Vísir - 13.01.1981, Síða 28
Þriðjudagur 13. janúar 1981
síminnerdóóll
Munið áskrifendagetraunina
Fyrsti vinningurinn
Mitsubishi Colt dreginn út 30. janúar nk.
Vertu Vísisáskrifandi. Sími 86611
veðurspá
dagsins
Yfir vestanverðu landinu er
vaxandi 1000 mb lægð. sem
þokast austur. Veður er
heldur hlýnandi i bili en kóln-
ar aftur i nótt. Veðurhorfur
næsta sólarhring.
Suðurland til Breiðafjarðar:
Suðvestan kaldi eða stinnings-
kaldi og viða súld i fyrstu, en
siðar vaxandi vestanátt, all-
hvasst eða hvasst af vestan og
él með kvöldinu.
Vestfirðir: Hægviðri og
snjókoma i fyrstu en norðan
og norðvestan kaldi eða stinn-
ingskaldi og él þegar liður á
daginn.
Strandir og Norðurland
vestra til Austurlands að
Glettingi: Sunnan gola og
sumstaðar dálitil snjókoma í
fyrstu,en siðar breytileg átt,
gengur i norðan eða norðvest-
an kalda eða stinningskalda
með éljum siðdegis.
Austfirðir og Suðaustur-
land: Sunnan eða suövestan
gola og sumstaðar snjókoma i
fyrstu, siðar slydda eða súld,
léttir til þegar liður á daginn
meö vestan kalda eða stinn-
ingskalda.
VEÐRIÐ
HÉR
OG ÞAR
Veður kl. 6 i morgun:
Akureyri skýjað h-5, Helsinki
snjókoma 4-3, Kaupmanna-
höfn þoka 4-3, Osló heiðrikt
4-8, Reykjavik súld 2, Stokk-
hólmur skýjað 4-2, Þórshöfn
snjókoma 4-3.
Veður kl. 18 f gær:
Aþena skýjað 9, Berlfnmistur
4-1, Chicago alskýjað 4-7,
Feneyjar skýjað 1, Frankfurt
snjókoma 4-1, Nuuksnjókoma
4-2, London léttskýjað 2, Lux-
emborg snjókoma 4-3, Las
Palmassúld 14, Mallorka létt-
skýjað 6, Montreal skýjað
4-21, New Yorkheiörikt 4-11,
Paris snjókoma 0, Róm rign-
ing 7, Malaga léttskýjað 8, Vín
mistur 4 5, Winnipeg léttskýj-
að 47.
Loki
segir
Mogginn segir, að aðsókn að
vinveitingahúsum hraðaukist,
en minnki að leikhúsunum.
Kannski leikararnir taki upp
samningaviðræður viö veit-
ingahúsaeigendur um að
flytja leiklistina inn á barina?
Stjórn Skáksambands islands um heimsmeistareinvígið:
Höfum ákveðlö að
ræða vlð stlórnlna
„Við ræddum þetta mál á
fundií stjórn Skáksambands ts-
lands i gærkvöldi. ekki mikið að
visu þvi við eigum von á að
heyra frá FIDE um þetta”,
sagði Ingimar Jónsson for-
seti Skáksambands islands,
er Visir ræddi við hann i morgun
um fyrirhugað hcimsmeistara-
einvigi i skák á milli þeirra Kar-
pov heimsmeistara og áskor-
andans Kortsnoj.
„Það varð ofan á að lita á
þetta mál og hafa i þvi sam-
bandi samband við Friðrik
Ólafsson og kanna málið betur
og fá ráð hjá honum. Þá var
ákveðið að ræða við stjórnvöld.
Þetta yrði fyrsta skrefið i mál-
inu af okkar hálfu að lita á mál-
ið, þetta eru miklar upphæðir
sem um er að ræða”.
— Það ersemsagt áhugi á þvi
hjá Skáksambandinu að reyna
að fá þetta einvigi hingað?
„Það er áhugi þannig að við
viljum gjarnan skoða þetta mál
og athuga hvort er möguleiki á
þvi að við getum sótt um að
halda einvigið. Við höfum fimm
vikur til stefnu og höfum sjálfir
kannað ýmsa þætti málsins, en
við munum ræða við stjörnvöld
innan skamms til að kanna
grundvöllinn frekar”.
gk--
Lýsing á Reykjanesbraut við Öskjuhliðarskóla er mjög léleg eins og sjá má á þcssari mynd. Hún var
tekin i morgun.er gangbrautarvörður stöðvaði umferðina og hleypti nokkrum nemendum yfir götuna.
ökumenn eru beðnir um að l'ara varlega á þessum slóðum, svo og við alla skóla. Það getur verið erfitt
aðgreina krakkana, þegar þeir skjótast yfir götuna i myrkrinu. Vísismynd: EÞS
islenskur
maður banar
konu IUSA
Þrjátiu og tveggja ára gamall
maður, sem fluttist frá íslandi til
Bandarikjanna fyrir þrjátiu ár-
um, varð hálfsystur sinni að
bana, er hann skaut á hana eftir
harðar deilur á heimili foreldr-
anna. Atburðurinn átti sér stað i
Seattle hinn 3. janúar, en hálf-
systir hans, Mary Valdimars,lést
af skotsárinu 9. janúar. Maður-
inn, sem heitir Baldur Svavars-
son, hefur verið ákærður fyrir að
hafa orðið hálfsystur sinni að
bana.
INNBROT
í NESTI
Innbrot var framið i söluskál-
ann Nesti á Artúnshöfða i nótt.
Tilkynning barst til lögreglunnar
um klukkan hálf þrjú og náði hún
manni i grennd við innbrotsstað
með mikið þýfi meðferðis. Að
sögn lögreglu hafði hann tekið
gifurlegt magn tóbaks og sælgæt-
is og flutt i kartöflugeymslurnar i
Artúnsbrekkunni. Rannsóknar-
lögreglan hefur nú málið til
meðferðar. —AS.
Boöa sjómenn verkfall
í byrjun næstu viku?
„Agreiningsefnið var það at-
riði, sem útvegsmenn töldu
ásteytingarstein á sinum tlma,
þ.e.'a.s. afskipti rikisvaldsins af
málefnum sjómanna”, sagði
Öskar Vigfússon, forseti
Sjómannasambands tslands, i
viðtali við Visi i morgun, vegna
viðræðuslita bátasjómanna og
útgerðarmanna.
Höfðu þessir aðilar setið á
löngum samningafundum um
helgina, en skömmu eftir kvöld-
mat i gær slitnaði upp úr
viöræöunum og hafði annar
fundur ekki verið boðaður,
þegar blaöið fór i prentun.
„Otgerðarmenn slitu þess-
um viðræðum” sagði Óskar enn
fremur. „Við töldum að við
hefðum staðið að okkar hluta
þess, sem um hafði verið rætt,
þ.e. að ræða þau mál, sem rikis-
valdið hafði með að gera að
hluta, jólafri sjómanna og lif-
eyrissjóðsiðgjaldamálið. Við
héldum satt að segja, að þessi
mál væru komin það vel af stað,
að óhætt væri að fara i aðra
kröfur en gagnkröfur, eins og
tiðkast i samningaviðræðum.
Þessu neita útvegsmenn ein-
dregið,þótt svo að þeir hafi
hafnað þvi, sem við lögðum til
varðandi iðgjaldagreiðslu lif-
eyrissjóðs og boltinn væri þvi
hjá þeim. En útvegsmenn vildu
ekki una þvi,að rædd yrðu þau
atriði sem ekki stóðu föst, og
slitu þvi viðræðum.”
Flest aðildarfélög Sjómanna-
sambands Islands hafa nú aflað
sér verkfallsheimildar eða
halda fundi þessa dagana. Að-
spurður um, hvert yrði næsta
skref sjómanna i þessu máli,
sagði Óskar.að ekki væri
margt til ráða annað en að beita
þvi eina vopni, sem þeir hefðu,
þ.e. verkfallsvopninu til að
þvinga fram umræður.
„Ef ekki verður breyting á
framkomu útvegsmanna, get ég
ekki séð annað en það dragi til
verkfalls.” Sagðist Óskar búast
við þvi, að hafinn yrði undirbún-
ingur þess i lok þessarar viku og
látið til skarar skriða i byrjun
þeirrar næstu, að öllu óbreyttu.
Enn hefur ekkert miðað i fisk-
verðsákvörðun, en yfirnefnd
Verðlagsráðs sjávarútvegsins
mun koma saman til fundar i
dag til að halda áfram viðræð-
um um nýtt fiskverð.
— JSS