Vísir - 23.01.1981, Side 28
wssm
Föstudagur 23. janúar 1981
síminn er86611
veðurspá
dagsins
Um 600 km' suð-vestur af'
Vestmannaeyjum er 998 mb
lægð sem fer norðaustur,
verður lægðin sennilega yfir
austanverðu landinu siðdegis.
Frost verður um allt land i
kvöld og nótt. Veðurhorfur
næsta sólarhring.
Suðurland til Faxaflóa:
Austan og norðaustan
stinningskaldi og dálitil
slydda eða snjókoma framan
af degi en gengur siðdegis i
vestan stinningskalda með
éljum.
Breiðafjörður:
Hægviðri og skýjað fyrst,
norðan eða norðaustan
stinningskaldi og él þegar lið-
ur á daginn og i nótt.
Vestfirðir:
Hægviðri og skýjað fyrst, all-
hvasst eða hvasst og snjó-
koma siðdegis og i nótt, eink-
um norðan til.
Strandir og Norðurland vestra
til Austurlands að Glettingi:
Hægviðri og skýjað fyrst,
austan stinningskaldi og dálit-
il snjókoma siðdegis, norð-
austan stinningskaldi eða all-
hvasst og éljaveður i nótt.
Austfiröir:
Austan gola og skýjað fyrst,
austan eða suðaustan stinn-
ingskaldi eða allhvasst og
slydda eða rigning þegar kem-
ur fram á daginn, vestan
stinningskaldi eða allhvasst
og bjart veður með kvöldinu.
Suðausturland:
Allhvasst austan með slyddu
og siðar rigningu en gengur
siðdegis i vestan stinnings-
kalda meðslydduéljum vestan
til.
veðrið
Veður kl. 6 i morgun:
Akureyri alskýjað 0, Bergen
súld 4, Helsinki þoka O,
Kaupm.höfn þoka O. Osló
þoka 0, Reykjavikúrkoma 0,
Þórshöfn súld 8.
Veður kl. 18 i gær:
Aþena rigning 11. Berlinheið-
rikt -r 4, Chicago léttskýjað 4,
Feneyjarheiðrikt3, Frankfurt
þokumóða -h3, Nuuk snjó-
koma -=-10, London þokumóða
10, Luxemborgmistur O, Las
Palmas léttskýjað 18, Mall-
orkaskýjað 12, Montrealsnjó-
'koma 4-4, New?Yorkmistur 3, '
Paris þokumóða 6, Róm heið-
rikt 6, Malaga þokumóða 12,
Vin alskýjað 4-1, Winnipeg
léttskýjað 4 4.
LOKI
segir
Dagblaðið spáir Sjálfstæðis-
flokknum 28 þingmönnum, ef
kosið væri núna. Segið svo, að
það borgi sig ekki að klofna!
Enn verið að kaupa
togara frá Noregi?
Enn einn togari er að
bætast í fiskiskipaflota
íslendinga, ef marka
má upplýsingar þar að
lútandi frá Noregi.
1 norska blaðinu Finnmarken
frá 9. janúar, er frétt þess efnis,
að stolt Suður-Varangerflotans,
togarinn Bugöyfisk, sé á förum
til Islands, þar sem islenskir að-
ilar hafi fest kaup i honum.
Fréttaritari Visis i Noregi,
Jón Einar Guðjónsson, hafði
simasamband við seljandann,
sem staðfesti að rétt væri farið
með i blaðinu, én neitaði hins
vegarað segja hver kaupandinn
væri og hvaða verð væri greitt.
Hér heima var leitað staðfest-
ingar á þessari frétt, hjá Llú,
Framkvæmdastofnun, Fisk-
veiðasjóði, Viðskiptaráðuneyt-
inu og Sjávarútvegsráöuneyt-
inu, en enginn kannaðist við aö
hafa nokkra þekkingu á málinu,
enginn viðmælenda frétta-
manns hafði raunar heyrt á
kaupin minnst.
Sjávarútvegsráðherra sagði
m.a.: „Það hefur ekki komið á
mitt borð og ekki nein slik um-
sókn neins staðar, sem ég veit
um.
Það hafa að visu ýmsir komið
hér með alls konar gylliboð um
skip frá ýmsum löndum, en þeir
hafa allir fengið algjört aísvar.
Þeim hefur verið bent á, að það
sé skilyrði að jafnmikið fari út,
ef um endurnýjun sé að ræða.
Reglur Fiskveiðasjóðs gildi og
lengra verði ekki gengið”.
Togarinn Bugöyfisk er systur-
skip togaranna Mai og Tálkn-
firðings, byggt 1979 og er með
frystitæki um borð.
— SV/JEG NOREGI
Leggja Loftleiðamenn níður sltt félag?
Flugmenn allir
í eítt félag?
Flogið hefur fyrir að Félag
Loftleiðaflugmanna hyggist
leggja félag sitt niður og sækja
um inngöngu i Félag islenskra at-
vinnuflugmanna, FIA. Visir hafði
tal af forráðamönnum flugfélag-
anna i morgun og vildu þeir
hvorki játa þvi eða neita að um-
ræður færu fram um þetta mál.
Baldur Oddsson formaður Fé-
lags Loftleiðaflugmanna, sagði,
að þetta væri aðeins uppástunga
sem hefði komið fram og ekkert
meira um málið að segja. Gunnar
Guðjónsson, varaformaður FIA,
sagði þetta hafa verið rætt eitt-
hvað manna á meðal, en málið
væri ekki komið upp á yfirborðið
ennþá. Vildi hann engar yfirlýs-
ingar gefa um undirtektir
FlA-manna ef Loftleiðamenn
óskuðu eftir inngöngu, að svo
komnu máli.
Flugmenn Loftleiða klufu sig úr
FÍA árið 1975 og stofnuðu eigiö fé-
lag. Hafa félögin siðan oft og tið-
um verið að hnotabitast opinber-
lega og andað köldu á milli
þeirra. Flugmenn Flugleiða hafa
haft lausa kjarasamninga i meira
en eitt ár. Hafa engar viðræður
farið fram eftir að siðasta til-
raunin til að sameina starfsald-
urslista félaganna fór út um þúfur
fyrir áramót.
—SG
Starfsmenn gosdrykkjaverksmlðja fjölmenna
hjá forsætlsráðherra í dag:
Hyggjast mótmæia
vörugjaldl á gosið
Um tvöleytið I dag verður vænt-
anlega mikið um að vera við
stjórnarráðið i Reykjavik. Þá
ætla allir starfsmenn gosdrykkja-
verksmiðjanna þriggja að fjöl-
menna á fund Gunnars Thorodd-
sen forsætisráðherra og afhenda
honum mótmæli sin.
Verður farið á bilum fyrirtækj-
anna á fund forsætisráðherra og
honum afhent bréf, sem trúnað-
armenn vinnustaðanna þriggja
skrifa undir fyrir hönd starfs-
fólksins. Þarer 30% vörugjaldi á
gosdrykkjaiðnaðinn mótmælt og
þeim tilmælum beint til forsætis-
ráðherra, að það eða sérstakt
timabundið vörugjald verði fellt
niður eða dreift á fleiri atvinnu-
greinar. Með þeim hætti einum
verði hægt að vinna gegn sam-
drætti i viðkomandi atvinnugrein
og tryggja atvinnuöryggi á annað
hundrað manns.
Að sögn Ásgrims Guðmunds-
sonar trúnaðarmanns starfsfólks
hjá Vifilfelli hf. var ákvörðun um
þessar samræmdu aðgerðir tekin
á fundum starfsfólks i fyrirtækj-
unum þrem. —JSS
LÆGRI SKATTAR Á NESINU
„Við ákváðum að nýta tekju-
stofnana ekki að fullu, við leggj-
um 10% útsvar á. I hæsta lagi
10,5% og fasteignagjöldin verða
0.4% I stað 0.5%, eins og leyfi-
legt er,” sagði Magnús Erlends-
son, forseti bæjarstjórnar á Sel-
tjarnarnesi i viðtali við Visi.
„Við höfum þennan fyrirvara
um Utsvarið, vegna þess að
áætlanir Þjóöhagsstofnunar um
tekjuaukningu milli ára, hafa
ekki alltaf staðist. Þess vegna
höfum við heimildina til aö auka
álagninguna um 0.5%, en við
miðum við að nota 10% álagn-
ingu.
Þetta þýðir að maður með
meðaltekjur, sem býr austan
við Nesveg.þ.e.a.s. i Reykjavik,
hann getur þurft að borga allt að
hálfri milljón gamalla króna
meira i Utsvar og fasteignagjöld
en jafningi hans sem býr vestan
götunnar, hjá okkur,” sagði
MagnUs.
SV
Þær hölðu nóg að gera sauma-
kouurnar hjá HENSON sport-
fantaði i gær þegar verið var að
saunia nýjan búning á hæsta
niann islands — Pétur Guð-
mundsson, köfuknattleiksmann
úr Val, sem leikur með \'als-
mönnum gegn \'jarðvikingum i
Njarðvik i kvöld. Pétur er 2,17
m á hæð. Hér á myndinni sést
Karitas Jónsdóttir. verkstjóri
hjá HENSON, taka mál af Pétri,
en i dag Ijúka saumakonurnar.
við að ganga frá búningnum —
nýju fötunum hans Péturs.
Visism. Þráinn.
Enn áttu kost á Coltinum
Nýir áskrifendur fá getraunasedi/ /augardag.
Vertu Vísisáskrifandi. Sími 86611