Morgunblaðið - 01.10.2003, Side 38
DAGBÓK
38 MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Sel-
foss kemur og fer í
dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Svanur kemur í dag,
Selfoss fer í dag.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur. Skrif-
stofa, s. 551 4349, opin
miðvikud. kl. 14–17.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
vinnustofa og postulín,
kl. 13 postulín.
Árskógar 4. Kl. 9–12
handavinna, kl. 10.30–
11.30 heilsugæsla, kl.
13–16.30 smíðar og
handavinna, kl. 13 spil.
Kl. 13. 30 keila í Keilu-
höllinni í Mjódd.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
9–12 glerlist, kl. 9–16
handavinna, kl. 10–
10.30 bankinn, kl. 13–
16.30 bridge/vist, kl.
13–16 glerlist.
Félagsstarfið, Dal-
braut 18–20. Kl. 10
leikfimi, kl. 14.30 bank-
inn, kl. 14.40 ferð í
Bónus, kl. 9–16.30
púttvöllurinn opinn.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 handa-
vinnustofan opin, kl.
10–13 opin verslunin,
kl. 13.30 bankinn, kl.
11–11.30 leikfimi.
Félagsstarfið, Hæðar-
garði 31. Kl. 9 postulín,
kl. 13 trémálun.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 9.30 hjúkr-
unarfræðingur á staðn-
um, kl. 10–12 verslunin
opin, kl. 13 föndur og
handavinna,
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Kl. 9.30, kl.
10.20 og kl. 11.15 leik-
fimi, kl. 13 handavinnu-
hornið, kl. 13.30 tré-
smíði, nýtt og notað og
tálgunámskeið.
Félag eldri borgara,
Kópavogi. Skrifstofan
er opin í dag frá kl. 10–
11.30, viðtalstími í Gjá-
bakka kl. 15–16
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Opnað
kl. 9, tréútskurður kl 9,
myndmennt kl. 10–16.
Glerlist kl. 13 Pílukast
og biljard kl. 13.30.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Síðdegisdans
í dag kl. 14.30. Hljóm-
listarmaðurinn Sig-
hvatur Sveinsson
stjórnar. Gestur verð-
ur Ingibjörg Haralds-
dóttir ljóðskáld. Kaffi
og meðlæti. Söngfélag
FEB kóræfing kl. 17.
Línudanskennsla kl.
19.15.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9–17 handavinna,
kl. 9.30 boccia, kl. 9.30
og kl. 13 glerlist, kl. 13
félagsvist, kl. 16 hring-
dansar, kl. 17 bobb. Kl.
15.15 stafgöngukynn-
ing, kynnt nýjung í
hreyfingu. Fólk beðið
um að klæða sig eftir
veðri og vera í þægileg-
um skóm.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 vefnaður, kl.
9.05 og kl. 9.55 leikfimi,
kl. 10 ganga, kl. 11
boccia.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna, útskurð-
ur, og banki, kl. 13
brids.
Hvassaleiti 58–60. Kl.
9–15 handmennt, kl. 9–
10 og kl. 10–11 jóga, kl.
10.30–11.30 ganga, kl.
15–18 myndlist.
Korpúlfar, Grafarvogi.
Á morgun, fimmtudag,
pútt á Korpúlfsstöðum
kl. 10.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 vinnustofa, kl.
13–13.30 bankinn, kl.
14 félagsvist.
Vesturgata 7. Kl. 8.25–
10.30 sund, kl. 12.15–
14.30 verslunarferð, kl.
13–14 spurt og spjall-
að, kl. 13–16 tréskurð-
ur.
Vitatorg. Kl. 8.45
smiðja, kl. 10 búta-
saumur, bókband og
föndur kl. 13 kóræfing
og verslunarferð kl.
12.30.
Vinahjálp, brids spilað
á Hótel Sögu í dag kl.
13.30.
Hafnargönguhópur-
inn. Kvöldganga kl. 20.
Lagt af stað frá horni
Hafnarhúsins norðan-
megin.
Sjálfsbjörg, félag fatl-
aðra, Hátúni 12. Kl.
19.30 félagsvist.
Kvenfélagið Hrönn
skemmtifundur 2.
október kl. 20 í Borgar-
túni 22, 3. hæð.
Sjögrens-hópurinn
hittist í kvöld kl. 20 á
Kaffi Mílanó í Faxa-
feni.
Stokkseyringafélagið í
Reykjavík heldur aðal-
fund sinn sunnudaginn
5. október í Sóltúni 20,
kl. 15.
Geðrækt. Hádegis-
verðarfundur í Grens-
áskirkju kl. 12.30–
13.30. Að eiga aldraða
foreldra, kynning á fé-
lagi áhugafólks um
íþróttir aldraðra,
tengjum saman kyn-
slóðir.
ITC deildin Fífa,
Kópavogi, kynning-
arfundur í kvöld kl.
20.15 í Álfaheiði 17,
Kópavogi í Safnaðar-
heimili Hjallakirkju.
Kvenfélag Lágafells-
sóknar, fundur verður
fimmtudaginn 2. októ-
ber kl. 20 í Brúarlandi.
Í dag er miðvikudagur 1. októ-
ber, 274. dagur ársins 2003,
Remigíumessa. Orð dagsins:
Hann veitti sálum vorum lífið og
lét oss eigi verða valta á fótum.
(Sálm. 66, 9.)
Nú er það orðið ljóstað nám til stúdents-
prófs verður stytt úr
fjórum árum í þrjú og
hefur verkefnastjórn á
vegum menntamála-
ráðuneytisins gefið út
tillögu þess efnis, segir
Katrín Jakobsdóttir á
Múrnum. „Skólaárið
verður lengt um 10
daga en eigi að síður
fækkar kennslustundum
um 20%. Á móti kemur
að námið á að verða
„innihaldsríkara“ en
óneitanlega vakna grun-
semdir um að verið að
sé spara, eina ferðina
enn, undir því yfirskini
sparnaðurinn sé á fag-
legum forsendum.“
Katrín heldur áfram:„Staðreyndin er sú
að víða erlendis eru
fyrstu ár háskólanáms
mun meiri grunnkennsla
en hér er og akademískt
nám hefst á svipuðum
aldri og hér. Er því
hugsanlega verið að
draga úr akademísku
vægi háskólanáms?
Hætt er við að gengis-
felling stúdentsprófsins
skapi vanda á háskóla-
stigi og að þar þurfi
með einhverjum hætti
að bæta fólki upp þenn-
an faglega sparnað. Og
hún spyr að öðru:
„Verður þá ekki að sam-
ræma allt? En hvernig
förum við að því þegar
börn byrja ýmist 5, 6
eða 7 ára í skóla í ná-
grannalöndum okkar?
Segjum við þá: Þvílíkt
hræðilegt kaos og
óstjórn! Upp með sam-
ræmingarstikuna og
reynum að finna út með-
altal meðaltalanna svo
að við getum verið sem
mest í samræmi við
alla?
Fagleg rök í þessumáli eru hins vegar
dálítið loðin og mætti
ætla, fyrir utan sparn-
aðinn og möguleikann á
að fækka kennurum, að
helst væri að hlýða kalla
Samtaka atvinnulífsins
um að fá fólk fyrr út á
vinnumarkaðinn. Ef þau
rök væru tekin góð og
gild, þá væri það kerfi
væntanleg best þar sem
fólk sleppti því almennt
að fara í framhaldsskóla
og færi út á vinnumark-
aðinn 16 ára. Reynslan
hefur hins vegar sýnt
fram á hið gagnstæða.
Vandi hins íslenskaskólakerfis er ekki
að fólk sé of vel mennt-
að heldur hið gagn-
stæða. Og stytting fram-
haldsskóla leysir svo
sannarlega ekki þann
vanda. Hins vegar ættu
stjórnvöld að gera fyrir
þau 30% nemenda sem
falla brott úr framhalds-
skóla, t.d. með því að
bjóða upp á fjölbreyttar
og stuttar starfsmennta-
brautir. Þar fengi at-
vinnulífið betur mennt-
að fólk en það fær nú
(miðað við þá sem eru
með grunnskólapróf)
eftir styttri tíma en tek-
ur að taka stúdents-
próf,“ segir Katrín sem
er formaður ungra
vinstri grænna.
STAKSTEINAR
Stúdentsprófið
gengisfellt
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI verður aðviðurkenna að hann er
ekki enn búinn að jafna sig
á fréttum af hækkun
Orkuveitu Reykjavíkur á
heita vatninu nú síðsum-
ars. Fyrst og fremst er það
ástæða hækkunarinnar
sem setti hinn annars dag-
farsprúða Víkverja úr jafn-
vægi, þ.e. að hækka hafi
orðið gjaldið sökum hlý-
inda í borginni. Að svo
heitt sé orðið í henni
Reykjavík að fólk sé alveg
hætt að notast við heita
vatnið.
Hefur Víkverji heyrt þá
kenningu að hækkunin sé
tilkomin af allt öðru, eða of kostn-
aðarsömum höfuðstöðvum fyrirtæk-
isins á Bæjarhálsinum, hitabylgjan í
sumar sé bara fyrirsláttur. Víkverji
vill ekki fullyrða um þetta en er op-
inn fyrir flestum skýringum öðrum
en þeim að hér í borg sé orðið of
heitt. Nóg er nú höllin flott og ekk-
ert þar til sparað. Vonandi er nýting
fjármuna a.m.k. jafngóð og nýting
orkunnar var slæm þegar Víkverji
sá nýlega kveikt á nokkrum ljósa-
staurum í borginni um hábjartan og
heiðskíran dag!
x x x
ENN meir varð Víkverji fyrir von-brigðum er hann las frásögn af
borgarstjórnarfundi nýlega þar sem
stjórnarformaður Orkuveitunnar
kallaði þá „kverúlanta“ sem voguðu
sér að gagnrýna hækkunina. Ekki
var annað að skilja á formanninum
að „kverúlantarnir“ væru jafnt inn-
an sem utan borgar-
stjórnar. Víkverji er svolít-
ið móðgaður yfir svona
ummælum því ekki er
laust við að hann hafi tekið
þau til sín. Eflaust ekki
eini borgarbúinn um það,
enda sýnir glæný Gallup-
könnun að 85% svarenda
töldu hækkunina ósann-
gjarna. Sennilega eru
„kverúlantarnir“ þá orðnir
talsvert fleiri en stjórnar-
formaðurinn hyggur.
Og hvað ætlar Orkuveit-
an svo að gera í vetur ef
frosthörkur skella á og
vatnsnotkunin verður enn
meiri? Verður gjaldið þá
ekki lækkað hið snarasta? Víkverji
er ekki einn um að bíða spenntur,
fleiri „kverúlantar“, munu fylgjast
náið með gjörðum Orkuveitunnar í
vetur. Eða eins og einn félagi Vík-
verja úr hópi „kverúlanta“ komst að
orði:
Þó „kverúlantar“ kveini ótt,
kuldahroll að okkur setur.
Er maður frýs um miðja nótt,
munu gjöldin lækk’ í vetur?
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skyldu gjöldin lækka hjá Orkuveitunni í vetur?
MIG langar til að koma á
framfæri þakklæti og með-
mælum með vöru sem heitir
Maxim og dóttir mín keypti
hjá Femin.is. Ég er kona á
besta aldri og hef síðastliðin
5 ár verið að slást við svo-
kallaðan breytingaaldur og
það versta er allur svitinn
sem fylgir þessu, þó sér-
staklega á næturnar. Þið er-
uð örugglega allmargar
þarna úti sem kannast við
þetta. Svo fyrir um 2 mán-
uðum ákvað ég að prufa
þetta Maxim sem er í raun
svitastopp-efni sem hægt er
að nota undir hendur, á fæt-
ur og hvaðeina, svo nú er ég
hér til að láta ljós mitt skína
og vona að þetta geti hjálp-
að einhverjum stöllum sem
eru í sama vanda og ég var.
Það er hiklaust hægt að
kaupa þessa vöru til að
losna við þennan leiðinda
kvilla.
Kveðja,
Ragnheiður.
Um súrmat
ÉG hef verið að velta því
fyrir mér hvers vegna súr-
matur virðist ófáanlegur á
Íslandi nema einungis tvo
til þrjá mánuði á ári. Mér
finnst súr lifrarpylsa og
blóðmör vera þvílíkur
herramannsmatur að ég er
sannfærður um að ég myndi
kaupa hann allt árið ef ein-
ungis hann stæði til boða.
Ég var svo lánsamur að
vera í sveit sem barn þar
sem súrmatur var á borðum
hvern einasta dag sumars-
ins. Sá matur var geymdur í
stórum tunnum í glugga-
lausum torfkofa og var frá
haustinu áður, eða níu til tíu
mánaða gamall. Eftir að
hafa lært að meta þetta sæl-
gæti hefur mér sjaldan
fundist sá súrmatur sem
stendur til boða í kringum
þorrann vera nægjanlega
súr þó til séu undantekning-
ar á því. Ég vil benda fram-
leiðendum á þá staðreynd
að það finnst engum hálfsúr
eða lítið súr matur góður.
Nú þegar rætt er um
minnkandi sölu sauðfjáraf-
urða langar mig til að benda
á þetta. Þetta er engin
töfralausn en stuðlar að
aukinni sölu fremur en hitt.
Ég veit af samtölum mínum
við aðra aðdáendur súrmats
að ég er ekki sá eini sem vill
gjarnan hafa aðgang að
þessu sælgæti allt árið.
Þetta á ekki síst við ef súr-
maturinn stendur undir
nafni og er vel súr.
45 ára gamall sælkeri.
Sundbolir
VARÐANDI fyrirspurn um
það hvar sérsaumaðir sund-
bolir fást, þá fást þeir í
Kjörgarði. Gengið inn frá
Hverfisgötu.
Elsa.
Tapað/fundið
Hjól týndust
frá Fjarðarási
TVÖ hjól týndust frá Fjarð-
arási sl. laugardagskvöld.
Annað er rautt Pro Style-
kvenreiðhjól og hitt er blátt
Pro Style-karlmannsreið-
hjól. Hjólin eru ný. Þeir sem
hafa orðið varir við hjólin
hafi samband í síma
483 3756.
Ullarsokkur í óskilum
HVÍTUR ullarsokkur af
litlu barni fannst við Kringl-
una. Upplýsingar í síma
551 2267 og 847 1507.
Dýrahald
Kettling vantar
heimili
LÍTILL 9 vikna gamall
högni, gulbröndóttur, fæst
gefins. Hann er einn eftir af
6 systkinum, vel upp alinn
og sérlega skemmtilegur.
Uppl. í síma 551 0351 eða
691 0880.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Maxim-
svitavörn
Morgunblaðið/Jim Smart
LÁRÉTT
1 flakkari, 8 illmennið, 9
húsdýrið, 10 keyri, 11
kali, 13 léleg skepna, 15
vöggu, 18 til sölu, 21
stúlka, 22 kjaft, 23 kær-
leikurinn, 24 vílið.
LÓÐRÉTT
2 sterk, 3 dysjar, 4 stikir,
5 rask, 6 margur, 7 elska,
12 ótta, 14 hita, 15 sund-
fugl, 16 týna, 17 orðróm-
ur, 18 skjótum, 19 fyr-
irgangurinn, 20 heimili.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 rusti, 4 bitur, 7 taldi, 8 ræsið, 9 nam, 11 aðan,
13 bann, 14 eyðni, 15 gorm, 17 kaun, 20 óró, 22 tólið, 23
strák, 24 naumi, 25 rúmin.
Lóðrétt: 1 rotna, 2 sulla, 3 iðin, 4 barm, 5 tísta, 6 rúðan,
10 arður, 12 nem, 13 bik, 15 gætin, 16 rellu, 18 aurum,
19 nakin, 20 Óðni, 21 ósar.
Krossgáta
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16