Morgunblaðið - 01.10.2003, Blaðsíða 43
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 2003 43
FÓLK
JAIME Pacheco hefur verið sagt
upp þjálfarastarfi Real Mallocra og
er hann fyrsti þjálfarinn á Spáni
sem er látinn taka pokann sinn á
þessari leiktíð. Pacheco tók við
þjálfun Mallorca í sumar eftir að
hafa þjálfað portúgalska liðið Boa-
vista með athyglisverðum árangri
um nokkurra ára skeið.
SUNDSAMBAND Íslands hefur
óskað eftir því við Sundfélag Akra-
ness, SA, að Eyleifur Jóhannesson,
yfirþjálfari félagsins, taki að sér
umsjón með unglingalandsliðinu í
sundi starfsárið 2003–2004. Stjórn
SA hefur samþykkt beiðni Sund-
sambandsins en Eyleifur hefur ver-
ið aðstoðarþjálfari Steindórs Gunn-
arssonar, yfirþjálfara landsliðsins í
sundi.
Á árinu verða haldnar æfinga-
búðir fyrir sundfólk sem valið er í
unglingalandsliðið ásamt því að
landsliðið fer á Norðurlandameist-
aramót unglinga í Noregi, CIJ í
Lúxemborg og Evrópumeistaramót
unglinga í Lissabon.
FORRÁÐAMENN norska lands-
liðsins í knattspyrnu hafa ekki í
hyggju að fá John Carew, leik-
mann ítalska liðsins Roma, í næstu
verkefni liðsins en Carew ákvað á
dögunum að gefa ekki kost á sér í
leik gegn Lúxemborg í undan-
keppni EM. Carew var settur út úr
landsliðshópnum fyrir vináttulands-
leik gegn Portúgal hinn 6. sept-
ember sl. eftir að hann lenti í slags-
málum við John Arne Riise,
leikmann Liverpool, á landsliðsæf-
ingu daginn fyrir leikinn gegn
Portúgal.
CAREW er ekki sáttur við með-
ferðina sem hann fékk hjá norska
knattspyrnusambandinu og hefur
ekki svarað símtölum frá landsliðs-
þjálfaranum, Nils Johan Semb, og
aðstoðarmönnum hans, en þeir hafa
reynt látlaust að ná tali af Carew.
LOGI Geirsson, hand-
knattleiksmaður úr
FH, braut lítið bein í
hægri úlnlið í tapleik
FH-inga á móti ÍR-
ingum í Austurbergi á
sunnudagskvöldið. Logi
fékk þungt högg á
höndina í fyrri hálfleik
þegar hann skaut und-
irhandarskoti að marki
ÍR-inga með fyrr-
greindum afleiðingum.
Brotið kom í ljós við
röntgenmyndatöku í gær en engu
að síður ætlar Logi að spila með
FH á móti Gróttu/KR í bik-
arkeppninni í kvöld.
„Ég er kominn með
sérsmíðaða spelku og
ætla því ekki að láta
brotið stoppa mig frá
því að spila. Ég ætla
að harka af mér enda
mikilvægir leikir
framundan, fyrst leik-
urinn við Gróttu/KR í
bikarnum og svo
deildarleikur við
Hauka um næstu
helgi. Eftir þessa leiki
kemur ágætt frí og þá get ég jafn-
að mig,“ sagði Logi við Morg-
unblaðið í gær.
Logi spilar þrátt
fyrir handarbrot
ROBERT O’Kelley, sem lék
með liði Hamars í úrvalsdeild-
inni í körfuknattleik á síðustu
leiktíð, hefur samið við NBA-
liðið Memphis Grizzlies. O’Kell-
ey skoraði að meðaltali 31,4
stig í leik og gaf um 3 stoðsend-
ingar í leik en hann lék 11 leiki
með Hamarsmönnum á síðustu
leiktíð en var sagt upp störfum
um mitt keppnistímabil. For-
ráðamönnum Hamars þótti
O’Kelley ekki vera nógu mikill
liðsmaður og var Keith Vassell
fenginn í hans stað.
Fyrrverandi
Hamars-
maður í NBA
Arsene Wenger knattspyrnu-stjóri Arsenal var sáttur við
framlag sinna manna en ekki við úr-
slit leiksins þrátt fyrir að liðinu hafi
ekki tekist að sigra á útivelli í
Meistaradeildinni í síðustu sjö leikj-
um liðsins. „Vissulega erum við von-
sviknir að hafa ekki nýtt færin sem
við fengum í þessum leik enda erum
við vanir því að skora úr slíkum fær-
um. En liðið lék þrátt fyrir það vel
og menn voru að leggja sinn fram.“
Í lið Arsenal vantaði marga lykil-
menn og má þar nefna Patrick
Viera og Freddie Ljungberg sem
eru meiddir, Sol Campbell gat ekki
leikið vegna andláts föður hans og
Dennis Bergkamp fór ekki með lið-
inu þar sem hann ferðast ekki í flug-
vél. Í lið Lokomotiv vantaði tvo lyk-
illeikmenn; Maxim Buznikin og
landsliðsmanninn frá Kosta Ríku
Winston Parks. Yuri Syomin þjálf-
ari Lokomotiv var ánægður með
vörn liðsins gegn Arsenal. „Við
komum í veg fyrir að Arsenal næði
að skapa sér mörg marktækifæri
líkt og þeir eru vanir að gera,“ sagði
Syomin. Hinn umdeildi varnarmað-
ur Arsenal, Martin Keown, sagði
eftir leikinn að Arsenal hefði átt það
skilið að ná þremur stigum úr þess-
um leik. „Við fengum færin til þess
að skora en markvörður Lokomotiv
varði vel í leiknum,“ sagði Keown en
hann þótti leika afar vel í leiknum.
„Að mínu mati lékum við agað og
höfum náð þeim stöðugleika sem
hefur skort í leik okkar í undanförn-
um leikjum,“ bætti Keown við.
Christian Vieri sá til þess að Int-
er er með fullt hús stiga í B-riðli en
Inter „rétt marði“ sigur gegn Dyn-
amo frá Kænugarði.
Daniele Adani kom ítalska liðinu
yfir á San Síró-leikvanginum á 22.
mínútu en Fedorov jafnaði metin á
34. mínútu og var útlitið dökkt allt
þar til að ítalski landsliðsframherj-
inn kom inná sem varamaður á 58.
mínútu skoraði sigurmarkið á þeirri
90. „Eftir 20 daga fjarveru vegna
meiðsla var ég svo sannarlega tilbú-
inn að leika knattspyrnu á ný. Við
erum á góðu róli eftir tvo góða leiki
og nú þurfum við að halda okkar
striki,“ sagði Vieri en hann meiddist
á hné í landsleik Ítalíu og Serbíu/
Svartfjallalands 10. september sl.
Seigla Bæjara einstök
Anderlecht frá Belgíu kom nokk-
uð á óvart í A-riðli er liðið gerði 1:1
jafntefli við þýska liðið Bayern
München. Ivica Mornar skoraði fyr-
ir Anderlecht á 53. mínútu en Roq-
ue Santa Cruz jafnaði fyrir Bayern
á 74. mínútu en Þjóðverjarnir léku
einum færri frá 36. mínútu en
Claudio Pizarro fékk gul spjöld á 35.
og 36. mínútu og var vísað af leik-
velli í kjölfarið.
Celtic átti ekki í vandræðum með
franska liðið Lyon á heimavelli sín-
um í Glasgowborg í Skotlandi.
Sænski landsliðsmaðurinn Henrik
Larson lagði upp bæði mörk heima-
manna í leiknum en það fyrra skor-
aði Liam Mille á 70. mínútu en
Chris Sutton skoraði það síðara á
78. mínútu með skalla líkt og Miller.
Morientes í aðalhlutverki
Báðir leikirnir í C-riðli unnust
nokkuð sannfærandi á heimavelli en
á Spáni skoraði Deportivo La Cor-
una tvívegis gegn PSV frá Hollandi,
en það var Sergio sem skoraði fyrra
markið á 19. mínútu en Walter
Pandiani bætti við marki úr víta-
spyrnu á 51. mínútu.
Í Mónakó skoruðu heimamenn 4
mörk gegn engu í viðureign sinni
gegn gríska liðinu
AEK frá Aþenu. Ludovic Giuly
skoraði fyrsta markið á 23. mínútu,
Fernando Morientes bætti við
mörkum á 27. og 56. mínútu og loka-
orðið átti Dado Prso á 86. mínútu.
Nedved gulls ígildi
Í D-riðli unnust báðir leikirnir á
útivelli og fóru þeir báðir 1:2.
Í Tyrklandi hafði Real Sociedad
frá Spáni betur gegn Galatasaray í
Istanbúl, 1:2. Darko Kovacevic
skoraði fyrsta markið fyrir gest-
ina á 3. mínútu, Hakan Sükür jafn-
aði á 60. mínútu en Xabi Alonso
skoraði sigurmarkið á 72. mínútu.
Hasan Gökhan Sas fékk rautt spjald
í liði Galatasaray á 86. mínútu.
Pavel Nedved var hetja ítalska
liðsins Juventus gegn Olympiakos í
Grikklandi, en Stoltidis kom heima-
mönnum yfir á 12. mínútu, Nedved
jafnaði á 21. mínútu og skoraði sig-
urmarkið á 79. mínútu.
Reuters
Sókn og vörn í takt í Glasgow! Liam Miller, leikmaður Celtic, skallar knöttinn í jörðina og skorar
fyrra mark liðsins gegn franska liðinu Lyon í Meistaradeild Evrópu.
Arsenal braut ekki
ísinn í Moskvu
ENSKA liðið Arsenal náði ekki
að koma knettinum í mark
Lokomotiv í Moskvu í gær er lið-
in áttust við í B-riðli Meistara-
deildar Evrópu í knattspyrnu.
Ekkert mark var skorað í leikn-
um og er Arsenal með eitt stig
líkt og Lokomotiv, en liðin töp-
uðu fyrsta leik sínum í B-riðli
fyrir tveimur vikum. Inter frá
Mílanó er efst í riðlinum en liðið
hafði betur, 1:2, gegn Dynamo
frá Kænugarði þar sem Christ-
ian Vieri tryggði gestunum sigur
á lokakafla leiksins.
Logi Geirsson