Morgunblaðið - 01.10.2003, Síða 14

Morgunblaðið - 01.10.2003, Síða 14
Viðtal við manninn, sem fyrst sat inni, grunaður um morðið á Önnu Lindh „Ég er hund- eltur um landið allt“ PER Svensson, maðurinn, sem var í haldi sænsku lögreglunnar í sex daga, grunaður um morðið á Önnu Lindh, utanríkisráðherra Svíþjóðar, kom fram í sjónvarpsviðtali í fyrra- kvöld. Þótti hann koma vel fyrir en talið er hugsanlegt, að með viðtal- inu, sem hann fékk greitt fyrir, hafi hann dregið úr líkum á að fá stórar bætur frá fjölmiðlum fyrir alla um- fjöllunina um hann meðan hann sat inni. Kom þetta fram á fréttavef Aftenpostens í gær. Svensson var mjög yfirvegaður í viðtalinu og svaraði spurningum spyrjandans, Roberts Aschbergs, yfirleitt án þess að hika. Aschberg vildi meðal annars vita hvernig á því stæði, að 35 ára gamall maður hefði aldrei haft fasta vinnu, litlar sem engar skattskyldar tekjur og ekkert fast heimilisfang. „Lúterskt vinnusiðferði hefur ekki plagað mig neitt í gegnum tíð- ina,“ svaraði Pers- son. „Hefurðu aldrei stundað vinnu?“ spurði Aschberg. „Nei, ég hef gert mitt besta til að komast hjá því,“ svaraði Persson. „Á hverju hefurðu lifað?“ „Ég hef nú bara komist af eins og aðrir.“ Persson talaði síðan um en með heldur óljósum orðum, að hann hefði þénað peninga í útlandinu og um þá „sérstöku hæfileika“, sem þyrfti til að lifa því lífi, sem hann lifði. Sagðist hann hafa alist upp víða í Svíþjóð, aðallega þó í Stokk- hólmi, og hann liti á sig sem „Evr- ópumann“. Meðan Persson sat inni, grunaður um morðið á Önnu Lindh, var gríð- arleg umfjöllun um hann og allt tínt til, sem hægt var. Vinir, ættingjar, skólasystkin og gamlir kennarar hans voru spurð í þaula og í erlend- um fjölmiðlum var sagt frá því hver hann væri og birtar af honum myndir. „Ég er hundeltur um landið allt,“ sagði Svensson. Faðir hans benti á hann Per Svensson segist hafa lifað því, sem hann kallar „ágætis líf“, en þá á hann við mikið af drykkjarföngum og löng partí. Segist hann fyrst hafa heyrt um morðið á Önnu Lindh dag- inn eftir. „Ég svaf til klukkan fimm eða sex um eftirmiðdaginn,“ sagði hann. Svensson var mjög rólegur í við- talinu nema þegar Aschberg nefndi, að það hefði verið hans eigin faðir (raunar stjúpfaðir), sem hefði bent á hann. Þá var eins og þykknaði í hon- um. „Það kemur mér ekki á óvart frá slíkum manni,“ svaraði hann loks. Svensson segir, að yfirheyrslur lög- reglunnar yfir sér hafi eins og verið sóttar í Martin Beck-mynd: Varst þú í NK? Myrtir þú Önnu Lindh? „Ég hef aldrei og mun aldrei drepa annan mann,“ sagði Svens- son. Robert Aschberg segir, að ástæð- an fyrir því, að Svensson féllst á við- talið hafi verið einföld. Hann fékk greitt fyrir það. Ekki hafi þó verið um að ræða neinar fúlgur fjár. Lögfræðingurinn Leif Sibersky segir í viðtali við sænsku fréttastof- una TT, að með viðtalinu hafi Svensson hugsanlega spillt fyrir bótakröfu á hendur fjölmiðlunum. Eftir sem áður eigi hann vafalaust rétt á einhverjum bótum en trúlega verði þær minni en ella. ’ Yfirheyrslurnareins og sóttar í Martin Beck- bíómynd. ‘ ERLENT 14 MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ VERTÍÐARBÁTAR í Faxaflóa mótmæla harðlega áformum um línuívilnun sem rætt er um að koma á. Áhafnir og eigendur bátanna skora á þingmenn Suður- og Vesturlands að verja tilverurétt þessara báta og afkomu fjölda manna sem hafa atvinnu af útgerð bátanna. „Aflaheimildir þessara báta hafa verið skertar endalaust á undanförnum árum. Nær væri að skila okkur til baka þeim aflaheim- ildum sem við höfum misst inn í kvótakerfið. Nær væri fyrir Vest- firðinga að vinna meira af aflanum í heimabyggð og skapa með því fleiri störf og sætta sig við þá góðu kvóta sem margir af þeirra bátum hafa úr að spila,“ segir í yfirlýsingu frá vertíðarbátum í Faxaflóa. Mótmæla línuívilnun AFLAVERÐMÆTI íslenskra skipa af öllum miðum nam á fyrri helmingi ársins 2003 um 36,8 millj- örðum króna en heildaraflinn var 1.130 þúsund tonn, samkvæmt út- reikningum Hagstofu Íslands. Aflaverðmæti íslenskra skipa á öllu árinu 2002 var rúmir 77 millj- arðar króna. Verðmæti botnfiskaflans var 25 milljarðar króna sem fengust fyrir 249 þúsund tonn, þar af var verð- mæti þorsks 14,2 milljarðar króna en magnið 110 þúsund tonn. Verð- mæti uppsjávartegunda var 6,5 milljarðar króna og magnið 838 þúsund tonn. Flatfiskaflinn á tíma- bilinu var 20 þúsund tonn að verð- mæti 3,3 milljarðar króna og fyrir 23 þúsund tonn af skel- og krabba- dýrum fengust 2 milljarðar króna. Stærsti hluti heildaraflans var unninn á Austurlandi eða 446 þús- und tonn, að mestu uppsjávarteg- undir, og nam verðmæti þessa afla 5,2 milljörðum króna. Á Suður- nesjum var unnið úr mestum verð- mætum eða fyrir 6,2 milljarða króna en magnið var 132 þúsund tonn. Af botnfiski var mest unnið á höfuðborgarsvæðinu eða 53 þús- und tonn að verðmæti 4,8 millj- arðar króna. Tæplega 14 þúsund tonn voru flutt út óunnin og nam verðmæti þess afla nærri 1,9 millj- örðum króna. Stærstur hluti af verðmæti botnfiskaflans (42,5%) er tilkominn vegna beinnar sölu útgerða til vinnslustöðva, 27,2% verðmætis vegna sölu á sjófrystum afla, 22,3% vegna sölu á fiskmörkuðum innanlands en 6,1% verðmæta eru tilkomin vegna útflutnings á fiski í gámum. Á tímabilinu var unnið úr tæplega 250 þúsund tonnum af botnfiski og var rúmlega þriðjung- ur hans frystur í vinnslustöðvum í landi (33,8%), um 30,8% voru fryst um borð í vinnsluskipum en 21,7% var ráðstafað í saltfiskvinnslu. Þá voru 5,8% botnfiskaflans send fersk með flugi á markaði erlendis en 5,3% með gámum.       !            !      "#$%& "'"((%)"(%) ))($%& (#**&%$ "&$'"%( '(*%# "+(#%#          Verðmæti aflans 36,8 milljarðar LÍTIL kolmunnaveiði hefur verið að undanförnu vegna ótíðar. Síðustu þrjá daga tilkynntu þrjú skip um slatta, samtals um 1.500 til samtaka fiskvinnslustöðva. Kolmunnaafli íslenzkra skipa er nú orðinn um 350.000 tonn og eru því tæplega 200.000 tonn enn óveidd. Erlend skip hafa landað hér 74.000 tonnum og því hafa íslenzk- um fiskimjölsverksmiðjum borizt 423.500 tonn til vinnslu. Eins og fyrr hefur Síldarvinnslan í Neskaupstað tekið á móti mestu af kolmunna, um 91.700 tonnum. Eskja á Eskifirði er í öðru sæti með 74.300 og í þriðja sæti er Síldarvinnslan í Neskaupstað með 67.800 tonn. Loðnuvinnslan á Fáskrúðsfirði fylgir þar fast á eftir með 67.600 tonn. Verksmiðjur Síldarvinnsl- unnar hafa því tekið á móti tæplega 165.000 tonnum af kolmunna á árinu. Síldveiðin fer afar hægt að stað í haust. Samkvæmt upplýsyngum SF hefur aðeins verið tilkynnt um ríf- lega 900 tonna afla. Mestu hefur ver- ið landað á Höfn í Hornafirði, ríflega tveimur þriðju hlutum aflans. Morgunblaðið/Friðþjófur Helgason SVN með 165.000 tonn af kolmunna ÚR VERINU MIJAILO Mijalovich, sem nú er í gæsluvarðhaldi, grunaður um morðið á Önnu Lindh, játaði það á sig fyrir móður sinni. Er því hald- ið fram í blaðinu Expressen, sem segir, að móðir hans og aðrir ættingjar hafi skýrt lögregl- unni frá því. Blaðið segir, að Mijailo, sem er 24 ára gam- all, sé svo illa haldinn andlega, að ekki verði reynt að yfirheyra hann að ráði fyrr en síðar í vik- unni. Hingað til hafi hann svarað öllum spurningum lögreglunnar þannig: „Ég hef ekkert að segja.“ Expressen segir, að nokkrum dögum eftir morðið hafi Mijailo brotnað saman hjá móður sinni. Hafi hann sagt henni, að hann hafi verið í NK-versluninni þegar hann kom auga á Önnu Lindh. Með hnífnum, sem hann hafði stolið, hafi hann síðan ráðist á hana í ein- hverju æði. „Ég bara stakk, stakk og stakk,“ á hann að hafa sagt. Þekkti son sinn á myndunum Sagt er, að Mijailo hafi sagt móður sinni í smáatriðum frá morðinu og hvað hann hafi verið að gera fram að því. Einnig hvern- ig hann hafi flúið af vettvangi og síðan tekið leigubíl burt úr mið- borginni. Móðir hans varð eðlilega fyrir miklu áfalli er hún heyrði þetta en þegar hún skoðaði betur myndir úr eftirlitsmyndavélum af mann- inum í NK, þekkti hún son sinn. Móðir Mijailos og aðrir í fjöl- skyldunni skýrðu síðan lögregl- unni frá þessu. Lögreglan telur sig hins vegar hafa nóg í höndunum, fyrir utan þessa vitneskju, til að sanna morðið á hann. DNA- greiningar taki af öll tvímæli um sekt hans. Játaði fyrir móður sinni Mijailo Mijalovic LLOYD Scott, fyrrverandi hvít- blæðissjúklingur, sem tekið hefur þátt í nokkrum maraþonhlaupum í þungum kafarabúningi, byrjaði nú um síðustu helgi á nýju hlaupi, að þessu sinni eftir botn- inum á Loch Ness í Skotlandi. Gerir hann það í söfnunarskyni fyrir börn, sem þjást af hvít- blæði, og vonast til að heilsa upp á Nessie í leiðinni. „Ef ég hitti Nessie, þá veit ég ekki hvort okkar verður hrædd- ara,“ sagði Scott um leið og hann veifaði til viðstaddra í fjöruborð- inu en hann ætlar að ganga eftir botninum umhverfis vatnið í nokkrum áföngum. Vonast hann til að komast fimm km á dag og miðað við það mun hann ljúka hringnum á 14 dögum. Verður hann yfirleitt á rúmlega níu metra dýpi. Scott hefur tekið þátt í mara- þonhlaupi í London, New York og Edinborg og er ósvikinn met- hafi, hefur enginn farið vega- lengdina á jafnlöngum tíma og hann. Reuters Heilsað upp á Nessie Edinborg. AFP.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.