Vísir - 23.01.1981, Side 12
Veitingahúsið Naust hefur haft
þorramat á boðstóium frá þvi ár-
ið 1958, og frá upphafi hefur hann
verið borinn fram i trogum. Hér
er yfirmatreiðslumaður Nausts
tilbúinn að fagna þorra og bjóða
gestum í bæinn.
—ÞG Visismynd/ Emil.
„Þorrinn er fjórði mánuður
vetrar að fornislensku timatali og
hefst með föstudegi i 13. viku
vetrar (19.—25. janúar). Nafnið
kemur fyrst fyrir i Staðarhólsbók
Grágásar frá 13. öld, en er einnig i
Snorra Eddu, þar sem nöfn mán-
aðanna eru talin upp. Margir
hinna gömlu mánaða bera fleiri
en eitt heiti, en þorri virðist ekki
hafa átt sér neinn slikan keppi-
naut.”
Þetta og ýmislegt fleira um
þorrann segir i bók Arna Björns-
sonar „Saga daganna”. Þorrinn
byrjar i dag og er fyrsti þorra-
dagurinn jafnframt kallaður
bóndadagur, en hvers vegna, við
héldum áfram að blaða i bók
Arna Björnssonar.
— Svo er aö sjá sem það hafi
verið ævagömul venja að hafa
einhvern mannfagnað á heimil-
um fyrsta þorra og heilsa honum
með virktum. Um þetta segir i
Þjóðsögum Jóns Árnasonar frá
miðri 19. öld, að þar var „skylda
bænda” að fagna þorra” eða
„bjóða honum i garð” með þvi að
þeir áttu að fara fyrstir á fætur
allra manna á bænum þann
morgun sem þorri gekk i garö.
Áttu þeir að fara ofan og út i
skyrtunni einni, vera bæði ber-
læraðir og berfættir, en fara i
aðra brókarskálmina og láta hina
svo lafa eða draga hana eftir sér á
öörum fæti i kringum allan bæinn,
draga eftir sér brókina á hinum
og bjóða þorra velkominn i garð
eöa til húsa. Siðan áttu þeir að
halda öllum öðrum bændum úr
byggðarlaginu veislu fyrsta
þorradag. Þetta hét „að fagna
þorra”. Sumstaðar á Norðurlandi
er fyrsti þorradagur enn i dag
kallaður „bóndadagur”.
A þá húsfreyjan að halda vel til
bónda sins og heita þau hátiða-
brigði enn þorrablót.
Mönnum hefur ekki borið alveg
saman um það, hvort hjónanna
ætti að fagna þorra og hvort góu.
Hefur það veriö útbreiddur skiln-
ingur á Vestfjörðum og viðar á
norðvesturhluta landsins, aö
þessu væri öfugt farið við það sem
stendur i þjóðsögunum. Konan
ætti semsé að taka á móti þorra
en bóndinn góunni.
Sinn er sem sagt siðurinn eftir
landshlutum segir i þessari
merku bók. Við bendum á að ef
Þorri byrjar - Bóndadagur í dag:
„A bá húsfreyjan að halda
vel tll hðnda slns og heita
hau hátíðarbrlgðl horrablót”
þaö vefst eitthvað fyrir fólki,
hvort hjónanna á að fagna þorra
og hvort góu, leggjum við bara til
að hjón (og aðrir) fagni sameig-
inlega þorra og hafi svo sama
háttinn á i góubyrjun.
Það sem okkur er einna efst i
huga i þorrabyrjun er þorra-
maturinn, en sagan segir að orðið
þorramatur hafi fyrst sést á
prenti árið 1958. En það var ein-
mitt það ár sem veitingahúsið
„Naust” bauð gestum sinum
fyrst uppá þorramat i trogum. Sá
siður hefur breiðst út og fleiri
fylgt i kjölfarið. Við höfum haft
samband við nokkra aðila sem
hafa þorramat á boðstólum,
kannað verð og fengið aðrar
upplýsingar sem lesendur Visis
geta væntanlega notið góðs af.
Fyrst skal nefna þá upphafsmenn
að þorramat:
Naustið:Þar er þorramaturinn
framreiddur i trogum eins og gert
hefur verið frá upphafi. 1 troginu
eru 17 tegundir matar. Kostar
trogið fyrir manninn krónur 135.-,
og er óskammtað — hver og einn
getur borðað eins og hann getur i
sig látið. Hákarlinn kemur frá
Vopnafirði og harðfiskurinn að
vestan. 1 þorramat Naustsins eru
lika selshreyfar sem liklega er
ekki á boðstólum hjá öðrum aðil
um. Og nýmeti hefur bæst við i ár
en það er reyktur magáll sem
þykir lostæti mikið, að sögn
Guðna Jónssonar i Naustinu.
Múlakaffi: 15 ár eru siðan
Múlakaffi byrjaði með þorramat
,,.. og það eitt er bara tilefni til
stórhátiðar” sagði Stefán Ólafs-
son i Múlakaffi. „Við hér byrjum
að undirbúa komu þorra 20!
september”. í Múlakaffi geta
gestir snætt fyrir krónur 85.-, val-
ið af hlaðborði eftir smekk og
þörfum. Jafnframt eru kassar
seldir á krónur 75.- fyrir mann-
inn, I hverjum kassa eru einar
fimmtán tegundir matar (ca. 1200
gr.) allt sérpakkað. Veitinga-
menni Múlakaffi senda þorramat
lika um allan bæ og sveitir á
þorrablót og matsveinn fylgir
með „til að sjá til þess aö allir fái
nóg” sagði veitingamaðurinn
þar. Fólk sem pantar þorramat
heim, getur einnig fengið leigð
trog með.
Kjötmiðstöðin:
„Undirbúningur einstaka súr-
mats tekur okkur allt að þvi eitt
ár”, sagöi Hrafn Bachmann i
Kjötmiðstöðinni. Bakkinn af
þorramat kostar hjá þeim krónur
35. og vegur um 900 gr. Gat Hrafn
þess að þorramatur á tveimur
bökkum væri liklega hæfilegur
skammtur fyrir þrjá.
Eins og fleiri senda þeir hjá
Kjötmiðstöðinni þorramatinn út
um allt land og „er smekkur
manna misjafn eftir landshlut-
um” og þá ræður fólk hvað mikið
er pantað af hverri matartegund.
Þorrablót Islendinga erlendis
hafa færst í vöxt undanfarin ár og
að sögn Hrafns I kjötmiðstöðinni
senda þeir þorramat út fyrir
hólmann í stórum skömmtum.
SS. Glæsibæ
„Við erum hér með stóra og
fallega þorrabakka” sagði Guð-
mundur Gestsson hjá Sláturfélagi
Suöurlands í Glæsibæ. A bakkan-
um er allur venjulegur súrmatur,
heill sviðakjammi og hangikjöt
Hver bakki er liklega um 1 kg og
kostar krónur 45.
Kjötverslun Tómasar:
„Við höfum blandaðan súrmat i
fötum”, sagði Hilmar Svavarsson
hjá Kjötverslun Tómasar. 1
hverri fötu eru 8 tegundir af súr-
mat og kostar hver fata krónur
65., er um 11/2 kg matar i tveggja
litra fötu. Svo er auðvitað allt
annaö á boðstólum, hangikjöt,
harðfiskur, sviðasulta og það sem
hver vill hafa með.
Frá Kjötverslun Tómasar er
lika sendur þorramatur á þorra-
blótin út um borg og bæ. Þá er
kostnaður fyrir manninn krónur
60. ef um til dæmis 100 manna
þorrablót er að ræöa, aöeins dýr-
ara fyrir manninn þegar fámenn-
ari þorrablót eru.
Nýir staðir bætast I hópinn ár
hvert og nú er það Askur sem
býður upp á þorramat i fyrsta
skipti.
Askborgarinn:
Undirbúningur hefur staðið
lengi þar, til að fagna þorra vel,
eins og reyndar á hinum stöðun-
um lika. A Askborgaranum getur
fólk keypt bakka, á krónur 75., og
eru 14 tegundir súrmats og öllum
öðrum mat sem við á.
Veitingamaðurinn:
Það er framleiðslufyrirtæki
fyrir Ask, sem sendir svo þorra-
matinn á Þorrablótin eftir pöntun
viðskiptavina.
Kostnaður fyrir hvern eru
krónur 80. , ef til dæmis um
áttatiu manna þorrablót er að
ræða og færri, en ef fjöldinn fer i
150 manns lækkar kostnaður
hvers niður i krónur 75., og enn-
lægra ef tala gesta hækkar. Fyrir
þá sem þess óska eru leigð trog I
heimahús.
Askur (Laugavegi 28.
Þar verður framreiddur þorra-
matur i fyrsta sinn i ár og segja
þeir að „þar sé þorramaturinn
framreiddur i aski og það stærsta
aski landsins”. Þar er skammt-
urinn ótakmarkaður, gestir velja
sjálfir Ur askinum fyrir krónur 90.
Að svo mæltu... vonum við að
fólk fagni þorra vel og öllum veröi
fært að þreyja fram á þorraþræl.
—ÞG
Fullthús matarhjá Kjötmiðstöðinni eins og venjulega .hvao megum
við bjóða, bakka eða tunnu?
ÞG Visismynd/ Emil.
Heilar tunnur af súrmat biða hjá Veitingamanninum, fólk ræður svo
hvernig það viii snæða hann, i stærsta aski iandsins, úr litlum trogum
eða fá hann með sér heim i kössum.
ÞG Vlsismynd/ Emil.
***? v**'-
14• o « *
Hárgreiðsla
vikunnar
I \ i ii valiiui scni liargrriösla
vikiinnai vai þessi priinaii-
rnt-hargreiðsla. ..Svona har
greiðsla lieiiir \erið nokkuð
lengi i lisku og \ irðist a’tla að
lialda velli eim um siiiu''. sagði
lia rgreiðslu iiieislariiiii Duddi,
seni a heiðurinn al hargreiðslu
\ ikiinnar. A llárgreiðsliislofu
Dúdda leiigum við þa*r upplvs-
ingar varðaudi liargreiðslu
þessa. að h\ rjað er a þ\ i aðselja
Irtt permanent i harið islúiai
spolur uolaðai'i. Þegar það allt
er a I st a ð ið e r s e 11 u r
..krem \ok\i" sem serl ra'ðing-
arnir iietua ,.jell\" i harið.
\ iik\ iuit auðveldar meðlerð
hai'sius og meiri l\ ftingur \eið-
ur i hai i11ii. l’ei manrnlið er goð
undirstaða. margir miiguleikar
erusiðan lyrir konur þegar þa’i'
\elja hargreiðslu eltir að
permaiieiilið lielur verið sett i
liariö. 11argreiðsla \ikuiiuar er
eiutöld harið \ar þurrkað i ser-
sloklim Ijosum og siðan krullað
letl með lieitum hursta.
tlg \ ið lutuui fvlgja með það
sem Duddi halði a orði uiii har-
greiðsluna: ..\ldur kvcnna
skiptir engu inali. .\ler hefur
fundist s\ona hargreiðsla með
niismuiiandi tilhrigðum kla'ða
flestar konur”.