Vísir - 13.01.1981, Síða 6
6
Þriðjudagur 13. janúar 1981
vtsm
Steíán og
Jón hættir
- leika ekki með (R
gegn KR i kvöld
ÍR-ingar verða án tveggja leik-
manna sinna sem leikiðhafa með
þeim i vetur þegar þeir mæta KR-
ingum i fyrsta leiknum eftir jóla-
friið i' úrv alsdcildinni i körfu-
knattleik i kvöld. Það eru þeir Jón
Birnir Indriðason sem hefur
pakkað saman dóti sfnu og hætt
og Stefán Kristjánsson sem er
hættur að æfa með tR. Hefur
heyrst aö Stefán muni jafnvel
vera á leiðinni norður til Þórs á
Akureyri en það hefur þó ekki
fengist staöfest... —klp—
Þrottur
mætlr
Vlkingi
- í Laugardalshðllinni
í kvöid
Toppliðini 1. deildarkeppninni i
handknattleik — Þróttur og Vik-
ingur mætast i Laugardalshöll-
inni i kvöld kl. 20.00. Það má bú-
ast við fjörugum og skemmtileg-
um leik og er ekki að efa að Þrótt-
arar hafa hug á að stöðva sigur-
göngu Vikings — þeir hafa leikið
26 leiki án taps i deildinni.
Staðan er nú þessi i 1. deildar-
keppninni:
Vikingur .... 12 11 1 0 250:203 23
Þróttur...... 12 9 0 3 273:245 18
Valur.........12 6 1 5 274:222 13
FH.......... 12 5 2 5 260:266 1 2
Haukar....... 12 4 1 7 234:251 9
KR ..........12 4 1 8 244:268 9
Fram......... 12 3 1 8 254:2 77 7
Fylkir ..... 12 2 1 9 228:285 5
Tómas tll FH
Tómas Pálsson, knattspyrnu-
maður frá Eyjum hefur ákveðið
að ganga til liðs við FH.
— Leikmenn Lugi eru mjög
hávaxnir — þeir hafa 10 leik-
menn yfir 1.90 m i herbúðum
sinum og leika yfirleitt flata
vörn, sem er erfitt að brjótast i
gegnum — sannkallaður
„Berlinarmúr”, sagði Jón
Hjaitalin, fyrrum leikmaður
Vikings og Lugi.
Vikingar mæta Lugi i Laugar-
dalshöllinni á sunnudaginn — i
fyrri leik þeirra i Evrópukeppni
meistaraliða.
— Lugi leikur öruggan og yfir-
vegaðan handknattleik — þeir
„hanga á knettinum” — halda
hraðanum niðri og skjóta yfir-
leitt ekki fyrr en i góðum mark-
tækifærum. Þá beitir Lugi mikið
hraðupphlaupum og er óhægt að
segja að Claes Ribendahl sé allt
i öllu i sóknarleik liðsins — hann
er 1.93 m á hæð og 95 kg, og þvi
erfitt að stöðva hann, þegar
hann er kominn á ferðina, sagði
Jón.
— Er Ribendahl eins stórkost-
legur og menn vilja af láta?
— Það er of mikið að segja, að
hann sé frábærlega snjall hand-
knattleiksmaður, en sannarlega
verður að hafa á honum góðar
gætur. Hann er stór og sterkur
— mjög kröftugur og skotfastur,
en aftur á móti enginn afburða-
maður með knöttinn. Hlutverk
annarra leikmanna Lugi er
meira og minna að leika hann
upp.
— Hver er mesti styrkur
Lugi?
— Ég tel að styrkleiki Lugi
liggi fyrst og fremst i sterkum
varnarleik — það eru mjög
hávaxnir leikmenn i liði Lugi,
sem er erfitt aö komast fram
hjá.
Lugi-liðið er skipað mjög ung-
um leikmönnum, sem hafa ekki
yfir mikilli reynslu að ráða.
Þess vegna tel ég möguleika
Vikings meiri — þeir hafa mjög
leikreynda leikmenn i herbúð-
um sinum, sagði Jón.
Jón sagöi, að þaö væri þó ekki
hægtað loka augunum fyrir þvi,
að Lugi hafi veriö i mikilli sókn
að undanförnu — unnið 7 leiki i
röð, siðast Hellas 24:20 i Lundi
— um helgina.
Lugi erfitt heim að sækja
— Hvað viltu segja um leikinn
i Lundi — eru leikmenn Lugi
erfiðir heim að sækja?
— Já, það eru þeir — þeir
leika heimaleiki sina i litlu
iþróttahúsi, sem tekur 1200
manns og eru áhorfendapall-
arnir báðum megin við leikvöll-
inn. Ahorfendur eru þvi vel með
á nótunum og hvetja sina menn
óspart. Lugi kaus frekar að
leika i Lundi, heldur en i
iþróttahöllinni i Málmey, sem
er 15 km frá Lundi — tekur 4
þús. áhorfendur. A þvi sést, að
þeir binda miklar vonir við litla
iþróttahúsið sitt, sagði Jón.
-SOS
JÓN HJ ALTALÉN sést hér skora mark fyrir Lugi, þegar hann
lék með sænska liðinu.
: „Vlkingar
í óskaliö
! okkar
J „Vikingur var okkar óskalið og
J við munum sigra þá örugglega og
j þannig komast i undanúrslit
J Evrópumeistaraliða,” sagöi
J Claes Ribendahl, ^kærasta
I stjarna sænsks handknattleiks
i um þessar mundir. i viðtali I
I sænska sjónvarpinu fyrir
| skömmu.
| „Ég tel það tilviljun, að Viking-
j ar slógu ungverska liðið Tata-
j banya út úr Evrópukeppni meist-
j araliöa. Vikingur er alls ekki eins
j sterkt lið og af er látið og við
| munum örugglega tryggja okkur
• sæti i undanúrslitum,” sagði
| Ribendahl ennfremur i sænska
J sjónvarpinu.
Risarnir frá Lundi gegn Víkingi:
„Flestir leikmenn
Lugi yfir 1,90 m ”
- og varnarveggur beírra er sannkaiiaöur „Berlinarmúr”.
segir Jon Hjaltalfn. fyrrum lelkmaður Lugl og Víklngs
• Þetta er það nýjasta og vafalaust það besta i smáauglýsingum.
• Þú kemur með það sem þú þarft að auglýsa og við myndum það,
þér að kostnaðarlausu.
• Einnig getur þú komið með mynd af t.d. húsinu, bátnum, bilnum
eða húsgögnunum.
• Auk þess bjóðum við að sjálfsögðu: Húsaleigusamninga. Afsöl og
tilfcynningar, einnig bæklinginn frá Bilgreinasambandinu
„Hvei'nig kaupir maður notaðan bil”.
• Fólk er beðið um að koma á auglýsingadeild Vísis Siðumúla 8—
milli kl. 12—15 mánudaga til föstudaga, og birtist þá auglýsingin
með myndinni daginn eftir.
Bílaviðskipti ]
Cortina árg 1978. Þessi gullfallegi
bill er til sölu.
Billinn er I toppstandi. Skoðaður
1980. Góð kjör. Uppl. i sima
828282.
Húsgögn
Af sérstökum ástæðum er þetta
glæsilega 1 árs gamla sófasett til
sölu. 3 sæta, 2 sæta og'húsbónda-
stóll. Allar nánari uppl. i sima
727272