Morgunblaðið - 26.08.2003, Blaðsíða 23
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST 2003 23
DANSAÐU HANDFRJÁLS
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
21
88
6
0
8/
20
02
Handfrjáls búnaður Samlituð vindskeið Hágæða hljómtæki Lúxus innrétting
COROLLA - MOBILE Vertu í góðu sambandi. Komdu strax. Prófaðu nýjan Corolla Mobile með handfrjálsum búnaði, Sedan,
Hatchback eða Wagon. Corolla Mobile er hlaðinn nýjungum, innréttingin er ríkuleg og tónlistin dunar í hágæða hljómtækjum með 6 hátölurum. Corolla
Mobile er glæsilegur bíll að utan sem innan. Við bjóðum þér upp.... í reynsluakstur. www.toyota.is
HÆGT er að kaupa áfyllingar fyrir
blekhylki í sprautuprentara og fylla
sjálfur á notuð hylki, og má fylla
þrisvar til sex sinnum á hylkið fyrir
verð eins nýs hylkis. Einnig er hægt
að kaupa notuð hylki sem hafa verið
fyllt af fagmönnum mun ódýrara en
ný hylki.
Að minnsta kosti tvö fyrirtæki eru
nú starfandi á þessum markaði hér á
landi. Það er lítið mál að fylla á notuð
blekhylki, „þetta er svona eins og að
setja bensín á bílinn,“ segir Páll
Matthíasson, einn af eigendum Pal-
Mat. PalMat kaupir notuð hylki, fyll-
ir á þau og selur aftur.
Einnig selur fyrirtækið áfyllingar-
sett sem eigendur prentara geta not-
að sjálfir.
Páll segir mikinn sparnað í báðum
aðferðunum, þó meiri ef fólk fyllir á
sjálft, ekki ósvipað og með bensínið,
enda „original“ hylki dýr.
Það er ekki mikið mál að fylla
sjálfur á blekhylkin að mati Páls, en
nauðsynlegt að lesa leiðbeiningarn-
ar. Hægt er að fylla venjulegt
bleksprautuhylki á 10 mínútum, og
enn fljótar ef sá sem fyllir á er orðinn
vanur. Framleiðendur hylkjanna
segja þau einnota og að það sé ekki
gott að nota þau oftar. „Reynslan
hefur bara sýnt annað,“ segir Páll.
Einnig benda framleiðendur á að
gæðin séu ekki þau sömu og á nýjum
hylkjum. „Gæðin eru mjög mikil,“
segir Páll. „Liturinn er kannski ekki
alveg nákvæmlega sá sami og kemur
í hylkjunum en þetta er samt há-
gæðablek og hylkið á að skammta
sömu litina ef þau eru fyllt rétt.“
Ný hylki annarra framleiðenda
Annað íslenskt fyrirtæki sem sér-
hæfir sig í sölu á fyllingum í prentara
er netverslunin Blek.is. Í netversl-
uninni eru meðal annars seld ný
blekhylki frá öðrum framleiðendum
en framleiðendum prentaranna
sjálfra, auk áfyllingarsetta sem ein-
staklingar geta notað til að fylla á
notuð hylki.
Best gengur að selja ný hylki:
„Þetta hefur gengið nokkuð vel,
þetta eru ódýrari hylkin og sam-
bærileg við „original“ hylkin og tón-
erana [í leysi-prentarana],“ segir
Steingrímur Matthíasson hjá
Blek.is. „Við erum einnig með áfyll-
ingar, en fólk hefur ekki verið mjög
hrifið af þeim. Við erum að selja svo
ódýr blekhylki að við getum boðið ný
blekhylki á lægra verði en blekáfyll-
ingarnar.“
Hægt er að fá blekhylki í flestar
tegundir prentara, framleidda af
öðrum fyrirtækjum en þeim sem
framleiða prentarana sjálfa og eru
hylkin keypt frá bæði Bandaríkjun-
um, Evrópu og Asíu.
„Við erum búnir að selja þetta í
hundraðavís og það hefur verið mjög
lítið um kvartanir,“ segir Steingrím-
ur. Hann segir að meðal viðskipta-
vina Blek.is séu stór fyrirtæki, til
dæmis bankar, lyfjafyrirtæki og
hugbúnaðarfyrirtæki, auk almennra
notenda.
Segja hylkin einnota
Spurður um kvartanir vegna leka
segir hann engin dæmi hafa komið
upp um slíkt.
Gæðin á áfylltum hylkjum eru vel
sambærileg við gæði á hylkjum frá
framleiðendum prentaranna, að
hans sögn.
„Mér finnst þetta frekar varasamt
og ekki eitthvað sem menn ættu að
gera,“ segir Guðmundur Bender,
vörustjóri HP prentara hjá Opnum
kerfum, sem eru með umboð fyrir
Hewlett-Packard prentara hér á
landi. „Ég mæli ekki með því.
Reynslan segir mér að þetta gangi
ekki upp. Hylkin eru framleidd sem
einnota hylki og hver treystir því að
nota einnota hylki aftur og aftur?“
Guðmundur varar við því að ofnot-
uð hylki geti lekið og skemmt prent-
arann, sem felli ábyrð seljanda
prentarans úr gildi: „Auðvitað getur
verið í lagi með þetta ef menn eru
heppnir, en ef eitthvað kemur upp á
og hylkið fer að leka í prentarann er
ábyrgðin á prentaranum sem slíkum
fallin úr gildi ef ekki hafa verið notuð
hylki sem eru viðurkennd af HP.“
Í sama streng tekur Jóhann Ein-
arsson, tæknimaður hjá Nýherja,
sem er með umboð fyrir Canon-
prentara hér á landi. Hann segir
ljóst að fyrirtækið geti ekki tekið
ábyrgð á skemmdum sem verða af
völdum vöru sem þeir hafa ekki selt.
Guðmundur frá Opnum kerfum
segir að margir hafi í gegnum tíðina
reynt að fylla á svona hylki og selja,
en það hafi sjaldnast gengið vel.
„Þetta er ekki eins stöðug vara og
„original“ hylki.“ Hann segir vel
geta verið að áfyllt hylki virki, en
segir ljóst að hylkin séu framleidd
sem einnota hylki og þess vegna ekki
víst hversu lengi þau endist.
Hann segir engar mælingar til á
því hversu mikil gæði tapist við að
fylla á notuð hylki, en segir tæknina
vera hárfína. „Hylkið sýður blekið,
þess vegna spýtist það út, svo álagið
á prenthausinn er töluvert mikið.“
Selja áfyllt blekhylki í sprautuprentara og áfyllingarbúnað fyrir notendur
Hægt að fá þrjár til sex fyll-
ingar á verði einnar nýrrar
Ný blekhylki eru fáanleg í flestar gerðir prentara frá öðrum en framleið-
anda fyrir mun lægra verð, segir fulltrúi íslenskrar netverslunar.
Morgunblaðið/Þorkell
Hægt er að fylla á blekhylki í
sprautuprentara með réttum út-
búnaði eða kaupa áfyllt notuð hylki.
Tölvunotendur geta
sparað verulegt fé með
því að kaupa notuð blek-
hylki í bleksprautu-
prentara, eða fylla á þau
sjálfir, skrifar Brjánn
Jónasson. Framleið-
endur prentaranna
mæla þó ekki með því og
segja hylkin einnota.
brjann@mbl.is