Vísir - 23.01.1981, Side 4
4
HEILSUGÆSLUSTÖÐ
Á HVOLSVELLI
Heildartilboö óskast í innanhússfrágang á
heilsugæslustöð á Hvolsvelli.
Húsið er ein hæð án kjallara, alls 450 ferm.
brúttó.
Innifalið í verkinu er t.d. múrhúðun, vatns- og
hitalagnir, loftræstikerfi, raflagnir, dúka-
lögn, málun og innréttingasmíði, auk lóðarlög-
unar.
Lóðarlögun skal að fullu lokið 15. sept. 1981, en
innanhússfrágangi 1. maí 1982
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri,
Borgartúni 7, Reykjavík gegn 1000.- kr. skila-
tryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn
10. febrúar 1981, kl. 14.00
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
Útboð
Rafmagnsveitur rikisins óska eftir til-
boðum i smiði á festihlutum úr stáli fyrir
dreifilinur.
Ctboðsgögn nr. 81001 verða seld á skrif-
stofu Rafmagnsveitna rikisins að Lauga-
vegi 118 Reykjavik á kr. 50 frá og með
föstudeginum 23. janúar 1981
Tilboð verða opnuð á skrifstofu okkar
föstudaginn 13. febrúar kl. 14.00 að við-
stöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Rafmagnsveitur rikisins
Utboð
Rafmagnsveitur rikisins óska eftir til-
boðum i smiði á 11 kV rofaskápum fyrir
Eyvindará og Seyðisfjörð.
Útboðsgögn nr. 81002 verða seld á skrif-
stofu okkar að Laugavegi 118 Reykjavik á
kr. 50 frá og með föstudeginum 23. janúar
1981
Tiiboð verða opnuð á skrifstofu okkar
föstudag 27. febrúar kl. 14.00 að viðstödd-
um þeim bjóðendum sem þess óska.
Rafmagnsveitur rikisins
Viðskiptavinir
Guðnýjar Gunnlaugsdóttur
hárgreiðslumeistara
ATHUGIÐ:
Hef opnað
Hárgreiðslustofuna
MEYJAN
Reykjavikurvegi 62, 2. hæð Hafnarfirði,
Simi 54688
Einnig opið á laugardögum kl. 9-12
Nauðungaruppboð
sem auglýst var 1104. og 106. tbl. Lögbirtingablaös 1978 og
2. tbi. þess 1979 á Klapparstig 25-27 þingÚeign Jónasar
Bjarnasonar fer fram eftir kröfu Tryggingast. rikisins á
eigninni sjálfri mánudag 26. janúar 1981 ki. 14.15.
Borgarfógetaembættiö i Reykjavlk
♦ J * *
VISIR
'FöstUdá^ur‘23! jánúár 1981.
Efnahagsmálin,
hðfuðverkur
Reagans forseta
Reagan meöal leiötoga republikana á þingi.
Ronald Reagan erfir eftir
Carter einhverja verstu efna-
hagsörðugleika, sem nokkur
Bandarikjaforseti hefur átt við
að glima á siðari timum, og eru
sérfræöingar ekki á einu máli
um, hvort boðaðar ráðstafanir
hans á þvi sviði munu bæta úr
eða gera illt verra.
Hagfræðingar telja, að i efna-
hagsstefnunni, sem Reagan
boðaði i kosningabaráttunni, sé
fólgin áhætta og þvi geti á ýmsu
oltið. Verður þess beðið viðar en
i Bandarikjunum með mikilli
eftirvæntingu hvernig til tekst.
Verðbólgan þykir aðalvanda-
málið, en hún er nú orðin um
13%, reiknuð á ársgrundvelli.
Atvinnuleysið er lifseigt, eða
um 7.4% Lánavextir fyrir bestu
viðskiptavini bankanna eru um
20%. Framleiðslan gengur
dræmt. Innflutningur er meiri
en útflutningur. Halli er á fjár-
lögum tólfta árið i röð. Bila-
iðnaðurinn berst i bökkum með
Chrysler á barmi gjaldþrots og
stál- og byggingariðnaður i
kreppu.
Reagan hefur sjálfur sagt, að
efnahagsvandinn sé sitt höfuð-
verkefni við að glima. Hefúr
hann markað sér stefnu, sem
hann segir, að muni snúa þróun-
inni viö. Hann hefur lofað að
rétta af hallann á fjárlögunum,
lækka skatta, skera niður út-
gjöld þess opinbera, örva fram-
leiðsluna og auka framlög til
landvarna.
Aðstoðarmenn hans segja, að
tillögur, sem að þessu miði,
verði lagðar fyrir þingið innan
fárra vikna. Þar verður ekki um
að ræða neitt eitt snjallræði,
heldur heila keðju af ráðstöfun-
um. Sennilega vonast Reagan-
stjórnin til þess, að þessar ráð-
stafanir verði samþykktar sem
lög innan þriggja mánaða, sem
eru hinir hefðbundnu „hveiti-
brauðsdagar”, er hver nýr for-
seti fær að njóta í friði fyrir and-
stöðunni til þess að sýna, hvað i
stjórn hans býr.
Nú þarf repúblikaninn,
Reagan, ekki að glima við
meirihluta demókrata á þingi,
eins og flokksbræður hans, sem
seinni árin hafa setið á forseta-
stóli. 1 sömu kosningunum, sem
hann gjörsigraði Carter, fleytti
hann hægrimönnum með sér til
meirihluta i öldungadeildinni,
þótt demókratar hafi enn meiri-
hluta i fulltrúadeild þingsins.
Það eru samt hægrisinnaðri
demókratar, en þar hafa áður
trónað.
I þvi er þó ekki fólgin nein
trygging fyrir framgangi
stjórnarfrumvarpa, þvi að þing-
menn hafa oftsinnis reynst treg-
ir i taumi, þótt flokksbróðir
þeirra sæti i Hvita húsinu, eins
og sást á forsetatið Carters þeg-
ar demókratar voru i meiri-
hluta.
Reagan ætlar sér að varast
skyssurnar, sem Carter gerði
strax i upphafi sins forseta-
ferils, þegar hann misbauð
þingmönnum og fékk jafnvel
flokksbræður sina upp á móti
sér. Hefur Reagan siðustu vik-
urnar, áður en hann tók við em-
bætti, gert sér tiðförult til höfuð-
borgarinnar að hitta þingfull-
trúana aö máli. Og heldur
mýktust þingmenn demókrata i
skapi til hans, þegar hann skip-
aði aö nýju i starf sendiherra
USA i Japan Mike Mansfield,
fyrrum formann þingflokks
demókrata.
En það er eitt að vinna sér
sæmilegan þokka meðal þing-
fulltrúanna og annaö að fá þá til
fylgis með niðurskuröaráform-
um sinum, eins og Reagan verð-
ur að gera, ef hann ætlar að efna
kosningaloforð sitt um sparnað
og 10% skattalækkanir á ári
næstu þrjú ár. Margir eldri og
áhrifamiklir þingmenn kviða
þvi, að það tákni niðurskurð á
framlögum til ýmissa fram-
faramála, hugðarefna, sem þeir
hafa á fyrri þingum fengið fram
komið.
Þetta gera ráðunautar
Reagans sér auðvitaö vel ljóst,
og er ekki örgrannt um, að þeir
eins og hafi hálfvegis dregið i
land mesta broddinn úr
„reaganismanum”, svo að
mörgum þeim hægrisinuðustu
úr stuðningsmannaliði Reagans
hefur þótt jafnvel nóg um. T.d.
hafði Reagan upphaflega sett
sér það markmið að rétta hall-
ann af fjárlögum i siðasta lagi
árið 1983, og kannski jafnvel
1982. Fjármálaráðherra hans,
Donald Regan, hefur nú lýst það
útilokaðan möguleika og ein-
blinir i staðinn á 1984.
Þá hefur einnig heyrst úr búð-
um stjórnarliða, að búast megi
við þvi, að skattalækkanir muni
eitthvað láta eftir sér biða fram
eftir árinu.
Sðpermann
I hlulverki
fatiaðs manns
Christopher Reeve, sem frægur
varö af ,,Súpcrmann”-hlutverk-
inu, hcfur ftestar götur siöan
reynt að hrista það af sér meö
vali á hlutverkum. 1 nýjustu
mynd sinni leikur hann fatlaðan
hermann frá Vietnam og verður
varla fundið ólikara persónugervi
hinum flugfráa Súpermann.
visklhambið
mlnnkar
Heimskreppan otli 5% sam-
drætti i utflutningi á viskfi i fyrra,
og vegna minnkandi eftirspurnar
éiga nú hundruð starfsmanna
þessarar mikilvægustu iðngrein-
ar Skotlands á hættu að missa at-
vinnu sina.
En þrátt fyrir minna magn flutt
út, hækkaði viskiið nóg f verði til
þess að heildsalan úr landi nam
746 mitljónum sterlingspunda,
sem er 5% meira en 1979.
Mest minnkaöi salan til Banda-
rfkjanna, sem voru þó eftir sem
áður stærsti viskfkaupandinn
meö 30% af heitdarútflutningi
Skota. Fluttu Bandaríkjamenn
inn 75 miiljón lftra, sem var 13%
minna magn en 1979.