Vísir - 13.01.1981, Page 21
21
Þriðjudagur 13. janúar 1981
vtsm
frabært
stærilátu systur kemur i heim-
sókn, gerast undur og stórmerki.
Hanna kastar af sér eldabusku-
hamnum og skákar systur sinni i
hvivetna.
Hlutverk Hönnu er i höndum
ungrar leikkonu, Elvu Óskar Ól-
afsdóttur. Hún fer á kostum i
þessu hlutverki sinu og virðist
vera hinn besti skapgerðarleik-
ari. Sömu ummæli mætti hafa um
hlutverk Bettýar, sem Harpa
Kolbeinsdóttir leikur, þegar hún
lætur skapofsann gusta til á
heimilinu, en er á hinn veginn
einstök maddama á nútimavisu.
Húsfrúin á heimilinu, Emma,
leikin af Kolbrúnu Hálfdánardótt-
ur, kemst vel frá sinu hlutverki.
Hún kann þá list að látast sem
hún ráði litlu á heimilinu, en þeg-
ar i harðbakkann slær, tekur hún
ráðin af eiginmanni sinum, Her-
bert Wilton, sem Sigurgeir Schev-
ing leikur. Sigurgeir er ekki i
fyrsta sinn á fjölunum og ber þess
öll merki. Þar fer grinleikari,
sem stendur hvergi að baki at-
vinnumönnum á þvi sviði, þótt
laun hans i þessu verki sé aðeins
uppskera timafrekra æfinga og
erfiðis, eins og allra hinna.
Hinn yfirlætisfulli þjónn og vin-
kona Bettýar skila þá sinum hlut-
verkum ágætlega. Reyndar eru
þetta litil hlutverk, án margra
orða, en gætu þó orðið til þess að
skemma verkið, ef ekki væri rétt
á haldiö. Þjónninn Briggs (Hrafn
Hauksson) er t.d. sá sem kynnir
persónuna Bettý, með augljósri
andúð sinni á henni i upphafi leik-
ritsins, og skapar þar með af-
stöðu áhorfandans gagnvart hinni
stærilátu systur. Óskar Arason
var eins og sniðinn i hlutverk sitt
sem hinn óráðni elshugi, og skap-
aði einstaklega góða vandræða-
stemningu, sem gerði verkið i
raun að þvi, sem til var ætlast.
Unnur Guðjónsdóttir leikstjóri
verksins og „amma gamla” eða
frú Simmons i leikritinu, hefur
lengi verið gullkorn i leiklistarlifi
þeirra Eyjamanna. Á syningunni
i Kópavogsleikhúsinu voru sýni-
lega margir Eyjamenn, þvi um
leið og Unnur birtist sem hökt-
andi gömul kona á sviðinu, hló
salurinn. Þótt hún gerði ekki ann-
að en segja já, eða nei, mátti
heyra hlátrasköllin i salnum.
Slik áhrif getur aðeins leikari
fengið fram, sem sýnt hefur það
og sannaö, að i hvert sinn, sem
hann leikurá sviði, kemur athöfn
hans áhorfendum til þess að velt-
ast um af hlátri. Þannig var það i
þessu verki, leikur hennar var
mjög góður og uppskeran eftir
þvi. Jafnvel á milli þátta gátu
sumir áhorfenda ekki stillt hlát-
ursrokur sinar og varð af þvi
einnig hin besta skemmtan.
1 leikritinu blönduðust sama
gaman og alvara, gamanið þó i
mun meira magni. Undir lok leik-
ritsins virðist það taka dálitið
aöra stefnu, þegar Holly-
wood-andi sveif yfir vötnunum og
áhorfendur fengu skammt af
slikri senu i stað góðrar hlátur-
roku, sem hefði mun frekar hæft
verkinu. Það er full ástæða til
þess að fara þegar áð bíða eftir
næstu uppfærslu Leikfélags Vest-
mannaeyja. — KÞ
1
a
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
-J
'801kaffistofu Blaöaprents. (Visism. E.Þ.S.).
„Elll og annaö á döflnnl”
Rætt vlö Þórlelf V. Frlðrlksson. formann Slúdió '80
„Þessi sýning hefur gefið góða
raun og þvi erum við að hugsa um
að fara út i stærri framkvæmd-
ir”, sagði Þórleifur V. Friðriks-
son, formaður Stúdió ’80, sem er
ljósmyndaklúbbur 14 starfs-
manna prentsmiðjunnar Odda, i
samtali við Visi.
Klúbburinn var stofnaður fyrir
um áriaf 14 bókagerðarmönnum,
það er að segja prenturum, setj-
urum og bókbindurum, sem allir
eru starfandi i Odda. Á þessum
timahaf þeir haldið eina sýningu.
Var hún sett upp i prentsmiðjunni
i Odda i október, en einnig hafa
þeir félagar farið með hana á
vinnustaði og um þessar mundir
er hún i Blaðaprenti.
„Við höfum verið með heil-
mikla starfrækslu i frammi siðan
klúbburinn var stofnaður. Við
höfum farið mikla leiðangra til
myndatöku, en hingað til höfum
viö aöeins haldið þessa einu sýn-
ingu. Hún mæltist bara vel fyrir
og vakti mikla athygli, en þar
sem sýningin er hér i Odda, höf-
um við ekki getað boðið fólki til að
sjáhana.þviaðþetta er nú vinnu-
staður. Þess vegna erum við að
hugsa um að fara út i stærri sýn-
ingu á einhverjum opinberum
stað og þá með aðild allra félaga
klúbbsins, en aðeins átta okkar
taka þátt i sýningunni nú. Einnig
höfum við hugsað okkur að fara
meö fyrri sýninguna á fleiri
vinnustaði”.
— Hvernig myndir eru þetta,
sem þið sýnið nú?
„Þetta eru eingöngu ljósmynd-
ir i stærðinni 40 sinnum 50 og eru
myndirnar 28 að tölu”.
— Hvað er fleira á döfinni hjá
ykkur?
„Undanfarið höfum við verið
með fyrirlestra á vegum klúbbs-
ins og á næstunni eru fyrirhugað-
ar fleiri slikir. Meöal annars hafa
tveir starfandi ljósmyndarar gef-
ið okkur loforö um að miðla okkur
af reynslu sinni”.
— Eitthvað að lokum?
„Ja, ekki nema.aö þetta heíur
hlotið góðar undirtektir og smitaö
vel út frá sér, þannig að við erum
mjög ánægðir”, sagði Þórleifur
V. Friðriksson. -—KÞ
Q 19 OOO
1 ! A >
*■ 'gQtolT'
Jólamyndir 198Ó
Jasssöngvarinn
Frumsýning i Evrópu
Skemmtileg — hrifandi, frá-
bær tónlist.
Sannarlega kvikmyndaviö-
buröur....
NEIL DIAMOND —
LUCIE ARANZ.
Tónlist: NEIL DIAMOND —
Leikstjóri. RICHARD
FLEICHER.
kl. 3, 6, 9 og 11.10
Islenskur texti
_______...gisiBw .[|______
Trylltir tónar
„Disco”myndin vinsæla meö
hinum frábæru „Þorps-
búum”
kl. 3, 6V9 og U.15.
--------------------------
LANDAMÆRIN
Sérlega spennandi og við-
burðahröð ný bandarisk lit-
mynd, um kapphlaupið viö
'að komast yfir mexikönsku
landamærin inn i gullland-
ið...
TELLY SAVALAS, DENNY
DE LA PAZ, EDDIE AL-
BERT.
Leikstjóri: CHRISTOPHER
LEITCH.
Islenskur texti.
Bönnuð börnum.
Hækkað verð.
Sýnd kl.3.10 - 5.10 - 7.10 - 9.10
og 11.10
Hjónaband
Maríu Braun
Bönnuö innan 12 ára
Islenskur texti
Sýnd kl. 3, 6, 9, og 11.15.
Sími 11384
„10"
ný, bandarisk gamanmynd i
litum og Panavision. Inter-
national Film Guide valdi
þessa mynd 8. bestu kvik-
mynd heimsins s.l. ár.
Aðalhlutverk: Bo Derek,
Dudley Moore, Julie
Andrews. Tvimælalaust ein
besta gamanmynd seinni
ára.
Sýnd kl. 5, 7.15 og 9.30.
ísl. texti Hækkaö verð
(Útvsgsbankahúiinu
auataat i Kópavogi)
Ljúf leyndarmál
Ný amerisk, lauflétt,
gamansöm mynd af djarfara
taginu.
Marteinn er nýsloppinn úr
fangelsi og er kvennaþurfi.
Hann ræöur sig i vinnu i
antikbúð. Yfirboðari hans er
kona á miðjum aldri og þar
sem Marteinn er mikið upp á
kvenhöndina lendir hann i
ástarævintýrum.
Leikarar: Jack Benson,
Astrid Larson, Joey Civera.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Stranglega bönnuð innan 16
ára.
AÐVÖRUN: Fólki sem llkar
iila kyHlifssenur eða erotík
er eindregið ráðiagt frá þvi
að sjá myndina.
í lausu lofti
(Flying High)
“TIU» u your Captain spcaking.
We are expcriencing some minor
technécal dtfficulttes..."
. w* i (ísís mm atm
■'.ÍV '. . ' ((VVv.í fiisíí jl'S- ...
Stórskemmtileg og fyndin
litmynd, þar sem sögu-
þráöur „stórslysamynd-
anna" er i hávegum haföur.
Mynd sem allir hafa gaman
af.
Aðalhlutverk Robert Hays,
Juli Hagerty, Peter Graves.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Á vegi
án gangstéttar
gengur fólk
0 vinstra megin
UMFERÐ
VIKINGUR - LUGI
Sunnudaginn 18. janúar
kl. 20.00
FORSALA
hefst í dag kl. 16
á eftirtöldum stöðum:
Karnabœr, hliómtaekjadeild,
Laugavegi 66
Fálkinn, Austurveri,
Háaleitisbraut 68
Samvinnuferðir — Landsýn,
Austurstrœti 12
Tryggið ykkur miða í tíma
HVETJUM OKKAR MENN