Vísir - 24.02.1981, Page 3
Þriöjudagur 24. febrúar 1981
VÍSIR
Ferðamannastraumurinn til landsins virðist eitthvað hafa aukist f
janúar, ef miðað er við sama mánuð i fyrra.
ferbamOnn-
UMFJÖLBAR
Heldur hefur umferðin til
landsins aukistfrá þvi i fyrra, eft-
ir þvi sem fram kemur i janú-
ar-yfirliti lögreglustjórans i
Reykjavik um komu farþega tii
landsins með skipum og fiugvél-
um.
Tillandsinskomu 5239 farþegar
i janúar ’81 en 4444 i janúar i
fyrra. Langflestir farþeganna
voru islendingar, 2948, en voru
2453 i fyrra.
Af öðru þjóðerni voru Banda-
rikjamenn langflestir 885, Danir
næstir, 504 og Sviar 195.
Einn farþegi kom frá hverju
landanna: Boliviu, Chile, Domi-
niska 'lýðv., Guyana, Libanon,
Möltu og Thailandi. SV
Fékk ekki aö sjá teikn
ingar af eigin húsi
e .1.1’_••___ ; u.'.r. M aftnrinn cnm um r
Einn af stjórnarniönnum i Hús
eigendafélaginu i Hamrabergi
hefur gert árangurslausa tilraun
til þess að fá að sjá teikningu af
húsi þvi sem hann hafði keypt af
Framkvæmdamefnd byggingar-
áætlunar, en Visir hefur að
undanförnu sagt frá þvi, að frá-
gangi þessara húsa hafi verið
ábótavant.
Maðurinn. sem um ræðir er i
stjórn Húseigendafélagsins i
Hamrabergi og á þar ibúð, en það
kom fyrir ekki, honum var tjáð i
Teiknistofunni h/f i Ármúla að
Framkvæmdanefndin hefði lagt
blátt bann við þvi, að teikningar
húsanna væru afhentar.
gk—■
Bandaiag kvenna með fjársöfnun
á ári fatlaðra:
Kaupa „taugagreini”
fyrir Borgarsjúkrahús
Bandalag kvenna i Reykjavik
hefur ákveðið i tilefni af alþjóð-
legu ári fatlaðra aö málefni
fatlaðra hafi forgang á verkefna-
skrá félagsins á þessu ári.
Félagið vill leggja sitt af mörk-
um með þvi að auka tækjakost til
endurhæfingar i Borgarspitalan-
um og hefur ákveðið að kaupa i
þvi sambandi svokallaðan
„taugagreini”, en með þvi tæki er
hægt að meta ástand sjúklinga
sem hafa orðið fyrir lömun, fá
strax visbendingu um hvaða
vöðva er hægt að þjálfa upp og
staðsetja heilaskemmdir.
Tæki þetta er afar dýrt og þvi
gengst Bandalag kvenna i
Reykjavik fyrir fjársöfnun til
kaupa á tæki þessu og er hún að
fara af stað um þessar mundir.
Skorað er á alla sem hafa áhuga á
að ljá máli þessu lið að hafa sam-
band við félagið.
G
Endurgreidd opínber gjöíd frá 1973:
II
i99
Á ÞARNA EINHVERN
TITTLINGASKÍT
- seglr ungur maður sem fær enga vexti
greidda á upphæð sem bæjaryfirvöld haía
haidið hjá sér í 7ár
Eysteinn Gunnarsson, ungur fyrrverandi Hafnfirðingur, fékk nýlega til-
kynningu um það frá Bæjarskrifstofunum, að hann ætti þar inni ofgreidd
opinber gjöld frá árinu 1973. Þessi upphæð mun vera um 23 þúsund krónur,
sem hefur verið sæmilegur peningur i þá tið, en er ekki mikils virði i dag,
umreiknað i nýar krónur og nemur þvi 230 krónum.
„Nei, ég fæ enga vexti á
þetta”, sagði Eysteinn, er Visir
hafði samband við hann i gær.
„Þeir vilja meina, að þeir hafi
getað haldið þessum peningum
vaxtalaust ailan þennan tima”.
— Ætlar þú að taka þvi þegj-
andi?
„Nei, ég er búinn að láta tala
við lögfræðinga fyrir mig um
þetta og þeir, sem eitthvað hafa
tjáð sig um málið, halda að ég
ætti að fá einhverja vexti,
a.m.k. fjögur siðustu árin eða
svo”.
— Hefur þú nokkuð látið
reikna út fyrir þig, hvað þú
hefðir þurft að borga, ef þú
hefðir skuldað þessa upphæð
allan þennan tima?
„Nei, ég hef ekki reynt það, en
það hefðu verið einhver lifandis
býsn”.
Eysteinn sagði, að hann hefði
flutt frá Hafnarfirði um 1973,
mundi ekki nákvæmlega hve-
nær, og hefði ekki hugsað neitt
út i það, hvort hann ætti þarna
inni peninga, og ef svo hefði ver-
ið, þá reiknað með að þeir yrðu
fluttir á milli eða samband haft
við sig. ,,En þess i stað er mér
tilkynntum það 7 árum siðar, að
égeigi þarna einhvern tittlinga-
skit”, sagði hann.
gk—•
Bæjarskri f siof urn ar i Hafnarfirði:
„EKKI VÍST AÐ HANN
HAFIÁTT ÞETTfl
,,Hann kannaðist ekkert við þessa peninga, maðurinn, hann sagði við
okkur, að hann kannaðist ekkert við þessa upphæð og vissi ekkert, hvort
hann hefði átt þetta inni og hvers vegna hann hefði átt þetta inni og taldi sig
ekki eiga þetta hérna inni. Það er ekkert vist að hann hafi átt þetta inni”.
— Þessi svör fengum við, er
við könnuðum mál Eysteins hjá
innheimtu Bæjarskrifstofanna i
Hafnarfirði. Sú, sem þar varð
fyrir svörum, vildi ekki láta
nafns síns getið, harðneitaði að
gefa það upp, en sagðist þó hafa
rætt við Eystein um þetta mál.
— Ef hann hefur ekki átt
þetta inni, hvers vegna er þá
vcrið að endurgreiða honum
þessa upphæð?
„Þetta er bara inni á hans
nafnnúmeri, hann kannaðist
ekkert við þetta, maðurinn
sjálfur. Ég meina það sko, að ég
talaði við hann, hann hringdi og
það kom i ljós, að hann átti þetta
inni, það þarf ekki að hafa verið
nema nafnnúmerabrengl eða
nafnabrengl og maðurinn kann-
aðist ekkert við þetta. Ef þið
ætlið að grennslast fyrir um
þetta mál, þá get ég gefiö upp-
lýsingar um það, en án þess að
ég vilji nokkuð láta hafa eftir
mér um það i blöð”.
— Þú vilt sem sagt ekki gefa
upp nafn þitt?
„Nei, það vil ég ekki, ég er
ekki neinn blaðafulltrúi fyrir
stofnunina hérna. Þetta kom
bara i ljós, þegar verið var að
takaaf gömlum spjöldum, hvort
sem 1973 voru komin nokkur
r.aínnúmer e&a ekki, eða var
það?
Ég er tvivegis búin að tala við
þennan mann, Eystein Gunn-
arsson, og hann kannast ekkert
við þessa upphæð, hann veit
hvorki haus né hala á henni og
veit ekkert, hvort þetta er rétt
eða ekki rétt”.
— Hvers vegna eru ekki
greiddir vextir af þessari upp-
hæð?
„Það er bæjaryfirvalda að
svara þvi, bæjarráðs eða ein-
hverra. Ég er ekki til að svara
fyrir það”.
— Hvað heföi hann þurft að
borga, ef hann hefði skuldað
ykkur þessa upphæð allan þenn-
an tima?
„Ég svara þvi ekki, af þvi að
ég er ekkert viss um, að hann
hafi átt þetta inni”.
— Þú vilt ekki svara þvi og
heldur ekki gefa upp nafnið
þitt?
„Nei, ég hef haft viðskipti við
ykkur blaðamenn og veit, að þið
getið brenglað öllu i meðförum,
og það er best fyrir engan að
hafa nein viðskipti við ykkur”.
gk—•
777
GEFUR
WYEAR
^RETTA GRIPIÐ
hIheklahf
Lauy.ivecji 170-172 Simi 21240