Vísir - 23.01.1981, Page 13
Föstudagur 23. janúar 1981.
VÍSIR
13
- (Sveinskoti á Alftanesi
Flatkökubakstur er gamall og
góður siður, og varla er borinn
fram matur nii á þorranum svo
ekki séu flatkökur á borðum.
Hin hefðbundna aðferð við að
baka flatkökur hefur mörgum
húsmæðrum verið þyrnir i aug-
um. Kökurnar eru bakaðar á
eldavélahellum og þykir mörg-
um að lyktin eða „brælan” sem
fylgir þessari bökunaraðferð, sé
enginn aufUsugestur eða hibýla-
bót.
Margrét Sveinsdóttir i Sveins-
koti á Álftanesi er ein þeirra
kvenna sem hefur bakað flat-
kökur árum saman og er það
eins og hUn segir sjálf „eitt það
allra skemmtilegasta sem ég
geri”. En hennar aðferð við
flatkökubaksturinn er frá-
brugðin gömlu hefðbundnu að-
ferðinni. Þetta höfðum við frétt
og ókum suður á Alftanes til að
forvitnast nánar. Hittum á Mar-
gréti i bilskúrnum i Sveinskoti
en þar fer flatkökubaksturinn
fram.
Margrét segist hafa lært
þessa aðferð af fólki fyrir
austan, en á Austfjörðum tiðk-
ast þetta viða. 1 hverju er svo
þessi aðferð fólgin... jú, við
baksturinn er notað gastæki og
minnir helst á „logsuðuaðferð”.
Slanga er fest við kosangastæki,
og stútur settur á slönguna. Og
siðan eru flatkökurnar úðaðar
með gasloganum. Sé þessi að-
ferð notuð tekur mun skemmri
tima að baka flatkökurnar og
við losnum við „bræluna”. En
eitt verður þó að taka skýrt
fram, þetta verður að fara fram
helst i bilskúr eða einhverju
„útihúsi”, gasið getum við ekki
notað inni i eldhúsi.
Vegna þess hve Margrét hefur
mikla ánægju af þess og telur
eins og fleiri að flatkökubakstur
sé góður siður, hefur hún viljað
kenna þetta ungum nágranna-
konum sinum. Tvær voru hjá
henni þennan dag, Hafdis
Einarsdóttir, sem nú þegar er
orðin „hnoðunarsérfræðingur”
og Mari'n Magnúsdóttir, sem
fékk að baka eða „úða” flatkök-
ur i fyrsta sinn. Myndimar sem
hér birtast rneð segja sina sögu,
svo við vonum að þessi aust-
firska bakstursaðferð nái til
þeirra, sem áhuga hafa á að
baka flatkökur nú á þorranum.
Uppskriftin af flatkökum,
sem við birtum i dag, er frá
Margréti Sigurðardóttur i
Sveinskoti. —ÞG
1 kg haframjöl
(má einnig vera heilhveiti með
haframjölinu, minnka þá hafra-
mjölsskammtinn)
1/2 kg rúgmjöl
1 1/2 msk salt
1 msk gerduft
1 msk sykur
Allt sett I skál, bleytt i þurrefn-
unum með 1 1/2 litra af sjóðandi
vatni. Siðan hnoðað upp með
hveiti (eða heilhveiti). Flatt út,
þvi þynnra þvi betra. Kökurnar
skornar út til dæmis getum við
notað disk eða mótað þær með
pottloki.
Marfn Magnúsdóttir bakar
fyrstu flatkökuna. Þegar verk-
inu var lokiö sagði Marfn:
„Heyrðu Margrét, af hverju er
þetta allt öðruvisi hjá mér en
þér”, en fyrsta kaka Marinar
fékk annan lit en kökur mcistar-
ans. Þetta með æfinguna, er þaö
ekki hún sem skapar meistar-
ann —ÞG Visismynd Emil
SPÖfíUM
RAFORKU
ORKUSPARNAÐARVIKA:
Margrét Sigurðardóttir sýnir okkur hér hvernig hún „úðar” flat- |
kökurnar. Kakan er á pönnukökupönnu stórri járnplötu hefur verið |
komiðfyrir undir pönnuna asbestplötu getum við iika notað og væri |
jafnvel enn betra. Gaskúturinn sem slangan er tengd við er á gólf- g
inu. Kakan er úðuð meðloganum augnablik á hvorri hlið.
—ÞG/Visismynd Emil g
Haikðkur „úðaöar";
; Ráð
; dagsins
1. Slökkvum Ijósin þegar við
I förum.
I 2. Notum rétta lýsingu.
I - 3. Flúrpipur.
■ 4. Spegilperur.
■ 5. Höldum ljósunum hreinum.
| 6. Kaffivélar.
| 7. Notum hitakönnur.
| 8. Sjóðum i litlu vatni.
g 9. Hraðsuðupottar.
■ 10. Notum hraðsuðukatla.
1. Venjum okkur á að slökkva
ljósin þegar við yfirgefum
vistarverur. Þetta á bæði við
um glóperur og flúrljós.
2. Lýsingin þarf að vera rétt.
Hún má hvorki vera of litil né
né valda ofbirtu. Best er að
hún beinist sem mest að þvi
sem horfterá, en ekki framan
i áhorfandann. Auk þess þarf
að vera hæfileg birta i her-
berginu. Ljósir fletir endur-
kasta birtunni miklu betur en
dökkir. Veljum þvi fremur
ljósa liti en dökka, þá þarf
minni lýsingu. 1 lampa sem
eingöngu eru til skrauts er
best að nota perur sem taka
litinn straum, t.d. 15W.
3. Flúrpipur gefa um 6 sinnum
meira ljós en glóperur miðað
við sömu raforkunotkun.
4. Spegilperur safna ljósinu
saman og beina þvi i ákveðna
átt. Birta frá 40W spegilperu
er svipuð og frá 75W venju-
legri glóperu, en nær til minna
svæðis. Notum spegilperur
þar sem við á, t.d. geta þær
hentað i leslampa og önnur
vinnuljós.
5. Ryk, fita og önnur óhreinindi á
perum og skermum getur
minnkað ljósiðum allt að 30%.
Hreinsum þvi lampa og perur
reglulega.
6. Það þarf um 30% minni orku
við að laga kaffi i kaffivél en
þegar „hellt er upp á könn-
una”. Auk þess er ekki hitað
meira vatn en notað er.
7. Notum hitakönnu til að halda
kaffinu heitu, en ekki hitaplöt-
una á kaffivélinni.
8. Sjóðum kartöflur, grænmeti
og egg i eins litlu vatni og
mögulegt er. A hitaveitusvæð-
um er hagkvæmt að nota heitt
kranavatn við suðu matvæla.
9. Þegar matreitt er i hraðsuðu-
potti styttist timinn sem mat-
reiðslan tekur, allt niður i
þriðjung. Með þessu móti
minnkar raforkunotkunin um
allt að 40%. Raforkusparnað-
ur næst þó fyrst þegar suðu-
timinn er yfir 30 minútur i
venjulegum potti.
10. Við suðu á vatni er notuð
helmingi minni orka ef notað-
ur er hraðsuðuketill i stað
potts. Auk þess er suðutiminn
mun styttri.
■
■
spörum
RAFORKU
Or
\cuspar
oaður
-•-6ða*'ia"
V\
Viö gerum ekki upp á
AHirfá sama
Lítíð sýnishorn af
• Sa/tar rúllupylsur
kg-v<
Hangiframpartur
• Hangiframpartur úrbeinaður
kg-verð kr. 52,40
• Haframjöl Só/grjón 1 kg
Verð kr. 8.00
• Perur 1/2 dósir Libby's
• B/andaðir ávextir Libby's
Verð kr. 17.40
® Kjúklingar 5 stk. i kassa
• Lambahjörtu, vakúmpökkuð
kg-verð kr. 17,í
• Lambanýru, vakúmpökkuð
kg-verð kr. 17
• Lamba/ifur, vakúmpökkuð
• WC-pappír 12 rú/lur
i pakkningu
Verð kr. 25.75
Strásykur 25 kg.
kg-verð kr. 8,70
C-11 þvottaefni 3 kgpakkning
kg-verð kr. 11,05
Heimsendingarþjónusta
á miðvikudögum
OPIÐ: föstudaga kl. 9-22
laugardaga kl. 9—12
í Matvörudeild og Rafdeild
Jlif
A A A A A A %
Jón Loftsson hf
Hringbraut 121
— —J L.IU 3J
: .jui iujjí:;
taaMíTKiaiiiwiuHliitaii:.
Sími 10600
Fyrst um sinn er
opið í:
★ Byggingavörudeild
★ Húsgagnadeild
★ Teppadei/d
til kl. 19 á föstudögum,
en lokað á laugardögum
VORU-
KVMNINGAR
ALLA
FÖSTUDAGA
KL. 14-20