Morgunblaðið - 01.10.2003, Page 42

Morgunblaðið - 01.10.2003, Page 42
ÍÞRÓTTIR 42 MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ HOLLENSKI landsliðs- maðurinn Ruud van Nis- telrooy, framherji Man- chester United, þarf að bíta úr nálinni vegna at- viks sem átti sér stað þeg- ar hann var tekinn af leik- velli í tapleik Hollendinga og Tékka í undankeppni EM í byrjun september. Nistelrooy brást ókvæða við þegar Dick Advocaat, landsliðsþjálfari Hollend- inga, kallaði hann af leikvelli 20 mínútum fyrir leikslok. Nistelrooy spýtti í grasið í átt að Advocaat og í bræði sinni sparkaði hann í vatns- brúsa sem var við vara- mannabekkinn. Stjórn hollenska knattspyrnu- sambandsins ákvað í samráði við landsliðs- þjálfarann að velja Nist- elrooy ekki í landsliðs- hópinn sem mætir Moldövum í lokaumferð riðlakeppni EM sem fram fer 11. þessa mánaðar. Nistelrooy hefur þegar beðið Advocaat afsök- unar á hegðan sinni en það breytir því ekki að hann fær að sitja á með- al áhorfenda þegar Hollendingar taka á móti Moldövum. Ruud van Nistel- rooy út í kuldann Van Nistelrooy ÚRSLIT CLAUDIO Ranieri knattspyrnu- stjóri enska liðsins Chelsea segir að tungumálaörðugleikar muni tefja framgang liðsins í vetur en Claude Makelele, Hernan Crespo og Adr- ian Mutu skilja ekki og tala ekki ensku. Ranieri talar því þrjú tungu- mál þegar hann gefur leikmönnum sínum fyrirmæli, á móðurmáli sínu ítölsku, spænsku og að sjálfsögðu ensku en hann þekkir vandamálið best sjálfur því hann gat ekki talað ensku þegar hann tók við sem knattspyrnustjóri liðsins og við- urkennir Ranieri að sá tími hafi verið honum og liðinu erfiður. „Þegar ég kom til Chelsea var enskan mín skelfileg,“ segir Ran- ieri við BBC. „Ég gat talað ítölsku við Marcel Desailly eða Gus Poyet á spænsku og þeir komu skilaboð- unum á framfæri við leikmenn liðs- ins. Ástandið er svipað þessa dagana en samt sem áður geta leikmenn skilið hvað menn eru að tala um. Mutu er frá Rúmeníu og Crespo er frá Argentínu en þeir tala báðir ítölsku, Jimmy Floyd Hasselbaink er frá Hollandi en hann talar spænsku og getur því tjáð sig við Crespo á spænsku,“ segir Ranieri og bætir því við að hann byrji ávallt á því að tala ensku við leik- mannahópinn, síðan taki við spænska eða ítalska. „Á hliðarlínunni í leikjum liðsins tala ég oft ítölsku eða spænsku við leikmenn til þess að andstæðing- arnir skilji mig ekki.“ Enskan er flösku- háls hjá Chelsea HADNDKNATTLEIKUR Íslandsmót karla, RR/MAX-deildin, suð- urriðill: Ásvellir: Haukar – HK......................... 20.00 Bikarkeppni HSÍ, SS-bikarinn, 32 liða úr- slit karla: Ásgarður: Stjarnan – Víkingur ............19.15 Seltjarnarnes: Grótta/KR – FH...........19.15 Selfoss: Selfoss – KA.............................19.15 Fylkishöllin: Fylkir -–Stumparnir.......19.15 KNATTSPYRNA Meistaradeild Evrópu A-RIÐILL: Anderlecht – Bayern München ........... 1:1 Ivica Mornar 53. – Santa Cruz 74. Rautt spjald: Claudio Pizarro (Bayern Münch- en) 36. – 21.788. Celtic – Lyon ......................................... 2:0 Liam Miller 70., Chris Sutton 78. – 58.027. Staðan: Bayern München 2 1 1 0 3:2 4 Celtic 2 1 0 1 3:2 3 Lyon 2 1 0 1 1:2 3 Anderlecht 2 0 1 1 1:2 1 B-RIÐILL: Lokomotiv Moskva – Arsenal.............. 0:0 – 27.000. Inter Mílanó – Dynamo Kiev ............... 2:1 Daniele Adani 22., Christian Vieri 90. – Fedorov 34. – 35.000. Staðan: Inter 2 2 0 0 5:1 6 Dynamo Kiev 2 1 0 1 3:2 3 Lokomotiv 2 0 1 1 0:2 1 Arsenal 2 0 1 1 0:3 1 C-RIÐILL: Deportivo La Coruna – PSV Eindhoven 2:0 Sergio 19., Walter Pandiani vítasp. 51. – 24.300. Mónakó – AEK Aþenu.......................... 4:0 Ludevic Giuly 23., Fernando Morientes 27.56., Dado Prso 86. – 12.000. Staðan: Monaco 2 2 0 0 6:1 6 Deportivo 2 1 1 0 3:1 4 AEK 2 0 1 1 1:5 1 PSV Eindhoven 2 0 0 2 1:4 0 D-RIÐILL: Galatasaray – Real Sociedad............... 1:2 Hakan Sukur 60. – Darko Kovacevic 3., Xabo Alonzo 72. Rautt spjald: Hasan Sas (Galatasaray 82.) – 55.000. Olympiakos – Juventus ........................ 1:2 Stoltidis 12. – Pavel Nedved 21., 79. – 16.000. Staðan: Juventus 2 2 0 0 4:2 6 Real Sociedad 2 2 0 0 3:1 6 Galatasaray 2 0 0 2 2:4 0 Olympiakos 2 0 0 2 1:3 0 England 1. deild: Sunderland – Ipswich ............................3:2 Bradford – Derby...................................1:2 Cardiff – Wigan ......................................0:0 Norwich – Reading.................................2:1 Rotherham – Stoke City ........................3:0 Watford – Burnley .................................1:1 WBA – Millwall ......................................2:1 Wimbledon – Sheff. Utd ........................1:2 Walsall – Gillingham ..............................2:1 West Ham – Millwall..............................1:1 Staðan: Sheff. Utd 10 7 2 1 20:10 23 WBA 10 7 1 2 17:10 22 Wigan 10 6 3 1 14:6 21 Norwich 10 6 2 2 16:11 20 Sunderland 10 6 1 3 17:10 19 West Ham 9 5 2 2 11:6 17 Nottingham F. 9 5 1 3 16:11 16 Millwall 11 4 4 3 15:13 16 Cardiff 10 4 3 3 19:12 15 Reading 10 4 2 4 14:11 14 Burnley 11 4 2 5 16:18 14 Crewe 9 4 1 4 9:12 13 Gillingham 11 3 4 4 12:19 13 Walsall 10 3 3 4 12:11 12 Stoke City 11 3 3 5 13:15 12 Derby 10 3 3 4 11:16 12 Cr. Palace 9 3 2 4 13:13 11 Ipswich 10 3 2 5 14:16 11 Preston 9 3 1 5 13:13 10 Bradford 10 3 1 6 9:17 10 Coventry 8 2 3 3 12:14 9 Rotherham 10 2 3 5 6:17 9 Watford 9 1 2 6 9:14 5 Wimbledon 10 1 1 8 13:26 4 2. deild: Blackpool – Grimsby ..............................0:1 Chesterfield – Bournem.........................1:1 Colchester – Brentford ..........................1:1 Hartlepool – Wrexham ..........................2:0 Oldham – Stockport ...............................2:0 Plymouth – Bristol City.........................0:1 Port Vale – Peterborough......................3:0 QPR – Barnsley......................................4:0 Rushden & D. – Brighton ......................1:3 Staðan: Port Vale 11 7 2 2 19:13 23 Brighton 11 6 3 2 18:10 21 QPR 11 5 5 1 23:9 20 Hartlepool 11 5 4 2 22:11 19 Swindon 10 5 4 1 19:11 19 Colchester 11 5 3 3 15:13 18 Bristol City 11 4 5 2 14:7 17 Plymouth 11 4 5 2 21:16 17 Oldham 11 4 4 3 21:16 16 Bournem. 11 4 4 3 12:11 16 Barnsley 11 4 4 3 12:14 16 Sheff. Wed. 10 4 3 3 14:13 15 Grimsby 11 4 3 4 16:18 15 Rushden & D. 11 4 2 5 19:20 14 Luton 10 4 2 4 14:15 14 Wrexham 10 4 2 4 9:11 14 Blackpool 10 4 2 4 14:18 14 Brentford 11 4 2 5 10:16 14 Tranmere 11 2 5 4 12:14 11 Peterborough 11 2 3 6 12:17 9 Stockport 11 1 4 6 13:21 7 Wycombe 11 1 3 7 13:23 6 Notts County 10 1 3 6 7:20 6 Chesterfield 11 0 5 6 7:19 5 Svíþjóð Örgryte – Gautaborg............................. 4:1 Staðan: Djurgården 23 15 2 6 49:22 47 Malmö 23 13 6 4 48:19 45 Hammarby 23 13 5 5 46:29 44 Halmstad 23 11 3 9 36:28 36 Örgryte 23 11 3 9 37:38 36 Helsingborg 23 10 4 9 27:29 34 Gautaborg 23 9 6 8 33:25 33 Örebro 23 9 6 8 27:30 33 AIK 23 8 7 8 32:32 31 Elfsborg 23 8 7 8 25:31 31 Landskrona 23 7 7 9 22:34 28 Sundsvall 23 2 10 11 21:36 16 Öster 23 3 7 13 26:44 16 Enköping 23 3 5 15 21:53 14 HANDKNATTLEIKUR Bikarkeppni karla, SS-bikarinn 1. umferð: Grótta/KR-2 – Afturelding ................25:26 World Class – Valur .......................... 16:54  Fannar Friðgeirsson skoraði 13 mörk fyrir Val og Freyr Brynjarsson 11. ÍR-2 – Breiðablik ............................... 25:30 Haukar-2 – ÍR.................................... 30:45 HR – Fram......................................... 15:42  Jóhann G. Einarsson var markahæstur Framara með 9 mörk og Stefán Stefáns- son skoraði 8. KÖRFUKNATTLEIKUR Reykjavíkurmót karla Ármann/Þróttur – KR......................48:119 Staðan: KR 4 4 0 422:245 8 ÍR 4 4 0 406:324 8 Fjölnir 5 3 2 476:442 6 Ármann/Þróttur 5 2 3 367:432 4 ÍS 5 1 4 333.401 2 Valur 5 0 5 361:521 0 Í KVÖLD Aðalsteinn tók við þjálfun Fylkis-liðsins af Bjarna Jóhannssyni fyrir tveimur árum. Hann gerði þriggja ára samning við Árbæjarlið- ið en Fylkismenn nýttu sér uppsagn- arákvæði þegar þeir ákváðu að segja upp samningnum við Aðalstein. Best fyrir félagið „Við í stjórninni erum búnir að gefa okkur góðan tíma til að skoða málið og við teljum að þessi niður- staða komi best fyrir félagið. Aðal- steinn er mjög góður þjálfari og hef- ur unnið mjög gott starf fyrir Fylki, sem við erum þakklátir fyrir, en svona eru bara hlutirnir. Vissulega voru vonbrigði með gengi liðsins síð- ari hluta sumars en það var ekki það sem réði mestu í ákvörðun okkar. Við teljum best fyrir félagið að breyta til í þjálfaramálunum og hyggjumst nota októbermánuð til að finna eftirmann Aðalsteins,“ sagði Ásgeir Ásgeirsson, formaður meist- araflokksráðs Fylkis, við Morgun- blaðið. Ásgeir segir að allt sé opið hvað þjálfaramálin varðar og það komi al- veg eins til greina að leita út fyrir landsteinana. Hann segir að engar viðræður við þjálfara séu hafnar. Undir stjórn Aðalsteins urðu Fylkismenn bikarmeistarar á síð- ustu leiktíð og höfnuðu í öðru sæti á eftir KR-ingum á Íslandsmótinu en á nýafstaðinni leiktíð náðu Fylkis- menn ekki að verja bikarmeistaratit- ilinn og höfnuðu í fjórða sæti í deild- inni. „Þetta kom mér nokkuð á óvart en kannski ekki þar sem ég þekki ég mína menn. En þetta er þeirra ákvörðun og þeir ráða ferðinni. Mér fannst ég hins vegar vera rétt byrj- aður á því verkefni sem við ætluðum okkur í upphafi, það er að byggja upp nýtt lið og ég hefði verið til í að klára það,“ sagði Aðalsteinn við Morgunblaðið þegar hann var inntur eftir viðbrögðum við uppsögninni. „Ég hengi ekkert haus yfir þessu og ég held ég geti sagt með réttu að ég fer nokkuð stoltur frá skipinu. Ég hef ákveðnar ástæður fyrir því hvers vegna við náðum ekki lengra en engu að síður náðum við á þessum tveimur árum að verða bikarmeistarar og í öðru sæti í deildinni og í ár tryggðum við okkur sæti í Intertoto-keppninni. Fjórða sætið í sumar var að vissu leyti vonbrigði þar sem við hefðum getað náð lengra en eins og mótið var þá held ég menn hafi gripið það sem hægt var að fá.“ Aðalsteinn sagðist ekki hafa tekið ákvörðun um hvort hann héldi áfram að þjálfa. „Ég er í fullri vinnu annars staðar og nú get ég einbeitt mér að fullu að því starfi. Uppleggið hjá mér þegar ég hellti mér út í þjálfunina var ekki að hætta mínum starfs- frama heldur taldi ég mig geta komið að gagni og hafa eitthvað fram að færa og það tel ég mig hafa gert. En það er kannski kominn tími á að taka sér frí frá fótboltanum en frá fimm ára aldri hef ég verið meira eða minna á kafi í honum. Komi eitthvað upp á borð mitt þá mun ég skoða það vel og vandlega en ef ekki þá hef ég nóg fyrir stafni,“ sagði Aðalsteinn sem er tæknifræðingur og starfar hjá Marel. Fylkir sagði Aðalsteini upp AÐALSTEINN Víglundsson er hættur að þjálfa úrvalsdeildarlið Fylk- is í knattspyrnu en stjórn knattspyrnudeildar Fylkis ákvað á fundi sínum í gær að segja upp samningi við hann. Í tilkynningu sem Fylk- ismenn sendu frá sér í gærkvöld segir meðal annars: „Eftir mikla yfirlegu taldi meistaraflokksráð deildarinnar, sem fer með þjálf- aramál meistara- og 2. flokks, að það væri farsælast fyrir meist- araflokk að fá nýjan þjálfara til starfa fyrir næsta tímabil.“ Morgunblaðið/Ómar Aðalsteinn Víglundsson, þjálfari Fylkis. FÓLK  HJÁLMAR Jónsson lék allan tím- ann með Gautaborg sem tapaði fyrir Örgyte, 4:1, í grannaslag Gautaborg- arliðanna í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær. Gautaborg er í sjöunda sæti deildarinnar en Örgryte í því fimmta.  DANINN Allan Borgvardt var út- nefndur leikmaður ársins hjá FH-ing- um sem héldu lokahóf sitt um liðna helgi. Sverrir Garðarsson varð fyrir valinu sem efnilegasti leikmaðurinn.  ÓLAFUR Jóhannesson þjálfari FH-inga var í gær úrskurðaður í eins leiks bann vegna fjögurra áminninga á fundi aganefndar KSÍ í gær. Enginn leikmaður var úrskurðaður í leikbann á fundi nefndarinnar.  NÍGERÍUMENN eiga í viðræðum við Bryan Robson fyrrum leikmann Manchester United og knattspyrnu- stjóra Middlesbrough um að taka við þjálfun landsliðsins. Christian Chukwu er núverandi landsliðsþjálf- ari Nígeríu en hann hefur mátt þola mikla gagnrýni heima fyrir vegna slaks árangurs landsliðsins.  SUÐUR-KÓREUMENN tryggðu sér í gær farseðilinn á Ólympíuleik- ana þegar þeir sigruðu í Asíuriðli und- ankeppninnar sem fram fór í Kobe í Japan. S-Kórea og Japan börðust um sigurinn. Þjóðirnar skildu jafnar í lokaleiknum, 22:22, en markamunur S-Kóreumanna var hagstæðari og fyrir vikið keppa þeir í Aþenu.  LOGI Gunnarsson skoraði 12 stig fyrir lið sitt Giessen 46ers gegn belgíska liðinu Quatro Bree í vináttuleik liðanna á dögunum. Þýska úrvalsdeildarliðið vann leikinn, 97:87, en staðan í hálfleik var 46:48 belgíska liðinu í vil. Fyrsti leikur Giessen 46’ers verður 11. október næstkom- andi þegar liðið tekur á móti Berlín.  DANNY Ferry hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna en hann hefur leikið undanfarin 13 ár í NBA-deild- inni og nú síðast með NBA-meistara- liðinu San Antonio Spurs. Ferry er 36 ára og mun hefja störf á skrifstofu San Antonio Spurs sem tæknilegur ráðgjafi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.