Morgunblaðið - 01.10.2003, Síða 31

Morgunblaðið - 01.10.2003, Síða 31
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 2003 31 ✝ Eydís Einarsdótt-ir fæddist að Merki í Staðarhverfi í Grindavík 27. júní 1911. Hún andaðist á Dvalar- og hjúkrun- arheimilinu Hlíð, Ak- ureyri, 23. september síðastliðinn. Foreldr- ar hennar voru Einar Einarsson og Guðrún Ingvarsdóttir. Eydís var önnur í röð fjög- urra systkina, hin voru: Þórunn, Inga og Einar, öll látin. Eydís giftist 18. maí 1940 Jóni Þórarinssyni frá Keflavík, d. 30. ágúst 1983. Þau eignuðust þrjá syni sem eru: 1) Sigurður Blómkvist, kvæntur Öldu Ingimarsdóttur. Þau eiga tvo syni. Þeir eru Jón Sigþór, kvæntur Tamöru frá Litháen, og Sigurður Haukur. Barnabörn Sigurðar og Öldu eru 7 og barnabarnabörnin 3. 2) Ólafur Blómkvist, kvæntur Jónu Önnu Stefánsdóttur. Þau eiga tvo syni og tvær dætur. Þau eru Óskar Eyvindur, kvæntur Herdísi Jakobsdóttur, Eydís, gift Dan Olof Öhman frá Svíþjóð, Stefán Þór- arinn, sambýliskona Erla Ísafold Sigurð- ardóttir, og Ragn- heiður Rósa, sam- býlismaður Claes Arne Jansson frá Svíþjóð. Barnabörn Ólafs og Jónu Önnu eru 10. 3) Þórarinn Blómkvist, kvæntur Huldu Vilhjálmsdótt- ur. Þau eiga þrjár dætur. Þær eru Heiðbjört Elva, gift Stefáni Þór Ingv- arsyni, Þórhildur Elva og Eydís Elva, sambýlismaður Helgi Jó- hannesson. Barnabörn Þórarins og Huldu eru 6. Eydís og Jón bjuggu fyrstu bú- skaparár sín í Keflavík, en árið 1947 fluttu þau til Akureyrar og áttu þar heima síðan, lengst af í Brekkugötu 3b en síðan í Víði- lundi 2f. Eydís missti mann sinn 30. ágúst 1983. Útför Eydísar fer fram frá Ak- ureyrarkirkju miðvikudaginn 1. október klukkan 13.30. Elsku Dísa, nú er lokið þínum langa ævidegi í ró og friði eins og þú vildir alltaf hafa það í kringum þig. Það er ekki öllum gefið að fá að lifa í 92 ár, oftast við góða heilsu. En lífs- viðhorf þitt, þín létta lund og stóra hjarta, fullt af kærleika, hjálpaði þér mikið á lífsleiðinni. Dísa ólst upp í Staðarhverfinu í Grindavík. Hún missti föður sinn mjög ung. En móðir hennar, Guðrún Ingvarsdóttir, ól upp þau fjögur systkinin í ást og kærleika en af litlum efnum eins og algengt var á þeim tíma. Var Guðrún dáð og virt af sveitungum sínum fyrir hjálpsemi og góðvild. Dísa erfði svo sannarlega þennan eiginleika frá móður sinni. Ung að árum giftist hún Nonna sínum, eignuðust þau þrjá syni. Bjuggu þau fyrstu árin í Kefla- vík en fluttu síðan til Akureyrar og bjuggu þar til dauðadags. Jón lést fyrir 20 árum. Dísa saknaði hans mikið, en synir hennar, tengdadætur og barnabörn önnuðust hana af mik- illi alúð. En hún var mjög barngóð og sóttust börn eftir að vera hjá henni. Eftir andlát Jóns tók hún virkan þátt í félagsstarfi aldraðra á Akur- eyri og hafði mikið gaman af, því henni þótti gaman að spila og söng mikið. Á sumrin var mjög gestkvæmt hjá henni og vinum og vandamönn- um ásamt þeirra vinum bauð hún allt það besta sem hún átti, bæði mat og gistingu. Hún var ákaflega reglusöm með sig og heimili sitt, og alltaf var hún fín og vel til höfð, en hún sá að mestu um sig sjálf til 89 ára aldurs. Síðustu æviárin dvaldi hún á dval- arheimili fyrir aldraða á Akureyri og fékk hún þar góða aðhlynningu. Með okkur Dísu bundust mikil vin- áttu- og tryggðabönd, hún var mér ætíð sem besta móðir, vinur og fyr- irmynd á ýmsan hátt. Það hefur gefið mér mikið að geta heimsótt hana ,,og ná mér í orku“ eins og ég sagði alltaf, því hún sá aldrei neitt nema gott við nokkurn mann og björtu hliðarnar á öllum málum en eins og hún sagði alltaf: ,,Það næst ekkert fram með illu en allt með kærleika.“ Áttum við margar góðar stundir saman, fórum á tónleika, í leikhús, spiluðum rommý eða bara spjölluðum um lífið og til- veruna. Dísa var mjög trúuð kona og fór aldrei að sofa án þess að biðja fyrir sér og sínum, látnum og lifandi. Hún var hagmælt og áskotnuðust mér vís- ur hjá henni sem lýsa vel hennar hugsun til annarra: Gef öllum mönnum gleði og styrk. Gef öllum verði trúin virk. Gef öllum mönnum ást og trú. Gef allir verði sáttir nú. Að leiðarlokum vil ég og fjölskylda mín þakka fyrir ástúð og vináttu í gegnum árin. Sendum öllum ástvin- um innilegar samúðarkveðjur. Að lokum er hér bæn sem hún orti og fór oft með: Ljúft er mér að líða um nætur, ljóssins faðir á þinn fund. Til að biðja þig um bætur og bjargráð hverja lífs míns stund. Gegnum líf er göngu hallar, geng þú með mér, Jesú kær. Svo ég megi er sjálfur kallar, sofna hinsta blundi vær. Elsku Dísa, hafðu þökk fyrir allt. Það mun verða tekið vel á móti þér í Paradís. Þín frænka, Gunnþórunn Gunnarsdóttir. Í dag kveðjum við einstaka konu sem mótaði þá sem hún umgekkst með léttleika sínum og hjartahlýju. Ég er að tala um hana Eydísi Ein- arsdóttur, hana Dísu eins og við flest kölluðum hana. En hún mun lifa í minningu okkar systkinanna úr Brekkugötu 3 um ókomna tíð. Dísa var gift Jóni Þórarinssyni, frænda okkar og syni Elinrósar afasystur okkar frá Breiðabóli sem lengi var ljósmóðir á Suðurnesjum. Jón var mjög andlega sinnaður maður og góðum dulargáfum gæddur og lið- sinnti mörgum með huglækningum og fyrirbænum. Dísa studdi hann heilshugar í þessu hugsjónastarfi og hafði allt til hinsta dags brennandi áhuga á andlegum málum og því fagra í mannlífinu. Þau Dísa og Jón eignuðust þrjá mannvænlega syni og kom það ekki hvað síst fram í fari þeirra hvaða kærleik og hlýju þeir höfðu alist upp við í foreldrahúsum en þau hjón bjuggu um áraraðir í húsnæði fjöl- skyldu minnar í Brekkugötu 3. Dísa sýndi sonum sínum ómældan stuðn- ing alla tíð svo og mökum þeirra og börnum og hún lét sig hag okkar systkinanna miklu skipta. Börn okk- ar eiga líka bjartar minningar af Dísu, hlátri hennar og glensi, hún mætti á öll stærstu tímamótin í lífi þeirra ef hún mögulega gat og allt fram á síðustu ár. Alltaf vel tilhöfð og fín í tauinu enda mikill fagurkeri. Já, minningarnar streyma fram. Strax í bernsku tengdist ég Dísu sterkum böndum, þegar hún fékk heimsóknir ættingjanna úr Keflavík og kynnti mig fyrir þeim, sagði hún kannski: þetta er skessan á heim- ilinu, en ég sneri upp á mig og sagði: Dísa, ég heiti Ingibjörg. Var þá 5 ára gömul og hef ég verið góðlátlega minnt á þetta í gegnum lífið. Og margar og skemmtilegar voru ferð- irnar með Dísu og Jóni í Svartárdal- inn en þar var ég mörg sumur í sveit í góðu yfirlæti hjá Óla syni þeirra og Önnu Jónu konu hans. Nú við leiðarlok langar mig að minnast Dísu með þessum ljóðlínum Kahil Gibran, mér finnst þær lýsa mannkostum hennar svo vel: Þegar þér veitist að komast að sjálfum hjartastað lífsins muntu sjá fegurð í öllum hlutum. Hafi Dísa hugheila þökk fyrir allt. Innilegar samúðarkveðjur til sona hennar og fjölskyldna þeirra. Ingibjörg Bjarnadóttir (Stúlla). Elsku Dísa „nabba“ mín. Nú er kallið komið, þú sem áttir svo langa æfi. Lítil kona með svo stórt hjarta. Alltaf svo blíð og góð og augun þín svo full af ást og væntumþykju til allra sem umgengust þig í daglega lífinu. Hugurinn reikar til bernsku minn- ar. Ég, lítil stelpa í barnaskóla, vandi komur mínar á Smáratúnið til lang- ömmu Elínrós sem var orðin fullorð- in og lasburða. Þið hjónin hugsuðu svo vel um þau gömlu hjón og alltaf var hægt að koma og fá smá í gogg- inn á hvaða tíma sem var. Ávallt varstu með opinn faðminn í dyragættinni og sagðir alltaf „ertu svöng? Viltu ekki koma inn og fá þér mjólkurglas og með því?“ Það voru ófáar stundirnar sem var bankað og beðið um plástur eða vatnsglas, enda stutt úr skólanum. Þegar þið hjónin fluttuð til Akur- eyrar varð allt svo tómlegt, það var mikil eftirsjá sérstaklega hjá litla fólkinu að þið skylduð flytja norður en skiljanlegt enda bjuggu synir ykk- ar allir þar. Þó í okkar feðrafold falli allt sem lifir enginn getur mokað mold minningarnar yfir. (Björn Jónsson frá Gröf.) Fyrir nokkrum árum síðan vorum ég og dóttir mín staddar á tónlistar- námskeiði á Akureyri eina helgina og voru haldnir tónleikar í Glerárkirkju í lokin. Auðvitað var Dísu nöbbu boð- ið með að hlusta á börnin spila á hljóðfærin sín og hvað henni fannst gaman að því. Rétt áður en tónleik- arnir byrjuðu stóð ég í dyragættinni og beið eftir henni og þegar hún kom gangandi eftir stígnum með út- breiddan faðminn á móti mér svo tíguleg og í háum skóm og með svo flottan hatt og ég hugsaði með mér „alltaf er hún Dísa nabba mín eins.“ Eftir öll þessi ár var hún sama litla fallega og góða konan með stóra hjartað sem mér hefur alltaf þótt svo undur vænt um alla mína tíð. Nú hefur hún kvatt þennan heim og mörg árin lifði hún. Hún er verð- ugur jarðarbúi á næsta stað hinum megin við tjaldið enda búin að skila sínu hér á jörðinni og sér og fjöl- skyldu sinni til mikils sóma. Ættingjum og vinum hennar sendi ég og mín fjölskylda innilegar sam- úðarkveðjur héðan að sunnan Ég bið Guð að blessa hana Dísu nöbbu mina fyrir allt sem hún var mér og öll hennar gæði og yndislegheit. Kveðja Ásdís Elva Sigurðardóttir. EYDÍS EINARSDÓTTIR  Fleiri minningargreinar um Ey- dísi Einarsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Elskulegur bróðir okkar, mágur og frændi, GUÐMUNDUR SVEINBJÖRNSSON frá Mið-Mörk, Vestur Eyjafjöllum, til heimilis á Kópavogshæli, sem lést sunnudaginn 28. september, verður jarðsunginn frá Stóradalskirkju laugardaginn 4. október kl. 14.00. Fyrir hönd aðstandenda, Sigurjón Sveinbjörnsson. Elskulegur eiginmaður minn og faðir, RAGNAR JÓHANNSSON fyrrverandi skipstjóri frá Ísafirði, andaðist að kvöldi mánudagsins 29. september. Útförin fer fram frá Háteigskirkju mánudaginn 6. október kl. 15.00. Ásta Finnsdóttir, Bragi Ragnarsson og aðrir aðstanendur. Móðir mín, tengdamóðir, amma og lang- amma, GUÐBJÖRG LILJA ÁRNADÓTTIR frá Vestmannaeyjum, Furugerði 1, Reykjavík, andaðist þriðjudaginn 16. september. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Arnbjörg Ásgrímsdóttir, Þórunn Anna Björnsdóttir, Friðbjörn Marteinsson, Sigurbjörg Árný Björnsdóttir, Vigfús Davíðsson, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og lang- afi, ÓLI MAGNÚS ÞORSTEINSSON, Kárastíg 13, Hofsósi, lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi mánudaginn 29. september. Sigríður Óladóttir, Kristbjörg Óladóttir, Hilmar Hilmarsson, Bryndís Óladóttir, Pálmi Rögnvaldsson, Þorsteinn Ólason, Guðrún Sigtryggsdóttir, Kristján Ólason, Birgir Ólason, Veronika S.K. Palamiandy, Ellert Ólason, Lára Guðmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, ÁSDÍS RAGNARSDÓTTIR, Furugrund 17, Akranesi, lést á heimili sínu mánudaginn 29. september. Jarðarförin auglýst síðar. Hjalti Samúelsson, börn, tengdabörn og barnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGURBJÖRG INGIMUNDARDÓTTIR, Dyngjuvegi 12, Reykjavík, lést á Landspítalanum í Fossvogi mánudaginn 29. september. Sigurður Karlsson, Ragnhildur Steingrímsdóttir, Hanný Karlsdóttir, Ingvi Hallgrímsson, barnabörn og langömmubörn. AFMÆLIS- og minningar- greinum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfvirkt um leið og grein hefur borist) eða á disklingi. Ef greinin er á disk- lingi þarf útprentun að fylgja. Nauðsynlegt er að tilgreina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnusíma og heima- síma). Ekki er tekið við hand- skrifuðum greinum. Um hvern látinn einstakling birtist ein aðalgrein af hæfi- legri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar séu um 300 orð eða 1.500 slög (með bilum) en það eru um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetrar) Frágangur afmælis- og minningar- greina

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.