Morgunblaðið - 01.10.2003, Side 44
FÓLK Í FRÉTTUM
44 MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÞÓ tónlistarmaðurinn Tonik sé
ekki gamall í hettunni hefur hann
verið býsna duglegur undanfarin ár
því þetta er þriðji diskurinn sem
hann sendi frá sér, áður eru komnar
breiðskífan Hyrnd og stuttskífan
Your system is dangerously low on
resources. Fram-
farir eru greini-
legar á plötunum
og sú sem hér er
gerð að umtalsefni
er það besta sem
hann hefur sent frá
sér hingað til, mjög forvitnileg plata
og skemmtileg.
Tónlistin sem Tonik fæst við er
tölvuvædd raftónlist sem spannar
ólíka strauma, sumt gæti kallast
triphop, annað minimal techno,
stöku lög flokkast sem nokkuð
dæmigert IDM, enn annað mætti
kalla electro og svo má telja, eins-
konar sýnibók raftónlistarstíla en þó
með sterk höfundareinkenni.
Hljómaspjaldið sem Tonik notar
er mun stærra en áður hefur verið,
sum hljóðanna bráðskemmtileg og
betra jafnvægi milli ólíkra hljóða og
hljóma. Upphaf skífunnar er mjög
gott, þar sem hann notar harmon-
ikkuhljóma til að tengja fortíð og
framtíð, enda er harmonikkan með
sín fjölþættu hljóð hljóðgervill fyrri
tíma. Harmonikkutakturinn ber síð-
an uppi hugljúfa laglínu sem flutt er
af tærum tölvutóni. Mjög gott lag
sem gengur vel upp.
Ekki ganga þó öll alveg upp, upp-
bygging í öðru lagi hennar, Gardínu,
finnst mér ekki alveg í lagi þrátt fyr-
ir góða spretti, mætti klippa það að-
eins til, en þó það þriðja, Super To-
nik: A NES Tribute, sé heldur
einfalt er það skemmtilega saman
sett með sterkum leikjatölvuein-
kennum. Það kemur einnig vel út að
skreyta fjórða lagið, Psycho Toaster,
með smá gítar í seinni hlutanum,
enda kallast tær gítarhljómurinn
skemmtilega á við rafhljóðin.
Sjöunda lagið er það skemmtileg-
asta, þunglyndisleg laglína þrungin
dramatík og vonleysi sem á vissulega
við í lagi sem ber heitið Þunglynt lag
en bráðfyndinn textinn breytir því
svo í eitthvað allt annað, mjög
skemmtileg útfærsla sem minnir
ekki svo lítið á Cyclone Tangerine
Dream þó ólíklegt sé að Tonik þekki
þá gleymdu plötu (kom út 1978).
Lokalag skífunnar er það eina sem
ekki er eftir Tonik, gott lag engu að
síður með skemmtilegri stígandi og
hefði mátt vera enn lengra.
Einn helsti kostur Technotæfu er
hve lögin eru ólík án þess þó að vera
sundurlaus, hún hljómar nánast eins
og safnplata í bestu merkingu þess
orðs, full af skemmtilegum hug-
myndum og frumlegum fléttum.
Áhugasamir geta keypt diskinn í
12 Tónum og einnig er hægt að nálg-
ast upplýsingar um Tonik á slóðinni
come.to/tonik.
Tónlist
Techno-
tæfan Tonik
Tonik
Technotæfa
Tonik
Technotæfa, geisladiskur tónlistar-
mannsins Tonik sem heitir annars Anton
Kaldal Ágústsson. Anton semur öll lög
utan eitt og framleiðir öll hljóð utan að
eitt lag á Þórarinn Einarsson og í einu
lagi leikur Steingrímur Þórarinsson á gít-
ar. Tonik gefur sjálfur út.
Árni Matthíasson
Morgunblaðið/Arnaldur
Anton Kaldal er Tonik.
Sérfræðingar
í blómaskreytingum
við öll tækifæri
Skólavörðustíg 12,
á horni Bergstaðastrætis,
sími 551 9090.
Sala á áskriftum
og Regnbogakorti
í fullum gangi!
TRYGGÐU ÞÉR GOTT VERÐ
OG SÆTI Í VETUR.
Háskólabíó við Hagatorg I Sími 545 2500 I sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is
AÐALSTYRKTARAÐILI
SINFÓNÍUHLJÓMSVEITAR
ÍSLANDS
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
Hljómsveitarstjóri ::: Damian Iorio
Einleikari ::: Erling Blöndal Bengtsson
Georges Enesco ::: Rúmensk rapsódía nr. 2
Aram Khatsjatúrjan ::: Sellókonsert
Johannes Brahms ::: Sinfónía nr. 3
TÓNLEIKAR Í HÁSKÓLABÍÓI
FIMMTUDAGINN 2. OKTÓBERRauð #1
Hann Erling okkar
spilar einn af flottustu sellókonsertum 20. aldar
9. október 2003
Hljómsveitarstjóri ::: Rumon Gamba
Einleikari ::: Truls Mørk
Ralph Vaughan Williams ::: Fantasía
um stef eftir Thomas Tallis
Hafliði Hallgrímsson ::: Sellókonsert
Ludwig van Beethoven ::: Sinfónía nr. 2
ÓPERUVINIR – munið afsláttinn!
Stóra svið
Nýja svið
LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren
Lau 4/10 kl 14 ,- UPPSELT ,
Su 5/10 kl 14 - UPPSELT
Su 5/10 kl 17 - UPPSELT
Lau 11/10 kl 14 - UPPSELT
Su 12/10 kl 14 - UPPSELT
Lau 18/10 kl 14 - UPPSELT
Su 19/10 kl 14 - UPPSELT
Lau 25/10 kl 14 - UPPSELT,
Lau 25/10 kl 17 - AUKASÝNING
Su 26/10 kl 14- UPPSELT
Lau 1/11 kl 14, Su 2/11 kl 14, Lau 8/11 kl 14,
Su 9/11 kl 14, Lau 15/11 kl 14,
Su 16/11 kl 14 - UPPSELT
ÖFUGU MEGIN UPPÍ e. Derek Benfield
Lau 4/10 kl 20, Fö 10/10 kl 20
Fö 17/10 kl 20, Fö 24/10 kl 20
Miðasala: 568 8000
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
ÁSKRIFTARKORT OG AFSLÁTTARKORT. SÍÐASTA SÖLUVIKA.
Sex sýningar: Þrjár á Stóra sviði, og þrjár aðrar að eigin vali. Kr. 9.900
Tíumiðakort: Notkun að eigin vali. Kr. 16.900
Komið á kortið: Fjórir miðar á Nýja svið/Litla svið. Kr. 6.400
VERTU MEÐ Í VETUR
ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN SÝNIR:
THE MATCH eftir Lonneke Van Leth -
heimsfrumsýning
SYMBIOSIS eftir Itzik Galili
PARTY eftir Guðmund Helgason
FRUMSÝNING Fi 9/10 kl 20 - hvít kort
2. sýn su 12/10 kl 20 - gul kort
3. sýn lau 18/10 kl 20 - rauð kort
4. sýn fi 30/10 kl 20 - græn kort
5. sýn su 2/11 kl 20 - blá kort
PÚNTILA OG MATTI e. Bertolt Brecht
Fö 3/10 kl 20, Lau 11/10 kl 20, Su 19/10 kl 20,
Su 26/10 kl 20
Ath. Aðeins þessar sýningar
KVETCH e. Steven Berkoff
Mi 15/10 kl 20, Lau 18/10 kl 20, Fö 24/10 kl 20
Ath: Aðeins örfáar sýningar
eftir Kristínu Ómarsdóttur
5. sýn. fim. 2. okt.
Leikhúsumræður eftir sýningu
6. sýn. fös. 3. okt.
7. sýn. fös. 10. okt
Sýningar hefjast klukkan 20.
Ath! Takmarkaður sýningafjöldi
Miðasala í 555 2222 eða á theater@vortex.is
Mink
leikhús
MÁNUDAGINN 20/10 - KL. 20 UPPSELT
ÞRIÐJUDAGINN 21/10 - KL. 20 ÖRFÁ SÆTI LAUS
FIMMTUDAGINN 23/10 - KL. 19 UPPSELT
MÁNUDAGINN 27/10 - KL. 19 LAUS SÆTI
ATHUGIÐ SÝNINGUM FER FÆKKANDI!
erling
Lau 4.10. kl. 20 ÖRFÁ SÆTI LAUS
Fim 9.10. kl. 20.30 UPPSELT
Fös 10.10. kl. 20 UPPSELT
Fim 16.10. kl. 20 ÖRFÁ SÆTI LAUS
Fös 24.10. kl. 20 LAUS SÆTI
Fös 31.10. kl. 20 LAUS SÆTI
Miðasala í síma 552 3000
Miðasala opin 15-18 virka daga
loftkastalinn@simnet.is
Einnig sýnt í Freyvangi
Tenórinn
Frumsýning 5. október kl. 20.30
2. sýn. fimmtud. 9. okt. kl. 20.00.
3. sýn. föstud. 10. okt. kl. 20.00.
4. sýn. laugard. 18. okt. kl. 20.00.
Sellófon
2. okt. kl. 21.00. Uppselt
11. okt. kl. 21.00. Uppselt
15. okt. kl. 21.00. Örfá sæti laus
19. okt. kl. 21.00. Nokkur sæti laus
Ólafía
Frumsýning 8. október.
Miðasala í síma 562 9700
www.idno.is
Neil Young & Crazy Horse –
Greendale
Það verður að
segjast eins og er að
ný plata Neil Young,
sem hann vinnur
með Crazy Horse,
veldur vonbrigðum.
Silver & Gold (’00) er uppfull af fal-
legum, snotrum lagasmíðum og hin
vanmetna Are You Passionate? (’02)
er furðulega skemmtileg. Hér er hins
vegar á ferðinni andlaust rafgítar-
hjakk og flest lögin harla óeftirminni-
leg. Þurftarlitlir Crazy Horse aðdá-
endur ættu að verða sæmilega sáttir
en aðdáendur Young þurfa að bíða
eftir næstu plötu. Killing Joke - Killing Joke
Nýja Killing Joke
platan kemur sann-
arlega á óvart.
Hörkurokkplata þar
sem ekkert er gefið
eftir. Frábærlega
þétt keyrsla út í gegn; Jaz Coleman
syngur sem andsetinn væri og gít-
arinn hans Geordie er allsvakalega
rifinn og gaddavírslegur. Dásamleg
sönnun á því aldrei skyldi afskrifa
gamla refi. Besta Killing Joke platan
í mörg, mörg ár og ein besta rokk-
platan sem af er ári. Leitandi Ramm-
steinaðdáendur ættu að geta haft
lúmskt gaman af þessari („Asteroid“,
„Blood on your Hands“).
Dave Grohl, sem trommar hér,
mætti þó vera ögn hærri í hljóðblönd-
uninni. Erlend tónlist
Arnar Eggert Thoroddsen