Morgunblaðið - 01.10.2003, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 01.10.2003, Blaðsíða 10
FRÉTTIR 10 MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ MARGIR þeir þingmenn sem Morgunblaðið ræddi við í gær búast við snörpu þingi á komandi vetri en Alþingi Íslendinga, 130. löggjafar- þing, verður sett í dag. Er það í annað sinn sem þing verður sett eft- ir alþingiskosningarnar í vor, en Al- þingi var sett í lok maí sl., þar sem m.a. var kosið í fastanefndir þings- ins. Fæstir eiga von á því að stór- pólitísk átakamál, í líkingu við Kára- hnjúkamálið, eigi eftir að einkenna þingið en líklegt er talið að þingið muni bera þess merki hve stutt er frá kosningum sem og sú staðreynd að átján nýir þingmenn voru kjörnir á þing í síðustu kosningum. Er sennilegt að það verði nýjum þing- mönnum kappsmál að minna á sig og „stimpla sig inn í umræðuna.“ Minna má á að fjárlagafrumvarp- ið fyrir næsta ár, sem kynnt verður í dag, sem og stefnuræða forsætis- ráðherra, Davíðs Oddssonar, sem flutt verður annað kvöld og umræð- ur um hana muni og gefa tóninn að því sem koma skal. Í fjárlagafrum- varpinu sem og í stefnuræðunni koma m.a. fram áherslur ríkis- stjórnarinnar í efnahagsmálum. Má búast við að þar komi m.a. fram til- lögur ríkisstjórnarinnar í skattamál- um og öðrum þeim málum sem kynnt voru í kosningabaráttunni. Aukinheldur munu stjórnarand- stöðuflokkarnir leggja fram sínar áherslur í umræðum um stefnuræðu ráðherra. Minni styrkur stjórnarflokka Því má heldur ekki gleyma, í þessari umfjöllun, að sú ríkisstjórn sem nú situr við völd, þ.e. ríkis- stjórn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins, er með minni þingstyrk en ríkisstjórn sömu flokka á síðasta kjörtímabili. Á síð- asta kjörtímabili hafði ríkisstjórnin samanlagt 38 þingmenn, þ.e. 12 framsóknarþingmenn og 26 sjálf- stæðisþingmenn. Frjálslyndi flokk- urinn hafði þá 2 þingmenn, Sam- fylkingin 17 og Vinstrihreyfingin – grænt framboð sex þingmenn. Nú hefur ríkisstjórnin hins vegar 34 þingmenn; 22 sjálfstæðisþing- menn og 12 framsóknarþingmenn. Frjálslyndi flokkurinn hefur 4 þing- menn, Samfylkingin 20 og VG fimm þingmenn. Þetta þýðir að aðeins þrjá stjórnarþingmenn þarf til að fella þingmál ríkisstjórnarflokk- anna. „Þessi staða kann að verða til þess að stjórnarþingmenn hafa minna svigrúm en áður til að snúast á sveif með málefnum stjórnarand- stöðunnar í einstökum málum,“ sagði einn heimildarmaður Morgun- blaðsins. Benti hann sömuleiðis á að þetta gæti leitt til þess að þing- flokkar stjórnarflokkanna þyrftu að beita meiri „flokksaga“ en oft áður. Þessi staða ríkisstjórnarflokk- anna birtist einnig í fastanefndum þingsins. Í flestum nefndunum sitja níu þingmenn. Á síðasta kjörtímabili voru stjórnarþingmennirnir að jafn- aði sex og þingmenn stjórnarand- stöðunnar að jafnaði þrír, en nú er hlutfallið fimm stjórnarþingmenn á móti fjórum þingmönnum stjórnar- andstöðunnar. Það þýðir að stjórn- arflokkarnir þurfa að halda vel um taumana til að halda meirihlutanum í einstökum málum. Þá var vakin athygli á því, í þessu sambandi, að Kristinn H. Gunnars- son, fyrrverandi þingflokksformað- ur Framsóknarflokksins, kynni að verða Framsóknarflokknum „tregur í taumi“. Miðað við málflutning hans í sumar megi búast við því að hann telji sig ekki „bundinn einum né neinum“. Þar með sé ekki ólíklegt að ætla að hann muni fylgja stjórn- arandstöðunni í einstökum málum, ef honum býður svo við að horfa. Fylgst með samstarfi flokka Margir þingmenn stjórnarand- stöðunnar tala um að það verði for- vitnilegt að fylgjast með samstarfi Framsóknarflokksins og Sjálfstæð- isflokksins í vetur. Ekki síst í ljósi þess að Framsóknarflokkurinn hafi reynt að skapa sér ákveðna sér- stöðu gagnvart Sjálfstæðisflokknum í kosningabaráttunni. Margir telja sig líka hafa fundið ákveðinn „nún- ing“ á milli stjórnarflokkanna í ein- stökum málum í sumar. Þá telja ein- stakir þingmenn að ráðherraskiptin sem framundan séu – til að mynda mun Halldór Ásgrímsson taka við forsætisráðuneytinu að ári – eigi eftir að veikja núverandi ríkisstjórn. Aðrir benda hins vegar á að sam- starf Samfylkingar, VG og Frjáls- lynda flokksins virðist heldur ekki upp á marga fiska. Það hafi m.a. komið fram í kosningabaráttunni en einnig hafi það komið fram á sum- arþinginu. Þá hafi Samfylkingin t.d. lagt fram tillögur að þingmönnum, sínum þingmönnum, í fastanefndir þingsins án samstarfs við VG og Frjálslynda. Samfylkingin vilji þannig njóta þess þingstyrks sem hún hafi. Það verði því líka áhuga- vert að fylgjast með samstarfi stjórnarandstöðuflokkanna á Al- þingi í vetur. Alþingi Íslendinga, 130. löggjafarþing, verður sett í dag í annað sinn eftir alþingiskosningar Nýir þing- menn „stimpla sig inn“ Morgunblaðið/Brynjar Gauti Margir telja að þingið muni bera þess merki hve stutt er frá kosningum. Alþingi Íslendinga verður sett í dag, í annað sinn eftir alþingiskosningar. Í grein Örnu Schram kemur fram að þingmenn búast margir hverjir við snörpu haustþingi. arna@mbl.is ÞINGFLOKKUR Samfylkingarinnar hyggst á komandi þingi leggja til það nýmæli að Sam- keppnisstofnun verði heimilt að leita á heim- ilum stjórnenda fyrirtækja. Segja fulltrúar þingflokksins að með því sé verið að feta inn á þá braut sem hefur verið farin í Evrópu. Þetta kom m.a. fram á blaðamannafundi sem þing- menn Samfylkingarinnar héldu í gær. Var til- gangur fundarins, að sögn Bryndísar Hlöðvers- dóttur, formanns þingflokksins, að kynna áherslur Samfylkingarinnar í vetur. Á fundinum kom fram að eitt af fyrstu málum þingflokksins verði að leggja til breytingar á samkeppnislögum. Ætlar þingflokkurinn m.a. að leggja til að skýrari verkaskiptingu verði komið á milli Samkeppnisstofnunar og rík- issaksóknara, þannig að stofnunin rannsaki brot fyrirtækja en ríkissaksóknari brot ein- staklinga. „Þá verður lagt til að Samkeppn- isstofnun tilkynni ríkissaksóknara ef rök- studdur grunur vaknar um refsivert brot einstaklings gegn samkeppnislögum og að síð- arnefnda embættið taki ákvörðun um hvort hefja eigi rannsókn,“ segir í tilkynningu frá þingflokknum. Ennfremur verða gerðar til- lögur um hertar refsingar vegna brota á sam- keppnislögum. Þingflokkur Samfylkingarinnar ætlar einnig að leggja fram á þinginu tillögu um lækkun virðisaukaskatts á matvælum úr 14% í 7%. Bryndís minnir á að það hafi verið eitt af þeim málum sem Samfylkingin hafi sett á odd- inn í kosningabaráttunni. Telur þingflokkurinn að með slíkri lækkun virðisaukaskatts megi lækka matarreikninga Íslendinga um nær fimm milljarða. Þingflokkurinn boðaði aukinheldur í gær að hann hygðist leggja fram á þingi tillögu um nokkrar breytingar á stjórnarskrá Íslands í til- efni af 100 ára afmæli heimastjórnarinnar. Ætl- ar þingflokkurinn að leggja til að kosin verði níu manna nefnd með fulltrúum allra þingflokka til að endurskoða ákveðin atriði í stjórnarskránni. Verkefni nefndarinnar verði þannig m.a. að gera tillögur um hvernig tryggja megi í stjórn- arskrá sameign þjóðarinnar á náttúru- auðlindum. Ennfremur verði verkefni hennar að kanna hvort tímabært sé að huga að breyt- ingum á ákvæðum stjórnarskrár um samband ríkis og kirkju, svo annað dæmi sé nefnt. Að lokum má nefna tillögu sem þingmenn hyggjast leggja fram í haust og miðar m.a. að því að koma á átaki til að efla iðn-, verk- og list- nám. Í því sambandi verði skipaður starfshópur sem vinni m.a. að því að eyða „úreltri aðgrein- ingu á milli bóknáms og verknáms“, að því er m.a. kemur fram í drögum að tillögunni. Morgunblaðið/Ásdís Björgvin G. Sigurðsson, Bryndís Hlöðversdóttir, Össur Skarphéðinsson og Lúðvík Berg- vinsson, þingmenn Samfylkingarinnar, í nýju þingflokksherbergi flokksins. Þingflokkur Samfylkingarinnar Leita megi á heimil- um stjórnenda Vilja að virðisauka- skattur á matvæli lækki ÞINGFLOKKUR Vinstrihreyf- ingarinnar – græns framboðs hyggst leggja fram á komandi þingi frumvarp til laga um bann við kaupum á kynlífsþjónustu. Kolbrún Halldórsdóttir, þing- maður VG, verður fyrsti flutn- ingsmaður frumvarpsins, en með- flutningsmenn verða konur úr öllum flokkum nema Sjálfstæð- isflokknum. Þetta kom fram á blaðamannafundi VG í gær, en þar voru kynnt nokkur þau helstu þingmál sem flokkurinn hyggst leggja áherslu á í vetur. Meðal annarra þingmála sem þingflokkurinn kynnti í gær var frumvarp um að lögfest verði sér- stakt úrræði til að vernda þá sem verða fyrir ofbeldi á heimili sínu. Miðar frumvarpið að því að of- beldismaðurinn verði fjarlægður af heimilinu og honum bannað að heimsækja heimilið í allt að þrjá mánuði. Einnig hyggst þingflokk- urinn leggja fram frumvarp um vitna- og fórn- arlambavernd og frumvarp um bann við um- skurði á kynfærum kvenna, svo dæmi séu nefnd. Leikskólar verði gjaldfrjálsir Þá hyggst þingflokkurinn leggja fram til- lögu til þingsályktunar um gjaldfrjálsa leik- skóla. Verður í tillögunni lagt til að nefnd verði skipuð sem fái það verkefni að undirbúa og annast viðræður við sveitarfélögin um sameig- inlegt átak þeirra og ríkisins um að gera leik- skóladvöl gjaldfrjálsa í áföngum. Ögmundur Jónasson, þingflokksformaður VG, minnti á að tillagan væri í samræmi við þær áherslur sem VG hefði lagt í kosningabaráttunni sl. vor. Ennfremur hyggst þingflokkurinn, ásamt Frjálslynda flokknum, leggja fram sameig- inlega beiðni um skýrslu um undirbúning og framkvæmd síðustu alþingiskosninga. „Við höfum ástæðu til að ætla að framkvæmd kosn- inganna hafi í mjög veigamiklum atriðum verið ábótavant,“ útskýrði Kolbrún. „Við förum yfir það í beiðninni hvað við viljum að verði rann- sakað sérstaklega. Þar get ég nefnt t.d. fram- kvæmdina á erlendri grund; hvernig sendiráð- unum var gert kleift að kynna kosningarnar; listabókstafi og annað.“ Sagði Ögmundur m.a. að markmiðið með beiðninni væri að „læra af þeim mistökum sem gerð hefðu verið“ í síðustu alþingiskosningum. Skilið verði á milli viðskiptabanka og fjárfestingarbanka Fleiri þingmál voru kynnt, m.a. frumvarp sem felur í sér að heimildir viðskiptabanka og sparisjóða til að fjárfesta og eiga í atvinnufyr- irtækjum verði takmarkaðar. Ennfremur að skilið verði á milli viðskiptabanka og fjárfest- ingarbanka með skýrari hætti en nú er. Þá ætlar þingflokkurinn að leggja fram tillög um uppbyggingu sjúkrahótela og tillögu um stofn- brautakerfi fyrir hjólreiðar, svo fleiri dæmi séu nefnd. Heimildir banka til að fjár- festa og eiga í fyrirtækjum verði takmarkaðar Morgunblaðið/Þorkell Þuríður Backman, Ögmundur Jónasson og Kolbrún Hall- dórsdóttir, þingmenn VG, á blaðamannafundi í gær. VG kynnir þingmál komandi vetrar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.