Morgunblaðið - 29.09.2003, Qupperneq 29
Hallgrímskirkja. Æskulýðsfélagið Örk
kl. 20.
Háteigskirkja. Haustlitaferð eldri borg-
ara verður á morgun, þriðjudag, kl. 13.
Skráning í síma 511 5405.
Langholtskirkja. Ævintýraklúbbur kl.
16–17. Starf fyrir 7–9 ára börn í umsjón
Þóru Guðbjargar og Ólafs Jóhanns. Fjöl-
breytt dagskrá og eru allir krakkar á
þessum aldri velkomnir.
Laugarneskirkja. Góðar mömmur,
kynningarfundur kl. 12. María Íris Guð-
mundsdóttir, BA í sálarfræði, og Krist-
jana Þorgeirsdóttir Heiðdal, líkams-
ræktarþjálfari, bjóða til samveru með
mæðrum ungbarna, þar sem unnið er
með fæðingarþunglyndi. Gengið inn um
aðaldyr safnaðarheimilis. Opinn 12
spora fundur kl. 18 í safnaðarheim-
ilinu. Allt fólk velkomið. Vinir í bata. Tólf
spora hópar koma saman kl. 20. Geng-
ið inn um aðaldyr safnaðarheimilisins.
Umsjón hafa Gunnlaugur Ólafsson og
Hafdís Fjeldsted.
Neskirkja. 6 ára starf kl. 13.40. Sögur,
söngur, leikir og föndur. Uppl. og skrán-
ing í síma 511 1560. TTT-starf kl.
16.30. Starf fyrir 10–12 ára börn. Leik-
ir, ferðir o.fl. Umsjón Munda og Sigfús.
12 sporin, andlegt ferðalag, kl. 20.
Kynningarfundur. Allir velkomnir.
Árbæjarkirkja. Mánudagar: Kl. 15 STN-
starf með sjö til níu ára börnum í safn-
aðarheimili kirkjunnar.
Fella- og Hólakirkja. Opið hús fyrir full-
orðna í safnaðarheimilinu kl. 13–15.30
í umsjón Lilju G. Hallgrímsdóttur,
djákna. Þar verður fræðsla, föndur, spil-
að, spjallað og kaffiveitingar verða í
boði. Þeir sem óska eftir akstri láti vita í
síma 557 3280 fyrir hádegi. Fyrirbæna-
stund í kapellu kirkjunnar kl. 15.30–
15.45. Bænaefnum má koma til
djákna, presta eða annarra starfs-
manna kirkjunnar. Stelpustarf fyrir
stelpur í 6. og 7. bekk kl. 16.30. Æsku-
lýðsstarf fyrir unglinga í 8., 9. og 10.
bekk kl. 20.30.
Grafarvogskirkja. Kirkjukrakkar fyrir
börn á aldrinum 7–9 ára kl. 17.30–
18.30 í Engjaskóla. KFUK fyrir stúlkur á
aldrinum 9–12 ára kl. 17.30–18.30.
Seljakirkja. KFUK 9–12 ára kl. 17.30.
Alfa-námskeið verða á mánudögum kl.
19–22. Kynning í kvöld kl. 19.30.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús fyrir
16 ára og eldri kl. 20–22.
Ástjarnarsókn. Ponzý (unglingastarf
ætlað árg. 1990 og upp úr) á mánudög-
um kl. 20–22.
Lágafellskirkja. Bænastund í Lága-
fellskirkju kl. 20. Þórdís djákni þjónar
og tekur við bænarefnum í síma 691-
8041 alla daga frá kl. 9–16. Al-Anon
fundur í Lágafellskirkju kl. 21. Barna-
starf kirkjunnar, Kirkjukrakkar, fyrir 6 og
7 ára börn er í Varmárskóla kl. 13.150–
14.40. Umsjón hefur Þórdís djákni.
Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 16
æskulýðsfélag fatlaðra, yngri hópur.
Hulda Líney Magnúsdóttir og sr. Þor-
valdur Víðisson. Kl. 20 Kvenfélag
Landakirkju undirbýr árlegan jólabasar.
Kvenfélagskonur hvattar til að mæta.
Keflavíkurkirkja. Fermingarhópur II fer í
Vatnaskóg kl. 8 árd. Holtaskóli 8. A. og
B og 8. J Myllubakkaskóla. (alls 64).
Þau koma heim um kl. 16 daginn eftir.
SOS-hjálparnámskeið fyrir foreldra
barna og unglinga í minni sal Kirkjulund-
ar kl. 20.30–22. Námskeiðin eru haldin
á vegum Fræðsluskrifstofu Reykjanes-
bæjar með stuðningi þjóðkirkjunnar.
Borgarneskirkja. TTT-starf kl. 15.30–
16.30.
Hjálpræðisherinn á Akureyri. kl. 15
heimilasamband, allar konur velkomn-
ar. Kl. 17 Örkin hans Nóa, fyrir 1., 2. og
3. bekk. Kl. 18 KK fyrir 4. og 5. bekk.
Safnaðarstarf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. SEPTEMBER 2003 29
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
VOG
Afmælisbörn dagsins:
Þér gengur vel með allt,
sem þú tekur þér fyrir hend-
ur. Þú hefur sterkar tilfinn-
ingar. Þú gætir þurft að
vera út af fyrir þig vegna
náms eða rannsókna á
komandi ári.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Mikið gæti gengið á í ást-
arsambandi í dag. Miklar til-
finningar eru í samskiptum
þínum við aðra. Þetta er ein-
faldlega þannig dagur.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú hefur mikinn hug á að gera
heilsuátak í dag eða taka á þig
rögg í vinnunni. Þú vilt nýtt
upphaf og bjartari framtíð.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Hefjist nýtt tilfinninga-
samband í dag má búast við
að það verði ástríðufullt og
gæti breytt lífi þínu. Sambönd
þín eru á hærra plani í dag.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þetta er góður dagur til að
skipuleggja heimilið, taka til
og henda. Þú munt komast að
því að auðvelt er að henda
rusli og nóg er af því.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Allt virðist yfirþyrmandi í dag
og lausleg kynni gætu virst
„örlagarík“. Allt virðist
þrungið merkingu og mik-
ilvægi.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú finnur þörf til að kaupa þér
eitthvað í dag og ættir að láta
það eftir þér. Líklegt er að þú
munir ekki sjá eftir því.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Allar tilfinningar virðast
kraftmiklar og ákafar í dag.
Ekkert er yfirborðslegt og
þér finnst þú vera lifandi og
full/ur orku.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú gætir komist að áhuga-
verðum leyndarmálum í dag,
jafnvel um ástir einhvers ann-
ars. Skilningarvit þín eru svo
skörp að það er eins og þú
getir lesið hugsanir fólks.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Samræður við vin munu leiða
ýmislegt í ljós. Fólk er tilbúið
til að deila með þér leynd-
armálum, en þú verður að
gæta trúnaðar.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Verið getur að einhverjum
eða einhverju verði ýtt til hlið-
ar til að greiða götu þína í
vinnunni í dag. Ákveðnar
breytingar gætu bætt stöðu
þína.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú gætir rekist á einhvern,
sem leiðir þér mikilvæga hluti
fyrir sjónir í dag. Þú gætir
komist að einhverju, sem mun
breyta lífi þínu.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Einhver gæti viljað gefa þér
eitthvað í dag. Það gæti verið
eitthvað fast í hendi, jafnvel
peningar. Hvað sem það er,
þá er rétt að taka við því.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
STÖKUR
Enginn grætur Íslending
einan sér og dáinn.
Þegar allt er komið í kring,
kyssir torfa náinn.
Mér er þetta mátulegt,
mátti vel til haga,
hefði ég betur hana þekkt,
sem harma ég alla daga.
Lifðu sæl við glaum og glys,
gangi þér allt í haginn.
Í öngum mínum erlendis
yrki ég skemmsta daginn.
– – –
Jónas Hallgrímsson
LJÓÐABROT
HLUTAVELTA
Þessar ungu stúlkur héldu nýlega hlutaveltu á Akureyri til
styrktar Hetjunum, félagi langveikra barna, og söfnuðust
5.880 krónur. Þær heita Ellen Huld Þórðardóttir, Alvilda
Ösp Ólafsdóttir og Hrund Hákonardóttir.
SUÐUR opnar í fyrstu
hendi á fjórum hjörtum og
þar við situr:
Norður
♠ ÁG3
♥ Á42
♦ K1082
♣1085
Suður
♠ 1042
♥ KDG9876
♦ 53
♣Á
Vestur spilar út smáu
trompi og makker leggur
niður ágætan blindan. Aust-
ur fylgir lit í trompinu og
suður tekur slaginn heima.
Hann horfir á sjö slagi á
hjarta og tvo ása, eða níu
örugga slagi. Það er efnivið-
ur í tíunda slaginn, bæði í
tígli og spaða, en vandinn er
að finna örugga leið. Hvern-
ig myndi lesandinn spila?
Það er full einhæft að
spila tígli beint á kónginn.
Fyrst sakar ekki að leita
eftir aðstoð frá vörninni.
Suður leggur niður laufás,
spilar hjarta á ásinn og
trompar lauf. Spilar svo tígli
að blindum og lætur duga að
leggja á spil vesturs. Austur
fær slaginn væntanlega
ódýrt og spilar laufi. Það er
trompað og nú er búið að
einangra litinn. Aftur kem-
ur tígull að blindum og aftur
er nóg að leggja á spil vest-
urs:
Norður
♠ ÁG3
♥ Á42
♦ K1082
♣1085
Vestur Austur
♠ K965 ♠ D87
♥ 3 ♥ 105
♦ Á764 ♦ DG9
♣D974 ♣KG632
Suður
♠ 1042
♥ KDG9876
♦ 53
♣Á
Með þessari spila-
mennsku er sama hvernig
legan er – vörnin mun alltaf
þurfa að gefa úrslitaslaginn.
Í þessu tilfelli fær austur
óvænt tvo slagi á tígul og ef
hann spilar sér út á tígli,
hendir suður spaða og gefur
þá þrjá slagi á tígul, en eng-
an á spaða. Og auðvitað
kostar það vörnina slag ef
austur opnar spaðann.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson
Þessir ungu og hressu krakkar héldu tombólu í Ólafsfirði í
síðustu viku og rann ágóðinn til Rauða krossins. Söfnuðu
þau um það bil 2.000 krónum. Þetta eru þau Birgir Jóns-
son, Sandra Karen Skjóldal og Gunnlaug Helga Ásgeirs-
dóttir.
Morgunblaðið/Kristján
1. e4 c6 2. d4 d5 3. exd5 cxd5
4. c4 Rf6 5. Rc3 g6 6. Db3
Db6 7. Dxb6 axb6 8. cxd5
Bg7 9. Bc4 O–O 10. Rf3 Ra6
11. O–O Hd8 12. He1
Kf8 13. Bg5 h6 14.
Bxf6 exf6 15. Hac1
Bg4 16. Rb5 Hac8
17. d6 Bd7 18. a4
Rb4 19. Rc7 Rc6 20.
b4 Kg8 21. Rd5 Hb8
22. Re7+ Kf8 23. b5
Ra7 24. Bd5 Be8 25.
Hc7 Hd7 26. Hxd7
Bxd7 27. Rh4 Bh8
28. Hc1 Rc8
Staðan kom upp á
Evrópumeistaramóti
öldunga sem lauk
fyrir skömmu. Ísr-
aelski stórmeist-
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
arinn Mark Tseitlin (2.456)
hafði hvítt gegn Horst Neu-
mann (2.045). 29. Rexg6+!
Kg7? 29. ... fxg6 hefði veitt
mun harðvítugra viðnám þó
að hvítur stæði þá einnig vel
að vígi. 30. Rf4 Kf8 31. Hc7
Ke8 32. Bxf7+ og svartur
gafst upp.
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynn-
ingar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyr-
irvara fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmæl-
istilkynningum og/eða
nafn ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk getur
hringt í síma 569-1100, sent
í bréfsíma 569-1329, eða
sent á netfangið ritstj
@mbl.is.
KIRKJUSTARF/ÞJÓNUSTA
KIRKJUKRAKKASTARFIÐ
er byrjað á ný á vegum Graf-
arvogssóknar. Kirkjukrakk-
arnir eru á aldrinum 6–9 ára.
Samverur eru haldnar í Engja-
skóla á mánudögum, í Rima-
skóla á þriðjudögum, á fimmtu-
dögum í Húsaskóla og í
Grafarvogskirkju.
Allar þessar samverur
standa yfir í klukkutíma, frá kl.
17.30 til 18.30. Það er margt
sér til gamans gert. Börnin
heyra skemmtilegar sögur og
söngurinn fær að hljóma. Þá er
föndur og farið í margs konar
leiki. Þátttaka er ókeypis.
Leikmannaskóli kirkj-
unnar hefur starf sitt
MIÐVIKUDAGINN 1. október nk.
hefur Leikmannaskóli kirkjunnar
starf sitt með námskeiði um biblíu-
lega íhugun. Leikmannaskólinn sem
annast fullorðinsfræðslu kirkjunnar
er rekinn í nánu samstarfi við leik-
mannastefnu og guðfræðideild Há-
skóla Íslands og skipa fulltrúar
þeirra stjórn skólans.
Á komandi vetri verður starf skól-
ans með svipuðu sniði og áður og
boðið upp á fjölbreytt námskeið er
spanna margvísleg efni. Til að gefa
örlitla mynd af starfi skólans má
nefna að námskeið haustsins fjalla
um biblíulega íhugun, postulasög-
una, sálm 23, sem er einn kunnasti
sálmur Gamla testamentisins, það að
annast aldraða foreldra eða annast
aldrað fólk; kristna trú og búddisma;
sjálfstyrkingarnámskeið fyrir konur
og námskeið er fjallar um heilag-
leikann og spurningar er varða
hann og þá í tengslum við kristna
trú og gildismat. Skráning á nám-
skeiðin fer fram í síma 535 1500 eða
á vef Leikmannaskólans,
www.kirkjan.is/leikmannaskoli.
Frekari upplýsingar um starf
skólans má fá á Biskupstofu,
s.535 1500.
Grafarvogskirkja
Kirkjukrakkar í Grafarvogi
Morgunblaðið/Jim Smart
LANDSPÍTALI - HÁSKÓLASJÚKRA-
HÚS
SLYSA- OG BRÁÐADEILD, Fossvogi sími 543 2000.
BRÁÐAMÓTTAKA, Hringbraut sími 543 2050.
BRÁÐAMÓTTAKA BARNA, Barnaspítala Hringsins
sími 543 1000.
BRÁÐAMÓTTAKA GEÐDEILDA, Hringbraut sími
543 4050.
NEYÐARMÓTTAKA v/nauðgunarmála, Fossvogi sími
543 2085.
EITRUNARMIÐSTÖÐ sími 543 2222.
ÁFALLAHJÁLP sími 543 2085.
LÆKNAVAKTIR
BARNALÆKNIR er til viðtals á stofu í Domus Medica á
kvöldin v.d. kl. 17–22, lau., sun. og helgid., kl. 11–15.
Upplýsingar í s. 563 1010.
LÆKNAVAKT miðsvæðis fyrir heilsugæsluumdæmin í
Reykjavík, Seltjarnarnesi, Kópavogi, Garðabæ og
Hafnarfirði, í Smáratorgi 1, Kópavogi. Mótttaka kl. 17–
23.30 v.d. og kl. 9–23.30 um helgar og frídaga. Vitj-
anabeiðni og símaráðgjöf kl. 17–08 v.d. og allan sólar-
hringinn um helgar og frídaga. Nánari upplýsingar í s.
1770.
TANNLÆKNAVAKT – neyðarvakt um helgar og stórhá-
tíðir. Símsvari 575 0505.
VITJANAÞJÓNUSTA læknis í heimahús. Alla v.d. kl. 10–
16. Símapantanir og ráðgjöf kl. 8–20 í síma 821 5369.
LÆKNALIND, Bæjarlind 12, Kópavogi. Einkarekin
læknisþjónusta. Vaktþjónusta alla virka daga kl 08–17.
Uppl. í síma 520 3600 og á heimasíðu www.laekna-
lind.is
APÓTEK
LYF & HEILSA: Austurveri við Háaleitisbraut. Opið kl.
8–24, virka daga, kl. 10-24 um helgar. Sími 581 2101.
LYFJA, Lágmúla: Opið alla daga ársins kl. 8–24. S.
533 2300.
LYFJA, Smáratorgi: Opið alla daga ársins kl. 8–24. Sími
564 5600.
NEYÐARÞJÓNUSTA
BAKVAKT Barnaverndarnefndar Reykjavíkur er starf-
rækt eftir kl. 16.15 virka daga, allan sólarhringinn aðra
daga. Sími 892 7821, símboði 845 4493.
HJÁLPARSÍMI Rauða krossins, fyrir þá sem þjást af
depurð og kvíða og eru með sjálfsvígshugsanir. Fullum
trúnaði heitið. Gjaldfrjálst númer: 1717, úr öllum sím-
um.
TRÚNAÐARSÍMI RAUÐAKROSSHÚSSINS. Ráðgjafar-
og upplýsingasími ætlaður börnum, unglingum og að-
standendum þeirra. Nafnleynd. Opið allan sólarhr.
Gjaldfrjálst númer: 1717 – Netfang: husid@redcross.is
VINALÍNA Rauða krossins, s. 561 6464. Grænt númer
800 6464, er ætluð fólki 20 og eldri sem þarf einhvern
til að tala við. Svarað kl. 20–23.
BILANAVAKT BORGARSTOFNANA, sími 5 800 430
tekur við tilkynningum um bilanir og liðsinnir utan
skrifstofutíma.
NEYÐARSÍMI FORELDRA 581 1799 er opinn allan sól-
arhringinn. Vímulaus æska-Foreldrahús.
Neyðarnúmer fyrir
allt landið - 112