Morgunblaðið - 02.09.2003, Page 20
AKUREYRI
20 ÞRIÐJUDAGUR 2. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÞRJÁTÍU ár voru í gær liðin frá því
atvinnuleikhús var stofnað á Akur-
eyri og þá var verkefnaval vetrarins
einmitt kynnt. Leikfélag Akureyrar
hefur átt í talsverðum rekstrarvanda
síðustu misseri og áhersla er lögð á
það nú að sníða sér stakk eftir vexti.
Fastráðnir leikarar verða t.d. fjórir
hjá LA í vetur en voru sex á síðasta
leikári. Eitt nýtt íslenskt verk verður
sýnt hjá LA í vetur, Draumalandið
eftir Ingibjörgu Hjartardóttur rithöf-
und.
„Það er skrýtin staða fyrir leikhús-
stjóra, þegar hann veltir fyrir sér
verkefnavali, að spyrja alltaf að því
hve margir eru í verkinu – en nú lát-
um við rekstrarforendur segja okkur
hvað við getum. Það er bara þannig,“
sagði Þorsteinn Bachmann leikhús-
stjóri á fundi með blaðamönnum í
gær, þar sem verkefni vetrarins voru
kynnt.
Fyrsta frumsýning vetrarins er
Erling eftir norska leikskáldið Axel
Hallstenius, unnið eftir samnefndum
skáldsögum Ingvar Ambjörnsen.
Þetta er samvinnuverkefni við Sögn
ehf. í Reykjavík. Verkið verður frum-
sýnt 11. september í Freyvangi í
Eyjafjarðarsveit og í Loftkastalanum
í Reykjavík tveimur dögum síðar.
Verkið verður sýnt eins og aðsókn
leyfir á hvorum stað fyrir sig.
Skáldsögurnar, leikritið og nú síð-
ast kvikmyndin sem gerð var um Er-
ling hafa notið mikilla vinsælda í
heimalandinu Noregi og víða um
heim, ekki síst kvikmyndin sem til-
nefnd var til Óskarsverðlauna sem
besta erlenda kvikmyndin 2002.
Leikritið segir frá manni um fer-
tugt sem hefur nákvæmlega engan
áhuga á að mynda tengsl við umheim-
inn. Eftir fráfall móður er hann bók-
staflega dreginn í hnipri út úr skápn-
um heima hjá sér af lögreglu og
sendur á sambýli. Þar kynnist hann
Kalla Bjarna, klunnalegum karli með
kvenfólk á heilanum sem verður sam-
býlismaður hans þar. Þeir eru síðan
sendir til borgarinnar í þjónustuíbúð í
því augnamiði að þeir geti lifað þar
sjálfstæðu lífi. Leikritið hefst í raun í
nýju íbúðinni þeirra í borginni. Aðlög-
un þessara tveggja heimóttarlegu
manna að borgarlífinu er umfjöllun-
arefni leikverksins og nálgunin er í
senn hugljúf og meinfyndin.
Leikstjóri er Benedikt Erlingsson.
Þýðing og staðfærsla: Hallgrímur
Helgason. Aðalhlutverk: Stefán Jóns-
son og Jón Gnarr. Önnur hlutverk:
Hildigunnur Þráinsdóttir og Gísli
Pétur Hinriksson og Skúli Gautason
sem leika sama hlutverkið, Gísli í
Reykjavík en Skúli fyrir norðan.
Leikmynd og búningar: Axel Hall-
kell Jóhannson. Lýsing: Björn Berg-
steinn Guðmundsson. Hljóðmynd:
Hallur Ingólfsson.
Ástarbréf og Elvis
Önnur sýning vetrarins er Ástar-
bréf eftir A.R. Gurney velþekktan og
margverðlaunaðan bandarískan höf-
und. Verkið er samið 1989 og var
frumsýnt í Þjóðleikhúsinu 1993, þá
léku Gunnar Eyjólfsson og Herdís
Þorvaldsdóttir hlutverkin tvö við
miklar vinsældir. Verkið fór jafn-
framt leikför um landið. Þetta verk
hefur verið sýnt um allan heim og má
segja að það sé ný-sígilt í þeim skiln-
ingi að það er leikið aftur og aftur með
nýjum og nýjum leikurum úr einu
leikhúsi í annað. Verkið verður frum-
sýnt á Græna Hattinum á Akureyri í
október.
Verkið fjallar um samband tveggja
einstaklinga ævina á enda í gegnum
bréfaskriftir. Andrew og Melissa
byrja að skrifast á sem börn. Hann
verður lögfræðingur en hún listamað-
ur. Sterk ástarsaga einstaklinga sem
ætíð ná saman í gegnum bréfaskrift-
irnar en gengur misjafnlega vel að
fóta sig í lífinu sem og að hitta hver
annan. Verkið er listilega vel skrifað
og hefur hlotið mikið lof gagnrýn-
enda. Einfalt í umgjörð, ríkt af inni-
haldi.
Leikarar eru Þráinn Karlsson og
Saga Jónsdóttir. Úlfar Hjörvar þýðir
verkið og listrænn ábyrgðarmaður
sýningarinnar er Þorsteinn Bach-
mann.
Þriðja frumsýning vetrarins er
Eldað með Elvis eftir Lee Hall sem
m.a. hlaut óskarsverðlaun fyrir kvik-
myndahandrit sitt að Billy Elliot.
Galsafengin svört kómedía með göml-
um Elvis-söngvum. Verkið hefur farið
sigurför um heiminn og víða slegið öll
aðsóknarmet. Sýningarstaður er
óákveðinn en áætluð frumsýning er í
nóvember eða desember. Hér er um
að ræða samstarf LA við Menningar-
félagið Eilíf í Reykjavík.
Þetta er „áleitin, áhrifamikil og
drephlægileg saga ungs bakara sem
kemur inn á vægast sagt óstarfhæft
heimili gamallar Elvis-eftirhermu
sem nú er í hjólastól eftir hjartaáfall,
konunnar hans sem er kynóður át-
röskunarsjúklingur og dóttur þeirra
sem á við offituvandamál að stríða,“
eins og Þorsteinn leikhússtjóri sagði í
gær.
Ekki er unnt að upplýsa um ein-
staka listamenn sem koma að þessu
verki að svo stöddu.
Fjórða sýning vetrarins er svo
barnasýningin Búkolla eftir Hildi-
gunni Þráinsdóttur, áframhald á sýn-
ingunni sem frumsýnd var sl. vor.
Unnið verður áfram með sýninguna
sem er samstarfsverkefni leikfélags-
ins og leikhópsins Hálfur Hrekkur í
dós. Áætluð frumsýning er í desem-
ber eða janúar, í Samkomuhúsinu.
„Verkið er unnið upp úr þjóðsög-
unni um Búkollu og strákinn sem fer
að heiman til að leita hennar. Leiðin
er torsótt og ímyndunaraflið sterkt
sem og óttinn við hið óþekkta. Óttinn
reynist þó yfirstíganlegur fyrir tilstilli
vitsmuna og hugrekkis. Skemmtileg
og þroskandi ævintýraferð fyrir alla
fjölskylduna. Ævintýrið stendur allt-
af fyrir sínu,“ sagði Þorsteinn Bach-
mann í gær.
Nýtt íslenskt leikrit
Fjórða frumsýning vetrarins á Ak-
ureyri er nýtt íslenskt, sérnorðlenskt
samtímaverk sem ber heitið Draum-
landið og verður það sýnt í Samkomu-
húsinu eins og aðsókn leyfir. Áætluð
frumsýning er í febrúar eða mars.
Verkið sem er eftir Ingibjörgu
Hjartardóttur rithöfund í Svarfaðar-
dal, „fjallar um sauðinn í okkur sjálf-
um og landið sem við erfum. Leiftr-
andi gálgahúmor í bland við alvöru
lífsins.
Sögusviðið er afdalur norður í landi
þar sem þjóðfræg baráttumanneskja,
„ekkjan við ána“ berst fyrir lífi sauð-
kindarinnar og gamalla úreltra
drauma á kostnað eigin heilsu. Dóttir
hennar er nýkomin úr námi í ferða-
málafræðum og hefur önnur áform
um jörðina. Fyrrverandi sakamaður
hefur ráðið sig sem vinnumann á bæ-
inn og finnur nýjan tilgang í lífinu í
gegnum sauðkindina og friðinn í
sveitinni. Presturinn reynir að bæta
upp gamlar syndir og breiða yfir allt
og umbera allt með misjöfnum ár-
angri. Allt fer þó vel að lokum, eða
hvað? Spennandi framvinda og að-
gengileg uppbygging. Kraftmikið og
áleitið verk sem speglar íslenskan
samtíma á gráglettinn hátt,“ sagði
Þorsteinn Bachmann í gær en hann
leikstýrir verkinu sjálfur.
Allir fastráðnir leikarar LA í vetur
fara með hlutverk í sýningunni: Hildi-
gunnur Þráinsdóttir, Saga Jónsdótt-
ir, Skúli Gautason og Þráinn Karls-
son.
Sigmundur Ernir bjartsýnn
„Nýtt leikhúsráð horfir björtum
augum fram á veginn,“ segir Sig-
mundur Ernir Rúnarsson skáld og
fyrrverandi ritstjóri DV, nýr formað-
ur leikhúsráðs LA, í yfirlýsingu sem
fjölmiðlum var afhent í gær á fund-
inum. „Við höfum skoðað rekstur fé-
lagsins vandlega á liðnum árum og
teljum einsýnt að hægt verði að reka
félagið innan fjárheimilda sinna með
listrænum metnaði og þeim góða
anda sem gott leikhús þarf að státa af.
Ný rekstraráætlun félagsins er að
okkar mati raunsæ og ábyrg og eftir
henni verður farið í hvívetna. Það er
brýnt að skapa frið um starfsemi fé-
lagsins eftir umbrotatíma og sann-
færa bæjarbúa og landsmenn alla um
að gott atvinnuleikhús í bænum á að
borga sig í öllum skilningi. Verkefna-
val komandi leikhússárs er að okkar
mati fjörlegt, metnaðarfullt og við
margra hæfi. Við sníðum okkur stakk
eftir vexti og ætlum ekki fram úr
sjálfum okkur, nema ef vera kynni í
hlutverkum okkar uppi á sviði,“ segir
Sigmundur Ernir Rúnarsson.
Leikfélag Akureyrar sníður sér stakk eftir vexti á þrjátíu ára afmæli atvinnuleikhúss á Akureyri
Nýtt verk
Ingibjargar
Hjartardótt-
ur á fjalirnar
Fastráðið starfsfólk Leikfélags Akureyrar leikárið 2003-2004 ásamt nýju leikhúsráði en það skipa, auk Sögu Jóns-
dóttur leikara, Sigmundur Ernir Rúnarsson, skáld og fyrrverandi ritstjóri, og Karl Frímannsson skólastjóri.
„Brýnt að skapa frið um starfsemi fé-
lagsins,“ segir formaður leikhússráðs
NÝSTOFNUÐ félagsvísinda- og
lagadeild Háskólans á Akureyri,
mun í vetur brydda upp á nýjung í
háskólanámi þar sem hvort tveggja í
senn er boðið upp á aukin tengsl við
almenning og nemendur deildarinn-
ar fá þjónustu og vettvang sem ekki
hefur verið fyrir hendi í íslenskum
háskóla til þessa. Nýjung þessi hef-
ur fengið heitið lögfræðitorg annars
vegar og félagsvísindatorg hins veg-
ar, en þetta eru reglubundnir fyr-
irlestrar opnir almenningi, sem
nemendur er lesa lögfræði og
félagsvísindi við skólann sitja.
Með torgunum fá nemendur inn-
sýn í þau fjölbreytilegu störf sem
fólk tekur sér fyrir hendur að loknu
námi. Þá er torgunum einnig ætlað
að hjálpa nemendum við að velja sér
leið í gegnum námið. Á torgunum
tala fræðimenn, embættismenn og
aðrir sem starfa á viðkomandi svið-
um. Fyrirlestrar á lögfræðitorgi
verða haldnir á þriðjudögum klukk-
an 16:30 á skólaárinu en fyrirlestur
á félagsvísindatorgi verða á mið-
vikudögum á sama tíma.
Ármann Snævarr, fyrrum pró-
fessor við lagadeild Háskóla Íslands,
verður fyrsti fyrirlesari lögfræði-
torgs, í dag þriðjudaginn 2. sept-
ember. Hann mun flytja erindi um
mikilvægi almennrar lögfræði í
laganámi. Birgir Guðmundsson, að-
júnkt við Háskólann á Akureyri,
verður fyrsti fyrirlesari félagsvís-
indatorgs 3. september og mun
hann ræða um starf og menntun
blaðamannsins.
Torgin eru eins og áður segir opin
almenningi og er það von forsvars-
manna hinnar nýju deildar að sem
flestir Norðlendingar og aðrir lands-
menn leggi leið sína í húsnæði Há-
skólans á Akureyri, Þingvallastræti
23. Fyrirlestrarnir verða haldnir í
stofu 14 (salnum).
Háskólinn býður upp á nýjung í háskólanámi hérlendis
Ármann Snævarr fyrsti
fyrirlesari á lögfræðitorgi
KOMIÐ hefur verið á fót nýju rann-
sóknar- og þróunarsviði innan Leik-
félags Akureyrar. „Sett hafa verið í
gang draumaverkefni starfs-
manna,“ eins og Þorsteinn Bach-
mann leikhússtjóri orðaði það í gær.
Rannsóknar- og þróunarsviðið er
hugsað sem tveggja ára til-
raunaverkefni sem ætlað er að vinna
að nýsköpunarverkefnum undir
handleiðslu Kára Halldórs Þórs-
sonar, leiklistarstjóra íslensku
óperunnar.
Þorsteinn Bachmann lagði í gær
áherslu á að leikhúsið gæti unnið að
þróun verkefna, rétt eins og aðrar
listgreinar. „Hér hafa verið sett í
gang draumaverkefni starfs-
manna,“ sagði hann. „Ef einhverjir
eiga leynda drauma verður hægt að
draga þá fram í dagsljósið undir
handleiðslu manns sem kann til
verka. Ýmis birtingarform eru
möguleg; hugmyndirnar gætu end-
að sem grein, bók, heimildarmynd
eða sýning svo eitthvað sé nefnt,“
sagði Þorsteinn er hann ræddi um
þróunarsviðið.
Einnig er gert ráð fyrir auknu
samstarfi við aðrar menningarstofn-
anir á svæðinu sem og auknu sam-
starfi við önnur félög, einstaklinga
og fyrirtæki, að sögn Þorsteins.
Þessar tengingar eru í mótun og
þróun undir formerkjunum „inn-
hverfan út!“
Rannsóknar- og
þróunarsvið innan LA