Morgunblaðið - 24.11.2003, Page 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. NÓVEMBER 2003 13
Geymdu það ekki til morguns
sem við getum gert í dag.
Eins
og
skot
Sími: 505 0400
Fax: 505 0630
www.icelandaircargo.is
Ný
sending!
100 ferðir á viku til 13
áfangastaða í USA og Evrópu
tryggja þér stysta mögulega
flutningstíma með
hagkvæmasta hætti
sem völ er á.
Hér fyrir neðan sérðu dæmi
um verð frá USA og Evrópu
og upptalningu á þeirri
þjónustu sem innifalin er
í verðinu. Við veitum þér
alhliða þjónustu í öllum
þáttum, s.s. gerð tollskjala
og við færum þér vöruna
beint upp að dyrum.
Geymdu það ekki til
morguns sem við getum
gert í dag.
Verðdæmi
Boston
17.000kr./100 kg
m.v. flug frá Logan til Keflavíkur.
Afgreiðslugjald á báðum
flugvöllum innifalið.
Tökum einnig að okkur
tollskýrslugerð og heimakstur
gegn vægu gjaldi.
CARGO
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
I
FR
2
20
67
11
/2
00
3
Nútíma samskipti ehf. bjóða til ráðstefna
um ACT! CRM/Viðskiptatengslahugbúnað
þann 27. nóv. 2003 kl. 13:30 á Radison Hótel Sögu,
þar sem sérstaklega verður hugað að þörfum sölumanna/söludeilda
í litlum til stærstu fyrirtækja.
Dagskrá:
13:00-13:30 Skráning ráðstefnugesta - létt tónlist.
13:30-13:45 Ráðstefnan sett: Ráðstefnustjóri okkar verður Sólveig Hjaltadóttir,
markaðsstjóri Alþjóða líftryggingafélagsins.
13:45-14:05 Geir A. Gunnlaugsson forstjóri Sæplasts fjallar um mikilvægi ACT! CRM
hjá stórfyrirtækjum sem hafa starfsemi í mörgum heimsálfum.
14:05-14:25 Ármann Úlfarsson starfsmaður Vélasölunnar fjallar um hugmyndafræðina
á bak við stýringu söluferla frá því að markhópur er skilgreindur, samskipti
hefjast, sala næst, og að lokum eftirfylgni.
14:25-14:45 Sigurður Örn Levy sölustjóri hjá Lánstrausti fjallar um reynslu þeirra
af stýringu söluferla með ACT! CRM - Dæmi og skýrslur sýndar og útskýrðar.
14:45-15:05 Kaffi - Létt lifandi tónlist.
15:05-15:25 Skúli Skúlason forstöðumaður fjölmiðlavaktar IMG - Fjölmiðlavaktin fjallar
um ACT! CRM/Viðskiptatengslakerfi er þeir hafa notað í átta ár.
15:25-15:45 Karvel Hreiðarsson sölu- og markaðsstjóri fjallar um verkefnastýringu
sölumanna/söludeilda og mikilvægi þess að blanda ekki saman
markaðsgögnum og bókhaldsgögnum.
15:45-16:15 Hermann Valsson framkvæmdastjóri fjallar um þær einingar sem
byggja upp árangursrík ACT! CRM/Viðskiptatengslakerfi. Farið verður í
gegnum öflun markhópa, skilgreiningu þeirra, skipulagingu sölu- og
kynningarherferðir. Eftirfylgni og úrvinnslu langtímasöluáætlana.
16:15-18:00 Panelumræður, ráðstefnuslit og léttar veitingar - Létt lifandi tónlist -
Sýning á ACT! CRM/Viðskiptatengslahugbúnaði.
Ráðstefnugestir fá markhópalista með nöfnum 50 stærstu fyrirtækja landsins, kynningareintak
af ACT! CRM/Viðskiptatengslakerfi og ýmsan aukahugbúnað til að létta markaðssókn.
Þátttökugjald er 6.500.
Tilkynnið þátttöku í síðasta lagi þriðjudaginn 25. nóvember 2003
með tölvupósti á nutima@nutima.is
Nánari upplýsingar í síma 553 7300
Hver er raunveruleg staða
sölumála og söluferla
hjá þínu fyrirtæki?
www.nutima.is
Námskeið fimmtudaginn 4. desember
fyrir þá, sem vilja læra á ISO 9000
gæðastjórnunarstaðlana.
Farið er yfir megináherslur og uppbyggingu staðlanna og
hvernig má beita þeim
við að koma á og viðhalda gæðakerfi.
Verklegar æfingar.
Námskeiðið fer fram hjá Staðlaráði Íslands, Laugavegi 178,
kl. 8.30-14.45. Þátttökugjald kr. 18.500
Nánari upplýsingar og skráning á vef Staðlaráðs,
www.stadlar.is eða í síma 520 7150
ISO 9000 gæðastjórnunarstaðlarnir
- Lykilatriði, uppbygging og notkun -
● VELTA aðildarfyrirtækja Price-
waterhouseCoopers jókst um 900
milljónir Bandaríkjadala á reiknings-
árinu 1. júlí 2002 til 30. júní 2003.
Nam veltan 14,7 milljörðum Banda-
ríkjadala en á reikningsárinu á und-
an nam hún 13,8 milljörðum Banda-
ríkjadala.
Í fréttatilkynningu frá PwC er haft
eftir forstjóra fyrirtækisins, Samuel
A. DiPiazza, að miðað við efnahags-
ástandið í heiminum, áframhaldandi
veikleika á fjármálamörkuðum
heimsins og verulegar breytingar á
lögum á reglugerðum á árunum
2002–2003 þá sé fyrirtækið ánægt
með veltutölur sínar. „Með batnandi
efnahag annars vegar og forgangs-
röðun á verkefnum PwC hins vegar,
reiknum við með verulegum raun-
vexti á næsta reikningsári,“ segir
DiPiazza í fréttatilkynningu frá Price-
waterhouseCoopers.
Velta eykst hjá PwC
● SAMKVÆMT nýlegri könnun at-
vinnuvefjarins Monster.com eru 82%
Bandaríkjamanna óánægð með nú-
verandi starf sitt. Frá þessu er sagt á
vefmiðlinum SmartMoney.com. Þar
segir að miðað við þessar tölur
megi, nú þegar menn telja að efna-
hagslífið sé að taka við sér á nýjan
leik, búast við harðri samkeppni um
öll ný störf í landinu þegar allt þetta
óánægða fólk stormar út á vinnu-
markaðinn í leit að betra starfi.
Í SmartMoney.com segir að bestu
horfurnar varðandi atvinnuleit á
næsta ári séu í greinum sem sinna
þjónustu við hinn sífellt eldri hóp for-
eldra í landinu, sem hefur frestað
barneignum langt fram eftir aldri. Tal-
ið er að mikil þörf sé að skapast á
því að veita þessu fólki fjárhags-
ráðgjöf og heilsugæsluþjónustu við
65 ár aldur, samkvæmt fréttinni.
Þá segir að fyrirtæki séu nú
reiðubúin að byrja aftur að eyða fjár-
munum í sölu og markaðsstarf eftir
margra ára niðurskurð.
Samkvæmt fréttinni eru einnig sjá-
anleg umskipti í tæknigeiranum þar
sem menn eru aftur farnir að auglýsa
eftir starfsfólki eftir langt samdrátt-
arskeið.
82% Bandaríkja-
manna óánægð
í vinnunni
SÍLDARVINNSLAN í Neskaupstað
hefur verið að auka vinnslu á ferskum
fiski til útflutnings jafnt og þétt frá því
hún hófst í hittiðfyrra. Það sem af er
þessu ári hafa um 380 tonn af ferskum
þorski verið unnin og flutt á erlendan
markað. Gert er ráð fyrir að 400 til 450
tonn af þorskafurðum verði unnin og
flutt utan með þessum hætti í ár og
verða það um 20% af allri þorsk-
vinnslu fyrirtækisins.
Þessi vinnsla hefur aukist til mikilla
muna undanfarna mánuði og er þetta
mun meira magn en á sama tíma í
fyrra. Það er hnakkastykkið af flakinu
sem selt er ferskt á erlendan markað,
en þessi framleiðsla er send á markað
í Evrópu, mest í Bretlandi. Öll
hnakkastykki, sem unnin eru hjá Síld-
arvinnslunni, fara nú í þessa vinnslu
og er hún því orðin daglegur hluti
vinnslunnar í fiskiðjuveri Síldarvinnsl-
unnar. Um 30 til 40% af fiskinum fara í
ferska fiskinn, en hitt er fryst.
Stærstur hluti þessarar framleiðslu
fer með flugi á markað, en hluti hefur
þó farið með hraðflutningum sjóleið-
ina. Fiskinum er pakkað ferskum í
neytendapakkningar hjá kaupendum
erlendis og dreift í verslanir. Þessi
fiskur kemur því á borð neytenda án
þess að hafa verið frystur.
Jóhannes Pálsson, framkvæmda-
stjóri Landvinnslu SVN, segir að
þessi leið sé sú bezta sem hægt sé að
fara um þessar mundir, gefi skást af
sér. Hann segir að miklu máli skipti að
hægt sé að flytja þessar afurðir sjó-
leiðina, en með því styrkist samkeppn-
isstaða okkar gagnvart Norðmönnum.
Þeir séu töluvert í þessari vinnslu og
flytji fiskinn með flutningabílum á
markaðinn með mun minni kostnaði
en með fluginu héðan. Nú sé verið að
skoða alla flutningskosti, meðal ann-
ars vetraráætlun Norrönu.
Það skásta sem
hægt er að gera
Síldarvinnslan eykur útflutning
á ferskum hnakkastykkjum
Síldarvinnslan í Neskaupstað eykur
útflutning á ferskum fiski stöðugt.
Teppi á stigaganga
Ármúla 23, sími 533 5060 • www.stepp.is