Vísir - 23.01.1981, Síða 1
Föstudagur 23. janúar 1981/ 18 tbl. 71. árg.
„0F LÍTÍÐ ÉF VERÐBÚLGÁN ]
FER AÐEINS NH9UR I 50% j
segir Steingrímur Hermannsson í tilefni at ummælum iðnaðarráðherra ■
„Eg tel ekki nógu miklu náö,
ef verðbólgan fer ekki niður fyr-
ir 50%, eins og ég hef marg-
sagt,” sagði Steingrlmur
Hermannsson, þegar frétta-
maður bar undir hann ummæli
Hjörleifs Guttormssonar, sem
birt voru í Visi, þess efnis að þaö
væri ekkert óefni þótt verðbólg-
an fari I 50% á árinu. „Anriars
ætla ég ekkert að deila við Hjör-
leif f blöðum,” bætti hann við.
„Eins og ég hef sagt hvað eftir
annað, er eitt mikilverðasta
atriðið í þessu samkomulagi,
markmiðið að koma verð-
bólgunni niður I 40%. Að sjálf-
sögðu hljrita stjórnarflokkarnir
að sniia sér að þvi, ef meira
þarf.”
— Finnst þér ekki komið i
óefni, ef verðbólgan næst ekki
niður fyrir 50% ?
„Mér finnst það of litið, jú.
Þess vegna settum við okkur
40% markmið. Hitt er svo annað
mál, að með þeim miklu hækk-
unum, sem urðu i lok siðasta árs
og þjoðin átti ekki fyrir, vegna
þess að þjóðartekjur hafa dreg-
ist saman, var ekki séð hvaðan
á að taka hærri tekjur, þótt
menn séu vel að þeim komnir.
Þess vegna -stefndi i 70—80%
verðbólgu. Þá er útaf fyrir sig
nokkur áfangi að ná henni niður
fyrir 50%, það viðurkenni ég.
En við höfum sett okkur 40%
markmið, og gefumst náttúr-
lega ekki upp við það i upphafi,”
sagði Steingrimur Hermanns-
son.
Þorrinn er kominn, og kokkarnir i Múlakaffi eru tilbúnir i slaginn. Þeir Diðrik Ólafsson og Þóröur Þor-
geirsson, matsveinar i Múlakaffi voru hressir og kátir er Visir heimsótti þá i gær, og hér sjást þeir
hampa þorrabökkum fullum af gómsætum mat. Sjá opnu.
Visismynd GVA.
Er varnarliöíö miðstöð ffkniefnadreifingar?
„Streyma inn á
vðll en ekki út”
„Það hefur verið nánast regla i flestum stærri
málum hjá okkur. að umtalsvert magn fikniefna
hefur farið til dreifingar inn á völlinn frá innlend-
um aðilum”, sagði Guðmundur Gigja hjá Fikni-
efnalögreglunni i samtali við Visi i morgun.
1 grein Ólafs Ólafssonar iand-
læknis á bls. 9 i Visi i dag kemur
fram, að á árunum 1975-76 hafi
langmestur hluti fikniefna borist
til landsins með borgaralega
klæddum hermönnum, sem voru
aðkomatil landsins úr leyfi. Guð-
mundur Gigja benti á, að á árun-
um 1975-76 hafi stórt mál komið
upp á Keflavikurflugvelli þar sem
upplýstist um varnarliða, Kork-
inn svonefndan, sem i félagi við
nokkra aðra varnarliða flutti inn
talsvertmagn fikniefna og dreifði
út af Keflavikurflugvelli.”
„Þetta mál var einstakt i sinni
röð þvi svo stórt mál heíar ekki
komið upp á Vellinum siðan.
Einstöku sinnum hafa minnihátt-
ar mál komið upp á vellinum en
þá hafa fikniefnin nær undan-
tekningarlaust farið til neyslu
innan vallar”, sagði Guðmundur.
Aðspurðursagði Guðmundur,að
samstarf við Bandarikjamenn i
fikniefnamálum væri til staðar,
það er milli yfirmanna á Kefla-
vikurflugvelli og islenskra lög-
regluyfirvalda, en torveldaðist þó
vegna mjög mismunandi laga-
ákvæðasem gilda um þessi mál á
Islandi og i Bandarikjunum. -AS
RíKisverksmlðjurnar:
Verkfalll frestaö
um öákveðlnn tlma
Verkfalli i rikisverksmiðjunum
hefur verið frestað um ótiltekinn
tima, og verður næsti fundur i
deilunni hafinn á mánudag kl. 4.
Verkfallið átti að koma til
framkvæmda á miðnætti sl. nótt.
A fundinum, sem hófst i gær,
hafði þokað nokkuð i samkomu-
lagsátt varðandi niðurröðun i
launaflokka. Stóð hann til kl. hálf
fjögur i nótt, en um helgina ætla
samninganefndarmenn að athuga
tillögur, sem fram komu, og ræða
þær nánar eftir helgina. —JSS
Tllmæil Slómannasambandslns um aðgerðir:
ALLSHERJAR VINNUSTÖDVUN A FLUTANUM
„Það var einróma samþykkt
að beina þeim tilmælum til að-
iidarfélaga Sjómannasambands
tslands, sem aðild eiga að
kjarasamningum sambandsins
annars vegar og LÍÚ og FtB
hins vegar, að boða allsherjar-
vinnustöðvun á fiskiskipaflotan-
um”, sagði óskar Vigfússon
forseti Sjómannasambands
tsiands i viðtali við Visi I gær.
Blaðið náði tali af Óskari að
loknum fundi samninganefndar
og sambandsstjórnar Sjó-
mannasambandsins, þar sem
ofangreind ákvörðun var tekin.
Samkvæmt tilmælum skulu að-
ildarfélög sambandsins boða
verkfall frá og með 9. febrúar á
togurum innan Félags islenska
botnvörpuskipaeigenda og tog-
urum undir 500 brúttólestir. Frá
og með 16. febrúar verði svo
boðað verkfall á bátaflotanum.
Farmanna- og fiskimanna-
samband Islands mun væntan-
lega boða aðgerðir af sinni hálfu
ekki sfðar en n.k. miðvikudag.
Aö þvi er Ingólfur Falsson tjáði
Visi i morgun verður timinn
þangað til notaður til að athuga
hversu mörg aöildarfélög sam-
bandsins hafi aflað sér verk-
fallsheimildar.
—JSS