Vísir - 13.01.1981, Page 27
Þriöjudagur 13. janúar 1981
27
vtsnt
óvenju fáir
ðlvaöir víð
akstur
Okumenn sem teknir voru
grunaðir um ölvun við akstur
voru óvenju fáir um siðustu helgi
aðsögnlögreglunnari Reykjavik.
Töldu menn helst að hér vægi
þyngst hinn stutti timi frá ára-
mótum en stuttu eftir áramótin
hefur ölvun við akstur jafnan
verið fátiðari en á öðrum tima
ársins.
Styrktarféiag sogns:
Keyptu hús-
gðgn og
snjðsleða
Styrkarfélag Sogns.sem stofnað
var i byrjun desember.hefur þeg-
ar hafið störf af fullum krafti, en
tiigangur féiagsins er að styðja
fjárhagslega og á annan hátt við
uppbyggingu meðferðarheimilis-
ins að Sogni i ölfusi.þar sem SAA
hefur rekið meðferðarheimili
fyrir alkóhóiista.
Nýlega var tekin i notkun að
Sogni viðbygging sem SÁÁ hefur
látið reisa þar og mun hún hýsa
svokallaöa deildarfundi auk þess
sem þar verður skrifstofuaðstaða
fyrir starfsfólkið. Fyrsta verkefni
hins nýstofnaða styrktarfélags
var einmitt að kaupa húsgögn i
hina nýju byggingu og voru þau
afhent á dögunum.
Þá hefur styrktarfélagið keypt
snjósleða og gefið það að með-
ferðarheimilinu, en oft er óhægt
um vik að komast þar heim frá
þjóðveginum vegna ófærðar. Má
segja að með tilkomu sleöans
aukist verulega öryggi þeirra er á
staðnum dvelja varðandi sam-
göngur.
Margt fleira er á döfinni hjá
styrktarfélaginu, og er öllum
þeim sem áhuga hafa á að leggja
þvi lið bent á að snúa sér til fé-
lagsins.
gk-.
Verðiaunahafar geta vitjað vinninganna eftir að hafa hafi samband við Visi
Sveinn Guðjónsson btaðamaður dregur úr hrúgunni stóru nöfn þeirra, sem hlutu verölaun i Jólagetrauninni.
Visismynd: EÞS
Jolagelraun
Vlsis:
BOIB AÐ DRAGA
Ingvi Victorsson, Hvammsgerði 9 i Reykjavik
hlaut fyrstu verðlaunin i Jólagetraun Visis, en
dregið var úr réttum lausnum i gær.
Geysileg þátttaka var i getrauninni mun meiri
en oft áður og fylltu lausnirnar, sem sendar voru
inmmarga stóra pappakassa.
Fyrstu verðlaunin voru ferða-
og kasettutæki af geröinni
RCS5L, svokallað „micro”- tæki
en þau hafa hljómgæði mun
stærri tækja, sem eru fjórum til
fimm sinnum dýrari. Tækið er
bæði fyrir rafmagn og rafhlöður
og er verðmæti þess um 3.300
krónur.
öll verðlaunin i getrauninni
eru frá Faco i Reykjavik og það
fór vel á þvi að önnur verölaun
sefn eru fatnaður fyrir 750 krón-
ur, færi út á land, þvi geysileg
þátttaka var af landsbyggðinni.
Sú sem hlýtur fataúttektina frá
Faco er Sigrún Sævarsdóttir
Setbergi 11 i Þorlákshöfn.
Þá voru veitt 10 verðlaun sem
eru hljómplata að eigin vali frá
Faco og komu upp þessi nöfn er
dregið var um það hverjir hljóta
hljómplötuúttekt:
Jóhann Jóhannsson, Norðurtúni
I, Bessastaðahreppi.
Sigrún Gisladóttir , Móaflöt 13
Garðabæ.
Kjartan Egilsson, Tjarnarbraut
II, Egilsstöðum.
Þröstur Antonsson, Grænugötu
12 Akureyri.
Guðbjörg Stefánsdóttir Mark-
holti 7 Mosfcllssveit.
Oddný Ósk Sverrisdóttir, Draga-
vegi 11 Heyk.iavik,
Björgvin Björgvinsson, Jórufelli
2,Reykjavik.
Asgeir Sigurðsson, Kjarrhólma
22 Kópavogi.
Þór Hreinsson Ystabæ 7,
Reykjavik.
Arný Anna Svavarsdóttir
Vesturbergi 7 Reykjavik.
Verðlaunahafar i Getrauninni
geta snúið sér til Visis og fengið
þar viðurkenningu sem heimil-
ar þeim að vitja vinninganna i
verslanir Faco.
Og þá er ekkert annað eftir en
aö þakka þeim fjölmörgu sem
tóku þátt i getrauninni fyrir
þeirra framlag.
svomœlir Svarthöföi
Millifærsian að komast á fullt
Rikisstjórnin er komin á fulla
ferð við að færa til eignir i þjóð-
félaginu. Henni finnst ára til
þess i byrjun nýkrónu að gera
ráðstafanir, sem munu breyta
þjóðskipulaginu á skömmum
tima, verði þær látnar óátaldar.
Þá er gott lag um þessar mund-
ir, því fyrirliði rlkisstjórnarinn-
ar er ekki í nokkurri aðstöðu til
að setja mönnum stólinn fyrir
dyrnar, þegar um þverbak
keyrir i aðgerðum gegn fólkinu.
Hann hefur ákveðið að sitja út
kjörtimabilið, vegna þess að
það yrði honum of mikið tilfinn-
ingamál ef „vinir” hans i Sjálf-
stæðisflokknum fengju tækifæri
til að nudda honum upp úr þvi,
að ekki hefði hann haft erindi
sem erfiði i samstarfi við
Framsókn og Alþýðubandalag-
ið. Eini árangurinn sem hann
getur sýnt er stjórnarseta út
yfirstandandi kjörtimabil.
Nú er það staðreynd, að
Framsókn lofaði niðurtalningu
yfir kosningarnar og vinstri
stjórn. Vinstri stjórnina fengu
landsmenn, að visu ekki fyrir
tilstilli Framsóknar heldur
vegna athafnasemi Gunnars
Thoroddsen. Um niöurtalning-
una hefur raunar ekkert heyrst
siðan i kosningaræðum Stein-
grims Hermannssonar. Helst
var að sjá i sjónvarpsþætti fyrir
helgina, aö niðurtalningin hefur
fyrst og fremst tekist við hann
sjálfan. Ekki ber heldur á þvi að
Framsókn, sigurvegarinn úr
siðustu kosningum og stærsti
flokkur stjórnarsamstarfsins,
hafi einhver teljandi völd i rikis-
stjórninni. Ráðherrar
Framsóknar eru þar eins og þau
vel öguðu húsdýr, sem eru fræg-
ust fyrir hvað þau fylgja eigend-
um sinum fast eftir. Hvergi
nokkurs staðar örlar á þvi, að
þeir ráði nokkru um stefnumót-
un. Þetta gerir Gunnari
Thoroddsen erfitt fyrir, þvi hann
mun hafa hugsað sér að sitja
sem nokkurs konar sáttasemj-
ari striðandi afla i rikisstjórn.
Þegar aflið er aðeins eitt þarf
ekkert að sætta nema sjálfan sig
viö orðinn hlut.
Sem stærsti flokkur stjórnar-
samstarfsins á Framsókn sam-
kvæmt eöli málsins að vera sá
flokkurinn sem mest leggur til
stjórnarstefnunnar. Þessu er
aftur á móti. þannig fariö, að
kjaftaskar Alþýöubandalagsins
búa til þverhandarþykka bunka
af tillögum, og menn hafa bók-
staflega ekki annað meira að
gera en lesa þessar tillögur og
ræða þær. Þaö var þvi ekki að
undra þótt formaður
Framsóknar veldi þann kost að
fara á skiði meöan bráöabirgöa-
lögin voru ráöin. Framsókn átti
hyort cð var ekki orð i þeim lög-
um eða efnahagsráðstöfunum
stjórnarinnar, nema helst það
atriöi að krefjast skerðingar á
visitölu. Þegar þannig er komið
fyrir sigurvegara kosninganna
geta menn gert sér ljóst hvernig
komið er fyrir Gunnari
Thoroddsen.
Enda er það ekki niöurtaln-
ing, sem orðið hefur ofan á sem
stjórnarstefna. Hérerá ferðinni
svonefnd millifærsla, með þvi
inntaki helstu að færa fé frá
þeim sem kallaðir eru efnaaðil-
ar i þjóðfélaginu hvað sem það
nú þýðir, til rikisins, sem siöan
notar fjármagnið I félagsmála-
pakka, bæði umsamda og óum-
samda, svo Alþýöubandalagið
geti baðaö sig I sólarljósinu af
rikisforsjá handa „öreigum”.
Þessi millifærsluleið kom fram
strax um áramótin, þegar rikis-
stof nanir fengu að hækka tekjur
sinar um tiu prósent yfir alla
linuna á sama tima og verðlag I
landinu var bundið. Verðlagið
ersem sagt einvörðungu bundið
hjá fyrirtækjum einkaaöila.
Og enn heldur millifærslan
áfram. Fasteignagjöld hafa
verið hækkuð um allt að sextiu
prósent, og þykir mönnum nóg
um þá hækkun. Til viöbótar
kemur svo að ekki má lengur
hækka húsaleigu samkvæmt
visitölu. Þannig hefur náöst
' mjög „heppilegur” árangur i
færslu milli eignamanna og
„öreiga”. Ósagt skal látið hvar
rikisstjórninni þóknast að bera
niður næst, en á þessum aðgerö-
um mun ganga út kjörtímabiliö.
Svarthöföi.