plöntur og sum- arblóm. Og hún ræktar sjálf sum- arblómin. „Það er ótrúlegt hvað hægt er að rækta hér. Þegar ég var að byrja fyrir 25–30 árum lenti ég auðvitað í ýmsu en lærði þetta smám sam- an,“ segir Ása. Hún segir að garð- vinnan sé sitt líf og yndi, helst vildi hún eyða öllu sumarfríinu við hana. Hún segir nauðsynlegt að hugsa vel um gróðurinn til að hann dafni vel. Hins vegar neitar hún því að það sé mikil vinna að halda við góðum garði. „Það er létt að vinna skemmtileg störf,“ segir hún. Hún kvartar helst undan ágangi katta, segir hart að gróðurinn skuli ekki fá að vera í friði fyrir þeim. Morgunblaðið/Reynir Sveinsson Á Holtsgötu 33 er fallegur garður við nýtt íbúðarhús. Eigendur Suðurgötu 7 fengu viðurkenningu fyrir snyrtilegt umhverfi. Hefur það lengi verið þannig. Umhverfisverðlaun Sandgerðis veitt eigendum þriggja garða Létt að vinna skemmti- leg störf Verðlaunahafarnir, f.v., Ása Arnlaugsdóttir, Margrét Arna Eggertsdóttir, Slawomir Modzelewska, Þórður Þorkelsson og Vilborg Knútsdóttir. Lengst til hægri er Bergný Jóna Sævarsdóttir, formaður umhverfisráðs. Í garðinum á Túngötu 9 eru 60 tegundir runna og trjáa og á annað hundrað blómategunda. Sandgerði BISKUP Íslands hefur ákveðið að setja séra Arnald Bárðarson sem prest í Glerárprestakalli á Akureyri frá 1. september nk. Sr. Arnaldur hefur undanfarin ár þjónað í Ljósa- vatnsprestakalli en fyrir Kirkjuþingi í haust liggja tillögur um að sameina það prestakall nærliggjandi presta- köllum. Þorvaldur Karl Helgason, biskupsritari, segir að með þessari ákvörðun sé biskup að bregðast við margítrekuðum óskum séra Gunn- laugs Garðarssonar, sóknarprests í Glerárprestakalli, um aðstoð. „Það var ákvörðun biskups í þessu fjöl- menna og barnmarga prestakalli að styðja við bakið á því með þessum hætti. Og þarna í námunda var mað- ur sem var fús til að flytja sig til og axla þessa nýju ábyrgð og þar var hægt að leysa þjónustuna með öðr- um hætti,“ sagði Þorvaldur Karl. Sr. Arnaldur er settur í starfið til nokk- urra mánaða og segir Þorvaldur Karl að ef þessi ráðstöfun reynist vel, og það sýni sig að þörf sé á henni til frambúðar, þá verði staðan aug- lýst með vorinu. Sr. Jóna Lísa í leyfi Í haust fer sr. Jóna Lísa Þor- steinsdóttir, prestur í Akureyrar- prestakalli, í sex mánaða launalaust leyfi. Þegar hefur verið gengið frá því að sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir, sóknarprestur á Raufarhöfn, leysi hana af þennan tíma. Séra Hildur Sigurðardóttir, prestsfrú á Skinna- stað, mun síðan leysa Örnu Ýr af á Raufarhöfn á meðan. Breytingar í presta- köllum á Akureyri DANINN Kim Kapp- el Christensen, mæl- ingamaður hjá Ak- ureyrarbæ, sigraði í fyrsta Heljuhlaup- inu, sem svo er kall- að, en það fór fram á laugardaginn. Það var Ungmenna- félagið Þorsteinn svörfuður sem gekkst fyrir keppn- inni, sem þótti afar vel heppnuð þótt hlaupaleiðin hafi verið erfið. En sól skein í heiði og sum- ir keppendur gáfu sér meira að segja tíma til þess að kíkja í ber í leiðinni! Þátttakendum var fyrst ekið í lang- ferðabíl frá Dalvík inn í Kolbeinsdal og síðasta spölinn í jeppa björgunar- sveitarmanna. Tók ferðalagið um þrjár klukkustundir. Hlaupið hófst í Kolbeinsdal, þaðan var hlaupið yfir Helj- ardalsheiði og niður í Svarfaðardal þar sem keppni lauk við Atlastaði. Hlaupið var alls 15 kílómetr- ar og var hækkunin á leiðinni um 700 metrar; hlaupið hófst í um það bil 200 metra hæð yfir sjáv- armáli og hæst var farið í 900 metra. „Þetta er í fyrsta skipti sem ég hleyp upp til fjalla, en örugglega ekki í það síðasta,“ sagði Kim Kappel Christensen í samtali við Morgunblaðið, en hann fór vega- lengdina á tæpri einn og hálfri klukkustund. Kim viðurkenndi að hlaupið hefði verið nokkuð erfitt, enda mjög bratt upp á efsta hjalla og jafnframt afar bratt þaðan nið- ur aftur. „Á versta kaflanum var líka mikið um stóra steina þannig að maður þurfti að passa sig vel.“ Á kafla var farið yfir jökulurð sem gerði hlaupurunum líka nokkuð erfitt fyrir. Þegar komið var efst á Heljar- dalsheiðina var útsýnið ægifag- urt, að sögn Kims. „Það var mjög fallegt að horfa út yfir Svarf- aðardalinn. Annars gaf ég mér svo sem ekki mikinn tíma til þess að líta í kringum mig; en á þess- um kafla hafði ég reyndar gott forskot þannig að ég naut útsýn- isins í smástund.“ Christensen er 46 ára og hefur stundað hlaup reglulega síðstu 20 ár eða svo. „Ég byrjaði að hlaupa um 25 ár aldur, í Árósum, og hef verið hlaupandi meira og minna síðan!“ Hann fluttist til Íslands fyrir tveimur árum ásamt fjöl- skyldu sinni og starfar hjá Ak- ureyrarbæ sem fyrr segir. Helsta hlaup hans á ári hverju er Akureyrarhlaupið svokallaða, sem nú fer fram laugardaginn 13. september, og var Heljuhlaupið liður í undirbúningi hans fyrir það. Kim er félagið í lang- hlaupadeild Ungmennafélags Ak- ureyrar en sá hópur hleypur sam- an þrisvar í viku hverri. Dalir og heiðar skörtuðu sínu fegursta á laugardaginn. Skráðir þátttakendur voru alls 48 og allir skiluðu sér í mark, en einhverjur notuðu tækifæri og könnuðu berjasprettuna að sögn! Vert er að geta þess að í ár eru 800 ár liðin frá því Guðmundur góði varð biskup á Hólum en hann var áður prestur að Völlum í Svarfaðardal. En þá var leiðin um Helju helsta samgönguæðin milli Eyjafjarðar og Skagafjarðar. Kim Christensen sigraði í fyrsta Heljuhlaupinu. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Fyrsta fjalla- hlaupið en ekki það síðasta
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.