Morgunblaðið - 01.10.2003, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 01.10.2003, Blaðsíða 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 2003 11 TILBOÐSDAGAR FORCE C PREMIUM - og húðin ljómar HYDRO URGENCY - rakafyllt húð COLLAGENIST - „áhrif Collagens án sprautunnar“ FACE SCULPTOR - andlitslyfting án skurðaðgerðar Við bjóðum þér nú vinsælustu kremin frá Helena Rubinstein á 10% lægra verði. Að auki færð þú snyrtibuddu og 3 aðrar vörur sem passa með kreminu þínu. Láttu ekki happ úr hendi sleppa. Útsölustaðir: Gullbrá Nóatúni, Snyrtivöruverslunin Glæsibæ, Hygea Kringlunni, Hygea Laugavegi 23, Libia Mjódd, Mist Spönginni, Sara Bankastræti 8, Sigurboginn Laugavegi 80, Andorra Strandgötu Hafnarfirði, Bylgjan Hamraborg Kópavogi, Hygea Smáralind, Fína Háholti Mosfellsbæ. Landið: Hjá Maríu Glerártorgi Akureyri, Jara Hafnarstræti 104 Akureyri, Bjarg Stillholti 14 Akranesi, Hilma Garðarsbraut 18 Húsavík, Konur og menn Hafnarstræti 9 Ísafirði, Myrra Austurvegi 4 Selfossi, Miðbær Miðstræti 14 Vestmannaeyjum. Útsölustaðir: Gu lbrá Nóatúni, Snyrtivöruverslunin Glæsibæ, Hygea Kringlunni, Hygea Laugavegi 23, Mist Spönginni, Sara Ba kastræti 8, Sigurboginn La gavegi 80, Andorra Strandgötu Hafnarfirði, Bylgjan Hamraborg Kóp vogi, Hygea Smáralind, Fína Háholt Mosfellsbæ. Landið: Jara Hafnarstræ i 104 Akureyri, Bj rg Stillholti 14 Akranesi, Hilm Garðarsbraut 18 Húsavík, Kon r og menn Hafnarstræti 9 Ísafirði, Myrra Austurvegi 4 Selfossi, Miðbær Miðstræti 14 Vestmannaeyjum. HALLDÓR Ágrímsson utanrík- isráðherra fundaði á mánudag með Kofi Annan, aðalfram- kvæmdastjóra Sameinuðu þjóð- anna, í höfuðstöðvum samtakanna í New York. Ræddu þeir ýmis mál, t.d. tillögur aðalframkvæmdastjór- ans um endurskipulagningu á stofnunum Sameinuðu þjóðanna, einkum hugmynd hans um að setja á fót ráðgjafahóp til að greina ástand og horfur og gera tillögur um þetta mál fyrir næsta allsherjarþing. Aðalfram- kvæmdastjórinn taldi Ísland hafa mikið fram að færa á sviði þróun- armála, ekki síst á sviði sjávar- útvegs í krafti sérþekkingar. Halldór Ásgrímsson hitti Kofi Annan NOKKRAR ólíkar tegundir vistun- arúrræða eru fyrir hendi fyrir geð- sjúka eftir að sjúkrahúsvist lýkur og þörf er á fleirum, að mati þeirra sem þekkja til. Í flestum tilvikum er um að ræða varanleg vistunar- úrræði, þar sem fólki er búið heim- ili til frambúðar en ennig eru sk. vernduð heimili, þar sem fólk fær ákveðna aðlögun til að geta síðar meir búið sjálfstætt. Vernduð heimili eru fyrir þá sem geta búið án mikillar aðstoðar utan sjúkrahúsa. Þeir sem fara inn á vernduð heimili eiga margir hverjir góða möguleika á því að taka upp sjálfstæðari búsetu síðar meir. Ein- staklingar sjá að mestu um sig sjálfir en fá þjónustu eftir þörfum, bæði frá spítalanum og frá sam- starfsaðilum hans, t.d. Félagsþjón- ustunni í Reykjavík, Öryrkjabanda- laginu og Geðverndarfélaginu. Alls eru fyrir hendi 18 vernduð heimili og nýta 65 einstaklingar sér þau á hverjum tíma. Að sögn Hannesar Péturssonar, sviðsstjóra á geðsviði LSH, er þessi þáttur í nokkuð góðu horfi en þó vantar úrræði fyrir 10– 15 einstaklinga Þá eru önnur og sérhæfðari heimili, t.d. Dvalarheimilið Ás í Hveragerði, þar sem búa nú um 55 einstaklingar. Vantar pláss fyrir u.þ.b. 25 mikið veika einstaklinga Sambýli er önnur tegund búsetu- úrræða sem henta þeim sem eru talsvert veikari og þar er yfirleitt sólarhringsvaktþjónusta. Yfirstjórn geðsviðs LSH vinnur að því að út- vega slík úrræði fyrir skjólstæðinga sína í samstarfi við Svæðisskrifstof- ur málefna fatlaðra í Reykjavík og Reykjanesi. Að minnsta kosti 20 einstaklingar eru á biðlista eftir að komast að á sambýli. Að sögn Hannesar eru þessir einstaklingar á öllum aldri, flestir frá 25–50 ára og sumir hverjir eru búnir að bíða mjög lengi eftir því að komast að. „Þeirra þörf er mjög brýn,“ segir Hannes. Þá vantar varanleg búsetuúrræði fyrir u.þ.b. 25 einstaklinga sem eiga við mikil veikindi að stríða en þurfa á enn sérhæfðari búsetuúrræðum að halda en eru almennt í boði í dag. Hannes bendir á að sérstak- lega þurfi að huga að þessum hópi sem geti í raun verið utan sjúkra- húsa en með umtalsverðri þjónustu. „Þá er verið að ræða um sambýli sem væru einu eða tveimur þjón- ustustigum ofar en þessi hefð- bundnu sambýli eru í dag. Það yrði klárlega að vera a.m.k. sólarhrings- gæsla eða vaktir og mönnun sem myndi leyfa mun meiri þjónustu en er almennt á sambýlum.“ Hannes segir þetta vera stigvaxandi breyt- ingu í þá átt að reyna að klæð- skerasníða úrræði fyrir sjúklinga sem útskrifast af geðdeildum sjúkrahúsanna. Þá eru ótaldir aldraðir geðsjúkir en liðlega 30 einstaklingar eru á biðlista innan geðsviðs LSH eftir sérhæfðum hjúkrunarrýmum. Verulegur misbrestur á að fólk sem hefur færni til að vinna fái vinnu Hannes segir að hvað geðsjúka snerti, t.d. þá sem búi tímabundið á vernduðum heimilum, séu það ekki einvörðungu búsetuúrræði sem skipti máli heldur þurfi að huga nánar að þáttum eins og vernd- uðum vinnustöðum. Þá þurfi að koma til veruleg viðhorfsbreyting í þjóðfélaginu gagnvart félagslegu aðgengi geðsjúkra, mikið skorti á að einstaklingar sem hafi það góða færni að þeir geti bjargað sér sjálf- ir fái vinnu við hæfi þannig að þeir geti unnið fyrir sér. „Það sem við lítum fyrst og fremst til eru einhver atvinnuúr- ræði fyrir fatlaða úti í samfélaginu. Það er mjög nauðsynlegt fyrir sjúk- linga að eiga tök á því að vinna við verndaðar aðstæður í samfélaginu og geta samlagast betur atvinnu- umhverfinu,“ segir Hannes Péturs- son. Um 90 geðfatlaðir á biðlista eftir heimili Varanleg vistun utan sjúkrahúsa er af ýmsu tagi og þörf er á frek- ari sérhæfingu HANNES Pétursson, sviðsstjóri geðsviðs Landspítala – háskóla- sjúkrahúss, segir að auka þurfi til muna framboð af búsetu- og at- vinnuúrræðum fyrir geðsjúka eft- ir að sjúkrahúsvist á geðdeildum sleppir. Opna þurfi umræðu um þessi mál og félagslegt aðgengi geðsjúkra almennt sem sé mjög stór þáttur í félags- og heilbrigð- isþjónustu. „Það þarf virkilega að fara í gang opnari umræða og stefnumótun um hvað er hægt að gera í þessum stóra málaflokki,“ segir Hannes. „Það er neyð- arbrauð ef vista þarf fólk áfram á sjúkrahúsum ef það getur á annað borð nýtt sér úrræði utan spítala. Það er ekki spurning í mínum huga að sú reynsla sem ég hef getað séð og metið af ein- staklingum sem hafa fengið við- eigandi úrræði utan sjúkrahúsa að fólk er almennt mjög ánægt með það og mikill áhugi er á því hjá fólki að hafa þessháttar mögu- leika.“ Reynist örðugt að finna úr- ræði fyrir geðsjúka aldraða Hannes bendir á að sá hópur einstaklinga sem hvað erfiðast hefur reynst að finna varanleg úr- ræði fyrir séu aldraðir geðsjúkir. „Það hefur reynst örðugt í raun- inni að finna nægilega sérhæfð úrræði til að þau kæmu þeim að gagni,“ segir hann. Hannes segir að þeir sem veiti þjónustuna innan heilbrigðis- og félagsmálageirans og stjórnvöld þurfi að setjast niður og skoða málin ofan í kjölinn. „Það er gíf- urlega mikil skörun milli þarfa þeirra sem þurfa á heilbrigð- isþjónustu að halda og fé- lagsþjónustu. Það þarf að opna umræðuna og efna til ítarlegrar stefnumótunar um það í rauninni hvernig hægt er að mæta þörfum þessara einstaklinga ekki síður en margra annarra sjúklingahópa með samstilltu átaki félags- og heilbrigðisþjónustunnar.“ Að sögn Hannesar hefur í vax- andi mæli á síðustu árum verið tekið upp hlutlægt mat á færni fólks og vistunarmat til að meta á kerfisbundinn hátt þörf ein- staklinga fyrir ólíka tegund úr- ræða. Hannes segir að þessi vinna skýri að einhverjum hluta að fleiri bíði nú eftir varanlegri vistun ut- an sjúkrahúsanna þar sem óskum þessara einstaklinga sé nú komið á framfæri í gegnum slíkt mat. „Neyðarbrauð ef vista þarf fólk áfram á sjúkrahúsum“ Mikil skörun milli félags- og heilbrigðisþjónustu varð- andi önnur búsetuúrræði segir sviðsstjóri á geðsviði LSH

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.