Morgunblaðið - 01.10.2003, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 01.10.2003, Qupperneq 45
FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 2003 45 Í KVÖLD verða haldnir sérstakir styrkartónleikar á Gauki á Stöng. Markmiðið er að safna upp í sjóð, sem fer í hljóðfærakaup fyrir krakka í Götusmiðjunni. Þeir sem koma fram eru Dark Harvest (sem leidd er af rokkaranum Gulla Falk), Sóldögg, Centaur, Fræbblarnir, Dúndurfréttir og „leynigestir“ verða Jo Jo og Götustrákarnir Kynnir er kvæðmaðurinn eini og sanni Steindór Andersen. Það eru Radíó Reykjavík og Hippavinafélag Íslands sem standa að viðburðinum. Morgunblaðið/Jim Smart Kynnir er Steindór Andersen. Morgunblaðið/Billi Dúndurfréttir verða á meðal sveita. Styrktartónleikar fyrir Götusmiðjuna Húsið verður opnað kl. 20.30 en tónleikarnir byrja kl. 21.00. Miðaverð er 1.000 kr. Fræbbblarnir leggja lið. Happiness eftir Will Ferguson. Canongate gefur út. 309 síðna kilja í stóru broti. ÆTLI ÞAÐ sé ekki rakin leið til áhyggjulausrar elli að skrifa sjálfs- hjálparbók, bara safna saman al- mennu blaðri, gjarnan eftir aðra, lagfæra málfar og stíl og gefa svo út. Það hlýtur að virka vel, sjá bara metsölubækur úti í heimi, og hér heima. Svo er það alltaf mögulegt að maður lendi á formúlu sem virkar, einhverju sem hjálpar fólki að komast í samband við sitt innra sjálf, hætta að reykja, grennast, verða hamingjusamt, sem væri kannski hið versta mál. Um þetta fjallar bókin Happiness eftir Will Ferguson sem kom út á síðasta ári en í kilju í sumar. Hún segir frá ritstjóra á stórri bókaút- gáfu, Edwin de Valu, sem grípur nánast fyrir tilviljun þúsund síðna handrit upp úr ruslakörfunni og at- vik haga því svo að hann neyðist til að gefa bókina út. Þegar hún kemur svo út fjandinn laus því hér er kom- in sjálfshjálparbók sem virkar, þeir sem lesa hana öðlast fullnægju í líf- inu, losna við streitu og áhyggjur, hætta að reykja og drekka, grenn- ast og leggja af allan hórdóm – verða sem sagt hundleiðinlegir. Eft- ir því sem bókin selst betur verða æ fleiri hamingjusamir, leiðinlegir, og þegar hún hefur náð að seljast í 65 milljónum eintaka í Bandaríkjunum einum má segja að þar séu allir orðnir sálarlausa hamingjusöm vél- menni. De Valu finnst hann bera á byrgð á þessum hörmungum og því sé það á hans könnu að komast að því hver hinn dularfulli höfundur er og koma honum snimmhendis fyrir kattar- nef. Ekki er þó allt sem sýnist, því höfundurinn er lunkinn við að leyn- ast, á og fé til þess, tugi milljarða króna, en uppgjörið verður um síðir í hrörlegum húsbíl langt utan al- faraleiðar. Ferguson, sem er frægur fyrir ferðabækur sínar, en Happiness er fyrsta skáldsagan, velti upp ýmsu skemmtilegu í bókinni og heldur því fram meðal annars að það sé í raun ekki hamingjan sem skipti máli heldur hamingjuleitin. Hann gerir óspart grín að sjálfs- hjálpariðnaðinum og því að yfirleit sé hægt að segja afdráttarlaust um hvernig fólki eigi að vera og haga sér, eða eins og hann segir í bókinni: Siðfræði byggist ekki á því að velja á milli réttrar og rangrar breytni, heldur að velja milli grárra tóna. Árni Matthíasson Bækur Leitin að ham- ingjunni

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.