Vísir - 10.12.1980, Blaðsíða 28

Vísir - 10.12.1980, Blaðsíða 28
vlsm Miðvikudagur 10. des. 1980 síminnerðóóll veðurspá dagsins Klukkan sex var um 975 millibara lægö um sex hundr- uð kilómetra suð-suð-vestur af Vestmannaeyjum, en eitt þús- und og sautján millibara hæð yfir Norð-austur-Grænlandi. Nokkurt frost verður á land- inu. Veðurhorfur næsta sólar- hring: Suðurland til Breiðafjarðar: Austan sjö til átta vindstig, viða dálitil snjókoma með köflum. Vestfirðir: Austan eöa norð-austan 7-9, snjókoma með köflum. Strandir og Norðurland vcstra til Austfjarða: Austan 4-6; él. Suðausturland: Austan 6-8, snjókoma öðru hverju. veðrið hér og par Veðrið klukkan 6: Akureyri snjókoma h-6, Ilelsinki isnálar h-6, Kaup- mannahöfn rigning 6, Osló frostrigning 1, Reykjavik al- skýjað -7-1, Stokkhólmur al- skýjað h-1, Þórshöfnrigning 4. Veðrið i gær klukkan 18: Aþcna alskýjað 4, Berlin snjókoma 2, Feneyjar heiö- skirt 0, Frankfurtskýjaö h-3, Nuukskýjað h-4, Londonmist- ur 4, Luxemborg þokumóða h-7, Las Palmashálfskýjað 19, Mallorca hálfskýjað 6, Montr- eal h-4, New V'ork skýjað 8, Paris heiðskirt h-1, Rómheið- skirt 2, Malagaskýjað 13, Vin hálískýjað h-4, Winnipegskaf- renningur h-22. Gengiö irá lánsljáráætlun á morgun: „Ovíst að hún verði lögð fram fyrir jól” „Ríkisstjórnin mun væntaniega ganga endan- lega frá lánsfjáróætlun- inni á fundi sínum á morgun, en þaö er óvist hvort hægt verðurað leggja hana fram fyrir jólin". Þetta sagði Ragnar Arnalds, fjármálaráð- herra, þegar blaðamaður Vísis spurði hann. hvað liði f járfestinga- og láns- fjáráætlun, en í fjárlaga- frumvarpinu var gert ráð fyrir því.að hún vrði lögð fram i byrjun nóvember. „Fjárfestingaáætlun hvað snertir rikið og útgjöld þess hef- ur legið fyrir alveg frá þvi i októberbyrjun, en okkur hefur vantað annars vegar upplýsing- ar um sjóðina og hins vegar upplýsingar um hugsanlegar lántökur einkaaðiia Þessar upplýsingar fengum við ekki frá Framkvæmdastofnun og Seðla- banka fyrr en um miðjan sið- asta mánuð”. Ragnar sagði, að banka- mannaverkfallið gæti haft áhrif til seinkunar á þvi hvenær láns- fjáráætlun verður lögð fram, þvi vinnsla við hana færi að hluta til fram i Seðlabankanum og þar væri heldur fáliðað þessa dagana. Ragnar vildi ekkert gefa upp um væntanlegar lántökur rikis- ins erlendis, en sagði að heildar- fjárfestingar myndu nema um 26% af þjóðarframleiðslu, eins og gert hafi verið ráð fyrir i fjárlagafrumvarpinu. —P.M. Slökkviliðið i Reykjavik var kvatt að Sildar- og fiskimjöls- verksmiðjunni hf. að Kletti, en þar hafði „siló” ofhitnað og steig upp frá þvi mikiil reykur. Vegna vindáttar lagði reykinn yfir borg- ina, og i einu tilviki kallaði ibúi á Vesturgötu á slökkvilið, þar sem hann taldi aö bruni væri i húsi sinu. Reyndist það aöeins vera reykjarsvæla frá Kletti. Atvikið átti sér stað um klukkan 1 i nótt, en þegar slökkviliðiö kom á stað- inn, hafði starfsmönnum tekist að kæla „silóið” niður. Viðvinnslu á fiskimjöli er einn þátturinn sá, að reykur er siaður frá mjölinu i svonefndu „silói”. Þar fellur mjölið niður, en reykurinn ler á- fram upp i gegnum skorsteininn. „Siló” þetta vill oft hitna og sviönar þá mjöl, sem situr i þvi. Þetta mun ekki vera i fyrsta skipti, sem slikt atvik á sér staö. s —AS HJÖNIN í GÆSLU Hjónin, sem tekin voru i siðustu viku fyrir meint smygl, hafa ver- ið úrskurðuð i gæsluvarðhald til föstudags. Maðurinn haföi verið skipverji á einu fragtskipanna og var> kona hans með honum i ferð- inni, en þau voru grunuð um að hafa smyglað varningi i land i nokkrum höfnum landsins. -AS Mikill reykur myndaðist, þegar mjöliö sviðnaði, og þurftu slökkviliösmenn á hinum besta búnaði að lialda til þess að vinna við hinar erfiðu aðstæður. Sveitarstjðri Raufarhafnar segir upp: „Aslæðan er skuld Jðkuls við hrepplnn” Loki Moröið á John Lennon var aðalmál útvarpsstöðva um allan heim i gær, og leikin voru þar lög eftir hann mikinn hluta dagsins. Þessu var öðru visi fariö i okkar dásamlega útvarpi. Þar var varla hægt að merkja, að John Lennon væri látinn. Alltaf sama snilldin á þeim bæ. „Það er rétt. Ég hefi sagt upp starfi minu sem sveitarstjóri og ástæðan er fyrst og fremst skuldir útgerðarfélagsins Jök- uls hf. við sveitarsjóð”, sagði Sveinn Eiðsson á Raufarhöfn i samtali við Visi. Raufarhafnarhreppur á mest- an hluta i Jökli hf. en útgerðar- félagiðhefur á undanlörnum ár- um safnað upp skuldum hjá sveitarsjóði. Samkvæmt upp- lýsingum Sveins, er skuld fé- lagsins hátt i 40milljónir króna, en þar við bætast 11 milljónir, sem félagið hefur ekki staðið i skilum með af gjöldum skip- verja togarans. Sagði Sveinn, aö þetta kæmi mjög illa viö rekstur sveitarsjóðs, þar sem hér væri um að ræða annað stærsta at- vinnufyrirtækið á staönum. Gat Sveinn þess til samanburöar, að heildartekjur sveitarsjóös af út- svörum, aöstöðugjöldum og fasteignasköttum á ylirstand- andi ári, væru rúmlega 170 mill- jónir króna. „Skuldir Jökuls við sveitar- sjóð hafa verið til vandræða allt frá þvi ég tók við stöðu sveitar- stjóra og hafa hlaðiö utan á sig ár frá ári. Þarna hefur verið um að ræða stóran hluta af heildar- tekjum sveitarfélagsins og hafnarsjðös og vanskilin þvi gert stórt strik i reikninginn varðandi allar íramkvæmdir á vegum hreppsins. Þessu get ég ekki unað lengur og ákvaö þvi að segja upp störlum. Þaö er sex mánaða uppsagnarfrestur og samkvæmt þvi hætti ég um miðjan mai á næsta ári”, sagði Sveinn Eiðsson. Þess má geta, að útgerðarfé- lagið Jökull gerir út togarann Rauðanúp frá Raufarhöfn og stendur nú að kaupum nýs tog- ara frá Noregi, ásamt Þórs- hafnarbúum. —SG/GS.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.