Morgunblaðið - 01.10.2003, Síða 18
AKUREYRI
18 MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Opinn fyrirlestur 2. október kl. 16:15
í stofu 16 í Þingvallastræti 23
Sallie Harkness, sérfræðingur á sviði kennslu yngri barna í leik- og
grunnskólum, fjallar um þróun náms og kennslu í skoskum leik- og grunnskólum
á sviði málþroska og lestrarnáms. Í fyrirlestrinum mun hún m.a. gera grein fyrir:
Gildi leiksins í málþroska barna.
Gildi ritmáls í umhverfinu og því að þekkja og hvetja til þykjustuskriftar -
bernskuritunar.
Þróun hljóðkerfisvitundar.
Mikilvægi sögunnar.
Hópvinnu og námsaðlögun.
Mikilvægi samvinnu við foreldra.
Ennfremur mun Sallie Harkness lýsa áhrifum þess að grípa snemma til íhlutunar í
málþroska og kennslu ungra barna.
Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku. Gefin verða sýnishorn á myndböndum af
starfi í leik- og grunnskólum. Í lokin verður tækifæri til umræðna og fyrirspurna.
Skólaþróunarsvið kennaradeildar HA
Breytt viðhorf
til málþroska og lestrarkennslu
ungra barna í leik- og grunnskólum
Heilbrigðishugtakið | Hermann
Óskarsson félagsfræðingur fjallar
um merkingu heilbrigðishugtaks-
ins og kenningar um heilbrigði og
kynnir efni úr væntanlegri bók
sinni um tengsl félagslegra þátta
og heilbrigðis á Félagsvísindatorgi
í dag, miðvikudaginn 1. október.
Fyrirlesturinn hefst kl. 16.30 í
stofu 14 í Þingvallstræti 23.
FRAMKVÆMDASTJÓRN Fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri hefur ákveðið að gera nokkrar
skipulagsbreytingar, sem draga munu úr útgjöld-
um og mæta um leið breyttri þjónustuþörf. Segir í
greinargerð stjórnarinnar að þetta leiði af sér að
störfum við stofnunina muni fækka um allt að 10
og kostnaður lækka um rúmar 50 milljónir á árs-
grundvelli. Segist stjórnin hafa að leiðarljósi að
sem minnst verði dregið úr þjónustu við sjúklinga
og jafnvel að auka hana í sumum tilvikum.
Niðurstaða verri en áætlanir
Fram kemur í greinargerð stjórnarinnar, að á
undanförnum misserum hafi kostnaður við þá
heilbrigðisþjónustu sem veitt er af sjúkrahúsinu
farið vaxandi, jafnframt því sem ör þróun hafi átt
sér stað í starfseminni. Innlögnum hafi fækkað og
meðallegutími styst.
Samkvæmt 7 mánaða uppgjöri þessa árs eru
gjöld umfram fjárveitingar 91,5 milljónir eða 5,5%
júní sl. og vænta stjórnendur sjúkrahússins þess
að gerðar verði leiðréttingar á fjárhagsgrunni
stofnunarinnar á grundvelli skýrslunnar. Ljóst er
hins vegar að rekstrarkostnaður hefur verið að
aukast umfram það sem áætlað hafði verið og við
það verður ekki unað.“
Breytingar
Á síðustu árum hefur orðið veruleg breyting á
starfsemi sjúkradeilda á FSA sem og á öðrum
sjúkrahúsum, að því er greinir í skýrslunni. Inn-
lögnum hefur víðast hvar fækkað og meðallegu-
tími styst. Margar skýringar eru sagðar á þessum
breytingum; „miklar tækniframfarir hafa orðið
ásamt örri þróun í læknisfræði og hefur það leitt af
sér breytingar í meðferð sjúkdóma. Má þar nefna
sem dæmi að ekki er þörf skurðaðgerða við ýms-
um sjúkdómum sem nú eru meðhöndlaðir með
lyfjum. Einnig hefur betra skipulag innlagna og
aðgerða stytt legutíma.“
af gjöldum, skv. því sem fram kemur í áðurnefndri
greinargerð. Þar segir: „Þessi niðurstaða er
nokkru verri en rekstraráætlanir höfðu gert ráð
fyrir, eða sem nemur um 26 milljónum. Að
óbreyttu stefnir því í að útgjöld umfram fjárveit-
ingar geti numið um 160–170 milljónum í árslok.
Samkvæmt rekstraráætlun sem kynnt var í upp-
hafi ársins var gert ráð fyrir að halli yrði um 114
milljónir og hafði þá verið tekið tillit til hagræð-
ingarkröfu að upphæð 25,2 milljónir króna.
Ákveðið var að skipa vinnuhóp með fulltrúum frá
heilbrigðisráðuneyti, fjármálaráðuneyti og FSA
til að fara sameiginlega yfir fjárhagsstöðu sjúkra-
hússins. Vinnuhópurinn skilaði ítarlegri skýrslu í
Fimmtíu milljónir sparast
Útgjöld umfram fjárlög
hefðu getað numið 160–
170 millj. að óbreyttu
NEMENDUR og kennarar í auð-
lindadeild Háskólans á Akureyri
fóru í árlegt Eyjafjarðarrall, eins
og þeir kölluðu það, með Dröfn,
skipi Hafrannsóknastofnunar í
gær. Einnig voru með í för skipti-
nemar frá Frakklandi, Finnlandi,
Þýskalandi og Bandaríkjunum.
Togað var víða í firðinum og gerð-
ar ýmsar mælingar á því sjáv-
arfangi sem veiddist. Nemendurnir
þurftu að klæðast tilheyrandi
vinnufatnaði og stóðu í röðum á
Torfunefsbryggju og gerðu sig
klára, þegar ljósmyndara Morg-
unblaðsins bar að garði árdegis í
gær.
Markmið auðlindadeildar er að
búa nemendur undir störf og fram-
haldsnám í alþjóðlegu og krefjandi
umhverfi. Námið er víðtækt og veit-
ir haldgóða undirstöðumenntun í
náttúruvísindum og greinum sem
tengjast nýtingu auðlinda, stjórn-
un, markaðsstarfi og viðskipta-
greinum.
Eyjafjarðarrall á
Dröfninni undirbúið
Morgunblaðið/Kristján
„ÞAÐ eru tvær meginástæður
fyrir þessum breytingum,“ sagði
Vignir Sveinsson framkvæmda-
stjóri fjármála og reksturs á
Fjórðungs-
sjúkrahúsinu
á Akureyri í
samtali við
Morgunblaðið
í gær um
breyting-
arnar sem
taka gildi
ýmist í dag,
1. október,
eða um áramót, 1. janúar 2004.
„Í fyrsta lagi grípum við til hag-
ræðingar til að mæta þeim fjár-
hagsvanda sem stofnunin hefur
átt við að glíma á undanförum
árum, en hann má að einhverju
leyti rekja til aukningar á launa-
kostnaði, kemur sem afleiðing af
kjara- og stofnanasamningum síð-
ustu ára,“ sagði Vignir.
Þá er einnig verið að bregðast
við breytingum sem orðið hafa
jafnt á FSA sem og öðrum
sjúkrahúsum þar sem innlögnum
hefur fækkað en aukin þjónusta
veitt á dagdeildum að sögn fram-
kvæmdastjórans. Sem dæmi þar
um má nefna að á síðustu 9 árum
hefur innlögnum á legudeild
barnadeildar fækkað um 61%.
Hagræðing
„Með þessum breytingum sem
við nú grípum til teljum við að
tækifæri skapist til að ná fram
hagræðingu,“ sagði Vignir.
Gjöld umfram fjárveitingar
námu 91,5 milljónum króna sam-
kvæmt 7 mánaða uppgjöri og er
þetta nokkuð verri niðurstaða en
áætlanir höfðu gert ráð fyrir. Að
óbreyttu stefnir í að útgjöld
sjúkrahússins umfram fjárveit-
ingar geti numið 160–170 millj-
ónum króna á árinu, en í upphafi
árs var gert ráð fyrir að hallinn
yrði um114 milljónir króna.
Vignir sagði að við þessum
vanda hefði orðið að bregðast.
Taka hefði þurft á fjárhagsvanda
stofnunarinnar sem og einnig
þörf fyrir breytt þjónustuform,
„en við höfðum að leiðarljósi að
sjúklingar okkar yrðu sem
minnst varir við breytingarnar,“
sagði Vignir Sveinsson.
Sjúklingar verði sem
minnst varir við
breytingarnar
FRÁ og með deginum í dag verða
handlækninga-, bæklunar-, háls-, nef-
og eyrnadeild sem og augndeild rekn-
ar sem sameiginleg hjúkrunareining.
Stöðugildum starfsmanna í hjúkrun
fækkar um 7,3 en fækkuninni verður
mætt með ráðningum í stöður sem
losna annars staðar.
Á kvennadeild verður kven-
sjúkdómaeiningin rekin sem fimm
daga deild til reynslu næstu sex mán-
uði, frá og með deginum í dag. Starfs-
fólk fæðingardeildar mun sjá um
hjúkrun kvenna sem leggjast inn á
deildina um helgar.
Stöðu yfirlæknis við kvennadeild
verður breytt í stöðu sérfræðings frá
1. nóvember 2003.
Dregið verður úr mönnun á barna-
deild og hún miðuð við umfang deild-
arinnar. Dag- og göngudeild-
arstarfsemi verður aukin en við það
færast 3,3 stöðugildi sjúkraliða af
deildinni. Stöður leikskólakennara og
iðjuþjálfa á barnadeild verða lagðar
niður og stöðu yfirlæknis á nýbura-
deild breytt í stöðu sérfræðings.
Morgunblaðið/Kristján
Skorið upp og skorið niður
Hugsaðu þig um | Skemmdir voru
unnar á snyrtingu á tjaldstæðinu á
Grenivík fyrir skömmu. Á heimasíðu
sveitarfélagsins segir: „Maður
hrekkur við þegar svona gerist í okk-
ar litla samfélagi og skilur ekki hvað
viðkomandi gengur til. Ef sá sem
þetta gerði les þessar línur er hann
vinsamlega beðinn að hugsa sig
tvisvar um áður en hann framkvæm-
ir eitthvað slíkt aftur því þá verður
það tafarlaust gert að lögreglumáli.“
Björn sigraði | Björn Ívar Karls-
son fór með sigur af hólmi á fyrsta
skákmóti vetrarins hjá Skákfélagi
Akureyrar. Þór Valtýsson varð
aftur á móti hlutskarpastur á
fyrsta 15 mínútna móti félagsins,
naumlega á undan Smára Ólafs-
syni. Akureyringar létu svo að sér
kveða á fyrsta Eddu stigamóti
vetrarins sem fram fór á Netinu;
þrír úr SA urðu jafnir í 2. sæti,
Ólafur Kristjánsson, Davíð Kjart-
ansson og Halldór B. Halldórsson.