Morgunblaðið - 05.12.2003, Síða 24
m
24
bjór
er ekki bara bjór
TEXTI SÚSANNA SVAVARSDÓTTIR LJÓSMYNDIR ÁSLAUG SNORRADÓTTIR
CIRCLE MASTER – ENGLAND
„Góður matarbjór og kemur á
óvart – en ekki fótboltabjór.“
LEFFE – BELGÍA
„Sparibjór við kertaljós og
kannski lestur góðra ljóða.“
BIRRA MORETTI – ÍTALÍA
„Maður skilur af hverju Ítalir
sérhæfa sig í víni.“
OLD SPECKLED HEN – ENGLAND
„Erfiður en hefur eitthvað við sig –
góður í veiðitúr í rigningu.“
BUDWEISER – TÉKKLAND
„Passar alls staðar – með mat,
fótboltanum og í veiði.“
ERDINGER WEISSBIER – ÞÝSKALAND
„Myndi gera sig vel með snafsi og síld á
danska jólahlaðborðinu.“
DUVEL – BELGÍA
„Lítur sakleysislega út
en er eins og syndin,
lævís og lipur.“
HOEGAARDEN – BELGÍA
„Maður myndi ekki hika við
að bjóða dömu upp á hann.“
ELEPHANT – DANMÖRK
„Vinsælasti smyglbjórinn
áður en bjórinn var leyfður.“
CHIMAY – BELGÍA
„Demantur í lörfum.“
Í EYRUM ÞEIRRA SEM EKKI ERU „BJÓRFÓLK“ KANN ÞAÐ AÐ HLJÓMA ANKANNALEGA AÐ EINN BJÓR GETI
VERIÐ ÖÐRUVÍSI Á BRAGÐIÐ EN ANNAR. BJÓR ER BJÓR. PUNKTUR OG BASTA.
En raunin er sú að bjórinn er eins og léttvínið; hefur sín séreinkenni, allt eftir því hvaðan hann kemur og hvernig brugg-
ferlið er. En hvað er þá góður bjór? Hvað er það sem gerir bjór góðan? Hvað er það sem gerir hann ekki góðan? Til
þess að svara því var leitað til tveggja stór-áhugamanna, Snorra B. Snorrasonar og Þórðar Víkings Friðgeirssonar, og
þeir beðnir að smakka nokkrar bjórtegundir á Kaffibrennslunni, og segja á þeim kosti og galla. Þeir brögðuðu á Circle
Master, Leffe, Birra Moretti, Old Speckled Hen, Budweiser, Erdinger – Weissbier, Duvel, Hoegaarden og Elephant.