Vísir - 24.02.1981, Page 2
2
í Hlíöarf jalli viö Akureyri.
Ferðu oft á skiði?
Magnús Þórhallsson: — Eg fer
eins oft og ég get, þvi þaB er ofsa-
lega gaman.
Anna Kolbrún Arnadóttir: — Nei,
ekki mjög oft, bara stundum.
Anton Kr. Stefánsson: — Já, ég
hef gert það i vetur, en þetta er
fyrsti veturinn sem ég stunda
skiöaferðir.
f
Birgitta M. Birgisdóttir:— Já, já,
eins oft og ég get, en ég er ekkert
ofsalega góö, kannski svolitið
góö.
Hanna Birna Sigurbjörnsdóttir:
— Já, eins oft og ég get.
VÍSIR
Þriðjudagur 24. febrúar 1981
„ÞETT> HEFIIR EKKERT
MEB GAFUR AB GERK"
'v
segir Baldur Símonarson, marglaldur slgurvegarl I spurningakeppni hllóðvarpsins
„Þetta hefur ekkert með gáfur
að gera. Ég held, að i leik sem
þessum komi það sér best að hafa
gott minni og vera fljótur að gripa
til þess”, sagði Baidur Simonar-
son, sem hefur sigrað hvern
keppinautinn af öörum i spurn-
ingakeppni útvarpsins, „Veistu
svariö?”
— Ertu vel lesinn maður?
„Kannski er skýringin á
velgengninni i þáttunum helst sú,
að ég er ákaflega óvandlátur á
lesefni. Ég les þvi oft ýmislegt,
sem litið hefur komið mér að not-
um fyrr en núna”.
— Finnst þér gaman að taka
þátt i þessum leik?
„Já, að visu fannst mér dálitið
strembið fyrst að sitja einangr-
aður i stúdiói með heyrnartól á
höfðinu og sjá ekkert annað en
Esjuna. Það hefur þó vafalaust
hjálpað mér mikið, að nú situr
Margrét Guðmundsdóttir hjá
mér, mér til halds og trausts. Það
gæti verið skýringin að þvi, að
sunnanmenn eru nú aðeins farnir
að velgja norðanmönnum undir
uggum, þvi að áður en ég byrjaði
þurftu þátttakendur sunnan heiða
að sitja aleinir og einangraðir i
stúdiói 4”.
— Nú urðuð þið Erlingur
Sigurðarson frá Akureyri jafnir i
siðasta þætti og verðið að keppa
aftur. Það sem þig vantaði upp á
Baldur Simonarson, lifefnafræðingur.
Vlsismynd: EÞS
að sigra i fjórða skiptið i röð var
að þekkja rödd John Lennon i lag-
inu „Imagine”. Ert þú litill
popp-aðdáandi?
„Mér er eiginlega alveg sama
um Bitlana og popptónlist yfir-
leitt og rugla ýmsu saman á þvi
sviði. Ég gengst sem sagt ekkert
upp i poppinu, en hef þó ekkert á
móti þvi — hlusta til dæmis á
„Óskalög sjúklinga” og ámóta
þætti.
Ég hef meira gaman af sigildri
tónlist og þá ekki siður islenskri
tónlist eins og þeirri, sem gjarnan
er spurt um i þáttunum, og
gengur undir nafninu „siðasta lag
fyrir fréttir”. Ég þekki hana
nokkuð vel og hef auk þess gott
minniá raddir.
Við gerum okkur það stundum
til gamans i kaffistofunni að
spreyta okkur á þvi, hver syngi
siðasta lag fyrir fréttir, eftir
hvern lagið er og svo framvegis,
og mér hefur gengið vel og hef
fengið nokkra æfingu i þessum
þætti spurninganna”.
— Nú keppið þið Erlingur
Sigurðarson aftur á sunnudaginn
kemur. Ætlar þú að sigra hann?
„Það verður að koma i ljós. Ég
lit annars ekki mjög alvarlega á
þessa keppni og tek hana ekki
nærri mér, ekki frekar en ef ég
væri að tapa i „Ólsen Ólsen” fyrir
krökkunum. Krakkar eru annars
að minum dómi eina fólkið, sem
hægt er að spila við — þeir
fullorðnu taka leikinn alltof
hátiðlega”, sagði Baldur.
Baldur Simonarson er lifefna-
fræðingur að mennt og starfar að
Keldum. Þar vinnur hann að
efnamælingum og rannsóknum,
sem tengjast búfjársjúkdómum.
Þá kennir hann einnig i lækna-
deild Háskóla Islands. — ATA
Þessi breytta stefna
ráðherra i inálinu vekur
óneitanlega þann grun, aö
ekki hafi veriö um eins
mikiö svinarl aö ræöa
eins og hann vildi vera
láta i upphafi.
Einn enn
Þaö var cinu sinni
Hafnfirðingur sem hall-
aöi sérupp að vegg. Svo
datt veggurinn. Hvers
vegna?
Sá vægir, sem vitið hef-
ur nteira.
Vlða er
sparað
Viöa er sparað þessa
dagana og veitir vist ekki
af i harðiudunum. Muna
vafalaust margir eftir
þvi, þegar upp kom sú
spurning, hvort Reykja-
vikurborg ætti aö halda
uppi graðhestum. Varð
þá ofan á, aö borgin ætti
ekki að standa straum af
sliku stússi.
Spannst af þessu nokk-
ur umræða og spuröi
Visis-Loki þá m.a. hvort
þarna gæti verið um aö
ræða sparnaöarlið i opin-
berum rekstri. Sé raunin
sú, þá halda fleiri bæjar-
félög aö sér höndununt i
þessum efnum. Til dæmis
hætti ólafsfjarðarbær að
halda graöhest nú fyrir
áramótin. Mega ráða-
menn umræddra staða
sjálfsagt þakka sinum
sæla, aö þaö skuli vera
menn cn ckki tiltckinn
búsmali, kvenkyns, sem
veita þeim brautargengi
til trúnaðarstarfa.
Þrðunarað-
stoð við
BandaríKln
Fyrir skömtnu lcit nýtt
fiskverö dagsins Ijós,
eftir meiri og þyngri hrið-
ir en oftast áöur.
Þaö kom á daginn, i
sambandi við fiskverðsá-
kvörðunina, að Kanar
skammta okkur verö af
svo smásálarlegu knifirii
fyrir freöfiskinn, að rikis-
kassinn verður aö draga
úr skattheimtunni til aö
frystihúsin fari ckki á
hausinn.
En þetta gerir ekkert
til, þvi að fátæku þjóöirn-
ar- seni kaupa af okkur
skrciðogsaltfisk,sjá ekki
viö okkur og viö getum
selt þeim vöruna svo
dýra, aö hægt er aö bæta
tapið á freðfiskinum meö
að skattlcggja skreiðina
og saitfiskinn þeirn mun
meira.
Og nú tala menn um
þróunaraöstoð islendinga
við Bandarikin — en
Nigeria borgar.
Faðirvorlð
Salvör litla var nýbúin
að læra Faðir vorið og
æfði sig á þvi seint og
snemma. Einverju sinni
varö mömmu hennar
gengið fram hjá herberg-
inu hennar, i þann mund
sem bænastundin var að
hefjast. Heyrði hún þá, aö
stelpan byrjaði meö til-
finningaþunga hins sann-
kristna manns:
„Það cr vor.”
Allur er
varinn góður
Jónsi gamli var sann-
kristinn maður. Hann
hafði lesið Bibliuna sina
aftur á bak og áfram og
tók hvert orð bókstaflega,
sem þar stóö.
Og það var einmitt þess
vegna sem hann troðfyllti
alltaf alla vasa af grjóti á
uppstigningardag.
Engln lurða
Björgunars veitin á
Húsavik var fyrir nokkru
við sigæfingar i Asbyrgi.
Gekk allt vel og sigu
björgunarsveitarmenn
niöur hver af öðrum. Þeg-
ar sá næstsiöasti átti aö
fara, bar svo viö, aö hann
vildi ekki niður, alveg
sama hvernig reynt var,
heldur fór alltaf upp i loft-
ið og áttu menn fullt i
fangi með að
hentja hann.
Skildi enginn neitt I
neinu fyrr en sannleikur-
inn kom I ljós. Maðurinn
var Mývetningur!
Af sem
áður var
Svo virðist scm Alu-
suisse-máliö svokallaöa
ætli aö fá annan endi en
upphaflega haföi vcriö
ætlaö.
Iðnaðarráðherra veitir
engar upplýsingar um
i n n i h a 1 d A 1 u -
suisse-skýrslunnar.
Þegar málið kom upp i
iðnaðarráðuneytinu var
fjöimiölum samstundis
send tilkynning um óguð-
lega liækkun á súráli „I
hafi” sem kallað cr. Boö-
aöi Hjörleifur Guttorms-
son ráöhcrra til fundar
meö fréttamönnum, þar
sem hann geröi glögga
grein fyrir máiavöxtum.
Þurfti enginn að ganga
bónleiöur til búöar, eftir
að hafa leitað upplýsinga
hjá ráöherra.
En svo brá við, aö þeg-
ar skýrsla Alusuisse um
málið lá fyrir i ráðuncyt-
inu, 'varö ekki togað orö
upp úr neinum um inni-
hald hcnnar. Hjörleifur
kvað hana vera trúnaðar-
mál, samkvæmt sam-
komulagi milli ráðuneyt-
isins og Alusuisse. Yrði ef
til vill greint frá innihaldi
hennar, siðar, ef til vill
aldrei.
Umsjón:
Jóhanna S. Sigþórsdóttir
blaöamaður