Morgunblaðið - 01.10.2003, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 01.10.2003, Blaðsíða 40
ÍÞRÓTTIR 40 MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ ENSKU götublöðin Daily Express og Daily Mirror sögðu frá því í gær að Kevin Keegan, knattspyrnu- stjóri Manchester City, hefði áhuga á að kaupa íslenska landsliðsmann- inn Eið Smára Guðjohnsen frá Chelsea. Rætt er um að kaupverð sé sjö millj. punda. Þá er sagt að Middlesbrough hafi einnig áhuga á Eiði Smára. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem ensku götublöðin segja frá áhuga liða á Eiði Smára, en hann var orð- aður við t.d. Manchester United sl. keppnistímabil. Cheslea hefur ekki hug á að láta Eið fara, en liðið er með 40 leikmenn á launum og þá eru sjö leikmenn í láni. Eiður Smári til Man. City eða „Boro“? ÓLAFUR Þórðarson, þjálfari landsliðs Íslands í knattspyrnu, sem skipað er leikmönnum 21 árs og yngri, hefur valið 16 manna hóp Íslands fyrir lokaleik liðsins í undan- keppni EM, gegn Þýska- landi í Lübeck 10. októ- ber næstkomandi, daginn áður en A-landsliðin eig- ast við í Hamborg. Markverðir eru, Ómar Jóhanns- son, Keflavík, og Bjarni Þórður Halldórsson, Fylki. Aðrir leik- menn, Helgi Valur Daníelsson, Fylki, Guðmundur Viðar Mete, IFK Norrköping, Haraldur Guð- mundsson, Keflavík, Gunnar Heið- ar Þorvaldsson, ÍBV, Hannes Þ. Sigurðsson, Viking Stav- anger, Sigmundur Krist- jánsson, FC Utrecht, Viktor Bjarki Arnarsson, TOP OSS, Hjálmur Dór Hjálmsson, ÍA, Jökull Elísabetarson, KR, Ólaf- ur Ingi Skúlason, Arsen- al, Atli Jóhannsson, ÍBV, Tryggvi Bjarnason, ÍBV, Örn Kató Hauksson, KA, Jón Skaftason, Víkingi. Íslenska landsliðið hefur tapað öllum fimm leikjum sínum til þessa í undankeppninni. Fyrri leik þjóðanna sem fram fór í byrjun september, daginn áður en A- landsliðið áttust við, á Akranesi lauk með öruggum sigri Þjóð- verja, 3:1. Ólafur Þórðarson hefur valið ungmennaliðið Ólafur Ingi ALLNOKKUR umræða hefur átt sér stað um sameiningu íþrótta- félaga hér í Reykjavík, nú á seinni tímum. Síðasta innlegg í þá umræðu birtist í Morgunblaðinu 25. sept. sl. ritað af Jóni Steinari Gunnlaugs- syni. Og daginn eftir er grein í sama blaði, rituð af formanni ÍBR sem fagnar umræðunni og hvernig hún er sett fram. Fyrir fáum árum var nokkur hreyfing í þá átt, að sameina ÍR og íþróttafélagið Leikni, en bæði þessi félög eru í Breiðholti. Í fundarboði til aðalfundar Leiknis var þess getið að til stæði að sameina þessi félög. Ég ákvað að mæta á fundinn, ein- göngu fyrir forvitni sakir, til þess eins að fá vitneskju um hvernig þetta væri hugsað. Að fengnum þeim upplýsingum var það ljóst í mínum huga að ef af yrði væru dag- ar íþróttafélagsins Leiknis taldir. Og ég var ekki einn um þá skoðun. Vaskir piltar, sem þá voru í mfl. Leiknis í knattspyrnu, voru ómyrkir í máli um þessa hugmynd. Þeir bentu t.d. á að hjá ÍR væri það alveg klárt að þar á bæ yrði ekki skipt um nafn á félaginu. Og um hugmyndina, sem kom fram í máli þess er talaði fyrir sameiningu, að skipað yrði í mfl. eftir einhverju kvótafyrirkomu- lagi afgreiddu þeir sem hreina og klára dellu. Hjá ÍR væri nefnilega barist hart um hverja stöðu nú þeg- ar, þess vegna væri það alveg út úr korti að vera með svona málflutn- ing. Að sameina tvö eða fleiri félög í eitt, að öllu leyti eða að hluta er ekki einföld aðgerð, það er öllum ljóst. Þessi umræða um sameiningu íþróttafélaga í Reykjavík leiðir hug- ann 30 ár aftur í tímann, þegar Breiðholtið var að byggjast upp og Árbærinn kominn vel af stað. Þá var í ársbyrjun 1973 stofnað í efra Breiðholti, eða Breiðholti 3 félag, er hlaut nafnið Framfarafélag Breið- holts 3, FFB3. Fyrsti formaður þess, var Hjálmar Hannesson þá menntaskólakennari, nú sendi- herra. Eitt af því fyrsta sem Hjálm- ar lagði fyrir stjórnina til umræðu var íþrótta- og æskulýðsmál. Það kom fram í þeirri umræðu að ÍR væri komið í neðra Breiðholt, eða Breiðholt 1. Stjórn FFB3 fannst bæði rétt og eðlilegt að leita eftir upplýsingum hjá stjórn ÍR um það, hvað félagið hygðist fyrir í efra Breiðholti. Einnig kom fram áhugi hjá stjórninni að kanna hvort önnur íþróttafélög í Reykjavík hefðu kann- að möguleika á því að færa sig um set. Innan stjórnarinnar var bent á Glímufélagið Ármann og Fram í því sambandi. Einn stjórnarmaður FFB3 fékk það verkefni að afla þessara upplýsinga. Árangurinn varð þessi. Yngri aðilar í Ármanni höfðu þegar viðrað þá hugmynd að félagið flytti í Breiðholtið. Hug- myndin hlaut ekki samþykki. Hjá Fram var það ekki uppi á borðinu að flytja í Breiðholtið. Þessum tveim félögum mun ekki hafa verið sent formleg erindi, aðeins reynt að hlera hvort áhugi væri til staðar á að þau færðu sig. Um ÍR gegnir allt öðru máli. Haft var beint samband við formann ÍR og sagt frá umræðu um þessi mál innan stjórnar FFB3. Til að gera langa sögu stutta þá kom aldrei neitt frá ÍR. Stjórnarmönnum FFB3 fannst þetta með ólíkindum. Vildu stjórnarmenn, sumir að minnsta kosti, reyna enn frekar og var ákveðið að fulltrúi stjórnarinnar fram að þessu óskaði eftir því við ÍR að komið yrði á fundi sem allra fyrst. Þegar það gekk ekki heldur þá sagði formaður FFB3. Við stofnum íþróttafélag. Því er það deginum ljósara í mínum huga að þau íþrótta- félög í Reykjavík sem á þessum tíma voru farin að sjá fram á versnandi aðstöðu, hefðu borið gæfu til þess að horfa til þeirra svæða í Reykjavík sem voru að byggjast upp, þá hefði kannski aldrei komið til þess að íþróttafélagið Leiknir í Breiðholti 3 og Fjölnir í Grafarvogi hefðu verið stofnuð. Og þess vegna væri um- ræðan um að sameina íþróttafélög í Reykjavík, að hluta eða að öllu leyti, sennilega ekki enn komin í gang. Ragnar Magnússon Að sameina íþróttafélög Höfundur er fyrrverandi formaður Leiknis. IONELA Loaies, bronsverð- launahafi í fimleikum frá Ólymp- íuleikunum í Atlanta, er komin til starfa hjá fimleikadeild Kefla- víkur. Loaies, sem er 24 ára göm- ul, var í rúmenska landsliðinu sem hafnaði í þriðja sæti í liða- keppni á leikunum en tveimur árum áður varð hún heimsmeist- ari með sama liði. Robert Bentia, unnusti hennar, var ráðinn til Keflavíkur í haust en hann þjálf- aði í Vestmannaeyjum síðasta vetur. Í framhaldi af því kom Loaies einnig til liðs við Keflvík- inga en hún hætti keppni árið 1997 og hefur kennt fimleika í borginni Glenwood í Illinois-fylki í Bandaríkjunum frá árinu 1999. Aðstaða fyrir fimleika er orðin mjög góð í Reykjanesbæ, þar sem nýverið vígt nýtt gryfjuhús. Um 200 stunda æfingar hjá fim- leikadeild Keflavíkur. Rúmensk afrekskona þjálfar í Keflavík  EGGERT Magnússon, formaður KSÍ, var sérstakur sendifulltrúi for- seta UEFA á leik Mónakó og AEK Aþenu í Meistaradeild Evrópu í gær- kvöld. Hann verður í sömu erinda- gjörðum á leik Marseille og Partizan Belgrad í kvöld.  CORNELIA Breté, rúmensk hand- knattleikskona, er gengin til liðs við 1. deildarlið KA/Þórs. Hún spilaði sinn fyrsta leik gegn Fylki/ÍR á sunnudaginn og var markahæsti leik- maður liðsins með 8 mörk.  PAUL Ince fyrirliði enska úrvals- deildarliðsins Wolverhampton vand- ar Mark Lawrenson knattspyrnu- sérfræðingi breska ríkisútvarpsins ekki kveðjurnar, en Ince lét „allt flakka“ í viðtali við enska dagblaðið The Sun. Jóhannes Karl Guðjónsson er félagi Ince í liði Úlfanna sem hefur gert tvö jafntefli í sjö leikjum, tapað fimm, fengið á sig 18 mörk og skorað 2.  LAWRENSON var í hinu sigur- sæla Liverpool liði á árum áður en hann spyr þá sem skoða vefsvæði BBC að því hvaða lið það sé sem taki miðju á 10 mínútna fresti – og á þá við Úlfana.  FABIEN Barthez kann að vera á leið heim til Frakklands, en hann hefur ekki verið í náðinni hjá Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóra Man- chester United, síðustu mánuði. For- ráðamenn Paris St. Germain eru að velta því fyrir sér að klófesta franska landsliðsmarkvörðinn til að leysa Lionel Letizi af en hann er meiddur.  FRANCIS Graille, forseti Paris St. Germain, segir að félaginu hafi verið boðið að fá Barthez í sumar sem hluta af greiðslu fyrir Ronaldinho þegar til stóð að Brasilíumaðurinn gengi til liðs við ensku meistarana. Graille segir að þá hafi ekki verið áhugi á að fá Barthez til félagsins. „Ef Lionel Letizi er alvarlega meidd- ur þá kemur til greina að endurskoða afstöðu okkar til Barthez,“ segir Gra- ille í samtali við franska íþróttablaðið L’Equipe.  DANNY Murphy er nýjasta nafnið á löngum lista Liverpool yfir meidda leikmenn. Hann meiddist á ökkla í leik með varaliðinu gegn varaliði Everton á mánudaginn. Ekki er enn ljóst hversu lengi hann verður frá keppni.  ÞÁ er talið fullvíst að Senegalinn Salif Diau fái þriggja leikja bann eft- ir að hafa fengið rautt spjald í fyrr- greindum varaliðsleik fyrir gróft brot.  ÞAð jákvæða í herbúðum Liver- pool er hins vegar Stephane Henc- hoz sem lék allan leikinn í fyrrakvöld og virðist vera klár í slaginn með að- alliðinu ef þurfa þykir um næstu helgi. Henchoz hefur verið meiddur um tíma. FÓLK Aron meiddist í hné í leik gegnBjerringbro fyrir rúmri viku og í fyrstu var talið að hann jafnaði sig á nokkrum dögum, en sú varð ekki raunin. Í samtali við Morgunblaðið í gær sagði Aron að hann reiknaði með að fara til læknis í nánari skoð- un á næstu dögum ef ekki yrði breyt- ing á til hins betra. „Ég æfði ekkert í heila viku eftir leikinn við Bjerringbro, vonast var til að þetta væri álagsmeiðsli sem myndu jafna sig. Ég æfði síðan síð- asta sunnudag og þá fann ég strax að ekkert hafði batnað og hnéð var bólgið í gær [mánudaginn], daginn eftir. Það er því ljóst að ég verð að fara til læknis og fá á hreint hvort þetta eru álagsmeiðsli eða þá eitt- hvað í liðþófanum, verst í þessu er að vita ekki hvað þarna er að. Óvissan en alltaf verst í þessum málum,“ sagði Aron. Aron sagði það hafa verið mikil vonbrigði að geta ekki tekið þátt í leiknum gegn Skjern á sínum gamla heimavelli, en hann lék með Skjern um þriggja ára skeið undir lok tí- unda áratugs síðustu aldar. „Ég fór með liðinu í leikinn þótt ég gæti ekki tekið þátt í honum. Það var tekið af- ar vel á móti mér í Skjern og leið- inlegt að gera ekki verið með í leikn- um, það gefst ekki annað tækifæri til þess í vetur,“ sagði Aron. Tvis/Holstebro hefur ekki vegnað sem best í fyrstu leikjum sínum í dönsku deildinni og þegar þrjár um- ferðir eru að baki er það án stiga. Fé- lagið lagið talsvert í sölurnar fyrir þessa leiktíð og styrkti liðið með nokkrum leikmönnum. Tvis/Holstebro mætir Skjern á nýjan leik á annað kvöld, þá heima- velli, í undanúrslitum bikarkeppn- innar. Aron frá vegna hné- meiðsla ARON Kristjánsson handknattleiksmaður gat ekki vegna meiðsla leikið með samherjum sínum í Tvis/Holstebro gegn sínum fyrrver- andi samherjum í Skjern í uppgjöri liðanna á suðvestur hluta Jót- lands í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik í fyrrakvöld. Skjern vann leikinn, 24:20, á heimavelli. ÓLAFUR Haukur Gíslason, markvörður ÍR-liðsins í handknattleik, sem hefur ekki tapað leik á Íslandsmótinu, hefur leikið vel á milli stanganna hjá ÍR – varði 19 skot þegar ÍR-ingar lögðu FH-inga að velli í Austurbergi á sunnudaginn, 31:23. Hann varð að játa sig sigraðan, er hann náði ekki að koma í veg fyrir að skot FH-inga, sem myndirnar sýna, hafnaði í markinu – hann gerði heiðarlega tilraun til þess. Ólafur Haukur gekk til liðs við ÍR- inga fyrir þetta keppnistímabil, eftir að hafa varið mark Aftureldingar í Mosfellsbæ síðustu ár. Morgunblaðið/Kristinn Ólafur Haukur varð að játa sig sigraðan

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.