Morgunblaðið - 01.10.2003, Blaðsíða 15
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 2003 15
"
,
!"
-
. /
!"
!
"
#$
$
%
%&
'$
(
)
*
$
+
+
! +
'$
,
"
"
"
)
-
.
/
0
1
"%
!
0
1
0
$
( $$ 2
+
.33
4.5
6+
.33
4
7
TVEGGJA ára gömul stúlka
var ein á heimili sínu á Flórída í
Bandaríkjunum í nærri þrjár
vikur á meðan móðir hennar af-
plánaði fangelsisdóm. Faðir
stúlkunnar kom að dóttur inni
þar sem hún sat í íbúð móður-
innar og horfði á teiknimyndir í
sjónvarpinu. Barnið hafði borð-
að sinnep, tómatsósu og hrátt
pasta en þjáðist af vannæringu
og liggur á sjúkrahúsi.
Foreldrar stúlkunnar eru
skilin, en faðirinn sagðist hafa
talað við móðurina í síma á
sunnudag og þá sagði hún að
barnið væri hjá nágrönnum sín-
um. Hann fór samt í íbúð kon-
unnar og fann stúlkuna inni í
svefnherbergi. Hún hafði borið
mat og leikföng inn í herbergið
og lá þar í barnabaðkeri, öll út-
ötuð í storknaðri tómatsósu.
Al-Qaeda-
liðar dæmdir
18 MENN voru í gær dæmdir í
fangelsi í Belgíu. Mennirnir eru
taldir tengjast al-Qaeda,
hryðjuverkasamtökum Osama
bin Ladens. Höfuðpaurinn,
Nizar Trabelsi, Túnisbúi sem á
árum áður lék sem atvinnu-
knattspyrnumaður í Þýska-
landi, fékk tíu ára dóm fyrir að
hafa lagt á ráðin um sprengju-
árás á NATO-herstöð í Belgíu
árið 2001. Við réttarhöldin kom
fram að hann hefði hitt bin
Laden í Afganistan. Annar
Túnisbúi var dæmdur í sex ára
fangelsi fyrir að hafa reynt að
fá menn í Evrópu til að ganga
til liðs við al-Qaeda.
Dómarnir þykja heldur væg-
ir og sögðu sérfróðir í gær að
þá mætti rekja til þess að í
Belgíu hefði ekki verið innleidd
sérstök hryðjuverkalöggjöf.
Túlkur
handtekinn
LÆKNIR sem vann sem túlk-
ur í bandarískum fangabúðum
fyrir meinta hryðjuverkamenn
í Guantanamo-flóa á Kúbu, var
handtekinn í gær, að sögn
bandarísku alríkislögreglunn-
ar. Ahmed Mehalba var hand-
tekinn á millilandaflugvelli í
Boston en hann kom frá Kaíró á
mánudag. Maðurinn mun hafa
haft leynileg skjöl meðferðis
þegar hann var handtekinn á
Logan-flugvelli í Boston. Þetta
er þriðji maðurinn sem hand-
tekinn er grunaður um njósnir
á herstöðinni við Guantanamo-
flóa.
Vilja banna
hjónaband
MANNRÉTTINDASAMTÖK
og fulltrúar á þingi Evrópu-
sambandsins krefjast þess að
rúmensk stjórnvöld grípi til að-
gerða vegna hjónabands
tveggja sígaunaunglinga.
Brúðguminn er sagður vera 15
ára en stúlkan, Ana-Maria
Cioaba, er ýmist talin vera 12
eða 14 ára og dóttir svonefnds
kóngs sígauna. Hún mun hafa
verið ósátt við að ganga í hjóna-
band en ráðahagurinn var
ákveðinn þegar hún var sjö ára.
Talsmaður rúmenskra mann-
réttindasamtaka benti m.a. á að
hjónabandið væri ólöglegt
vegna þess að með því væri ýtt
undir kynlíf milli barna.
STUTT
Tveggja
ára ein í
þrjár vikur
TALIÐ var líklegt í gær, að norska
fjármála- og útgerðarjöfrinum Kjell
Inge Røkke hefði tekist að ná saman
þeim 6,5 milljörðum íslenskra króna,
sem hann átti að greiða stórfyrir-
tækinu Orkla nú um mánaðamótin.
Ýmsar getgátur eru um það hvert
hann sótti peningana.
Það er fyrirtæki Røkkes, Norway
Seafoods Holding, sem skuldar
Orkla, og var hann sjálfur persónu-
lega í ábyrgðum fyrir láninu. Er fyr-
irtækið aftur hluti af Aker RGI og
var boðað til fundar í stjórn þess í
fyrrakvöld. Var létt yfir Røkke og
öðrum stjórnarmönnum að honum
loknum og þótti það benda til, að
tekist hefði að ná saman fyrir af-
borguninni, að þessu sinni að
minnsta kosti. Kemur það fram í
norska blaðinu Finansavisen, að af-
borgunin, 6,5 milljarðar ísl. kr., sé
komin inn reikning en hins vegar
hafi ýmsir bankar áhuga á að kyrr-
setja það fé vegna áhyggna af þeim
lánum, sem þeir hafi veitt Røkke.
Norskir fjölmiðlar velta vöngum
yfir því hvernig Røkke hafi tekist að
öngla saman fyrir afborguninni og
nefna í því sambandi Mads Syver-
sen, aðalframkvæmdastjóra Ensk-
ilda Securities. Þeir séu miklir vinir
og hafi Syversen lengi verið Røkke
haukur í horni, raunar svo mikill, að
lánveitingar hans til Røkkes séu nú
til athugunar hjá norska fjármála-
eftirlitinu. Önnur tilgáta er, að
Røkke hafi sótt peningana að hluta í
dótturfélagið Aker Yards, er hagn-
aðist um 5,2 milljarða ísl. kr. í fyrra.
Margir boðar framundan
Þótt Røkke og Aker RGI takist að
sigla framhjá þessu skeri, þá er önn-
ur afborgun af Orkla-láninu eftir
nokkra mánuði og aftur næsta vor. Í
desember verður Aker RGI að snara
út einhverjum milljörðum ísl. kr. til
fyrrverandi minnihlutaeigenda í
Aker Maritime en þeir hafa rétt til
selja aftur skuldabréfalán, sem er
með gjalddaga fyrst árið 2007. Í lok
mars á næsta ári þarf Aker Mari-
time að greiða 623 milljónir n.kr., 6,8
milljarða ísl. kr., en þetta dóttur-
félag skuldar rúmlega 29 milljarða
ísl. kr. í skammtímalánum.
Fyrir utan þetta styttist í að
Røkke mæti fyrir rétt í Ósló, sak-
aður um spillingu. Hefur hann verið
ákærður fyrir að hafa orðið sér úti
um skipstjórnarréttindi á glæsi-
snekkjuna sína með mútum og án
þess að hafa tekið nein próf.
Líklegt að Røkke sleppi – í bili
Á næstu mánuðum verður skorið úr
um hvort veldi hans lifir eða deyr
SAPARMURAT Niyazov, for-
seti Túrkmenistans, hefur vikið
varnarmálaráðherra landsins
úr embætti fyrir að vera of þög-
ull og fyrir að hafa ekki nægi-
lega gaman af vinnunni sinni.
Varnarmálaráðherrann,
Redzhepbai Arazov, hafði að-
eins gegnt embættinu í fjóra
mánuði. Hann var fyrsti
óbreytti borgarinn, sem gegnt
hefur embætti varnarmála-
ráðherra. Niyazov mun hafa
sagt að ástæða brottvikningar-
innar væri sú að „þetta var ekki
starfsgrein hans og hann er
þögull maður sem ekki er sér-
lega heilsuhraustur“.
Sagði forsetinn, sem vill láta
kalla sig Turkmenbashi eða
„föður allra Túrkmena“, að nú
verði horfið aftur til fyrri siða,
og að nýr varnarmálaráðherra
kæmi úr hernum.
TONY Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, varði þá ákvörðun sína að taka
þátt í herför Bandaríkjamanna í Írak
er hann ávarpaði flokksþing breska
Verkamannaflokksins í gær. Blair
viðurkenndi að Íraksstríðið og eft-
irmálar þess hefðu skaðað trúverð-
ugleika hans sem forsætisráðherra
en bað flokksmenn sína hins vegar
um að missa ekki móðinn núna held-
ur snúa vörn í sókn. Minnti hann á að
ekki væri langt til næstu kosninga og
að það myndu teljast söguleg tíðindi
ef Verkamannaflokknum tækist að
vinna þar sigur, í þriðju kosningun-
um í röð.
Ræðu Blairs í gær hafði verið beð-
ið með mikilli eftirvæntingu og
sögðu sumir að hún væri sú mikil-
vægasta sem hann hefði flutt á sín-
um pólitíska ferli. Forsætisráð-
herrann hefur nefnilega sætt miklu
ámæli vegna Íraksmálanna og skoð-
anakannanir sýna að tiltrú almenn-
ings á honum hefur aldrei verið
minni. Veltu menn jafnvel vöngum
yfir því á mánudag, eftir að Gordon
Brown fjármálaráðherra hafði flutt
sitt ávarp á flokksþinginu, hvort far-
ið væri að hilla undir leiðtogaskipti í
Verkamannaflokknum.
Vel fagnað
Blair var þó vel fagnað er hann
steig í ræðustól á flokksþinginu, sem
haldið er í Bournemouth á suður-
strönd Bretlands. Viðurkenndi hann
í upphafi að mikið hefði gengið á
undanfarna mánuði og að atburðir
þessa árs hefðu tekið sinn toll.
„En hvað eigum við að gera: gef-
ast upp fyrir erfiðleikunum eða
halda okkar striki?“ spurði Blair og
fékk það svar frá flokksmönnum,
sem hann vildi. Ekki kæmi annað til
greina en snúa vörn í sókn.
Blair vék sérstaklega að gagnrýni
á hendur honum vegna þeirrar
ákvörðunar að fylkja liði með George
W. Bush Bandaríkjaforseta í Íraks-
málunum sl. vor. „Ég veit að margir
hafa orðið fyrir vonbrigðum, eru sár-
ir eða reiðir. Ég geri mér grein fyrir
því að margir eru á þeirri skoðun að
við höfum breytt rangt,“ sagði Blair
um Íraksstríðið en bætti við: „Ég fer
aðeins fram á þetta: gagnrýnið
ákvörðun mína en reynið að minnsta
kosti að skilja hvers vegna ég tók
hana og hvers vegna ég myndi gera
hið sama í dag.“
Bað Blair menn um að setja sig í
hans spor – í spor forsætisráðherra
sem fengi upplýsingar um gereyð-
ingarvopnaeign manns eins og Sadd-
ams Husseins, fyrrverandi forseta
Íraks. Ætti forsætisráðherrann að
fylgja þeirri tilfinningu sinni, að ekk-
ert væri að marka upplýsingarnar,
og eiga það fyrir vikið á hættu að
styrkja þannig stöðu Saddams?
„Ég veit að það er erfitt fyrir fólk
að halda í trúna og sumt fólk hefur ef
til vill endurskoðað það álit, sem það
hafði á mér,“ sagði Blair um þá orra-
hríð, sem á honum hefur dunið en ný
skoðanakönnun sýnir að 70% Breta
telja Blair, sem jafnan hefur notið
trausts meðal bresks almennings,
vera „dottinn úr sambandi við venju-
legt vinnandi fólk“. Boðaði hann að á
næstu mánuðum myndu stjórnvöld
og þingmenn Verkamannaflokksins
hefja samræður við bresku þjóðina
um öll helstu þjóðþrifamál til að ráða
bót á þessu.
Sögulegt samhengi
Blair ræddi stöðu Verkamanna-
flokksins í sögulegu samhengi. Hann
sagði flokkinn hafa verið „vel mein-
andi þrýstihóp“ í gegnum tíðina en
ávallt hafa gert afdrifarík mistök
þegar í stjórn var komið og aldrei
haft stjórnartaumana lengi. Verka-
mannaflokkurinn hefði hins vegar
núna ráðið ríkjum í Bretlandi í sex ár
og væri vel í stakk búinn til að taka
við hlutverki Íhaldsflokksins sem sá
flokkur, sem yfirleitt væri við völd.
AP
Blair grínaðist með það í ræðu sinni í gær að erfiðleikar undanfarinna mánaða hefðu markað sig.
Blair bað flokksmenn um
að missa ekki móðinn
Bournemouth. AP, AFP.
Þótti
ráðherrann
of „þögull“
Ashgabat. AFP.