Vísir - 13.01.1981, Side 18
18
Þriðjudagur 13. janúar 1981
VÍSIR
mnrmlif
,,Eg er ntanneskja,
en ekki fyrirbrigdi”
— segir hæsta kona heims, Sandy Aílen
Sandy íær greidda 30 þúsund
dollara á ári fyrir aö láta glápa á
sig, i átta tima á dag, sex daga
vikunnar og hún liður íyrir það. —
„Þegar ég er mjög langt niðri
spyr ég sjálfa mig hvaö ég sé
eiginlega að láta hafa mig út i. Ég
ætti að fara heim aftur og fá mér
vinnu sem einkaritari eöa eitt-
hvað þess háttar og reyna aö lifa
eðlilegu lifi”, —sagði hún i viðtali
nýlega.
— „Það koma stundir sem mér
finnst að ég geti ekki tekið þessu
öllu lengur. Ég er ekki neitt fyrir-
brigði, ég er manneskja. Oft á
dag er ég spurð hvort ég óski þess
ekki að vera lægri og hvernig það
sé að vera svona stór. Mér finnst
ég ekkert öðruvisi en annað fólk.
Fætur minir eru aðeins lengri það
er allt og sumt”.
Hún snýr sér aö konu og barni
úr hópi áhoríenda og brosir til
barnsins og veifar hendinni, með
fingur á stærð við banana i átt til
barnsins. Þaðsetur upp skeiíu og
fer að gráta. — „Svona, svona”,
— segir Sandy vonleysislega, —
,,þú þarft ekki aö vera hrædd við
mig”. Móðir barnsins biöur um
myndatöku og meö erfiöismunum
stendur Sandy á fætur og gnæfir
eins og tröllskessa yfir alla
viðstadda. Hún lætur hönd sina
hvila á höfði konunnar sem við
hlið Sandj er eins og litil dúkka.
Sandy var eðlilegt barn framan
af en um tiu ára aldur
var hún orðin hærri en
flestir hennar jafn-
aldrar. Núer hún 25 ára gömul og
á við vandamái að striða sem fáir
hafa kynnst.
„Það er hart að geta hvergi
íarið án þess að augun ætli út úr
höfðinu á fólki. Ef ég fer inn á
veitingastað liggur við að allt fari
i uppnám”. 1 gagnfræðaskóla átti
hún enga vini og henni var aldrei
boðið út. Hún var vön að stara á
sjálfa sig i spegli og segja: „Þú
ert svo ljót að það er ekki von aö
nokkur strákur liti við þér”.
Það var ekki fyrr en hún komst
i heimsmetabók Guinness að
karlmenn fóru aö bjóða henni út.
— „Það voru menn, sem fengu
eitthvað út úr þvi aö geta sagt að
þeirhefðu veriðmeö stærstu konu
i heimi” — segir hún niður-
dregin — „og auðvitað heyrði ég
aldrei frá þeim nema i þetta eina
skipti. Þetta særir mig og það er
siður en svo ánægjulegt aö koma
heim eftir vinnu, dag eftir dag og
ár eítir ár, án þess aö þar biði
manns nokkur sem þykir vænt
um mann. Ég er svo einmanna að
stundum finnst mér að ég sé að
missa vitið”.
Sandy viðurkennir að hún eigi
sér einn draum. — „Stundum
imynda ég mér aö ég eigi eigin-
mann sem fer i vinnu klukkan 9
og kemur heim um 5 og aö ég sé
bara litil heimavinnandi hús-
móðir. En þetta er bara draumur
þvi ég hef ekki trú á, aö nokkur
Kinverska stúlkan Tseng
Chin-liener „aðeins” 2.15 metrar
og þvi 17 cm lægri en Sandy.
Födur-X
hlut- \
verk 1
Lorne Greene, sem í 14 ár lék '
föður Cartwright - strákanna i
jBonanza, hefur nú birst i hlut-
verki annars konar föður í sjón-
varpsmyndinni ,,A Time For
Miracles". í myndinni leikur
hann fyrsta kaþólska biskup
Bandarik janna, John Carroll...
Þótt Sandy Allen liti á sjálfa sig sem eðlilega
stúlku íer ekki hjá þvi, að margir snúi sér við á götu
er þeir mæta henni. Hún er 2 metrar og 32 cm á hæð
og liklega hæsta kona i heimi, a.m.k. er ekki vitað
um neina sem slær henni við i þessum efnum. Og að
sjálfsögðu er hún eitt áhugaverðasta sýningaratriði
á safni einu sem kennt er við heimsmetaskrá
Guinness og staðsett er við Niagara fossana rétt við
landamæri Bandarikjanna og Kanada, — a.m.k. er
mikil örtröð ferðamanna við bás hennar á safninu.
eigi eftir að verða ástfanginn af
mér”.
Þess má geta, að nýlega rák-
umst við á mynd i erlendu tima-
riti af 16 ára gamalli kinverskri
stúlku Tseng Chin-lien og voru
þar vangaveltur um, hvort hún
væri stærsta stúlka heims. Við
getum hins vegar upplýst, að svo
er ekki þvi sú kinverska er „að-
eins” 2 metrar og 15 cm og er þvi
17 cm lægri en Sandy.
Brosiðdylur hjartasorgirnar hjá Sandy Allen sem er 2.32 metrar á hæð
og líkist tröilskessu við hiið venjuiegs fólks.
f
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
Aría til Skandinavíu
„Það hefur verið mikið að
gera hjá okkur allt siðastliðið ár
og má segja að við höfum varla
sleppt úr helgi” — sagði Hörður
Friðþjófsson gitarleikari hljóm-
sveitarinnar Aria, þegar við
höfðum samband við hann
vegna væntanlegrar reisu
hljómsveitarinnar til Norður-
Ianda i byrjun febrúar n.k.
„Tildrögin að þessari ferð
voru að maður, sem búsettur er
i Osló kom til okkar þar sem við
vorum aö spila á balli á Arnar-
stapa i sumar og spuröi hvort
við vildum ekki koma og spila
fyrir Islendingafélögin i Osló og
Kaupmannahöfn og að sjálf-
sögðu tókum við þvi boöi en
þarna er um að ræöa Þorrablót
hjá þessum íélögum”, — sagði
Hörður ennfremur.
Hljómsveitin Aria var stofnuö
fyrir rúmu ári og aö sögn þeirra
félaga hefur veriö nóg aö gera i
bransanum, en þeir leika al-
hliða dansmússik á einkaböllum
og almennum dansleikjum.
— „Við förum allra okkar
ferða fljúgandi, þegar viö kom-
um þvi við og höfum átt einstak-
lega góða samvinnu við Arnar-
flug í þeim efnum”, — sagði
Hörður og lét þess einnig getið
að þeir önnuðust að mestu
ráðningar sjálfir auk þess sem
Pétur rakari hefði veriö þeim
innan handar og mundi hann
annast ráðningar fyrir hljóm-
sveitina á meöan á dvöl þeirra i
Skandinaviu stæði. — „Og þar
sem ég er farinn aö hæla fólki
má vel koma fram, aö aðstoðar-
maður hljómsveitarinnar
Magnús Jensson hefur unnið
mjög gott starf með okkur.
^Hann er örugglega besti rótari á
landinu”, — sagöi Hörður en
auk hans skipa hljómsveitina
Andri Bachmann sem annast
trommuleik og söng og Öskar
Kristjánsson sem leikur á
bassa.
Hljómsveitin Arfa fléttri sveiflu á dansleik, f.v. Óskar Kristjánsson
Andri Bachmann og Hörður Friöþjófsson.
I
I
I
I
!
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
-I