Morgunblaðið - 14.11.2003, Side 47
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. NÓVEMBER 2003 47
HVERJIR voru heimsmeistarar í
sektarkennd á síðasta ári? Þessi
spurning er meðal efnis sem fjallað
verður um á námskeiði, sem Jó-
hanna Guðrún Jónsdóttir fjölskyldu-
ráðgjafi, býður upp á á morgun,
laugardag, milli kl. 13 og 17 að
Brautarholti 4a. Námskeiðið er ætl-
að konum á öllum aldri og af því má
draga ríkan lærdóm auk þess sem
skemmtanagildið verður í fyrirrúmi,
segir í fréttatilkynningu. Námskeið-
ið er sett saman af fimm stuttum fyr-
irlestrum um efni sem ættu að höfða
sérstaklega til kvenna. Efni nám-
skeiðsins er m.a.: Eigi vil ek horn-
kerling vera, BE-ástandið, þóknast-
þér-skeiðið, seinkunartæknin og
hverjir voru heimsmeistarar í sekt-
arkennd 2002.
Hægt er að skrá sig á námskeiðið í
síma 588-2092 eða 862-7916.
Námskeið fyrir konur af
öllum stærðum og gerðum
Aðalfundur SHS, Samtaka heil-
brigðisstétta verður haldinn í dag,
föstudaginn 14. nóvember, kl. 17.30 í
húsi BSRB, Grettisgötu 89.
Í DAG
Málþing um framtíð sjómanna á
Íslandi verður haldið laugardaginn
15. nóvember kl. 10.30 í hátíðarsal
Sjómannaskólans við Háteigsveg.
Fjallað verður um íslenska far-
mannastétt og framtíð hennar,
breytta vinnulöggjöf o.fl. Fram-
sögur verða frá stéttarfélögum sjó-
manna og nemendafélögum. Mál-
þingið er öllum opið.
Námstefna ITC verður haldin á
morgun, laugardaginn 15. nóv-
ember, kl. 11–16.30 í Smára Hóteli í
Hlíðarsmára 13, Kópavogi. Erindi
halda: forseti alþjóðasamtaka ITC
Wilna Wilkinson, Helga Braga leik-
kona og Hlín Agnarsdóttir rithöf-
undur og leikstjóri. Námstefnan er
öllum opin, upplýsingar á www.sim-
net.is/itc
Uppskeruhátíð Aftureldingar
verður haldin á morgun, laugardag-
inn 15. nóvember kl. 13.30 í Íþrótta-
miðstöðinni að Varmá í Mosfellsbæ.
Veittar verða yfir 100 viðurkenn-
ingar til iðkenda, valinn íþróttamað-
ur félagsins og Evrópumeistarar
pilta í handknattleik fá afreksstyrk,
segir í fréttatilkynningu.
Málþing um manntalið 1703 Hag-
stofa Íslands heldur málþingi um
manntalið 1703 í húsakynnum Hag-
stofunnar laugardaginn 15. nóv-
ember kl. 13–17. Hagstofa Íslands,
Þjóðskjalasafn Íslands, Félag um
átjándu aldar fræði, Sagnfræðinga-
félag Íslands og sagnfræðistofnun
Háskóla Íslands standa að þinginu
en það er haldið til að minnast 300
ára afmælis manntalsins.
Meðal fyrirlesara á þinginu er
breski fræðimaðurinn John Hajnal
sem mun flytja erindi, The 1703 Ice-
landic Census in Perspective og Lisa
Dillon prófessor við háskólann í
Montréal sem heldur erindi um kan-
adísk manntöl og þjóðarímynd kan-
adísku þjóðarinnar. Auk þess fjalla
íslenskir fræðimenn um íslenska
manntalið út frá ólíkum sjón-
arhornum. Meðal þeirra eru Eiríkur
Guðmundsson og Björk Ingimund-
ardóttir, starfsmenn Þjóð-
skjalasafns, Helgi Skúli Kjartansson
og Kristrún Halla Helgadóttir, Gísli
Gunnarsson prófessor við Háskóla
Íslands, Loftur Guttormsson og Ólöf
Garðarsdóttir.
Change, ný undirfataverslun opn-
ar í Smáralind á morgun. Change
er danskt vörumerki sem býður upp
á undirfatnað, baðfatnað og nátt-
fatnað. Change fatnaður er seldur í
yfir 470 verslunum í Evrópu og Kan-
ada. Eigandi verslunarinnar Change
á Íslandi er Goði Sveinsson. Í tilefni
af opnuninni býður Change 25% af-
slátt af öllum vörum sínum frá laug-
ardegi til mánudags.
Á MORGUN
EIGNATJÓN vegna eldsvoða af
völdum rafmagns er áætlað um 600
milljónir kr. árið 2002, að því er kem-
ur fram í ársskýrslu Löggildingar-
stofu um bruna og slys af völdum
rafmagns árið 2002. Einnig kemur
fram að nær fjórir af hverjum tíu
rafmagnsbrunum á heimilum eru
vegna aðgæsluleysis við notkun
eldavéla. Önnur rafmagnstæki komu
mun sjaldnar við sögu sem bruna-
valdar, en algengust þeirra voru á
síðasta ári þvottavélar, sjónvörp,
lausir lampar, ýmis rafhitunartæki
og rafmagnstöflur. Á tímabilinu
1995-2002 var röng notkun og að-
gæsluleysi orsök nánast allra bruna
vegna eldavéla og flestra bruna
vegna lýsingar. Einnig er algeng or-
sök bruna vegna annarra rafhitunar-
tækja.
Löggildingarstofa rannsakar
einnig og skráir upplýsingar um slys
af völdum rafmagns. Ekkert dauðs-
fall varð vegna rafmagnsbruna á
árinu eða af völdum rafmagns en síð-
asta áratug urðu að meðaltali 0,3
banaslys vegna rafmagns ár hvert,
en ekkert banaslys varð vegna raf-
magns á síðasta ári. Flest slysanna,
eða um 80%, urðu vegna mannlegra
orsaka, svo sem aðgæsluleysis, mis-
taka og rangra vinnubragða.
Skýrslan er byggð á rannsóknum
Löggildingarstofu á brunum og slys-
um vegna rafmagns, en á árinu tók
Löggildingarstofa þátt í rannsókn-
um 100 bruna sem reyndust vera
vegna rafmagns.
Algengt að kvikni í út frá eldavélum