Morgunblaðið - 01.10.2003, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 2003 39
DAGBÓK
STÓRHOLT - 2ja herbergja
Hlíðasmára 15
Sími 595 9090
holl@holl.is
Opið virka daga kl. 9-18
www.holl.is
Góð 56,5 fm 2ja herbergja íbúð í
kjallara á þessum vinsæla stað.
Þetta er björt og góð íbúð. Áhv.
ca 3,8 millj. húsbréf og lífeyrissj.
Verð 8,9 millj. 5579
ÁRNAÐ HEILLA STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
VOG
Afmælisbörn dagsins:
Þú hefur skarpa hugsun og
átt auðvelt með að finna þér
málstað. Þolgæði og skerpa
gera að verkum að þú átt
greiða leið í fremstu röð.
Mikilvæg reynsla bíður
þín í ár.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú hefur áhuga á stjórn-
málum, erlendum málefnum
og trúmálum í dag. Rótin er
áhugi á ferðalögum og fróð-
leiksþorsti.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Ef þú reynir að leita svara í
dag er líklegt að þú finnir
þau. Þetta gæti tengst
hversdagslegum hlutum á
borð við reikninga, eða
slúðri.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Náinn vinur eða starfsfélagi
gæti viljað hjálpa þér í dag.
Stundum er erfiðara eað
þiggja en gefa, en rétt er að
leyfa öðrum að sýna örlæti.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Allt sem þú gerir í dag til að
bæta skipulagið heima fyrir
eða í vinnunni kemur sér
vel. Lykilatriði er að greiða
úr skipulaginu frá degi til
dags.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Samkvæmi, daður, skapandi
föndur og leikir við börn
eru þér ofarlega í huga í
dag, en þú kemst ekki yfir
allt.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Reyndu að vera heima í dag
til að koma meiru í verk.
Notaðu kraftana til að láta
hlutina ganga greiðlega fyr-
ir sig.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú munt verða margs vísari
ef þú heimsækir nágranna,
börn eða vini í dag. Leynd-
armál eru spennandi, sér-
staklega ef hægt er að segja
einhverjum frá þeim.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Allt sem snertir peninga
vekur áhuga þinn í dag,
hvort sem það snertir inn-
kaup, viðskipti eða annars
konar fjármálastúss.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Tunglið er í merki þínu dag.
Leitaðu félagsskapar. Hvað
sem þú gerir hefur þú örlít-
ið forskot á alla aðra þessa
stundina.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú þarft að vera út af fyrir
þig í dag.Gerðu hvað eina til
að hlaða batteríin, bæði
andlega og líkamlega.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Tíma með vinum er vel var-
ið í dag. Þú átt auðvelt með
að mynda tengslanet og nú
er rétt að láta reyna á þann
hæfileika.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Viðtöl við foreldra og yf-
irmenn eru mikilvæg í dag.
Virðing þín fer vaxandi og
það er vel.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
90 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 1.
október, er níræð Elísabet
Jóhanna Sigurðardóttir,
húsmóðir, Klettaborg 2,
Akureyri. Eiginmaður
hennar er Einar Guðmunds-
son vélgæslumaður. Þau
verða að heiman.
50 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 1.
október, er fimmtugur Jón
Þorbergur Oliversson. Í til-
efni af því verður Jón með
kaffi á könnunni fyrir vini
og vandamenn frá kl. 16 að
Engjaseli 35, Reykjavík.
1. Rf3 d5 2. g3 Bg4 3. Bg2
Rd7 4. c4 e6 5. cxd5 exd5 6.
d4 c6 7. Rc3 Rgf6 8. Bf4 Be7
9. 0-0 0-0 10. Dc2 He8 11.
Hfe1 g6 12. Re5 Bf5 13. e4
Rxe4 14. Rxe4 Bxe4 15.
Bxe4 dxe4 16. Dxe4 Bb4 17.
Hed1 Rf6 18. Dc2 Rd5 19.
Db3 De7 20. Bd2 Had8 21.
Bc3 Bd6 22. He1 Dc7 23.
Rc4 Bf8 24. Ba5 b6 25. Bd2
Bg7 26. Bg5 Hc8 27. Be3
He6 28. Rd2 Hce8 29. Rf3
Rxe3 30. Hxe3 Hxe3 31.
fxe3 c5 32. Hd1 Bh6 33. Re5.
Staðan kom upp á al-
þjóðlegu móti sem lauk fyrir
skömmu í Egypta-
landi. Spartak
Vysocshin (2.560)
hafði svart gegn
Anthony Kosten
(2.514). 33. –
Bxe3+! Vinnur
peð og nokkru síð-
ar skákina. 34.
Dxe3 cxd4 35.
Dxd4 Hxe5 36.
Dd8+ Dxd8 37.
Hxd8+ Kg7 38.
Hd7 a5 39. Hb7
He6 40. Kf2 h5 41.
h4 Kf6 42. Kf3
Hc6 43. a3 Ke6
44. Ke4 f6 45. Hb8
Hd6 46. He8+ Kf7 47. Hb8
g5 48. hxg5 fxg5 49. Ke5
Hd3 50. Hb7+ Ke8 51. Hh7
He3+ 52. Kd6 Hxg3 53.
Hxh5 Kf7 54. b4 Kg6 55.
Hh8 axb4 56. axb4 Hb3 57.
Hg8+ Kf5 og hvítur gafst
upp. 4. umferð Evrópu-
keppni taflfélaga fer fram í
dag. Hægt er að nálgast
upplýsingar um mótið og
lesa pistla Hellismanna frá
skákstað á hellir.is.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
MALBIK
Undir hundruðum járnaðra hæla
dreymdi mig drauminn um þig,
sem gengur eitt haustkvöld
í hljóðum trega
dúnléttum sporum
hinn dimmleita stig,
dúnléttum sporum veg allra vega
og veizt að ég elska þig.
Steinn Steinarr
LJÓÐABROT
Ljósmyndastofa Erlings
SYSTRABRÚÐKAUP. Gefin voru saman 21. júní sl. í Frí-
kirkjunni í Hafnarfirði af sr. Einari Eyjólfssyni þau Harpa
Hrönn Grétarsdóttir og Hannes Jón Marteinsson og Erna
Mjöll Grétarsdóttir og Guðlaugur Jón Þórðarson.
NORÐUR er höfundur
sagna og passar í upphafi
með tvo rauða kónga og fátt
annað spennandi. Það er
enginn á hættu:
Norður
♠ 5
♥ K72
♦ K76
♣1087632
Austur er næstur á mæl-
endaskrá og vekur á veikum
tveimur í hjarta. Síðan
þróast sagnir þannig:
Vestur Norður Austur Suður
– Pass 2 hjörtu Dobl
4 hjörtu Pass Pass 5 tíglar
Pass ?
Er einhver ástæða til að
blanda sér málin úr því sem
komið er?
Spilið er frá úrslitaleik
Essosveitarinnar og
Félagsþjónustunnar í bik-
arkeppninni og Magnús E.
Magnússon hélt á spilum
norðurs og lyfti í sex tígla!
Norður
♠ 5
♥ K72
♦ K76
♣1087632
Vestur Austur
♠ D109862 ♠ K43
♥ D986 ♥ ÁG10543
♦ G4 ♦ 85
♣5 ♣D4
Suður
♠ ÁG7
♥ –
♦ ÁD10932
♣ÁKG9
Jónas P. Erlingsson var í
suður og hann var fjótur að
innbyrða alla slagina. Á
hinu borðinu voru spilaðir
fimm tíglar og Fé-
lagsþjónustan vann því 11
IMPa á spilinu.
Fáir myndu láta sér detta
í hug að lyfta í slemmu með
spil norðurs, því hjarta-
kóngurinn er augljóslega
ónýtt spil. En Magnús sá að
tígulkóngurinn þriðji var
gulls ígildi, ásamt einspilinu
í spaða. Sannarlega kjark-
mikil sögn.
BRIDS
Guðmundur Páll
Arnarson
MARA Prete, er 18 ára
ítölsk stúlka sem hefur gam-
an af diskó, músik, íþróttum
og strandarferðum. Hún
óskar eftir pennavinum frá
16 til 19 ára.
Mara Prete,
Via Puccini 7b,
31021 Mogliano Veneto
(TV),
Italy.
ALESSANDRO, sem er
yngri en Mara, óskar einnig
eftir íslenskum pennavinum.
Alessandro Cadorin,
Via Puccini 7b,
31021 Mogliano Veneto
(TV),
Italy.
MICHAEL, sem er 26 ára,
óskar eftir íslenskum kon-
um sem pennavinum. Hann
hefur áhuga á mannlegum
samskiptum, bréfaskriftum,
flugi o.fl. íþróttum.
Michael Schembri,
10, G. Agius
Muscat Street,
Zabbar ZBR 02,
Malta.
mschemb@maltanet-
.net
RADO, sem er 25 ára Sló-
vaki, óskar eftir íslenskum
pennavinum. Hann hefur
áhuga á að kynnast lífi og
menningu á Íslandi. Hann
skrifar á ensku, þýsku,
frönsku eða spönsku.
Rado Straka,
Okruzna 24/3,
97251 Handlova,
Slovakia.
rado1978@hotmail.com
PENNAVINIR
HVERS virði eru tré? Er hægt að
mæla virði trjáa í krónum og aurum?
Það eru víst síðustu forvöð að tala
um aura, þeir eru alveg að detta úr
umferð en trén láta það ekkert á sig
fá, þau hafa mörg hver lifað ótal
myntbreytingar, gengisfellingar,
verðbólgur, hallæri,
góðæri og guð má vita
hvað. Ég held að tré
verði ekki metin til fjár,
verðmæti þeirra er
annað og meira en svo
að hversdagslegir hlut-
ir eins og peningar gefi
sanna mynd af raun-
verulegu gildi þeirra.
Trjárækt hefur verið
stunduð á Íslandi að
einhverju marki í rúma
öld sem telst ekki lang-
ur tími í veraldarsög-
unni. Enn má finna í
Reykjavík tré sem voru
með þeim fyrstu sem
gróðursett voru í borg-
inni. Þessi fyrstu tré
ruddu leiðina fyrir öll hin trén sem á
eftir fylgdu því með tilvist sinni
sönnuðu þau að trjárækt var raun-
hæfur möguleiki á Íslandi. Á þessari
rúmu öld hafa ótal tré verið gróð-
ursett í landinu. Á heildina litið hefur
árangurinn verið frábær þótt finna
megi sögur af misheppnuðum trjá-
ræktartilraunum þegar vel er að gáð
og kíkir hafður við hönd. Afleiðingar
þessarar trjáræktar er skjól, skjól
sem auðveldar öðrum lífverum lífið
og gerir umhverfi okkar hlýlegt og
aðlaðandi.
Þegar horft er yfir gömul og gróin
hverfi í Reykjavík sést varla í hús-
þökin fyrir trjákrónum sem standa
langt upp fyrir húsin. Það eru
kannski ekki svo ýkja mörg stór tré í
hverjum garði en heildaráhrifin af
fáum trjám í mörgum görðum eru
þau að allt hverfið nýtur skjólsins af
trjánum, það nást fram sömu áhrif
og inni í skógi. Í skjólinu er minni
vindkæling og því hærra hitastig
sem auðveldar aftur ræktun á hita-
kærari plöntum. Skjólið er líka hag-
stætt fyrir sólardýrkendur því það er
svo miklu þægilegra að striplast úti í
sólinni ef maður þarf ekki að hafa
áhyggjur af vindkælingunni.
Í nýrri hverfum borgarinnar getur
maður aftur á móti dáðst að húsþök-
unum í allri sinni litadýrð og mis-
munandi lögun. Þar kemur tvennt til.
Í fyrsta lagi er gróðurinn svo ungur
að trén eru ekki farin að teygja sig
upp fyrir húsþökin. Í öðru lagi þá
hefur fólk ekki áhuga á því lengur að
vera með stór og hávaxin tré í görð-
um sínum, þau skyggja nefnilega svo
mikið á sólpallana. Skjólið er fengið
með skjólgirðingum sem skýla hinu
allra heilagasta á lóðinni, umhverfið
er fagurlega skreytt með blómstr-
andi runnum og lágvöxnum trjám.
Haldi þessi þróun áfram sér maður
fyrir að sér að hægt sé að þekkja það
á fólki, að minnsta kosti að sumar-
lagi, hvar það býr. Þessir kaffibrúnu,
veðurbörðu búa í nýjum úthverfum
borgarinnar en þessir með ljósa,
slétta litaraftið búa í eldri hverfum
borgarinnar …
Ættum við ekki að
vera á varðbergi gagn-
vart þeirri þróun að
fólk gróðursetur ekki
stór tré í nýja garða?
Skjóláhrifin sem við
njótum svo mikið í
gömlum, grónum
hverfum, nást ekki
nema með því að gróð-
ursetja stór tré í nýju
hverfin. Vissulega eru
ýmsar trjátegundir
sem eiga alls ekkert
heima í litlum görðum
og má þar nefna skess-
urnar tvær, alaskaösp-
ina og sitkagrenið, þær
eru allt of fyrirferðar-
miklar í venjulegar lóðir. Það er hins
vegar hægt að koma því þannig fyrir
að stór og fljótvaxin tré á borð við
alaskaöspina og sitkagrenið séu
gróðursett í græn svæði innan nýju
hverfanna þannig að íbúarnir fái
skjóláhrifin en þurfi ekki að fórna
sumarbrúnkunni fyrir skjólið.
Rétt er að hafa það í huga að til
eru margar tegundir af trjám sem
eru í meðallagi stór og geta því gefið
gott skjól án þess að breyta garð-
inum í skuggsælan frumskóg. Ilm-
reynirinn íslenski og íslenska birkið
eru gott dæmi um slíkar trjáteg-
undir. Þessar tegundir eru harð-
gerðar og fallegar, með frekar nettar
trjákrónur og geta vaxið á vind-
asömum stöðum. Rétt er að hafa í
huga að samkvæmt byggingar-
reglugerð má ekki gróðursetja stór
tré nær lóðarmörkum en 3 metra og
er það meðal annars gert til að koma
í veg fyrir nágrannaerjur vegna yfir-
gangs stóru trjánna.
Gróðursetning stórra trjáa í þétt-
býli er í raun og veru mjög mikilvæg
því að þrátt fyrir hlýnun loftslags
undanfarinna ára þá er Ísland á
mörkum hins byggilega og okkur
veitir ekki af þeim hjálpartækjum
sem við getum notað til að gera um-
hverfi okkar hlýlegra og mann-
vænna. Mikilvægi grænna svæða
innan þéttbýlis hefur orðið okkur æ
ljósara, ekki einungis til útivistar
heldur einnig sem uppspretta skjól-
áhrifa. Við ættum að hugsa hvert
hverfi sem eina heild sem nýtur sam-
eiginlegra áhrifa af allri trjárækt
sem á sér stað innan hverfisins, með
öðrum orðum, við ættum að stefna að
því að sjá skóginn fyrir trjánum.
VIKUNNAR
BLÓM
Um s j ó n S i g r í ð u r
H j a r t a r
501. þáttur
Gildi trjáa
Guðríður Helgadóttir
garðyrkjufræðingur.
Alaskaaspir í röð.Ilmreynir hlaðinn berjum.