Vísir - 13.01.1981, Qupperneq 13
Háp á hðfði er
höfuðprýði
Hárin á höfði okkar skipta okkur
flest miklu máli, enda oft sagt að
höfuðprýði þetta sé kóróna hvers
manns. Við tindum til nokkra
fróðleiksmola um hár — vonandi
einhverjum til gagns og þá öðrum
til gamans.
Af hverju stafar hárlos?
Ástæðurnar eru fjölmargar. Til
dæmis getur verið að skortur sé á
einum hvata i heilum hóp nauð-
synlegra næringarefna, einnig
getur orsökin veriö sálræns eðlis.
Hárlos gengur einnig i erfðir. Al-
ger skalli getur stafaö af þvi, að
viðkomandi hefur ekki hiotið
meiri hárvöxt i vöggugjöf.
Skyndilegur næringarefnaskortur
getur einnig stöðvað hárvöxtinn,
valdið hárlosi, svo hefur upp-
skurður, barnsfæðing og brjósta-
gjöf áhrif i sömu átt. Blóð- eða
járnskortur veldur einnig hárlosi.
— Oftastkemst hárvöxturinn i lag
aftur, eftir að sjúkdómurinn
hefur gengið yíir, en á hárinu
sjálfu má sjá merki þess, sem
gerst hefur, sé hvert hár skoöað
gaumgæfilega út af fyrir sig.
Geta allir fengið skalla?
Á f jórða hverjum manni verður
vart meiri eða minni skalla, svo
algengt er fyrirbrigðið. Það byrj-
ar á þvi, að hárið fer af hvirflin-
um, mjög sjaldgæft er að hárið
fari allt i einu, það er að allur
skallinn myndist i einu. Þetta
fyrirbrigði gengur i erfðir, er
bundið viðkyn og er rikjandi. Það
þýðir, að þetta gengur i erfðir hjá
karlmönnum og er rikjandi yfir
erfðaeiginieikum, sem orsaka
mikinn hárvöxt. Konur geta borið
þessa eiginleika áfram, þannig að
einn maður getur erft þá frá
móðurafa sinum.
Er karlmannlegt að
hafa þykkt hár?
Nei, þvert á móti, frekar mætti
segja, að það væri karimannlegt
að hafa skalla. Háriö á höfðinu
bregst nefnilega þannig við karl-
hormónum að það hættir að vaxa.
Annars staðar til dæmis á bring-
unni hafa karlhormónar gagn-
stæð áhrif. Sama efni getur
þannig aukið hárvöxtinn á einum
staðen dregið úr honum á öðrum.
Þetta hefur áþreifanlega sannast
á þeim „enúkkum”, sem fyrir
kynþroskaaldur sinn hafa glatað
þeim hæfileika likamans að
framleiða karlhormóna. Slikir
menn verða aldrei sköllóttir.
Þórunn
Gestsdóttir,
biaöamaður
Hvers vegna verða kon-
ur þunnhærðar?
Sumar konur hafa tilhneigingu
til að fá þunnt hár, en mjög sjald-
gæft er að þær verði sköllóttar.
Algjör skalli er hins vegar mjög
alvarlegt vandamál. Hann byrjar
oft þannig, að hárið dettur af i
blettum, stundum á stærö við
fimmeyring inýkr). Um ástæð-
urnar er litið vitað, en oftast eru
þær taldar sálrænar. Engin vissa
er samt fyrir hendi um það. Hins
vegar er það ekki talið eins alvar-
legt, þó að hárið veröi þunnt, þvi i
flestum tilfellum vex hárið aftur,
fyrr eða siðar. Ef tilfellið er hins
vegar alvarlegt og veldur skalla,
þá falla augabrúnir og augnhár
lika af.
Er hægt að lækna hár-
los?
1 langílestum tilfellum er hár-
los afleiðing einhvers sjúkdóms
eða skorts i einhverri mynd.
Þegarsá sjúkdómur hefur lagast,
tekurfyrir hárlosið. Cortizon-inn-
gjafir (hórmónategund) mis-
mundandi miklar geta fengið
harið til að vaxa aítur, en aðeins á
meðan á inngjöfunum stendur.
Þegar þeim lýkur, tekur hárið að
falla af aftur. Mælt heíur verið
með innvortis meðhöndlun, sér-
stökum áburðartegundum og
sprautum, en bati hefur ekki
fengist. Allar aðrar aöferöir hafa
reynst ótryggar. — Skalli getur
haldist svo árum skiptir, en i
flestum tilfellum fer hárið sjálf-
krafa að vaxa aftur. Jaínvel eru
dæmi um, að hárvöxtur hafi byrj-
að eftir 20-25 ára skallatimabil.
Eru hattar til skaða
fyrir hárið?
Nei, leggið ekki eyrun viö slikri
firru, að hattar og einkennishúfur
valdihárlosi eða þunnu hári. Það
er mesti misskilningur.
Vex hárið fljótar eftir
klippingu?
Nei. Eitt stutt hár, i merking-
unni ungt hár, vex íljótar en sitt
og gamalt hár. En þaö vex ekki
fljótar, hvorki á höföi, i vöngum
né á fótum, eingöngu viö það að
klippa það eða raka.
Hvernig endurlifgum
við hárið?
Það er ekki hægt. Hársrótin
vex, en hárið sjálft er dautt frá-
skiiið efni, sem ekki er hægt að
gefa neina sérstaka næringu er
geíur þvi nýtt lif eða endurlifgar
það. Hins vegar er hægt aö hiröa
það hár, sem við höfum, svo að
það liti íallegra og liflegra út.
Hárið verður gljáandi af hár-
þvottalegi og öðrum kemiskum
efnum. Klofnir hárendar og
stökkt hár getur meöal annars or-
sakast af næringarskorti. Sum
auglýst efni eru talin vikka blóö-
æðarnar og auka blóöstreymið
við hársrótina. Þannig að „ullar-
hárin” vaxa þá fyrr og þannig má
hafa áhrif á hárið, þar sem það er
i vexti. En engin ytri áhrif geta
gefið hárinu nýtt lif.
Látum við hér staðar numið
með þennan samtining um hár,
sem tindur er til úr öllum áttum.
Hiröing hárs er mikilvægsvohárið líti fallegra og líflegra út.
m
••
13
po-
• •!•!! !!••• ;;;;;:::::::::::::::::::::::::
, . i -,
Vilt þú selja
hljómtæki?
Viö kaupum og seljum
Hafið samband strax
UMBOÐSSALA MED
SKÍÐA VÖRUR OG HUÖMFLUTNINGSTÆKl
GRENSÁSVEGI50 108 REYKJAVIK SIMI: 31290 jjjjj
■ •••»■ •■•■■ ■■■■■ •■■■■ ■■■■■ ■■■■■ ■■■■■ ■•■■■ ■■■■■ ■■■■■ ■■■■■ ■■■■■ ■■■■■ ■■■■■ ■•■■« ■■■■■ ■■•■■ ■•■■•- .■■■■ •■••■ ■■■■■
■ ■■■■■ ■■■•■ ■■■■■ ■■■•■ ■■■■■ ■■■■■ ■■••■ ■•■•■ ■■■■■ ■•■■• •■■■■ ■•■•• ■■■■■ ■■■•■ ■■■■■ ■•■■■ ■■■■■ ■•■■■ ihíí aiiii
■ •■■■■ ••■■• ■■••■ ■■■■■ ■■■■■ •■■■■ ■■■■■ ■■■■■ ■■■•• •■■■■ ■■••■ ■■•■■ ■■■■■ ■•■■■ ■■■■■ ■■•■• ••»-_ ■■■■■ ■■■■• ••••■ ■■■„
■ ■•■■• •■■■■ ■■■■■ ■■■■■ ■■■■■ •■■■■ ■■■■■ ■■■■■ ■■■■■ •■■■• ■■■•■ ■■•■■ ■•■•■ ■■■■■ ■•■•■. •■■■ ■■■■■ ■■■■■ ■■•■■ iiiii
• ■■■■■ ■■■■■ ■■•■■ ■■■■■ ■■■■■ IHH ■■■■■ •■■■■ ■■■■■ ■■■■■ ■■■■■ ■■■■■ ■■■£- •■■■■ ■■■■» ' .■• ». «•■ ■•■■■ ■■■■■ •■■■■ iaiSS
6ÍL4LEIQA
Skeifunni 17,
Simar 81390
A l
Vissir þú að
<r
<Mc
r»a
us
býður mesta
úrvai ungiinga-
húsgagna
á iægsta verði
og á hagkvæm-
ustu afborgunar
kjörunum?
■T'T
Bildshöfða 20, Reykjavik
Simar: 81410 og 81199
0^19^09
Funrturum
bnluuuæflingy
Leiðir tölvuvæðingin til atvinnuleysis - styttri vinnutíma -
bættra lífskjara. Leysir tölvuvæðingin starfsgreinar af hólmi?
FRAMSÖGUERINDI:
Magnús L. Sveinsson Pótur H. Blöndal Sigfinnur Sigurösson Roynir Hugason
formaður VR. framkv.stj. Ufeyrissj. VR. hagfræðingur VR. verkfræðingur
Hótel Saga, Súlnasalur
fimmtudaginn 15. janúar 1981, kl. 20.30
Fundurinn er öllum opinn
Verdununnannajelag Rey’kjavíkur