Morgunblaðið - 02.09.2003, Qupperneq 17
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. SEPTEMBER 2003 17
verður olíumálaráðherra en hann er
sonur sjítans Mohammeds Bahr al-
Uloum sem sagði sig tímabundið úr
framkvæmdaráðinu um helgina til
að mótmæla ástandinu í öryggismál-
um landsins. Ein kona á sæti í vænt-
anlegri stjórn og er hún Kúrdi.
Framkvæmdaráðið, sem myndað
var 13. júlí, hét fyrir nokkrum vikum
að velja fulltrúa í ríkisstjórn. Ekki er
ljóst hvers vegna það tafðist en
margir félagar í framkvæmdaráðinu
hafa verið á ferð víða um heim til að
afla alþjóðlegs stuðnings við það sem
réttmætan fulltrúa írösku þjóðarinn-
ar. Einnig er ljóst að ágreiningur
trúarhópa og þjóðarbrota um skipt-
ingu embætta hefur tafið fyrir því að
bráðabirgðastjórn kæmist á kopp-
inn.
Saddam sver af sér sökina
Saddam Hussein, fyrrverandi for-
seti Íraks, sver af sér aðild að
sprengjuárás í borginni Najaf á
föstudag þar sem helsti forustumað-
ur sjía-múslima og 82 til viðbótar
létu lífið. Kom þetta fram í ávarpi á
segulbandi sem arabíska sjónvarps-
stöðin Al-Jazeera lék í gær og sagt
var vera frá Saddam.
„Þjónar innrásaraflanna og her-
námsliðs hinna vantrúuðu flýttu sér
að ákæra þá sem þeir kalla stuðn-
ingsmenn Saddams Husseins eftir
morðið [á al-Hakim] án þess að hafa
nokkrar sannanir,“ sagði röddin á
segulbandinu. Saddam sagðist vera
forseti allra Íraka sem hefðu kosið
sig í frjálsum kosningum. Hann
hvetur ekki beint til þess að þeir sem
vinni með hernámsliðinu verði
drepnir en vill að „setið sé“ um þá.
„Grípið til þeirra aðgerða sem ekki
reita Guð til reiði og eru taldar nauð-
synlegar til að vernda ykkur fyrir
þeim.“ Hins vegar beri mönnum að
halda áfram að veita hernámsliðinu
„þung högg“, hvaðan sem hermenn-
irnir komi og án tillits til þjóðernis
þeirra.
ALBANSKIR appelsínuræktendur
söfnuðust í gær saman fyrir fram-
an Lundúnaskrifstofu fram-
kvæmdastjórnar Evrópusam-
bandsins, ESB, til að mótmæla
ríkisstyrktri appelsínurækt í sum-
um aðildarríkjanna. Adrian Lov-
ett, frammámaður í hjálparsam-
tökunum Oxfam, sagði að með
niðurgreiðslunum væru Evr-
ópuríkin að kippa fótunum undan
ýmsum greinum landbúnaðar í
vanþróuðum löndum. Sagði hann
að fólksflóttinn frá Albaníu staf-
aði meðal annars af því að
ávaxtabændur þar hefðu flosnað
upp í stórum stíl enda ekki sam-
keppnisfærir við hræódýra, nið-
urgeidda ávexti frá Ítalíu og
Grikklandi. AP
Niður-
greiðslum
mótmælt
FJÓRIR, þar á meðal hjón og 17 ára
dóttir þeirra, voru í gær ákærð fyrir
sprengjutilræði í Bombay í Indlandi
í síðustu viku þar sem 52 létu lífið og
150 særðust. Nýsamþykkt indversk
lög um hryðjuverk eru ströng og má
búast við að fólkið hljóti dauðadóm.
Saksóknarar sögðu að fjórmenn-
ingarnir hefðu einnig tekið þátt í að
sprengja strætisvagn 28. júlí þegar
þrír létust og 43 særðust. Sjón-
varpsstöðvar í Indlandi greindu frá
því að tvö hinna ákærðu hefðu tekið
þátt í að koma sprengjunum fyrir í
aftursætum leigubíla en önnur
sprengjan sprakk á fjölmennum úti-
markaði en hin nálægt frægu minn-
ismerki.
Saksóknarinn sagði lögreglu hafa
gripið þau síðar með ýmis konar
búnað til sprengjugerðar en öll búa
þau í borginni.
Lögregla telur þau tengjast
Lashkar-e-Taiba-samtökunum, sem
eru talin hafa staðið fyrir árásum á
indverska hermenn Indlandsmegin í
Kasmír, en einnig Hina íslömsku
stúdentahreyfingu Indlands sem yf-
irvöld bönnuðu í fyrra fyrir æs-
ingaáróður.
Yfirvöld eru sögð verða að skoða
málið í alþjóðlegu samhengi þar sem
komið hefur í ljós að sprengiefnið
RDX var notað í sprengjurnar en
það hefur verið notað í hryðjuverka-
árásum víðs vegar um heiminn, m.a.
á Balí í október.
Þrjú fjórmenninganna mættu í
dómsalinn en einn var á sjúkrahúsi.
Öll voru þau úrskurðuð í gæsluvarð-
hald til 15. september. Lögregla
segir að verið sé að leita tveggja
manna í viðbót sem grunaðir eru um
aðild að tilræðunum.
Fjögur ákærð fyrir sprengingarnar í Bombay á Indlandi í liðinni viku
Ung stúlka á meðal sakborninga
Bombay. AFP.